Tíminn - 16.03.1971, Side 1

Tíminn - 16.03.1971, Side 1
[ 62. tbl. Þriðjudagur 16. marz 1971 — 55. árg. Bergþóruqote 3 Símar. 19032 — 200» XkftÁ h~f UnttMUU. HAFNARSnum 3X t*m itaw Sönn frétt eða bara danskt grín? SJ—Reykjavík, mánudag. Danska blaðið Aktuelt skýrði frá því 10. þ.m. að salan á geirfgulinum til íslands hefði vakið áhuga meðal safnara, einkum vegna hins háa verðs, sem greitt var fyrir hann á upp boðinu hjá Sothbys. Hefði safn ari nokkur í Bretlandi nú látið sérvcrzlun í Lundúnum hafa tvo uppstoppaða geirfugla og 13 geirfuglsegg í umboðssölu. Tíminn hafði í dag samband við dr. Finn Guðmundsson fuglafrœðing vegna fréttar þess arar, sem var einnig í íslenzka útvarpinu í dag. Sagði hann að sér þætti fregnin áikaflega ótrúleg. „Ég veit ekki til að geirfuglar séu til í einkaeign, og sómu skoðunar voru sérfræð ingar British Museurn," sagði Finnur. „Ég veit um mann í Wales, sem á 12—13 geirfugls egg, en ég vissi. ekki til að hann ætti geirfugT og _ mér finnst ótrúlegt að hér sé um hann að ræða. Það væri fróðlegt að fá sönn ur á hvort einhver fótur er fyrir þessari frétt eða hvort þetta á að vera einhvers kon ar danskt grín hjá blaðinu. En eitt er víst, eins og fram hef ur komið í skrifum Politiken, að Danir sáu eftir áð missa geirfuglinn úr landi.“ ' - ——-------- Útvarpsumræður frá Alþingi í kvöld EB—Reykjavík, mánudag. Útvarpsumræður frá Alþingi um þá tillögu Magnúsar Kjartansson- ar og Geirs Gunnarssonar að hreinsitæki verði sett upp í ál- hræðslunni í Straumsvík, fara fram annað kvöld, þriðjudags- kvöld, og hefjast kl. 20. Af hálfu Framsóknarflokksins tala þeir Eysteinn Jónsson, Þórar- inn Þórarinsson og Jón Skafta- son. — Pétur Sigurðsson og Jó- ’nann Hafstein tala fyrir hönd Sjálfstæðisfl. Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartansson tala af Framhald á 11. síðu. íslendingaþættir koma út á morgun „Handknattleiks- maður ársins“ - Kosningin hefst í dag Sjá bls. 13 „Ég hef alltaf unnih of metnaði fyrir ísl. bændur" sagði Þorsteinn Sigurðsson, er hann sleit 53. búnaðarþingi í gær og lét af formannsstörfum AK, Rvík, mánudag. — 53. bún- aðarþingi lauk í gær og hafði þá staðið í þrjár vikur og afgreitt um 50 mál. Mörg mikilvæg mál hafa legið fyrir þinginu, og lief- ur sumra þegar verið getið, en annarra verður getið næstu daga. — f þinglokin var kjörin ný stjórn Búnaðarfélags íslands. Þorsteinn Sigurðsson, sem verið hefur for- maður félagsins sJ. 20 ár. gaf nú ekki lengur kost á sér lil stjórn- arkjörs. í stað hans var kjörinn í stjórnina Iljörtur E. Þórarins- son bóndi á Tjörn í Svarfaðardal, en endurkjörnir með honum Ás- geir Bjarnason og Einar Ólafs- son. Stjórnin mun síðan skipta I með sér verkum, væntanlega á fyrsta fundi sínum í dag. í varastjórn voru kjörnir Magn ús Sigurðsson bóndi á Gilsbakka, Siggeir Bjömsson í Holti og Jón Helgason bóndi í Seglbúðum. í hússtjórn Bændahallarinnar voru kjörnir Þorsteinn Sigurðsson og Ólafur E. Stefánsson. Þorsteinn Sigurðsson kvaddi búnaðarþingsmenn með snjallri ræðu þar sem hann leit yfir liðna tíð í starfi fyrir samtök bænda og sagði meðal annars, að hann hefði ætíð unnið að málcfnum ís- lenzks landbúnaðar með sannan metnað efst í huga. Hann þakkaði hinum mörgu samstarfsmönnum sínum mikil og góð samskipti, sem ekki bæri skugga á. Ýmsir búnaðarþingsmenn tóku til máls og ræddu um hin miklu, og gifturdrjúgu störf Þorsteins í þágu íslenzkra bænda, og þökkuðu honum forystustörfin. Kom þar meðal annars fram, hve mi'kinn hlut Þorsteinn hefði átt að bygg- ingu Bændahallarinnar. Að lo'kum þakkaði Þorsteinn hlý orð og góðar óskir í sinn garð, árnaði búnaðarþingsfulltrúum góðrar heimferðar og alls velfam- Framhald b bis. 1L Þorsteinn Sigurðsson AK, Rvík. mánudag. — Á Bún- aðarþingi í dag og s.l. laugardag urðu miklar umræður um erindi stjórnar Bændahallarinnar um stækkun Hótel Sögu. Á laugardag- inn var flutt frávísunartillaga um málið, en hún var felld með jöfn um atkvæðum, 14 gegn 14. f dag var svo að lokum samþykkt eftir- farandi ályktun með 13 atkvæð- um, en tólf sátu hjá: „Búnaðarþing ályktar_ að fela stjóm Búnaðanfélags íslands í samráði við stjórnir Stéttarsam- bands bænda og Bændahallarinnar að tryggja lóð fyrir stækkun hús- rýmis Bændahallarinnar. Ennfrem ur verði kannaðir möguleikar á að fá innlent fjármagn til fram- kvæmda, ef til þeirra yrði stofn- að. Þá verði gerð kostnaðaráætl- un um rekstrarafkomu Hótel Sögu, miðuð við þá stækkun, sem hag- kvæmust þykir. Þingið leggur áherzlu á að ekki komi annað framlag til viðbygg- ingarinnar af hálfu bænda og bændasamtakanna en tekjuafgang- ur af rekstri Bændahallarinnar. Að lokinni þeirri athugun, sem að framan greinir, verði þær nið urstöður lagðar fyrir Búnaðar- þing til endanlegrar á’kvörðun- ar.“ Tillaga þessi kom fram frá fjár hagsnefnd þingsins, og var Jón Gíslason framsögumaður hennar. en aðrir flutningsmenn Sig. J. Lín dal, Sigmundur Sigurðsson, Pétur Pétursson. Einar Ólafsson, Grirnur Amórsson og Ásgeir Bjarnason. Nýkjörin stjórn Búnaðarfélags íslands. F, v, Ásgeir Bjarnason, Einar Ólafsson og 'Hjörtur E. Þórarinsson. Tekinn í 12. sinn en: LANDHELGISBROTUM FÆKKAR OÓ—Reykjavík, mánudag. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, sagði í dag, að síðast li'ðin tvö ár hafi verið gengið fast eftir að land- helgissektir væru innheimtar og hefur landhelgishrotum fiskibáta stórfækkað síðan. Þeir skipstjórar, sem dæmdir eru, vcrða að sctja tryggingu fyrir sektinni, að öðrum kosti cru vciðarfærin tekin af þeim. Nú fyrir áramótin var mikið greitt af landhelgissektum. Sýslumenn og bæjarfógetar sjá um að innheimta skuldirnar. Sektirnar eru misháar. Fara þær eftir stærð bátanna og eðli brotanna. Forstjórinn sagði, að það hafi greinilega skipt sköp um í þessum málum þegar far ið var að ganga eftir með hörku að sektirnar væru greidd ar, en áður létu skipstjórar sér ekki segjast þótt þeir væru staðnir að landhelgisbrotum og dæmdir, því þeir gengu að því sem vísu að ekki yrði geng- ið eftir að fullnægja dómun- um. En þeir skipstjórar sem verið er að taka öðru hverju eru nær alltaf sömu mennimir, sem virðast ekki geta haldið sig utan við fiskiveiðilögsög- una, þótt það sé vafasamur gróði að verða dæmdur aftur og aft- ur fyrir landhelgisþrot, þó að stundum megi fá imeiri og verð Framhald á bls. 11

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.