Tíminn - 25.02.1971, Blaðsíða 10

Tíminn - 25.02.1971, Blaðsíða 10
10 TIMINN FIMMTUDAGUR 25. febrúar 1971 THOMAS DUKE: NINETTE 21 Það tiafð'i efcki verið til þess að ná sér í áfeogi a'ð hann yfirgaf Wivi áðan. Hin djúpa, sanna ástæða var Ninette. Hún hafði dularfullt vald yfir honum. Hann hafði á tilfinningunni að jafnvel undir hennar heitustu kossum væri hún fyllilega raunsæ, allt væri fyrirfram hugsacA. Hvað hann snerti, var „grein, sem kraftur var í“ allt og sumt, seim hún sóttist eftir. Hann opnaði gætilega hurtðna. Wivi lá á bakinu með hendurnar niður með síðunum, eins og barn. Hann gat séð að hún hafði grátið. Allt hafð'i þetta verið honum að kenna frá byrjun. Hann gat ekki búizt við því að hún tæki mál- tíðina með Grikkjunum sem gam- ansemi, þótt Grikkirnir hefðu hegðað sér óaðfinnanlega. Svo var það til viðbótar ao' bjóða henni uppá áfengi. Hann rak allt í einu augun í bakka með jarðarberjum, sem stóð á náttborðinu hennar. Við hlio'ina var blómvöndur og og kort. „Frá Charles" stóð á því. þetta var fuilmikió' af því góða. Ætlaði þessi hársmyrslastrokni skussi að fara að gera sér títt við Wivi á bak við hann. Hann fann heiftina fara um sig, og áfcvað að gefa Charles ráðningu, svo um munaði, næst þegar hann sæi hann. Hann hlustaó'i um stund á hinn reglulega adardrátt hennar. Það hafði ekki verið heiðarlegt gagn- vart henni, að heimsækja Ninette. Hann hafði mikið samvizkubit. Neó'an frá stofunni mátti heyra Wright-hjónin hrjóta, og hið takt- fasta tikfc í vekjaraklukkunni hélt lengi vöku fyrir honum. Þegar hann loksins sofnaði var komin morgunskíma. Upp úr miðjum morgni kom sím- skeyti til Hardy. Hann reif það upp í skyndi: Afsakið stop Vígslunui frestað stop Heilbrigðisvottorð vantar stop Séndiráðið Marseille. Hann hrukkaði ennið, þetta var strifc í reikninginn. Veizluna höldum við þrátt fyrir allt, taut- aði hann í hálfum hljóðum við sjálfan sig. Hann ætlaði ekki að eyðileggja hátíðina fyrir Wivi með því að segja henni frá símskeyt- inu. Hann brosti, þetta hafði ver- ið yndislegur morgun. Hún grét að vísu, en þau höfðu sætzt heil- um sáttum undir mörgum tárum. Hún sagðist ætla að reyna að skilja hann. En einu varð hann að lofa og það var að bjóða henni ekki um borð aftur til þess að neyta „galeks" með Grikkjun- um. Það var ekki lengi að berast um hafnarhverfið að halda ætti brúð- kaup um borð í „Thermopylai". Larsen skipstjóri lagði til veizlu- salinn og siifurborðbúnaðinn. Bæði hann og Maríus höfðu ver-1 ið uppi í Zanzi Bar til þess að skipuieggja veitingarnar. Larsen skipstjóri gekk bölv- andi og ragnandi fram og til baka um afturdekkið. Þetta var óbrigðult merki þess að hann væri í góðu skapi. Þetta var ein- ungis bundin orka, sem fékk sína útrás á þennan hátt. Maríus var niðri að skreyta veizlúsalinn. Sally hafði lokað á Welcome Bar allan daginn, en var tekin við stjórninni í elda- klefanum á snekkjunni, og lék við hvern sinn fingur. Enginn fékk leyfi til þess að hjálpa henni. Jafnvel Maríusi, sem hafði „carte blanche“ hjá henni, var vísað á bug með votum rembingskossi. ! Brúðkaupsmiðdaginn vildi hún í sjálf og ein setja saman. Hann var ,,un secret“, eins og hún komst að orði. Maríus hafði stung- ið túlípönum í húfuna sína um morguninn. til hátíðabrigðis, en þeir visnuðu þegar fram á daginn kom, og héngu niður á andlitið. I sjöunda himni dinglaði hann þannig til og frá um snekkjuna, og líktist einna helzt vanhirtum grafreit. Hann útnefndi sjálfan sig siðameistara, og fékk lánaða gúmmíkyflu hjá þeim Gamla, af því tilefni. Hún hékk við beltið til taks hvenær sem þurfa þótti. Við og við fékk Marius sér sæti, viíti fyrir sér verk sín, blóma- skreytinguna, og sá að þau voru harla góð. Hann gaf gúmmíkylf- unni hornauga, og klappaði henni síðan með ást og aðdáun. Fyrir endanum á salnum hafði verið komið fyrir di'ykkjuborði, þar sem gestirnir gátu fengið sér hressingu að vild. Á aðalborðinu ljómaði og skein silfurborðbúnaðurinn. Maríus gekk hægt og gagnrýninn um- hverfis borðið. Þegar hann sá silfurdisfc, sem ekki fékk náð fyrir hans augum, tók hann disk- inn upp, spýtti á hann og neri hann með olboganum, þangað til han gat séð sitt eigið brosadi andlit í hinu fægða silfri. Hann var fyrir löngu búinn að vígja dr.vkkjuborðið, til þess að gera sér grein fyrir gæðum vörunnar. Það var komið undir kvöld. Uppi á bryggjunni stóð hópur manna frá ýmsum snekkjum, og töluðu hátt. Larsen skipstjóri hafði gefið þá skipun út, að hver sá, er vildi koma um borð, afhenti vússt magn af áfengi. Þá, sem komu vínlausir bæði hið ytra og innra, gerði hann tafarlaust aftur- reka. Árangurinn varð sá að hinn litli, útvaldi hópur, sem hann af mikilli kosbgæfni hafði valið í þjónustu Bakkusar, var til þess sérlega hæfur að mæta fyrir hvaða drykkjuheimili sem vera skyldi. Flissandi og bölvandi slöngruðu þeir niður í veizlusalinn, þar sem Maríus stóð með gúmmíkylfuna. Svona, svona drengir. takið þið það rólega. Þið getið fengið ykkur hressingu þarna við drykkjuborðið. en aðeins tveir i einu. Urrandi gengu þeir í röð, vtveir og tveir, en Maríus afgreiddi. Ein stöku sinnum varð hann að grípa um handfangið á kylfunni til að haida uppi reglu, til dæmis vildu þeir tveir fyrstu alls ekki yfir- gefa drykkjuborðið. Sally snaraðist inn í salinn. — Getið þið ekki hegðað ykkur sæmilega drengir. Brúðhjónin koma eftir augnablik, og vonandi stillið þið svo til að þeim verði unnt að sitja með okkur til borðs. Kliðurinn lækkaði, og það var aug ijóst hve mikið tillit þeir tóku til Sallyar. Allmifcill fyrirgangur átti sér stað á dekkinu. Larsen skipstjóri var að skilja að þá „þurru" og þá „blautu“. Heyra mátti mót- mælahróp þeirra vínlausu, þegar þeim var fleygt í land. Eftir stundarkorn kom heill herskari af hinum „útvöldu" niður stigann. Það voru Rússar, Bretar, Frakkar og Skandínavar. Vífcið fyrir hinum nýkomnu gestum, kallaði Maríus, og bægði hópnum, sem stóð fvrir framan hann, frá borðinu með kylfunni. Maríus leit á klukkuna nú, þau gátu komið á hverri stundu. Hardy hafði lofað að koma jekki seinna en um átta-leytið. — Drengir, eigum við ekfci að taka á móti heiðursgestunum me'ð því að syngja eitt lag Uppástungunni var svarað með fagnaðaröskri. En samtímis heyrð- ust eymdarleg vein ofan frá dekk- inu. Larsen skipstjóri hefði rek- izt á Grikkina, sem enginn hafði munað eftir í ringulreió’ undii’- búningsins. Larsen skipstjóri hvessti á þá augun með fyrirlitningu, greip i kragann á þeim eineygða, og sparkaði honum umsvifalaust nið- ur landganginn. Hafðu þiig í land, þitt svarta svín, og látt.u strjúka af Þér jarðarfararsvipinn. Hinir Grikkirnir gengu á eftir honum niður landganginn, undr- andi og ruglaðir yfir því hvaó' af- neitun á neyzlu áfengis getur leitt til. í þessum svifum gegnu þau Hardy og Wivi inn í salinn. Wivi var glæsileg ásýndum, í svörtum kjól, sem átti ákaflega vel við hinn fíngerða persónuleika hennar. Hið ljósa hár var teki'ð saman með silfurdjásni. Larsen skipstjóri runvdi af ánægju þegar hann sá hana, en Hardy lézt hann ekki sjá. — Velkomin um borð unga dama, sagði hann loðmæltur, er fimmtudagur 25. febr. Tungl í hásuðri kl. 13.48 Árdegisliáflæði í Rvík kl. 06.22 FTTlTI ,S1 OÆZI.A Slysavaiðstofan • Borgarspitalan an et opin óllan sólarhringinn Aðeins möttaka slasaðia Simi 81212 I SÍökbviliðií' ng sjukrahifreiðii "vi ir Revkiavfb ns KOpavoc <im> 11100 Sjúkrahifreið i Hafnarfirðl simi 51336 Almennar upplýslngai am læ.'.-ta þjónustn i ho'-glnnl eru eefnai símsvara Læknafélaas Revk'avn ur. slm. 18888 Fæðingarhelmiiið • K0pavo>r> Hli'ðarvegi 40. simi t2K»4 Tawinlaiknavakt er i Heilsuvr-rm. ' stöðinnl þav sem Slvsavarðst.o an var, og er opin lauaardagi >•- sunnudaga kt 9—P e h Stm 22411 Kopavitgs Apotek ei opl' daga kL 9—19, laugardaga Kl >■ ux ia_ia Kefiavikiij ApOteb « optr vtrkc daga fcL 9—19, laugardaga fc! q—14 heleidasa 13—15 AnOteh -iafnarfjarðai w opið allv virka daga frá fcl 9—7. á laug- ardögum kl 9— 2 og á sunnu- lögum og öðrum helgidögum er opið frá kl. 2—4 Mæmisóttarbólusc'nine fyrir full- orðna fer fram 1 HeSuverndar stöð Reykjavíkur á mánudögum kl 17—18 Gengið inn frá Bar ónsstíg. yfir brúna. Kvöld- og helgarvörzlu Apóteka í Reykjavík vikuna 20. — 26. febrúar annast Ingólfs-Apótek og Laugarnes-Apótek. Næturvörzlu í Keflavík 25. 2. annast Arnbjörn Ólafsson. ÁRN^Ð HEILLA Halldóra Guðlaugsdóttir verðúr áttatíu ára 26. febrúar. Heimili hennar er að Miðengi Grímsnesi, Arnessýslu. Hún verður að hciman. 75 ára er í dag Sæmundur Guð- jónsson hreppstjóri, Borðeyrarbæ Bæjarhreppi Strandasýslu. Hans verður nánar minnzt síðar í íslend ingaþáttum Tímans. TRÚLCFUN 19. fébrúar opinberuðu trúlofun sína Jónína Lilja Jóhannsdóttir og Hannes Jóhannsson, Hverfisgötu 104c. RIjÖÐ qg tímarit GEÐVERND 3.-4. hefti 1970. Efni: Spjall við lesendur, Ásgeir Bjarnason. Samræmd endurhæf- ing, Tónvas Helgason prófessor. Félagsleg áhrif og fíknilyf, Þórður Möller yfirlæknir. Samfélagslækn- ingar, Asgeir Karlsson læknir. Sólheirnar í Grícnsnesi, Sigríður Thórlacius. Skálatúnsheimilið, Gréla Bachmann. Þeir vangefou tilheyra líka samfélaginu, Gertrud Schýlbiurman. Iliálnartæki tií að mæla framfarir vangefinna, Krist- inn Björnsson sálfræðingur. AGSLÍF Félagsvist ný fimmkvölda keppni hefst í kvöld í félagsheimili Lang- holtssafnaðar. Verið með frá byrj- un. Óháði söfnuðurinn. Félagsvist næstkomandi fimmtu- dagskvöld, 25. febrúar, kl. 8,30. Góð verðlaun. Kaffiveitingar. K.en féiag og Bræðrafélag safnaðarins. Aðalfundur kirkjunefndar Kvennadeildar Dóm- kirkjunnar verður haldinn í Skáta- heimilinu, Hallveigarstöðum (g“ng- ið inn frá Öldugötu). fimmtudag inn 25 febrúar kl 2,30. Stjómin Kvenfélag Hreyfils. Fundur verður að Hallveigarstöð- um fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 8.30 María Dalberg, snyrtidama, kemur á fundinn. — Mætið stund- víslega og takið með ykkur gesti. GENGISSKRÁNING Nr. 18 — 16. febrúar 1971 1 Bandar. dollar 87,90 88,10 1 Sterlingspund 212,55 213,05 1 Kanadadollar 87,15 , 87,35 100 Danskar kr. 1.174,44 1.177,10 100 NorskaT kr. 1.230,70 1.233,50 100 Sænskar kr. 1.696,94 1.700,80 100 Finnsk mörk 2.109,42 2.114,20 100 Fransbir fr. 1.593,80 1.597.40 100 Beig. fr 177,15 177,55 100 Svissn. fr. 2.045,00 2.049,66 100 Gyliini 2.443,80 2.449,30 10(1 V-þýzk mörk 2.421,00 2.426 42 100 Lírur 14,10 14,14 100 Austurr. sch. 339,35 340,13 100 Escudos 308,55 309,25 100 Pesetar 126,27 126,55 100 Rekningskrónur Vöruskiptalönd 99,86 100,14 1 Reikningsdollar — Vöruskiptalönd 87,90 88,10 1 Reikningspund — Vöruskiptalönd 210,95 211,45 T IO i/ Lárétt: 1) Bjórgerð 6) Klukku 7) Spé 9) Ái 11) Öfug röð 12) Keyrði 13) Egg 15) Labb 16) Keyrðu 18) Fátæktar. Krossgáta Nr. 743 Lóðrétt: 1) Gamalmennis 2) Matargeymsla 3) Err 4) Land 5) Hrekkur 8) Borð- haldi 10) Gekk burt 14) Reipa 15) Tóm 17) Sagður. Lausn á brossgátu nr. 742: Lárétt: 1) Vietnam 6) Róa 7) Rár 9) Mas 11) SS 12) LK 13) i/as 15) Ætu 16) Öls 18) Nagllnn. Lóðrétt: 1) Verzlun 2) Err 3) Tó 4) Nam 5) Miskunn 8) Asa 10) Alt 14) Sög 15) Æsi 17) LL.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.