Tíminn - 24.02.1971, Blaðsíða 13

Tíminn - 24.02.1971, Blaðsíða 13
MHJVTKUDAGUR 24. febrúar 1971 t ÍÞRÓTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Nýr landsliðsþjálfari Danmerkur í handknattleik - Varð að temja skap sitt að fá stöðuna! ti Einhver mesti persónuleiki en! liðsþjálfarastöðuna. En stjórn jafnframt umdeildasti maður í dönskum handknattleik, eða jafn- vel dönskum íþróttum — er hinn nýskipaði landsliðsþjálfari Dan- merkur í handknattleik karla — John Björklund, sem undanfarin 2 ár hefur þjálfað 1. deildarliðin Stadion og Efterslægten, en hann hefur nú sagt skilið við Stadion, og Gert Andersen fyrrum fyrirliði danska handknattleikssambands- ins vildi ekki ráða hann, og hefur leitað fyrir sér með þjálfara víða um heim. í síðustu viku gafst stjórnin loks upp, og réði Björk- lund, en það gekk ekki hljóðalaust fyrir sig — hvorki á fundum stjórnarinnar né meðal leik- manna. Það, sem menn finna Björklund landsliðsins og IljG, tckið við því. helzt til foráttu, er skap hans, en liðið kemur hingað í apríl, og Efterslægten kemur að öllum lík- indum hingað um svipað leyti. Björklund hefur komið hingað áður með Efterslægten, og vakti þá furðu allra með framkomu sinni — en hann óð m.a. inn á völl- inn í miðjum leik á Hálogalandi, og skammaði dómarann og ís- lenzku leikmennina á sínu „sér- staka tungumáli"! — klp. BJARNISTEFANSSON TIL SVÍÞJÓÐAR Klp—Reykjavík. því hringbraut er ekki til i Hinum efnilega spretthlaup- neinu íþróttahúsi. ara, Bjarna Stefánssyni, KR, Á sunnudaginn keppir hefur verið boðið að taka þátt Bjarni í 60 metra hlaupi, og í sænska meistaramótinu í verður gaman að vita hvernig frjálsum íþróttum, innanhúss, scm fram fer um næstu helgi. Bjarni heldur utan á föstu- dag, og keppir í 400 mctra lilaupi á laugardag. Verður það honum vegnar, því þar keppa allir beztu spretthlauparar Norðurlandanna. Bjarni á íslandsmetið í 50 metra hlaupinu, 5,8 sek., en s.I. fyrsta 400 metra hlaupið, sem föstudag hljóp hann 50 metr- hann kcppir í innanhxiss. En ana á móti KR á 5,9 sek, og hér á landi cr ekki hægt að var þá ekki á gaddaskóm, held- hlaupa 400 metra innanhúss — ur á flatbotnuðum strigaskóm. Undanfarna ll mánuði hefur Björklund verið orðaður við lands Hvað gera botnliðin í kvöSd? Mp—Reykjavík. f kvöld verða leiknir tveir leik- fr f 1. deild íslandsmótsins í handknattlcik í Laugardalshöll- fatni Eru báðir leikirnir mikil- vaegir fyrir liðin sem taka þátt í þcim, en þau berjast á misjöfnum hæðum í deildinni. Fýrri leikurinn í kvöld er á mRli Fram og Víkings. Fram hef- inr 7 stig, en Víkingur aðeins 3. Vérða Víldngar að sigra í leikn- tan til að komast hjá falli í 2. deild. En þeir eiga einnig eftir afð leika við Val, og má búast við að erfiðara verði að ná stigum þar en gegn Fram. Jón Hjaltalín leikur með Vík- ing í kvöld, og verður fróðlegt að sjá viðureign Fram-varnarinn- ar við hann og félaga hans. Og einnig að sjá hvort Víkings-vöm- inni tekst að halda Axel Axelssyni niðri og að koma í veg fyrir línu- spil Framara. Síðari leikurinn í kvöld verður á milli ÍR og Vals. Valsmenn mega ekki við því að tapa stigi, því þá er FH að mæta, og ÍR- ingar verða helzt að ná sér í stig, ef Víkingur nælir sér í eitt eða tvö stig í leiknum á undan. Það má því búast við mikilli baráttu og skemmtilegum leikjum eins og áður í þessu móti. Eftir leikina i kvöld verður næst leikið í 1. deild 17. marz og síðan 21. marz, en þá lýkur mót- inu með tveim síðustu leikjun- um. það vill stundum „sjóða yfir“ — og þá hefur hann látið ýmislegt fara um leikmenn, dómara, og danska handknattleiksforustu. Marg oft hefur hann ráðizt inn á völlinn í miðjum leikjum, og hellt sér yfir dómara og leikmenn — jafnt úr hans liði sem andstæð- ingsins, og er þá ekki slegið ai orðaforðanum né talað í hálfum hljóðum, enda eru a.m.k. tvö fþróttahús í Danmörku, sem hon- um er meinaður aðgangur að — jafnvel þótt lið hans séu að keppa þar. Björklund hefur lengi haft áhuga á að þjálfa landsliðið, og hefur reynt allt til þess — m.a. með því að reyna að vera prúður og stilltur á leikjum, og er sagt að hann hafi staðið tímunum saman fyrir framan spegilinn og æft sig í að þegja — eða „holde sin mund“, eins og Danimir segja. Þetta hefur nú borið árangur, því að draumurinn hefur rætzt, en hvort það er allt „spegilæfingun- um“ að þakka vitum við ekki. íslendingar fá að öllum likind- . ,. , ..... _... . , . ... um að sjá þennan umdeilda mann JOHN BJORKLUND — fyrir framan spegilinn og æfir sig i að þegia — Það hefur boriS arangur, þvi hann hefur mjög fl jótlega. En danska lands- verlð ráSinn þjálfari danska landsliðsins í handknattlei k en það kom ekki til mála fyrir nokkrum vikum. HINIR UNGU I „HAM“ — 16 ára unglingur og ungur háskólastúdent skoruðu 4 mörk með liðum sínum, Birmingham og Manchester Utd., á laugard. AÐALFUNDUR Aðalfundur handknattleiksdeild ar Fram, verður haldinn í kvöld, miðvikudag, og hefst kl. 21.30 í Domus Medica. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. LEEDS UNITED sýndi ekki merki þess í leiknum við Wolves s.l. laugardag, að það hafi verið slegið út úr bikarkeppninni s.l. laugardag, af 4. deildarliðinu Colchester. Leeds, sem lék án Sprake markvarðar og Bremner fyrirliða, komst yfir á 18. mín. leiksins með marki Allan Clarke. Þcgar 21 mín. voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Paul Made- ley annað mark Leeds og um 10 mín. síðar bætti Johnny Giles, sem átti frábæran leik, þriðja markinu við, úr vítaspyrnu. — Nú þegar búið er að slá Leeds út úr báðum bikarmótunum, getur liðið einbeitt sér að sigri í 1. j deildinni, sem það á mikla mögu-: leika á — en auk þess er Leeds j komið í 8-liða úrslit í Evrópu-j keppni borgaliða. Ungur háskólastúdent að nafni Alan Gowling, afrekaði það í leik með liði sínu, Manchester Utd., að skora 4 mörk, þar af 3 á 9 mín. í fyrri hálfleik. Gowling þessi vekur eftirtekt á leikvelli fyrir fremur klunnalega tilþurði, en hann er stór og sterikur og alveig óhræddur við að þjóta inn í varn- arvegg andstæðinganna. Vara- markvörður Southampton, Sandy Davie, er lék í stað Eric Martin í þessum leik, mun lengi minnast framtaks Gowlings til leiksins. Hitt mark United skoraði Willie Horgan eftir sendingu frá Best. Jimmy Gabriel skoraði eina mark Southampton. „Derby“-leikurinn í Liverpool, sem að þessu sinni fór fram á Goodison Park, að viðstöddum 54 þúsund áhorfendum, var sá 104. í röðinni. Bæði Iiðin lögðu áherzlu á varnarleik, enda sýndu báðir varnir góðan ieik — en það sem Everton-liðið nafði fram yfir lið Liverpool var beittari og bet- ur skipulagður sóknarleikur, þó svo að ekkert rnark hafi verið skorað í leiknum. Ray Clemence átti góðan dag í Liverpool-mark- inu og mátti þakka honum, öðrum fremur, að Liverpool hlaut annað stigið úr viðureigninni. Dómari leiksins, Ken H. Burns, varð skyndilega veikur og í hálfleik var honum ráðlagt að fara ekki inná í þann síðari. Hann var ekki alveg á því, að þeysti inn á völl- inn, en hafði haft hlutverkaskipti við annan línuvörðinn — og var því línuvörður það sem eftir var leiksins. Þá eru það úrslitin í 1. deild- inni á laugardaginn: Arsenal — Ipswich Blackpool —Derby Crvstal P. — Coventry Everton — Liverpool Leeds — Wolves Manch. Utd. — Southampt. Newcastle — Tottenham Nottm. F. — Burnley Stoke — Chelsea WBA — Huddersfield West Ham — Manch. City Staðan í hálfleik í leik Arsenai og Ipswich var 3—0, heimamönn- um í vil. Charlie George sýndi 3—2 0—1 1—2 0—0 3—0 5—1 1—0 1—0 1—2 2—1 0—0 RAY CLEMENCE — bjargaði öðru stiginu fyrir Liverpool. mjög góðan leik og skoraði fyrsta mark leiðsins með skalla aftur fyrir sig, eftir sendingu George Armstrong. Annað markið skoraði John Radford, eftir sendingu frá Ray Kennedy — en þriðja markið fyrirliðinn Frank McLintock með skalla eftir hornspyrnu Arm- strongs. í síðari hálfleik mættu leikmenn Ipswich mjög ákveðnir til leiks og skoruðu þá tvö mörk — Mick Lambert hið fyrra, en Framhald á bls. 14. H S I LaugardalshöII H I. DEILD ísiandsmótiÖ ■L I KVÖLD Fram — Víkingur W KL. 20.15 jValur —Í.R. Dómarar: Gestur Sigurgeirss. Haukur Þorvaldss. Sigurður Bjamason Kristófer Magnúss. m handknattleik Komið og sjáið spennandi keppni

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.