Tíminn - 05.01.1971, Page 2

Tíminn - 05.01.1971, Page 2
2 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 1971 ÁÆTLUNARFLUG TIL VEST- FJARÐA OG ÞÓRISÚSS ALÞJÓÐAÞING LÆKNANEMA SJ-Reykjavík, mánudag. Undanfarna daga hefur staðið hér yfir fulltrúafundur alþjóða- samtaka félaga læknanema. Sam- tök þessi verða 20 ára næsta sum ar og eiga 44 þjóðir aðild að þeim. 45 þátttakendur frá 20 lönd um sóttu fundinn hér í Reykjavík. Þar var m.a. rætt um skipti á læknanemum milli þjóða, sem sam tökin gangast fyrir, en 5000 lækna nemar fara í slíkar námsferðir til annarra landa árlega. Þá er í ráði að samtökin gangist fyrir að lækna nemar í síðari hluta náms fari til þróunarlanda Afríku og vinni þar að heilsugæzlu. Rætt er um að gefa út alþjóðlegt blað fyrir læknanema, en búizt er við að lesendur þess yrðu um þriðjungur úr milljón. Þá var rætt um lækna menntun, og hafa meðlimir sana- takanna áhuga á, að stúdentar öðlist aukin áhrif í endurbótuoi á læknamenntuninni og endurbót- um háskóla yfixleitt. Aðalfundur samtakanna verður á Nýja Sjálandi í sumar og verða aðalverkefni hans, heilsugæzlu- stéttir, heilsugæzla, mannfjölg- un og loks tvær meginstefnur í læknamenntun í heiminum nú. Forseti samtakanna er James Dunbar; varaforseti Evrópudeild- ar er Andrzej Prokopczuk; gjallk. Peter Cox; formaður fastanefndar um heilbrigðismál Benedikte Pet- ersen; Predrag Banic er fonnað- ur fastanefndar um læknamennt un; og Tim Taylor Roberts formað ur fastanefndar um útgáfustarf- semi. OÓ—Reykjavík, mánudag. j var að koma frá Bandaríkjunuim Þegar Reykjavík var uppljóm-! og verið var að kaupa til landsins. uð af brennum, blysum og flug- Eigandinn er Vængir hf. og er eldum á gamlaárskvöld, lenti á flug von á annarri í samskonar flugvél í vellinum Beechcraftflugvél, sem næstu viku og einnig mun þá BÚKASÝNING j AMER- / /■ ISKA BQKASAFNINU í d;ag, þriðij'udag 5. janúar, verður opnuð sýning á pappírs- 'kiljum í ameríska bókasafninu. Eru þar til sýnis um 1600 bækur af ýmsu tagi.’ sem eíga það eitt sameiginlegt að vera ekki bundn- ar í venjulegt band. Verður sýning þessi opin fram á sunnudag 10. janúar kl. 13—19 alla dagana. Á sýningunni eru bækur um margvísleg efni, svo sem marg- vfslegar listir, þjóðfélagsmál, menntamál. stjórnmál, viðskipti, sögu, bókmenntagagnrýni, leikrit, Ijóð, skáldsögur, heimspeki, sál- fræði, vísindi og tækni, orðabæk- ur, ferðabækur, matreiðslubækur og fleira. Er bókum þessum ætlað að vera sýnishorn af því. sem gefið er út af pappírskiljum eða bókum í vasabókarbroti í Banda- ríkjunum. Bækurnar eru eftir höfunda frá fjölda landa. Nú eru .til á pr,$nti í Bandaríkj- unum yfir 80 þúsund pappírskilj- ur og bætast við á ári.hverju um 10 þúsund titlar. Verða bækur þessar stöðugt mikilvægari þátt- ur í útgáfustarfsemi í Bandaríkj- unum. Fer það mjög í vöxt að bæk ur séu aldrei gefnar út í hörðu bandi og séu því pappírskiljurnar upprunalegar útgáfur frekar en endurprentanir, eins og áður tíðk- aðist. Sérstaklega á þetta við um ýmiskonar kennslubækur og upp- sláttarbækur. Að lokinni sýningu hér, verð.ir sýningin sýnd víða í Noregi og á öðrum Norðurlöndum. Það er mitól lenzka að tala nm styntó. Þeir sem læra fá námsstyrki, og til sjós og iands eru veittir styrk- ir í ýmiss konar mynd. Þá fá skáld og rithöfundiar varla svo fé í hend- ur, að ekki sé komið á það styrkja- nafninu. Þessi nafngift er oftast nær ósæmileg ef ekki alröng, en það er eins og ölmusuhugitatóð sé svo ofar- lega í mönnum, að ekitó verði hjá því komizt að styrkja í stað þess að iauma. Er greitt eigið fé sem styrkur. Nýlega var skipt fé úr rithöf- undasjóði útivarpsins til fjögurra skáida og rithöfunda. Hvarvetna mátti sjá og heyra að verið væri að styrkja þessa ágætu menn, þótt ekki yrði á þeim séð að vesöld drægi þá niður rneira en aðra. Þeir voru ein- faldlega að taka við fé úr sjóði sem þeir eiga sjálfir, en útvarpið geymir samikvæmt sérstöku samkomulagi. Þessir fjórir handhafar fjárins í ár eru sanmarlega vel að sínum pening- um komnir, hver og einn, og ölmusu- menn eru þeir engir, og hafa ektó verið frekar en aörir, sem komið hafa út sem styrkþegair um áramótin af sama fcilefni. Og ráðið er að styrkja meira. I sjónvarpi á dögunum komst kunnur útgefandi og menningair- frömuður svo að orði, að allt mundi komast í strand með skáldstó.pinm, ef höfundar yrðu ektó styrktir. Að vissu leyti eru þetta þörf vamaðar- orð, en spurningin er, hvort höfund- ar þurfi að lúta að öhnusufé fyrir verk sín. Vitað máj er, að bæði ríki og stórar starfsgreinar lifa vel á um^vifum ýmiss konar höfumda, og hreyfa hvorki hönd né fót öðruvísi en fá fuila greiðslu fyrir. Þeir einu sem vinma ektó samkvæmt gjaldskrá eru höfundarnir sjálfir. Auðvitað er bágt ef nú færi að draga úr peminga- veltunni og gróðanum, tæiki „ölmusu- fóllkið" sem veldur upphafinu upp á því að hætta að skrifa. Ráðið er meiri styrkur, meiri ölmusa, því ein- hvers staðar verða þeir sem ldfa á styrkþegunum að taka launin sín. Svarthöfði. koma minni vél, sem félagið hefur fest kaup á. Beechcraftvélarnar taka 9 farþega hvor um sig. Er ætlunin hjá félaginu að hefja í vor áætlunarferðir mieð farþega og vörur til Önundarfjarðar og Dýrafjarðar, og einnig er ráðgert að koma á föstum áætlunarferð- um upp á miðhálendið, eða nán- ast tiltekið að Þórisósi, en þar standa yfir miklar framkvæmdir, eins og kunnugt er og starfar þar fjöldi manna. Einnig er ráðgert að taka upp áætlunarflug til Siglu- fjarðar. Vængir áttu tvær litlar flug- vélar fyrir og hefur stundað leigu- og kennsluflug. Mun lit.'a vélin, 'pi búið er að kaupa og kernur til landsins á næstunni’ einnig verða notuð til þess flugs. en hinar_stærri til áætlunarflugsins. Önnur Beech- craftvélin er þannig útbúin, að breyta má henni í vöruflutninga- vél me® lit.'um fyrirvara. Vélarnar sem Vængir voru að kaupa eru 16 ára gamlar, smíðað- ar 1954. Hafa þær verið notaðar til farþegaflutninga vestan hafs til þessa. Verð flugvélanna er 3,5 millj. ísl. króna, en einnlg voru keyptar þrjár samskonar flugvél- ar, sem notaðar verða í varah.'uti, og eru þær innifaldar í verðinu. Ragnar Kvaran, hjá Fraktflugi, flaug Beechcraftvélinni til íslands og var hálfan annan sólarhring á leiðinni. Mun hann einnig ná í hinar flugvélarnar, sem búið er að festa kaup á. Framkvæmdastjóri Vængja er Hreinn Hauksson. Yfirflugmaður er Þórólfur Magnússon, og flug- maður er Erling Jóhannesson. Ráð gert er að bæta fleiri flugmönn- um við hjá félaginu þegár áætlun arferðir hefjast í vor. AGATHA CHRISTIE HEIÐRUÐ EJ—Reykjavík, mánudag. Um áramótin var hin þekkta Agatha Christie sæmd heiðurs- nafnbótinni „dame commander of the Order af the British Empire“. Agatha, sem er einn ‘ þekktasti höfundur glæpasagna; sem um getur, er nú áttræð að aldri og hefur nýverið gefið út 80. skáldsögu sína. Hún er gift Sir Max Mallow- an, og er því formlega þekkt undir nafninu Lady Mallowan, en getur nú vafið á milli þess nafns og hins nýja titils „Dame Agatha". Best í 6 vikna bann George Best, Manchester Utd., var í gær dæmdur í 6 vikna skil- orðisb. kepppnisb. af dómstól knatt spymusambandsins. Hann var einn ig dæmdur til að greiða 250 punda sekt (50 þús. ísl. kr.). Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut- hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta meS svartri rönd. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. GÚMMÍVINNUSTOFAN H.F. Skipholti 35 — ReykjaVík — Sími 30688 Sólun HJÖLBARÐAVIÐGERÐIR |1 snjómunstur veitir góða spyrnu W í snjó og htílku,. önnumst allar viðgerðir hjólbarða með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarða. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. - Sími 3050T. — Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.