Tíminn - 16.03.1971, Page 4
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 16. marz 1971
2 i ■
m í B *
1 q lo
|/> /J /V , P
W * /7 P
wT á . r h
Lárétt: 1) Meira sykruð 5) Borð-
haldi 7) Stafur 9) Álít 11) Friður
12) Röð 13) Verkur 15) Fæðu 16)
Egna 18) Karldýr.
Krossgáta
Nr, 759
Lóðrétt: 1) Sót 2) Dropi 3)
Hasar 4) Bók 6) Partur 8)
Rugga 10) Borða 14) Ást-
fólgin 15) Virti 17) Svín.
Lausn á krossgátu nr. 758:
Lárétt: 1) Noregs 5) Ern 7)
Tef 9) Ýsa 11) At 12) Ós 13)
Raf 15) Hik 16) Ári 18)
Stakur.
Lóðrétt: 1) Nýtari 2) Ref 3)
Er 4) Gný 6) Vaskur 8) Eta
10) Sói 14) Fát 15) Hik 17)
Ra.
BÍIASKODUN & STILLING
Skúlagötu 32
MÓTORSTILLINGAR
HJÓL ASTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR
LátiS stilla i tíma. 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0
Komum í heimahús og mælum, teiknum og skipu-
leggRim að kostnaðarlausu eldhúsinnréttingar og
fataskápa Skipuleggium einnig eftir húsateikning-
um Gerum fast verðtilboð i eldhúsinnréttingar.
með eða án stálvaska og raftækia. fataskápa. mni-
og útihurðir. sólbekki og fleira Bylgiuhurðir. —
Greiðsluskilmálar —
Eina sérverzlun með íbúðainnréttingar Margra
ára reynsla
Verzlunin óðinstorg h.t.. SkótavörSust. 16.
Simi 14275. — Kvöldsimi 14897.
Lán fyrir tóbaki
Vi'ð íslendingar fyllumst jafn
an réttlátri reiði, þegar illa er
um okkur talað, eða grín að okk
ur gert, á erlendum vettvangi.
Ég veit ekki, hvort við erum
viðkvæmari end aðrair þjóðir,
eða kannski er það aðeins smæð
okkar, sem veldur því, a'ð við
þolum mjög illa gagnrýni af
hendi útlenzkra.
Stórþjóðirnar mega þola það,
að næstum öll heimsbyggðin
tali illa um þær og gagnrýni
allar athafnir þeirra, jafnt í ut-
anríkis- sem innanríkismáluim.
Þannig er það í tízku núna að
gagnrýna Ameríkanann fyrir
flest, sem hann aðhefst. Sumir
segja, að það séu reyndar Am-
eríkanar sjálfir, og þá sérstak-
lega unga fólkið, sem ýtt hafi
undir þessa gagnrýni á erlend-
um vettvangi.
Hér vestan hafs eru aðgerðir
yfirvaldanna mjög miki'ð gagn-
rýndar. Nixon, forseti þjóðatr-
innar, kvartaði yfir því á blaða-
mannafundi í síðustu viku, að
sjónvarpsfréttamenn héldu uppi
stöðugum áróðri á móti stefnu
stjórnarinnar í Indó Kína. Svo
munið þið eflaust eftir árásum
Agnúa, varafocrseta, á frétta-
flutning fjölmiiðlunartækjanna.
Það er nefnjlega svo skrícið
hérna í henni Ameríku, að
stjórnin hefur ekkert málgagn.
Stjórnmálaflokkarnir halda ekki
út blöðum og eiga ekki sjón-
varps- eða hljóðvarpsstöðvar.
Vitanlega taka mörg blöðin af-
stöðu, en þá oftast fyrir kosn-
ingar, og mæla þá með vissum
frambjóðendum við lesendur
sína. Sum blöð eru álitin hægri
sinnuð en önnur vinstrisinnuð.
Samt er þetta ekki einhlítt, og
er erfitt fyrir almúgann að átta
sig á því.
Sá flokkur ,sem stjórn ræður
á hverjum tíma, verður því að
koma skoðunum sínum á fram-
færi með öllum hugsanleguin
ráðum. A undanförnum árum
hefir sjónvarpið verið einna
mikilvægast í þessu tilliti. En
sá böggull fylgir þar skammrifi.
að samkvæmt landslögum eru
sjónvarpsstöðvar skyldar til að
láta stjórnarandstöðunni í té
jafnlangan tíma og stjórnar-
mönnum.
Til dæmis má nefna, þá er
Nixon kemur fram fyrir samein-
að þing og reyndar alþjóð, því
atburðinum er jafnan sjónvarp-
að. Hann skýrir frá ástandi og
horfum og stefnu stjórnarinnar,
jafnt í innan- sem utanríkismál-
um. Demókratar fá á eftir, vana
legast strax næstu viku, tima í
sjónvarpi til að „svara“ ræðu
forsetans og skýra frá stefnu-
málum sinum.
Sumir hörðustu gagnrýnend-
ur Banlarikjannna ganga svo
langt að líkja Nixon við Hitler
e'ða Stalín. Ilvernig skyldi þeim
einræðisherruim hafa gengið, ef
þeir hefðu orðið að leyfa and-
stæðingum sínum afnot af ríkis-
útvarpinu til að gagnrýna stefnu
stjórnarinnar og túlka skoðanir
sínar? Hver hefði orðið gangur
sögunnar, ef Hitler og Stalín
hefðu orðið að búa við frétta-
flutningskerfi, sem sífellt hefði
verið reiðubúið til að gagnrýna
allar gerðir þeirra?
Það er langt frá því, að ég
sé að leggj-a blessun yfir alla
stefnu Nixons og stjórnar hans.
Ég er aðeins að reyna að skýra
ykkur frá þessu undarlega kerfi,
sem ég hætti spint að verða
hissa á. Þetta er víst kallað
málfrelsi eða fréttafrelsi.
Ég byrjaði þennan dálk á því
að tala um það, hve hörundsárir
við íslendingar værum, þegar
um okkur væri ritað eða talað
erlendis, án þess að um hól eða
skjall væri að ræða. Við fyll-
umst, að því er okkur finnst,
réttlátri reiði. Svona fylltist ég
um daginn. Ástæðan var lítil
umsögn í ritstjóa’nardálkum hins
útbreidda blaðs, „The Wall
Street Journal“. Greinin birtist
23. febrúar.
Hér var reyndar um að ræða
það, sem ég var að tala um hér
að ofan, gagnrýni á bandarísku
stjórnarvöldin, en víð aumlngj-
arnir vorum dregnir inn í slag-
inn. Höfundur skensar stjórnina
fyrir tvískinnungshátt í sígar-
ettumálum, og segir hana tala
tungum tveim. Á annan bóginr
berjist hún gegn sígarettureyk-
ingum, en á hinn bóginn styðji
hún bæði tóbaksræktun og
sígarettusölu.
Stjórnarvöldin hafi um ára-
bil varað fólk við skaðsemi reyk
inga og haldið uppi skelegg-
um áróðri. í nokkur ár hafi
framleiðendur vindlinga mátt
prenta viðvörun á hvem pakka.
Um síðastliðin áramót hafi svo
gengið í gildi lög um bann við
sígarettuauglýsingum í útvarpi
og sjónvarpi.
En svo er það hin hliðin, sem
greinarhöfundur virðist ekki
vera vel ánægður með. Hann
sakar landbúnaðanráðuneytið
um að styðja og styrkja tóbaks-
ræktendur, og reyna eftir
fremsta mætti að hjálpa vind-
lingaframleiðendum til að auka
útflutning á sígarettum. Til
stu'ðnings máli sínu nefnir
hann eftirfarandi: „Það (land-
búnaðarráðuneytið) hefir aug-
sýnilega ’gengið svo langt, að
veita íslandi $1.374.000,00 lán
með vægum kjörum til kaupa
á bandarískum sígarettum fyr-
ir þegna sína. Þetta nemur um
$7,00 á hvern mann, konu og
barn á íslandi."
Ég veit, að nú eruð þið líka
orðin full af réttlátri reiði. Þið
skuluð fara beint upp í Tóbaks-
einkasölu og krefjast ykkar
$7,00 virði af sígarettum, sem
ykkar réttmæta hluta af þessu
höfðinglega láni Bandaríkja-
manna!
Þórir S. Gröndal
SANSO
PA-112
sjálfvirkar,
fyrirferðarlitlar,
JAPANSKAR
VATNSDÆLUR
með innbyggðum
rafmótor og þensiu-
kút.
Verð kr. 5.812,00.
RAFGEYMAR
Framleiðsla: PÓLAR H.F.
ALLAR
STÆRÐIR
RAFGEYMA
í
DRÁTTAR-
VÉLAR
FYRIR-
LIGGJANDI