Tíminn - 25.02.1971, Blaðsíða 1
LJÓSA
PERUR
Dvtöfia/ivcZaA. A/
BAFTŒKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, SlMI 18395
46. tW.
— Fimmtudagur 25. febrúar 1971 —
55. árg.
4 þús. lestir af loðnu á leiðinni
Ríkisverksmiðjur
standa enn tómar
15 aurar greiddir umfram lágmarksverð
Loðna hafði í dag borizt til
Austfjarða sem hér segir:
Hornafjörður: Borizt höfðu
4.500 tonn, en nokkrir bátar
biðu löndunar.
Stöðvarfjörður: Borizt höfðu
1600 tonn, en Álftafell og Heim-
ir voru á leiðinni með 650 tonn
samtals.
Eskifjörður: Borizt höíðu
2.850 tonn, en fimm bátar voru
á leið með fullfermi, samtals
1500 lestir. Þeir eru: Eldborg-
in, Héðinn, Loftur Baldvinsson
og Seley.
Neskaupstaður: Borizt höfðu
4.000 tonn, en fimm bátar voru
á leiðinni með samtals 1600
tonn. Þeir eru: Súlan, Reykja-
'borg, Bjairtur, Birtingur og
Magnús.
Djúpivogur: Borizt höfðu
900 lestir, en tveir bátar, Gissur
Hvíti og Dagfari, voru á leið-
inni tneð 600 tonn samtals.
Fáskrúðsfjörður: Borizt höfðu
1850 tonn, en Hilmir og Akur-
ey voru með 600 á leiðinni.
Seyðisfjörður: Til Hafsíldar
höfðu borizt 1100 tonn en Ás-
berg og Ásgeir voru með 650 á
leiðinni.
Samtals hafa borizt, eða eru
á leiðinni til verksmiðja á Aust
fjörðum, 22.400 tonn af loðnu.
Eins og kunnugt er hefur
Verðlagsráð sjávarútvegsins á-
Framhald á 14. sío*u.
'• ______________________________ ...
Eldflaugin reist á skotpalllnum f Eldborgarhrauni I gær.
(Timamynd Gunnar)
Jakob Frímannsson
valur Arnþorsson
Geimskoti
frestað
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Nemendur Menntaskólans við
Hamrahlíð reyndu að senda eld
flaug sína á loft í dag, en fyrsta
tilraun mistókst vegna einliverra
bilana í kveikju eldflaugarinnar.
Þegar gera átti a'ðra tilraun var
veður orðið svo vont í Eldborgar
hrauni, þar sem henni skyldi skot
ið á loft, að fresta varð skotinu
fram í næsta mánuð.
Félagar í Fræðafélagi mennta
skólans fluttu eldflaugina í Hlíðar
dalsskóla í gær, en í morgun
fluttu þeir hana á skotstaðinn í
Eldborgarhrauni milli Geitafells
Framh á 14 sioa
Jakob lætur af störfum
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Jakob Frímannsson, kaupfélags-
stjóri KEA, lætur af störfum nú
á miðju árinu og við tekur Valur
Arnþórsson, núverandi aðstoðar-
kaupfélagsstióri. Þetta var til-
kynnt á Félagsráðsfundi KEA, sem
haldinn var á Akureyri í dag. Á
fundinum kom fram að vörusala
í búðum félagsins hefur aukizt j
um 34% í krónutölu frá fyrra
ári.
Félagsráðsfundur KEA er hald
inn árlega snemma árs og er eins
konar auka-aðalfundur. Þar er ,
gerð grein fyrir reikningum fé- j
lagsins, þótt þeir séu enn ekki |
endanlega frágengnir. Fundurinn
hófst í morgun að Hótel KEA og
lauk síðdegis. Fundarstjóri var i
kjörinn Hafliði Guðmundsson.
Formaó*ur stjórnar, Brynjólfur
Sveinsson, tilkynnti í byrjun fund
ar, að Jakob Frimannsson, fram
kvæmdastjóri KEA, hefði með
bréfi 14. desember s.l. sagt upp
kaupfélagsstjórastarfinu frá
miðju árinu að telja. Stjórn KEA
fór þess þá á leit við Val Arn-
þórsson, núverandi aðstoðarkaup
félagsstjóra, að hann tæki við
kaupfélagsstjórast., og varð hann
við þeim óskum, þótt ekki sé
fullgengið frá formsatriðum við
ráðningu hans.
Að þessu loknu flutti Jakob
Frímannsson skýrslu sína varðandi
störf kaupfélagsins á lii.’nu ári og
þar kom m. a. fram, að vöru.sala
i búðum félagsins á Akureyri og
við Eyjafjörð heíur aukizt um
34% í krónutölu og sala verk-
smiðja, ýmissa þjónustu- og sölu
deilda jókst um 20%. Kaupfélags
stjórinn taldi, að með þessari
miklu söluaukningu væri líklegt
að rekstur félagsins í heild yrði
ekki óhagstæó'ari en árið 1969.
í Kaupfélagi Eyfirðinga eru
hátt á 6. þúsund manns og félags
deildir þess við Eyjafjörð og
raunar víðar eru 24. Allar þessar
deildir hafa rétt til að kjósa sér
fulltrúa á félagsráðsfund og voru
fulltrúar flestra deilda mættir.
Söluhæstu deildir félagsins á
s.l. ári eru Nýlenduvörudeild, sem
seldi fyrir 201 milljón króna. Olíu
söludeild, 104 millj og Rvgginga
vörudeild 93 millj.
Loftleiðaflug yfir Atlantshaf
Falla takmark-
anir úr gildi?
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
ir Viðræðum fulltrúa íslands annars vegar og fulltrúa SAS-
ríkjanna hins vegar um flug Loftlciða er lokið, og var ekki gengið
frá neinu sérstöku samkomulagi. Það þýðir, að bókunin frá 1968
um takmarkanir á ferðum og sætafjölda fellur úr gildi 1. aprfl
næstkomandi, og að um flug Loftleiða gilda eftir þann tima loft-
ferðasamningarnir milii íslands og SAS-ríkjanna og hluti bókunar
frá 1960, sem kveður á um IATA-fargjöId milli fslands og
Skandinavíu, en hins vegar þau fargjöld milli íslands og Banda-
ríkjanna sem Loftleiðir fá skrásett í Bandaríkjunum.
★ Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri, sem er í Kaupmanna-
höfn þar sem viðræðurnar fóru fram, sagði í símaviðtali í dag, að
hann teldi að þessi niðurstaða myndi ekki hafa áhrif á flug Loft-
leiða til að byrja með, og að Loftleiðir gætu áfram haft lægra
verð á Bandaríkjaleiðinni. Hins vegar væru í loftferðasamningun-
um ýmis ákvæði, sem SAS-ríkin gætu notað til að takmarka flug
Loftleiða, en hann teldi að fyrst muni reyna á, hvort SAS-ríkin
grípi til slíkra takmarkana þegar Loftleiðir hefja þotuflug til
Skandinavíu. Aðspurður sagðist hann telja, að það yrði í fyrsta
lagi í haust.
Eftir fundinn í dag var gef
in út eftirfgrandi sameiginleg
yfirlýsing:
„Dagana 23. og 24. febrúar
fóru fram í Kaupmannahöfn
viðræður milli fulltrúa íslands
annars vegar og fulltrúa Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar
hins vegar um flug Loftleiða
til og frá Skandinavíu, þar á
mcðal um þotuflug. Viðræð-
urnar fóru fram í vinscmd, en
ekki var gengið frá samkomu-
lagi.“
Þegar blaðinu barst þessi til-
kynning, hafði það samband
við Brynjólf Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóra, í Kaupmanna-
höfn, en hann tók þátt í við-
ræðunhm af okkar hálfu, og
spurði hann nánar um niður-
stöðu viðræðnanna.
— Þetta þýðir, að bókunin
frá 1968 fellur niður 1. apríl
næstkomandi, og að ekkert
sérstakt samkomulag kemur í
staðinn, sagði Brynjólfur.
Framhald á 14. síöu.
KJ—Neskaupstað, EJ—Reykjavík, miðvikudag.
ir Loðnan streymir nú til verksmiðjanna fyrir austan, og í dag
voru margir bátar með um 4000 lestir á Ieið til lands, flestir með
fullfermi. Loðna er nú brædd í öllum verksmiðjum fyrir austan
nema verksmiðjum ríkisins, sem standa tómar — hvernig sem á
því kann að standa. _______ ■
ic Þótt Verðlagsráð sjávarútvegsins hafi ákveðið að verð á loðnu
í bræðslu skuli vera 1.25 krónur hvert kíló, greiða allar verksmiðj-
ur fjTÍr austan 1.40 á kílóið, þ.e. bæta 15 aurum við verðið. Munu
bæjarfélögin sum hver leggja fram sérstaka fjárveitingu til þess
að standa straum af hluta þessarar verðhækkunar.