Tíminn - 24.02.1971, Page 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 1971
iHMSinrnös
í STUTTU MÁLI
oo
o
18 i DSI
Jón Sigurbjörnsson í hlutverki
Hannibals.
Síðasta sýningin á
Herför Hannibals
Fiimntudaginn 25. febrúar
verður síðasta sýning á Her-
för Hanníbals eftir Robert
Sherwood í þýSingu ' Ásgeirs
Hjartasonar. Herför Hanní-
bals fjallar á gamansaman
hátt um þann sögufræga at-
burð, er hinn yfirburða snjalli
hershöfðingi Hanníbal frá
Karthagó sneri frá Róm, þeg-
ar svo virtist sem hinn lang-
þráði sigur væri framundan.
Leikstjóri Herfarar Hanní-
bals var Helgi Skúlason og
leiktjöld gerði Steinþór Sig-
urðsson. Leikendur eru fjöl-
margir en í veigamestu hlut-
verkum eru Helga Bachmann,
Jón Sigurbjömsson og Stein-
dór Hjörleifsson.
Aðalfundur Danskennara-
sambands íslands var haldinn
sunnudaginn 31. jan. s. I. Á'kve'ð
ið var að halda hinar árlegu
sýningar D.S.f. dagana 28.
marz og 4. apríl að Hótel Sötgu,
en Danskennarasamibandið hef
ur genigizt fyrir slíkurn skemmt
unum s. 1. 4 ár.
Á síðasta ári var ákveðið að
D.S.Í. útskrifaði í framtíðinni
danskennara, en nefndir höfðu
verið skipaðar til að undirbúa
prófverkefni. í maí s.l. luku
tvær stúlkur fyrri hluta þessa
prófs.
Danskennarasamband fs-
lands hefur nú starfacJ í 7 ár
og eru meðlimir þess 18. Stjóm
D.S.Í. Skipa nú: Ingitojörg Jó-
hannsdóttir, Ingibjörg Bjöfns-
dóttir, Guðbjörg Pálsdóttir.
Unnur Arngríimsdóttir og Iben
Sonne Bjarnason.
-★-★-
Breti kynnir sér mál
hundavina á íslandi
SB—Reykjavík, föstudag.
Hundavinafélagið hélt aðal-
fund sinn á miðvikudaginn að
Hótel Sögu. Fjölmenni var á
fundinum og þar kom fram, að
þegar undirskriftasöfnun nm
takmarkað hundahald fór fram
í vetur, hafi um 6 þúsnnd
manns skrifað undir. Rætt var
á fundinum, að leita aðstoðar
hundavinafélaga í nágrannalönd
um og fram kom, að væntan-
legur er brezkur maður, sem
þar hefur ræktað ísl. hunda.
Ætlar hann að kynna sér mál
hundavina hér.
í fréttatilkynningu frá Hunda
vinafélaginú segir:
„Fundurinn vottaði Dýra-
verndunarfélagi Reykjavíkur
þakklæti sitt og alveg sérstak-
lega formanni þess, Marteini
M. Skaftfells fyrir skelegga og
einarða baráttu fyrir málstað
hundavina. Jafnframt sam-
þykkti fundurinn einróma að
víta stjórn Dýraverndunarsam-
bands íslands fyrir þá fudðulegu
afstöðu, sem hún tók í umsögn
sinni tU borgaryfirvalda varð-
andi hundahald. En sú umsögn
skilst ekki á annan veg en þann,
að það skuli teljast til dýra-
verndar að drepa alla þá hunda,
sem fólk hefur á heimilum sín-
um og annast af kostgæfni og
alúð. Slík samtök sem hér um
ræðir ætbu að vera minnug
orða dr. Konrad Z. Lorenz, sem
manna mest hefur rannsakað
atferli og sálarlíf dýra, en álit
hans á hundahaldi í þéttbýli er
eftirfarandi: „Þér skuluð ekki
halda að ómannúðlegt sé að
hafa hunda í borgum. Hamingja
hundsins er framar öllu undir
því komin, hve mikið þér getið
verið samvistum við hann, og
hve oft hann getur fylgt yður
á gönguferðum . . .“ Hunda-
vinafélagið telur einmitt hlut-
verk sitt vera það, að vinna að
slíku sambandi manns og
hunds og vernda það samband.“
Stjóm félagsins skipa nú:
formaður Óli Páll Kristjánsson
ljósmyndari, varafonnaður
Jakoto Jónasson læknir, ritari
Guðmundur Hannesson Ijós-
myndari, gjaldkeri Álfheiður
Guðmundsdóttir húsfrú og með-
stjómendur Sigurður Þ. Guð-
mundsson læknir og Ásgeir
Hannes. Eiríksson.
s - ★ -★ -
Námskeið f greiðslu-
áætlunum á vegum
Junior Chamber
SB-Reykjav£k, þriðjudag.
Junior Ohamber í Reykjavfk,
var stofnað 14. nóvember 1967
og 8. desemtoer sama ár. var
Landssamband Junior Chamb
er á fslandi stofnað. JC-hreyf
ingin starfar í 80 þjóðlöndum
og félagar em um hálf millj-
ón á aldrinum 18—40 ára og
er þetta fjöimennasta hireyfing
ungra manna í heiminum. Juni
or Ohamber er hagsmunafélag,
sem styður ekki góðgerðar- eða
framfaramál með f jársöfnun.
Junior Ohamber-hreyfinigin
var stofnuð í Bandairikjunum
árið 1915, og alþjóðasamtoandið
1944. Tilgangur Ihreyfingarinn
ar er að gefa ungu athafna-
fólki kost á auknum kynnum,
samstarfi og stjórnþjálfun.
JC í Reykjavík hefur frá
stofnun þess lagt ríka átoerzlu
á kennslu í fundarsköpum og
ræðumennsku. Undanfarin 3
ár hafa verið haldin stjórn
þjiálfunamámskeið innan fé-
lagsins og hafa sótt þau bæði
yngri og eldri félagar.
námskeið hefur verið haldið á
þessu ári og um mánaðamotin
hefst nýtt námskeið í fundar
sköpum oig í marz verður nám
skeið i greiðsluáætlunum, því
mieiri hluti félagsmanna er úr
verzlunarstétt. Al'.t starf JC ||||
fer fram í nefndum og eru nú
6 nefndir starfandi, sem allar
vinna að ákveðnu verikefni.
Hádegisverðarfundir eru :
haldnir hálfsmánaðarlega og
mikil áherzla er lögð á, að á
hverjum þeirra sé góður ræðu , j
rnaður, sem heldur fróðlegt er-|" '
indi. A fundinum. sem haldinn
var í dag í f>j ótTleikhús'kj allar
anum, talaði Óttar Möller, for
stjóri um samgöngumiál og
svaraði fyrirspurnum fundar-
manna.
Landssamband JC félaga hér
lendis hefur aðsetur í húsa-
kynnum Verzlunarráðs íslands,
Laufásvegi 36 Reykjavík.
★ — ★
mm
★ -
Ruth Reese
KYNNIR NEGRATON
LIST OG LJÓÐLIST
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Norræna húsið hefur fengið
hingað til lands þekkta sörug
konn, Ruth Reese. Húm er af
bandarískum uppruna, en er
gift norsfcum manni og er bú-
sett i Noreigi. Ruth Reese hef
ur árum saman litið á það sem
hlutverik sitt að miðla upplýs
inginn uim forfeður sína og þau
menningarfomi, sem sköpuðust
meðal þeirria, eftir að þeir
stigu á land í Ameríku sem
ánauðugir þrælar. Hefur hún
því ferðazt um með tónlistar-
rabbið „Tónlistarsaga banda-
rískra blökkumanna í 360 ár“
og kirfcjutónleikaefnisskráma
,,Ævi Jesú í ijósi negra-
sálma.“
Ruth Reese mun koma þrí
vegis fram opintoerlega á með-
an hún dvelst hér. Fimmtudag
inn 25. febrúar kl. 20,30 rekur
hún tónlistarsögu blökkumanna
í Bandaríkjunum i 360 ár í
Norræna húsinu. Á sunnudag-
inn, 28. fetorúar kl. 20.30 helá
ur Ruth Reese kirkjutónleika í
Háteigskirkju, og á efnis
skránni er Ævi Jesú í ljósi
negrasálma. Söngkonan hefur
samið inngangsorð og skýring
ar, sem Gunnar Bjömsson,
stud. theol flytur.
Þá má geta þess, að söng-
konan hefur samið nýja efnis
skrá, sem hún vonar að eigi
jafnmiikið erindi á leiksviðið og
í hljómleikasalinn. /Er þar um
að ræða negratónlist, ljóðalest
ur úr verkum nokkurra hlökku
manna, sem eignazt hafa sess
í bandarískri bókmenntasögu,
t.d. Paul Laurences Dunbars,
James Weldons Johnsons og
Langstons Hughes. Á ménudag
inn, 1. marz, kl. 20,30 mun
Ruth Reese koma fram í Iðnó
syngja negrasöngva og lesa úr
verkum blökkumannanna, und
irleik annast Carl Billich.
Miðar að tónleikunum í Nor
ræna húsinu og í Iðnó eru
seldir í aðgöngumiðasölu Iðnó
kl. 14 til 20:30 daglega.
Það er allkunna að læfcnar eru
þöglir um starf sitt o>g hafa eflaust
aMtaf verið, enda vitnað títt í gamla
venju sem minnir á trúnað kaþólskra
presta við sóknarbörn, sem skrifta.
Þveröfugt á þennan trúnað ko-rna
svo krossferðir nútímans gegn sjúk-1
dómum í áikveðnum líffærum, sem
fá á sig kynjaúiyndir í meðförum
fjöimiðla og leikmanna, sem vilja
l'áta gobt af sér leiða. Nú er í vænd-
um ein uppáfcoma í þessum efnum,
sem nefnist hjartavika Evrópulanda.
Samciningin um Evrópuhjartað er
slíkri einlægni bundin, að jafnvel
Rússland hefur boðað þátttöku, og
afturúrlönd eins og Túnis og Aigier.
Sjónvarpsmynd um hjartað er ‘aiin
eiga að ná tii 300 milljóna manna.
Þar er réttilega fjallað um kransæð-
stífluna, og nefnist myndin Plóga
tuttugustu aldarinnar. Nú er margt
á reiki um ástæður fyrir hjartakvill-
um og þess vegna getur verið erfitt
um vik að benda á eitt einstaikt at-
riði, sem t.d. veidur kransæðastíflu.
Öðru máli gegnir um tiivik eins og
iungnakrabba, þar sem sannað t -,ð
reykingar eru valdar að honum. Þó
skiptir þesfcta ebki meginmáli, reldur
hitt, að hin almenna umræða um
sjúkdónia leysir efcki annan vanda
en þann að benda fóllki á að gæta '
heiLsunnar. Hitt vegur þungt, að j
fóllk er nært á óttanum við óum- j
flýjanleg endalok, sem er dauðinn '
sjálfur, friðsamur eða erfiður eftir
atvikum. Eflaust hefur siðvenjan um
að læknar töluðu sem minnst um
sjúkdóma nema í sínum hópi, sprott-
ið af þeirri fullvissu, að óttinn lækn-
ar engin mein.
i Græða á þvi
að selja dnuðann.
En liátum gott heita, fyrst lærðir
menn vilja eyða tíma sínum i að
áiminna fólk um heillbrigt iiferni.
Kínverjar mega gjöra svo v»l að
hlaiupa út í húsagarða sina á morgn-
ana og iðka morgunæfingar sér tii
heilisu'bótair. Sú aithöín er tenigd eins-
konar samiblandi af föðuriandsást og
pólitískri trú. Þessu tvennu er beitt
fyrir viaigninn til að fá fólfcið tíl að
hlýða kialfli heiltorigðinnar, Hér á
Vesturlöndum, þar sem Evrópuhjart-
að sleer, mundi sú rfkisstjóm vera
álitin vitlaus, sem skipaði þegnunum
að sprifcl'a sér til heiisubótar í svo
sem tíu minútur á hverjum morgni.
Það væri talin skerðing á frelsi ein-
stakilingsins o.s.frv. Nú hafa lætkn-
ar margsinnis ben,t á ýmislegt athæfi
í fari manna, sem leitt getur þá til
dauða áður en eðlilegir hrörnunar-
sjúlkdómar ná að vinna verk sitt En
þeir aðilar, sem gætu skipuiagt and-
stöðuna við ótímabæran daui' r'kis-
vaildið sjálft, virðist vera þess alls
ómegnugt að koma læknum tíl hjálp-
ar. Læknasamtök ýmiskonar verða
því að fara venjulega leið á upplýs-
ingamarkaðinn og hamast þar sem
áróðursmenn fyrir sjálfsögðum hlut-
um, og láta síðan ráðast hverjir
hlýða. Sagt er að menn Koluimbusar
hafi skipl á syfilis og lóbaki Þar
borgaði hver fyrir sig. Síðan hefur
þótt sjállfeagt að liæfcna kynsjvikdóm-
inn, en tóbafcsnautnin hefur orðið
gróöavegur, sem hefur skilað ó-
mæidu fé í rfkissjóði ótelijandi lianda.
Og nútímaþjóðfélög ballia á enn fleiri
nautnir, sem flestar eru lifshættu-
legar i breiðri merkingu þess orðs.
Ef einhver alvara fylgdi máli væri
áróðurskaileiiburinn tekinn frá lækn-
um. Sanmað hefur verið að tóbakið
er manninum einna mestur bölvald-
ur fyrir utan óhóflegt áfengi. Slík-
um morðingja mætti vísa úr landi,
eða leggja hann niður við trog. Þá
sæist einhver áramgur. Til að sýna
lit er verið að burðast við að banna
auglýsingar á tóbaki, sem er hlægi-
leg lausn, þegar haft er í huga, að
tóbak er líklega það eina sem fæst
næstum allan sólarhringinn víðast
hvar. Ef ríkisstjórnin bannaði inn-
flutning á tóbafci, þá mætti telja að
barátta læbnanna hefði einhvern
áramgur borið. Em þá taia peningarn-
ir, og þeir tala hærra en allir læknar
heimsins samanlagt. Lækmar geta
þvi ekki annað en haldið áfram að
hamra á ýmiskonar lífshættu með
orðalagi, sem hæfir færustu •’uglýs-
endum. A eftir hjartaviku Evrópu-
landa rnætti vel hugsa sér að fram-
takssöm samtök íslenzk auglýstu
eitthvað, sem héti lungnamánuður
Norðurlands eða gallblöðrudaigur
Suðurlands, að ekki sé talað um
skeifugarnavilku Reytkvíkinga.
N
Svarthöfði.
Skákkeppnin
Svart: Taflfélag Akureyrar:
Jóhann Snorrason og
Margeir Steingrímsson.
vaD0380H
’&itílS^II 8
A r r y ' - £ ug ^
05
o>
ém * !V:í. - fm, mm
m ii&pAi
■
abcdepgb
Hvítt: Taflfélag Reykjavíkur:
Gunnar Gunnarsson
og Trausti Björnsson.
21. leikur svarts: De7—£8