Tíminn - 03.04.1971, Side 16

Tíminn - 03.04.1971, Side 16
(Talið frá vinstri) Gunnar, Holgeir og GuSmundur, meS toppinn, sem brást svo illilega á örlagastundu. ’’ (Tímamynd Gunnar) Slys um borð í Búðafelli frá FáskrúSsfirði EINN HRÖKK FYRIR BORÐ OG 2 LENTU í SPILINU Laugardagur 3. apríl 1971. Klukknaspil Hallgríms- kirkju afiient FB—Reykjavík, föstudag. Síðdegis í dag voru formlega afhentar 29 kirkjuklukkur, klukknaspil, sem kom í vikunni til landsins, og verður sett upp í Hallgrímskirkju. Klukknaspil þetta getur leikið sjálfkrafa lög, sem stenzluð hafa verið inn á plast- band, og hafa átta slík lög orðið fyrir valinu. í klukknaspilinu eru 29 klukk- ur eða bjöllur, þ.e.a.s. 29 tónar, frá tvístrikuðu c til ferstrikaðs f. Við spilið er raftengt tvöfalt hljómborð, sem leikið er á líkt og á píanó eða sembal. Leika má einradda eða fleirradda eftir vild, og hvenær sem óskað er. Af lögunum átta, sem klukk- urnar geta leikið, má fyrst nefna svonefnt „la-g kirkjunnar,“ en það er lagið „Víst ertu, Jesús, kóngur klár,“ í hljómútsetningu dr. Páls ísólfssonar. Þetta lag mun hljóma kl. 12 á hverjum virkum degi ársins. Hin lögin eru valin í samræmi við hring kirkjuárs- ins og munu heyrast á sunnudög- um og hátíðum. Á sunnudögunum í aðventu leikur klukknaspilið hinn fornfræga lofsöng „Veni Redemptor Gentium" („Nú kem- ur heimsins hjálparráð“), á jól- unum „Heiðra skulum vér Herr- ann Krist“, á sunnudögunum eft- ir þrettánda „Um Hann, sem rík- ir himnum á“, um föstu „Faðir vor, sem á himnum ert“, á pásk- unum „f dauðans þöndum Drott- inn lá“, á hvítasunnu ,,Kom, Skap ari, Heilagi Andi“, en á sunnu- dögunum eftir þrenningarhátíð fer klukknaspilið með íslenzkt tvísöngslag við vers Hallgrims Péturssonar „Gefðu, að móður- málið mitt. . .“ Þeir, sem gefið hafa klukkur eru: Vinnveitendasamband íslands, Félag ísl. iðnrekenda, Landssam- Framhald a 14 sí&u OÓ—Reykjavík, föstudag. Búðafell SU 90 frá Fáskrúðsfirði kom til Neskauþstaðar seint í gær- kvöldi og voru þrír skipverjar lagðir þar inn á sjúkrahúsið. Tveir eru illa slasaðir, en hinn þriðji, sem féll fyrir borið, en náðist, er heill heilsu. Varð slysið úti á mið- unum, er spil bátsins fór allt í einu i gang og lentu stýrimaður og vél- stjóri í spilinu, en einn háseti, sem var að vinna við netin, hrökk fyr- ir borð. Hann náðist fljótlega. Hin- ir mennirnir liggja á sjúkrahúsinu á Neskaupstað. Sjópróf vegna slyssins hófust á Fáskrúðsfinði í dag. Gísli Einars- son, fulltrúi sýslumanns á Eski- firði, sagði Tímanum í dag, að enn lægi ekki ljóst fyrir, með hvaða hætti slysið varð. Það var um átta- leytið í gærmorgun, sem spilið fór einhverra hluta vegna af stað, en með hvaða hætti er ekki vitað, því ekki voru aðrir viðstaddir en þeir, sem eru á sjúkrahúsinu og hafa þeir ekki verið yfirheyrðir. Annar maðurinn, sem liggur, er handar- brotinn og marinn og snúinn á fæti, hinn er skaddaður á lunga og mik- ið marinn, en ekki talinn lífshættu- lega meiddur. Verið var að hífa netin og var drekinn kominn inn, og fór þá spilið í gang á einhvern hátt, en það var stöðvað rétt á meðan drek- inn var tekinn inn fyrir. Einn mann- annan kastaðist útbyrðis, en náð- FB—Reykjavík, föstudag. Þriðja páskasýning Mynlista- og handíðaskóla íslands hefst í Skipholti 1 á laugardaginn. Sýn ingin hefur hlotið nafnið Örlaga- teningurinn, og eru þarna sýnd- ar 23 myndir eftir Finn Jónsson, abstrakt-myndir, sem eru frá ár- unum 1921 til 1925. Tveir nem- endur úr hinni svokölluðu Aka- demíu Myndlistaskólans, þeir Hall mundur Kristinsson og Örn Þór stcinsson hafa séð um uppsetningu og allan undirbúning að sýning- unni, en það er einmitt eitt af verkum þeirra, sem í Akademí- unni eru, að sjá um páskasýning- ar skólans, en þær hófust fyrsta árið, sem Akademían starfaði við Skólann. í Akademíunni sitja nemendur, sem áður hafa lokið burtfararprófi úr Myndlistaskól- anum, og eru venjulega tveir til þrír nemendur í henni. f sýningarskrá að sýningunni Örlagateningurinn segja þeir Hall mundur og Örn: Á þeim bylting- artímum, sem við lifum, þykir ok'kur við hæfi að draga fram í dagsljósið þau framúrstefnuverk Finns Jónssonar, sem undrun og jafnvel skelfingu vöktu fyrir nær fimmtíu árum. Á sýningu, sem hann hélt í Reykjavík í nóvem- ber 1925, komu margir af fjöll- um. Þar voru flestar þeirra mynda. sem hér eru nú sýndar. Þær eru gerðar á árunum 1921 til 1925 og bera meðal annars vott um hin nánu kynni Finns af Sturm-hreyf- ingunni þýzku. Voru þær á þcss- um tíma byltingartilraun í ís- ienzkri myndlist, og getur því hver svarað fyrir sig, hvort þær ist fljótt með krókstjaka. Annar mannanna festist í spilinu en hinn fékk högg á brjóstið. Enginn sjón- arvottur var a® þessu og verður ekki hægt að yfirheyra mennina fyrr en síðar. Sá, sem hrökk fyrir borð, segist ekkert hafa vitað, fyrr en hann fékk högg og svamlaði í köldum sjónum. En enginn skip- verja sá hvernig hinir mennirnir tveir slösuðust. Framhald á bls. 14 standi ek'ki enn fyrir sínu. Það er von okkar að af þessari sýn- ingu megi draga nokkurn íær- dóm, að hún megi verða til ánægju um leið og hún vekur verðskuld- aða athygli á brautryðjendastarfi Finns Jónssonar fyrir fimm ára- tugum. Á sýningunni eru 23 myndir, olía, klippmyndir, akvarella, túss, kolteikning og blýantsteikning. Finnur sagði á fundi með blaða- mönnum, að þessar myndir hefðu allar verið á sýningunni í Reykja- vík fyrir 46 árum, og þá hefði enginn verið svo vitlaus að kaupa þær, sem betur fer, því nú ætti hann þær allar sjálfur og gæti sýnt þær hér í þetta sinn. Finn- Rætt við „Geimvísindamenn" úr Menntaskólanum við Hamrahlíð: ,Æ\m AÐ REYNA AFTUR* ET—Reykjavik, föstudag. Eins og frá var skýrt í Tím- anum í dag, gerðu nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð aðra tilraun sína til geimskots — og enn mistókst þetta fyrsta tilrauna- géimskot Íslendinga. Blaðamaður Tímans náði tali af þeim Holgeir Mássyni, Guð- mundi Gunnarssyni os Gunnari S. Jónssyni, er hafa, ásamt Garð- ari Mýrdal, form. Fræðafélags M. H., unnið hvað mest að undir- búningi geimskotsins. Voru þeir fyrst spurðir að því, hvort þetta misheppnaða skot hefði ekki vald- ið þeim vonbrigðum. — „Nei, ekki verulegum" svar- aði Holberg, sem hafði orð fyrir þeim félögum. „Að vísu hefði vel- heppnað skot orðið hápunkturinn í öllum undirbúningnum, en sú reynsla og þekking, er undirbún- ingsvinnan færði okkur, er okk- ur mun meira virði. Þá er sá samihugur, sem náðist meðal okk- ar „geimvísindamannanna", al- gerlega ómetanlegur." — „Hvað fór úrskeiðis á hinu örlagarika augabliki?" — „Augnablikið" stóð nú nokk ug lengi eða 10 langar mínútur. Við teljum orsökina til þess, að flaugin sat kyrr ,vera of hæga brennslr. eldneytisins. Toppurinn datt svo af vegna ofhitunar eld- flauga, er áttu að kippa honum af í meiri hæð en nokkurra senti- metra. Þegar toppurinn féll, urðu að engu vonir ok'kar um fyrsta raunverulega geimskot íslendinga. Framhald á bls. 14. ur sagði, að margir hefðu tekið þessari sýningu sinni með miklum fögnuði, en aðrir hefðu krossað sig þrisvar og jafnvel oftar, þeg- ar þeir sáu, það, sem hann hafði upp á að bjóða. Á síðasta sumri tók Finnur þátt í sýningu, sem haldin var í Strass borg og nefndist „Evrópa 1925.“ Hefur Finnur hlotið mikið hrós fyrir verk þau, sem hann sýndi í Strassborg, og hans verið getið í umsögnum þekktra listgagnrýn- enda í erlendum blöðum . Páskasýningin í Myndlista- og handíðaskólanum verður opnuð kL 4 á laugardaginn, og síðan verður hún opin fram til 13. apríl frá kl. 14 til 22 daglega. Félagsmálaskólinn Síðustu fundir Félagsmálaskóla Framsóknarflokksins verða haldn- ir mánudaginn 5. apríl og miðvikudaginn 7. apríl, alð Hringbraut 30, og hefjast kl. 20,30. Flutt verða próferindi. Eftirtaldir flytja: Jónína Jónsdóttir, Guð- rún Flosadóttir, Örn Gíslason, Ingrid Kristjánsdóttir og Erna Ann- ilíusdóttir. Selfoss — Selfoss Almennur fundur í Framsóknarfélagi Selfoss verður haldinn í Framsóknarsalnum, Selfossi, sunnudaginn 4. ágúst, og hefst kl. 21. Dagskrá: Kosning fulltrúa á 15. flokksþing Framsóknarflokks- in. — Önnur mál. — Stjórnin. Akranes — Framsóknarvist Framsóknarfélag Akraness heldur framsóknarvist í Félagsheimili sínu, Sunnubraut 21, sunnudaginn 4. apríl, kl. 16. Öllum heimill aðgangur, meðan húsrúm leyfir. Framsóknarfélag Akraness Aðalfundur Framsóknarfélags Akraness verður haldinn í Fram- sóknarhúsinu á Akranesi fimmtudaginn 8. apríl, kl. 16. Nánar aug- lýst síðar. — Stjórnin. Finnur Jónsson með nemendunum tveimur I Akademíunni, Hallmundi og Erni (t. h.), sem undirbúið hafa sýningu hans. (Tímamynd GE) ABSTRAKTMYNDIR FINNS JÓNS- SONAR Á PÁSKASÝNINGU MHÍ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.