Morgunblaðið - 10.11.2005, Page 6
6
TÍSKA
Þegar við förum út úr húsi erum við oft-
ast með fullt af drasli sem við þurfum að
taka með okkur. Það eru lyklarnir, sím-
inn, seðlaveskið, varasalvinn og kannski
líka snyrtidótið fyrir stelpurnar. Það er
ekkert eins ljótt og sjá fólk með út-
troðna vasa af dóti eða þá með veskið í
rassvasanum svo það borgar sig að finna
sér tösku sem maður getur hent þessu
öllu í og skellt svo upp á öxlina. En þar
sem það er nú ekki beint skemmtilegt að
vera „lúðinn“ í hópnum er ekki nóg að
kaupa bara einhverja tösku sem draslið
passar í og því gott að athuga hvað er í
tísku í vetur.
Veturinn 2005–6 er málið að eiga milli-
stóra tösku úr mjúku leðri eða gervileðri
sem kemur í sveig niður í miðjunni sem
gerir hana eilítið pokalega. Þegar þú
hendir henni yfir öxlina nær hún niður
að mjöðm. Þessum töskum tekst að
geyma hina og þessa hluti og maður get-
ur meira að segja sett tímarit eða bók í
þær ef ferðin er tekin á kaffihús til að
lesa í rólegheitunum. Prófaðu að sleppa
því að kaupa þér hinn klassíska svarta lit
og fá þér tösku í öðrum lit eins og t.d.
sinnepsgula, grænbláa, muskubláa eða
fjólubláa.
Ef þú ert frekar hrifin af klassískum svört-
um og brúnum lit þá eru eilítið ávalar
leðurtöskur með vösum framan á og
stuttri ól sem þú smellir bara upp á arm-
inn málið fyrir þig. Þú verður glæsileg og
ýkt flott með svona stílhreina tösku og
það eru meiri líkur á að þú verðir ekki
leið á henni strax og getir átt hana í svo-
lítinn tíma en þá er líka eins gott að eyða
smá í hana.
Efnistöskur t.d. úr riffluðu flaueli með
köflóttu mynstri eða blómamynstri eru
líka „in“ og eru þær frekar í minni kant-
inum en henta fullkomlega bæði á
djammið og í vinnuna. Þarna geturðu
blandað saman klassísku töskunni og
þeirri pokalegu þar sem þessar eru með
aðeins pokalegu sniði en samt í frekar
dökkum litum þótt þær séu skreyttar t.d.
marglitu blómamynstri.
Ef þú ert að fara að djamma og langar
ekki að fara með pokalegu töskuna þá er
málið að kaupa sér minni tösku, helst
einhverja sem er svolítið áberandi eins
og t.d. með pallíettum eða glans-
steinum, t.d. silfraða og vera þá að-
algellan á svæðinu. Þú getur keypt þér
einhverja ávala og úttroðna í skrauti eða
þá farið í alveg beina mynstraða tösku
með mjög löngu málmbandi í ’80-
stílnum eða þá með málmbandi sem rétt
svo nær yfir öxlina á þér.
Það geðveikasta af öllu er svo að eiga
einhverja skinntösku, jafnvel úr ekta
skinni eins og t.d. kálfskinni eða kan-
ínuskinni. Dýraverndunarsinnar munu
ekki fíla þessa tísku en svona er það bara.
Fyrir þær sem þora heldur ekki alveg í
skinnið en vilja samt tösku með skinn-
mynstri er alltaf hægt að kaupa tösku
með t.d. hlébarða- eða sebraprenti og
þær eru líka oftast ódýrari en skinntösk-
urnar.
TÖSKUTÍSKAN
VETURINN 2005-6
1.
Pallíettutaska.
2.
Skrautlega taska frá
Cerise.
3.
Efnistaska með blóma-
mynstri frá
Accessorize.
4.
Ávalar leðurtöskur frá
Julien MacDonald.
5.
Skinntaska frá
Collection.
6.
Millistór taska frá
Accessorize.
Umsjón
Laila Pétursdóttir
EN HVAÐ ER MÁLIÐ FYRIR STRÁKANA?
Töskur fyrir karlmenn hafa komist meir og meir í
tísku síðustu ár en þó er úrvalið ekki eins mikið fyrir
þá og stelpurnar. Flestir strákar eru kannski ekki til
í að setja dótið sitt í pallíettutösku eða of kvenlega
tösku en samt er nú skemmtilegra að vera með
tösku en vera með dótið í buxna- eða jakkavös-
unum. Það dugar ekki bara að kaupa sér einhvern
íþróttabakpoka heldur er nú skemmtilegra að
leggja aðeins meira í töskuna og spá í hvað sé nú
„cool“. Sendlatöskur eru „in“ fyrir stráka. Töskur
sem í raun rúma bæði A4-blöð og ferðatölvu en
eru þó ekkert endilega mjög látlausar heldur er
flott ef þær eru með aukavösum að framan. Ilm-
andi af góðu og sterku leðri og senda skilaboðin:
„fágaður karlmaður sem hugsar um útlit sitt“. Ef
íþróttastíllinn er samt frekar málið er betra að
sleppa bakpokanum en kaupa sér frekar stóra hlið-
artösku úr leðri eða grófu endingargóðu efni. Þess-
ar töskur eru í raun nokkuð stórar og henta bæði í
„gymmið“ og í ferðalagið.
1
2
3
4
5 6
Þessum töskum tekst að geyma hina og þessa hluti