Tíminn - 16.03.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.03.1971, Blaðsíða 3
MtlÐJUDAGUR 16. marz 1971 TIMINN 3 Þýfið fannst á heimili sak- bomings, en hann neitar OÓ—Reykjavík, mánudag. 25 ára maður situr nú í gæzlu varðhaldi, grunaður um innbrot og þjófnað, en liann neitar öll- um sakargiftum, þrátt fyrir að allt þýfið er fundið í kjallara hússins, sem hann býr í, og var það vel*falið þar. I fyrstu var manninum ekki sagt frá að þýf- ið væri fundið og kærði hann gæzluvistarúrskurðinn til Hæsta réttar, sem ákvað að úrskurð- urinn skyldi óbreyttur standa. Það var aðfararnótt 7. marz, að birotizt var inn hjá fimm fyr- irtækjum að Suðurlandsbraut 12. Var stolið þar alls kyns varningi. Grunur féll á ákveð- inn mann og var hann hand- tekinn og úrskurðaður í 30 daga gæzluvarðhald mánudaginn 9. marz. Kærði maðurinn úrskurð- inn strax til Hæstaréttar. Næsta dag fann lögreglan þýfið í kjall- ara hússins sem maðurinn býr í. Eru það 11 rafmagnsrakvélar, Carmen hárliðunartæki, vasa- ljós, myndavél, segulbandstæki og sitthvað fleira. Samt sem áð- ur þrætir maðurinn og segist vera saklaus, og kveðst engar skýringar þurfa að gefa á því, sem finnast kann í húsi hans. STJÚRNUNARFÉLAG AUST- URLANDS STOFNAÐ JK—Egilstöðum, mánudag. Sl. föstudag var haldinn í Vala- skjálf stofnfundur Stjórnunarfé- lags Austurlands. Félagssvæði þess er Austurlandskjördæmi. Stofn- fundurinn var haldinn að tilhlut- an Stjórnunarfélags íslands, en nú eru 10 ár frá því það félag var stofnað, og fyrir tveimur og hálfu ári var stofnað Stjórnunarfélags Norðurlands. Forráðamenn Stjórn- unarfélags íslands hafa haft áhuga á að stofna stjórnunarfélög i öll- um landshlutuim, og hafa undirbú- ið stofnun stjórnunarfélags hér sl. tvö ár, en undirbiining hafa ann- azt þeir Jakob Gíslason, orkumála- Tveir bæjarbrunar um helgina FB—Reykjavík, mánudag. Tveir húsbrunar urðu úti á landi aðfaramótt sunnudagsins. íbúðar- húsið að Vatnshlíð í Bólstaðahlíð brann og sömuleiðis bærinn í Döl- um í Hjaltastaðaþinghá. tbúðarhúsið að Vatnshlíð í Ból- staðahlí® brann til kalda kola að morgni sunnudags sl. Eldurinn kviknaði um kl. 11 um morguninn. Húsið var múrhúðað timburhús og menn og menn af næstu bæjum búnir að slökkva eldinn að mestu. Tókst þeim að verja 3000 lítra olíu- tank, sem var skammt frá bænum, og sömuleiðis útihús, sem einnig voru stutt frá. Húsið er mjög mik- ið skemmt af eldi og reyk, og nán- ast ónýtt. 1 Dölum bjuggu öldruð hjón, Ingvar Guðjónsson og kona hans, ?n þríbýli er á jörðinni, og búa tveir synir hjónanna þar líka, en þó ekki í sama húsi. Veður var mjög slæmt og áttu menn því í miklum erfi'ðleikum, bæði við að komast á staðinn og við slökkvistarfið sjálft. Rok var af norðaustan og snjókoma. Slökkvi liðsbíllinn frá Egilsstöðum fór á eftir jeppanum og veghefill á und- an, en ferðin gekk seint þrátt fyrir það. stjóri og Sveinn Björnsson fram- kvæmdastjóri Iðnaðarmálastofnun- ar íslands. Stofnfélagar Stjórnunarfélags Austurlands voru 42, einstaklingar og ein stofnun, Landsbanki íslands. Föstudaginn 12. marz var fyrri- hluti stofnfundar haldinn, og lögð fram lög félagsins og þau rædd. Á laugardag var haldið námskeið á vegum Stjórnunarfélags íslands, en þetta námskeiö hefur veri® hald ið 8 sinnum til þess að kynna starf- semina. Á námskeiðinu leiðbeindi Benedikt Antonson, skrifstofustjóri Seðlabanka íslands um fram- kvæmd greiðsluáætlana. Námskeið ið stóð allan laugardaginn. A sunnu daginn, 14. marz, var haldinn fram- haldsstofnfundur, og gengið endan- lega frá lögum félagsins og kosin stjórn, en stjórnina skipa Matthías Gu®mundsson, bankastjóri Útvegs- banka Islands á Seyðisfirði. for- maður; Pétur Blöndal, Seyðis- firði, ritari; Magnús Einarsson, Eg- ilsstöðum, gjaldkeri og til vara Guðmundur Karl Jónsson, bæjar- stjóri á Seyðisfirði, og Páll Hall- dórsson á Egilsstöðum. Umdæmi félagsins var skipt í fimm svæði, sem stjórn félagsins er kosin úr til skiptis, og er skipt Framhald S bls U breiddist eldurinn óðfluga út. Áð- ur en húsið varð alelda var hringt í Varmahlí® og tilkynnt um eldinn. Var sendur slökkviliðsbíll þa®an að Vatnshlíð og einnig var beðið um-aðstoð frá Sauðárkróki Ug fór slökkviliðið þaðan á sta®inn. Þegar slökkviliðið frá Varmahlíð kom að Vatnshlíð varð ekki við neitt ráðiið og síðar, þegar slökkvi- liðið frá Sauðárkróki kom, var hús- ið komið að falli. Litlu var bjarg- að af innanstokksmunum. Slökkvi- liðið lagði áherzlu á a@ bjarga skepnuhúsum og hlöðu, sem stóðu skammt frá íbúðarhúsinu. I Vatnshlíð býr Karl Eiríksson ásamt eiginkonu sinni og eiga þau tvö börn. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél. Um eittleytið a@fararnótt sunnu- dags kom upp eldur að bænum Dölum í Hjaltastaðaþinghá, er hjónin, sem eru öldruð, voru ný- gengin til náða. Síminn á bænum var bilaður, og gekk því illa að nátil næstu bæja, en þar var vak- ið upp. Náðist að lokum í slökkvi- liði® á Egilsstöðum um kl. hálf þfjú. Slökkviliðið lagði þá af stað frá Egilsstöðum með litla dælu og slöngur í jeppabílum, á undan sjálfum slökkviliðsbílnum, en versta veður var og mikil ófærð. Ekki komst slökkviliði® á staðinn fyrr en um kl. fimm. Þá voru heima S. Helgason hf. STEINIÐJA Einholti 4 Sfmar 76677 og 14254 ^Fataverzlun fjölskyldunnar Hvernig býr ríkis- valdið að atvinnu- rekstri úti á lands- byggðinni? Sl. sunnudag birtust hér í blaðinu viðtöl við forystumenn í atvinnu- og félagsmáluni á Stöðvarfirði. M.a. er Guðmund- ur Björnsson spurður um að- stöðu atvinnurekstrar á Stöðv- arfirði. Segir hann að pappírs- vinna, sem hið opinbera leggi á atvinnurekendur sé alltof mik- il. Ennfremur segir Guðmund- ur: „Flestar breytingar sem gerð ar eru á pappírssysteminu, miða í þá átt, að gera það erf- iðara og stirðara. Við getum tekið sem dæmi, ef ég þarf að flytja inn mjölpoka undir loðnumjöl, rotvarnarefni í hrá- efni, eða eitthvað annað sem þarf til framleiðslunnar, þá er það gert manni ótrúlega erf- itt. Það er þá fyrst, að varan kemur til Reykjavíkur erlendis frá, nema um því meira magn sé að ræða. Þaðan er hún svo flutt hingað austur, 'en ekki á Stöðvarfjörð, því þar er ekki tollhöfn. f flestum tilfcllum kostar nærri því eins m'kið að flytja vöruna utanlands frá og til Reykjavíkur og þaðan og hingað austur. Þá er enn eftir kostnaður við að flytja vöruna frá tollhöfninni og hingað til Fáskrúðsfjarðar. Nú það er ekki allt búið enn, því að nú á eftir að leysa vör- una út. Samkvæmt tilskipun frá tollyfirvöldum, er algiör- lega óheimilt að tollafgreiða aðrar vörur nema innfiutnings- pappírar séu undirritaðir af innflytjanda sjálfum. Það þýð- ir, að þegar búið er að greiða vöruna í banka, verð ég að fá pappírana senda hingað, og út fylli tollskjöl, senda þau til baka til sýslumanns á Eskifirði ásamt upphæðinn’ sem greiða á Svo get ég lika farið til Eski- fjarðar og gengið frá þessu öllu þar í einu, en þá tekur það mig bara heilan dag, en það er kannski skárra heldur en ef pósturinn er notaður. þá tekur þetta um hálfan mánuð. miðað við austfirzkar póst,- samgöngur. og iafnvel enn lengri tíma hér sunnar á fjörðunum. Fólkið er með — En svo eru það kostirnir við að stunda atvinnurekst.ur hér? — Á svona smærri stöðum höfum við það fram yfir stærri staðina, að atvinnurekendurn- ir hafa i flcstum tilfellum fólk ið með sér. Allir, sem vinna í kringum framleiðsluna. hafa á- huga á að allt gangi vel, og það kemur til af því, að fólk- ið verður virkilega vart við, hvort gengur vel eða illa. Þetta hef ég fundið vel í mínum at- vinnurekstri, og fólkið vill að hluturnir gangi. Það sem háir okkur svo mik- ið, er vöntun á fjármagni til uppbyggingar, og vitlaus skatta Iöggjöf og síðast en ekki sízt óvissan um' hráefnið. — Hvar koma samgöngurn- ar inn i þetta dæmi? Framhald á bls. IX 9Í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.