Tíminn - 05.01.1971, Side 1

Tíminn - 05.01.1971, Side 1
... - . .— m MÉm— MftL JHL ‘~y*£f7rz- pwsyikístmh » FRYSTlSKÁRftB * Z2u*jéí££*xStJiréJUxJ*’ h-£ * sunoKMeauk, tMHMsnuirn ai dp 1 OÓ—Reykjavík, mánudag. Fyrir dyrum stendur a'ð gera gangskör að því að Ieita uppi 100 bíla og eigendur þeirra, sem enn hafa ekkj ver ið skoðaðir, en átti að skoða og greíða gjöld af þeim á síð- asía ári. Hefur hvorki Bifreiða- eftirlitinu né Tollstjóraskrif- stofunni tekjzt að hafa uppi á þessum bílum og mun nú lögreglan leita þeirra og gera böana upptæka hvar sem þeir finnast. Sjálfsagt eru margir ^essara bíla í gangi, en víst er aj búið er að selja einiiverja þeirra sem varahluti og veit Bifreiðaeftirlitið eða Tollstjóra- skrifstofan ekkert hvar númer þeirra eru niðurkomjn. Hefur RU TYNDIR oft komið í ljós, þegar bíl- ar liafa ekki komið til skoðun- ar og farið er að grennslast fyrir um hvar þeir eru, að bíl- arnir eru hreinlega horfnir af sjónarsviðinu. Töluvert er um þaó', að menn selja gamla bíla meðan þeir eru enn með númerum. Eru bílar þessir stundum gangfærir og stundum ekki. Ef kostnaður kann að vera mikill við að gera við þá, selja eigendurnir bílana til niðurrifs, og hverfa bæði bílar og númer. Sé númerum skilað inn, eins og vera ber, þarf ekki að greiða gjöld af bílunum nema fram ag þeim degi, sem númerunum er skil- ad. Það sem þessir rnenn ætla sér, er að segja að þeir hafi selt garmana sína og týnt núm- erunum, eða gleymt að skila þeim inn miklu fynr en raunin er. En mönnum getur orðið hált á slíku háttarlagi. Kaupi maður, sem svona hagar sér, annan bíl, er bitastætt í honum fyrir tollinn. Þeir árgangar, sem nú eru að hverfa úr umferð eru 1955, 1956 og 1957 af amerískum bíl- um, og af austur-evrópskum bílum allt fram að 1962 til 1063 sem verið er að afskrá sem ónýta. Það eru sérstaklega amer- ísku bilarnir sem týnast af skrá núna, því lítio' er orðið til af varahlutum í þá. Er því auðvelt að selja þá til niðurrifs, og bílarnir hreinlega hverfa með númerum og öllu saman. Ekki liggja enn fytrir tölur um hve margir bílar voru af- skrifaðir á síðasta ári. Er ekki enn alveg búið að loka skránni. Nú er verið að leita að þeim sem ekki finnast, hvorki menn né bílar. Eru um 100 menn sem tollurinn er í eltingarleik við, það eru eingöngu þeir sem ekki hafa veriö skoðaðir né gjöld greidd af þeim. Vitað er um að eitthvað af þessum bílum eru enn í akstri. Eigendurnir fara af stað að heiman snemma á morgnana og koma heim seint á kvöldin. Þannig tekst þeim að losna vig starfsmenn tolls- ins. En nú er vetrið að útbúa lista yfir þá bíla sem ekki hefur verið greitt af og númerin eru ekki fyrir hendi hjá opinberum stofnunum. Þegar listinn er til- búinn verður hann afhentuir lögreglunni og verður þá ekki tekið mjúkiega á flóttamönnum og bílum. Þao' er gömul hefð að greiða ekki gjöld af bílum fyrr en að skoðun þeirra kemur. Var það viðráðanlegt þegar bifreiða skráin í Reykjavík var undir níu þúsundum, en nú er verið að skoða fram að jólum. — Gjaldárinu á að skila 31. jan. Yfirlit Halldórs Pálssonar, búnaðar málastjóra um landbúnaðinn 1970: Grasbresturinn mesti ógn- valdur bænda síðustu árin Halldór Pálsson KJ—Reykjavík, mánudag — Ekkert hefur ógnað eins af- komu bænda á undanförnum ár- um, og grasbresturinn á tún- um, segir Ifalldór Páisson búnað- armálastjóri í yfirliti sínu um land búnaðinn 1970, og hann heldur á- fram: „Að slíkt kæmi fyrir, hefði enginn trúað fyrir 6—8 árum. Kal- ið er aðalorsök grasbrestsins, en þótt tún hafi verið ókalin, þá hafa þau víða sprottið illa undanfarin ár. Höfuðorsök þessa er að sjálf sögðu hið kalda tíðarfar, sem ein- kennt hefur síðustu 6 árin, en fleira kemur án efa til, sem dregið hefur úr mótstöðu gróðursins, og sprettu á ýmsum túnum. í yfirliti sínu segir búnaðarmála stjóri að ekki liggi enn fyrir end- anlegar tölur um heyfeng lands- manna á s.l. sumri, en telur, að hann sé 10 — 15% minni en árið 1969, eða minni að vöxtum en um alllangt árabil. Um allt land eru hey óvenju góð, bæði vel verkuð og víða slegin áður en grös trén- uðu. Geigvænlegur uppskerúbrest- ur varð í þeim sveitum þar sem mest var af nýkölnum í túnum. Grænfóðuruppskera varð mun minni en efni stóðu til, og korn- rækt var aðeins stunduð í Rangár- valfasýslu. Á árinu var framleidd 801 lest af grasmjölskögglum í Gunnarsholti og 470 lestir af gras- mjöli. Áætlað er að kartöfluupp- skeran hafi verið um 60 þús. tunn- ur sem er um helmingur af árs- neyzlunni. Gulrófnauppskeran mun hafa verið svipuð og 1969, en fram leiðs’uaukning varð á tómötum, gúrkum og blómkáli, en minna framleitt af hvítkáli og gulrót- um. Sölufélag garðyrkjumanna seldi grænmeti fyrir um 34 mill- jónir, sem er um 8 milljónum meira en árið 1969. Þá ræðir búnaðarmálastjóri um aðstoð við bændur á öskufalls- svæðunum, en aðstoð ríkissjóðs við þessa bændur nemur nú orðið 34.2 milljónum. Þá hefur verið greitt úr Bjargráðasjóði 5.8 Tl- jónir í heyflutningastyrki sam- kvæmt tillögum Harðærisnefndar, en nefndin hefur lagt til að :ánað- ar verði úr sjóðnum 54.6 mil.’jónir til fóðurkaupa í þær sveitir þar sem heyskortur er mestur. I ársbyrjun 1970 sagði búnaðar málastjóri að í landinu hefðu verið 53.370, nautgripir, þar af 35.994 kýr og hafði þcim fækkað um 891 en nautgripum í heild fjölgað um 1.096 frá því árið áður. Sauðfé fækkaði um tæp fjörutíu þúsund miðað við ársbyrjun 1969, og hross um fækkaði um 173, en alls voru í ársbyrjun 1970 780.589 sauðkind- ur í landinu og 34.498 hross. Innvegin mjólk til mjólkursam- Framhald á bls. 14. r——-------------^ Úr Dræftim að Klaustri — til að ná í áætlunar- bílinn til Reykjavíkur KJ—Reykjavík, mánudag. Það er ekki á hverjum degi sem farið er meS farþega úr \ Öræfasveit til Kirkjubæjar- klausturs, í veg fyrir áætlun- arbílinn til Reykjavíkur, en þetta gerðist í gær, er farið var á þrem jeppum vestur yf- ir vötnin á Skeiðarársandi. Um tíu manns beið þess, í Öræfasveit ag komast á vertíð eða í skóla eftir áramótin, og þegar ekki var flogið til Fag- urhólsmýrar, varð að bregða á önnur ráð til að koma fólkinu á áfangastað. Var lagt upp á þrem jeppum vestur yfir vötn in, og fylgdi trufekur þeim vestur yfir Skeiðará, en all mikið vatn var í henni. Tveir jeppanna fóru aðeins að Kirkju bæjarklaustri, þar sem farþeg- ; ar þeirra stigu í áætlunarbíl Austurieiðar til Reykjavíkur. Héldu jepparnir tveir síðan aftur austur í Öræfi, en þriðji jeppinn hélt áfram til Reykja- víkur. HÖRKUFR0ST I EVR0PU KJ—Reykjavík, mánudag. Það er ekki aðcins hér á ís- landi, sem vetur konungur hef- ur látið landsmenn vita ræki- lega af sér í byrjun ársins, því í Mið-Evrópu hafa verið gífur- legir kuldar, og frostið mælzt allt í 40 gráður í Sviss, sem okk ur hér þætti mikið, en mesta frost mældist hér á landi í dag, á Grímsstöðum á Fjöllum, 24 gráður. Hitamismunurinn hér á landi var 19 gráður í dag, en minnst frost mældist á Stórhöfða í Vest mannaeyjum og Reykjanesvita, eða 5 gráður. Víða hefur snjó- að á landinu, eins og til að mynda á austanverðu Suður- landi, en á Kirkjubæjarklaustri var í dag kominn ökkladjúpur snjór, en umferð stærri bíla um’ Mýrdalssand tepptist þó ekki. í Evrópu er víða vandræða- ástand vegna veðursins. Á Spáni er talið að um 50 bæir séu einangra@ir vegna snjóa, en norðan til í ,'andinu hefur ver- ið álíka mikið frost og á Gríms stöðum, eða um 24 gráður. Mikl ir samgönguerfiðleikar eru bæði á Ítaiíu og í Frakklandi, og jafnvel suður á Kanaríeyj- um hefur þessa mikla vetrar- veðurs gætt, þótt ekki sé það þó í miklum mæli. Vegna mik- ils hvassviðris á eyjunum er talið að stór hluti bananaupp- Framhald á bis 14 Hross stóðu í hópum og sneru rössum i vindinn á Suðurlandi á sunnudag, enda blés napurt þá. (Tímamynd Haukur Már Haraldsson) i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.