Tíminn - 18.04.1971, Side 1
BergþóruqC. r.3
Sferian 19032 — 20050
88. tU.
Sunnudagur 18. apríl 1971
—
Hluti þingfulltrúa á 15. flokksþinginu á fundi í Súlnasal Hótel Sögu i gærmorgun.
• •
(Tímamynd GE)
NEFNDASTORF 0G AFGREIÐSLA
MÁLA Á SUNNUDAG OGMÁNUD.
EB—Reykjavík, laugardag.
Heigi Bergs ritari Fram-
Heígi biðst undan
kföri sem ritari
EB—Reykjavík, laugardag.
Er Helgi Bergs ritari Fram
sóknarflokksins flutti skýrslu
sína um flokksstarfið á flokks
þinginu í morgun, baðst hann
undan því að vera endurkjör
inn ritari flokksins, en þeirri
stöðu hefur Helgi Bergs nú
gegnt í 9 ár.
Flutti Helgi í lok ræðu sinn
ar þakkarorð til þeirra manna,
sem á einn eða annan hátt hafa
lagt sinn skerf til flokksstarfs- '
ins og minnti á, að hann myndi
áfram starfa af fullum áhuga
fyrir Framsóknarflokkinn.
! -----------------------------J
sóknarflokksins og Tómas
Árnason gjaldkeri flokksins
fiuttu skýrslur sínar í dag á
15. flokksþingi framsóknar-
manna í Súlnasal Hótel Sögu.
Síðan hófust nefndakosning-
ar og að lokum urðu almenn-
ar umræður er stóðu til kl. 16.
Á morgun, sunnudag, verða
nefndastörf, og hefjast þau kl.
9.30. Er nánar sagt frá þeim á
öðrum stað í blaðinu. Annað
kvöld, sunnudagskvöld, verður
svo Súlnasalurinn á Hótel Sögu
opinn þingfulltrúum og gestum
þeirra. Verður salurinn opnaður
kl. 20.
Á mánudaginn hefjast nefnda-
störf kl. 9. Kl. 10 hefst afgreiðsla
mála. Kl. 17 verða kosnir 15 aðal-
menn í miðstjórn flokksins, en
síðan heldur afgreiðsla mála
áfram.
Fundurinn í dag var mjög fjöl-
mennur og að loknum skýrsluflutn
ingi ritara og gjaldkera hófust
fjörugar umræður.
í ræðu sinni gat Helgi Bergs
þess að í fyrsta skipti hefðu nú
farið fram á vegum flokksins
skoðanakannanir í öllum kjördæm
um landsins til undirbúnings
Framhald á bls. 10.
55. árg.
Dýrgripir
snúa stafni
til Islands
KJ—Reykjavík, laugardag.
Heimferð fyrstu íslenzku hand-
ritanna, Flateyjarbókar og Kon
ungsbókar, hófat frá Kaupmanna-
höfn í morgun, er danska herskip-
ið Vædderen lagði frá bryggju
með þennan dýrmæta farm innan-
borðs. Klýfur Vædderen nú öldur
hafsins á lcið sinni til Reykjavík-
ur, en þangað er áætlað að koma
árdegis á miðvikudag.
Birkelund landsbókavörður kom
með bækurnar tvær til skips, en á
bryggjunni tóku einn af yfirmönn-
um skipsins og fulltrúi danska ut-
anríkisráðuneytisins við handritun-
um og báru þau um borð í hvítum,
innsigluðum poka, með merki sjó-
hersins danska á. Voru handritin
þar með komin úr vörzlu danskra
safna og í hendur sjóhersins og ut-
anríkisráðuneytisins, sem bera
ábyrgð á þeim á leiðinni til ís-
lands, og þar til bækurnar verða
afhentar íslendingum á miðviku-
daginn. Pokinn með bókunum var
síðan settur í sérstakan kassa um
borð í skipinu, og kassinn í sér-
stakan öryggisklefa um borð í
Vædderen.
Helge Larsen, menntamálaráð-
herra og Sigurður Bjarnason, sendi
herra komu um borð í skipið áður
en lagt var úr höfn.
Vædderen lá í Kristjánshöfn í
Kaupmannahöfn, þar sem herskipa-
lægi danska sjóhersins er, og lagði
skipið af stað í þessa sögufrægu
ferð klukkan 9,15 aö Kaupmanna-
hafnartíma.
Fulltrúi danska utanríkisráðu-
neytisins um borð í Vædderen er
Eiler Mogensen deildarstjóri i
ráðuneytinu, og fulltrúi fslands er
Framhald á bls. 10.
Nefndastörf
Nefndastörf hefjast kl. 9,30 í dag og starfa nefndirnar á þeim
stöðum, sem hér segir:
1. Stjórnmálanefnd — í flokksherbergi Framsóknarflokksins í
Alþingisluisinu.
2. Flokksmálanefndin — í flokksskrifstofunni að Hringbraut
30.
3. Menntamálanefnd — í Framsóknárhúsinu við Fríkirkjuveg
(Glauinbæ) uppi.
4. Atvinnumálanefnd — í Búnaðarþingssainum inn af Súlna-
salnum, Ilótel Sögu.
5. Fclagsmálanefnd — í Eddusalnum, Edduliúsinu.
Myndimar voru teknar á laugardagsmorguninn, þegar pokinn með handritunum var settur um borð í Vædderen í Kaupmannahöfn. Á myndinni til vinstri er skipherrann, A. W. Thorsen, til
vinstri Jörgensen liðsforingi og Mogensen, deildarstjóri í danska utanríkisráðuneytinu, og fyrir framan þá er pokinn með h andritunum. Á myndinni til hægri eru Mogensen og Jörgensen
á bryggjunni, á leið með innsiglaða pokann um borð i herskipið. (Símamyndir frá Polfoto)