Tíminn - 22.04.1971, Síða 3

Tíminn - 22.04.1971, Síða 3
FIMMTUDAGUR 22. aprfl 1971 TIMINN 19 kapphlaupi við tímann. Lifs- framvindan var eðlileg og hóf söm, samskiptin við náttúruna fumlaus og traust. Hjá eldra fólki á eyjunni voru, að ég tel, leifar af sér- stæðri menningu. Það talaði hreinna og fegurra mál en ég hafði áður heyrt. Einkum er mér í minni einn gamall mað- ur og systkini hans, hef ég að- eins heyrt tvo menn, sem ég tel jafnoka þessa fólks hvað málfar snertir. Það eru þeir Helgi Hjörvar og Tryggvi Þór- hallsson. Bókakostur var nokkur í Grímsey, voru það gamlar klassískar bækur, sem mikið voru lesnar og um þær rætt. Þetta var sá brunnur sem fólk ið nam af málsnilld og mál- smekk. Mér er næst að halda að þarna hafi almenningur tal að betra menntamál, en þeir sem kallaðir eru menntamenn. Nú er þetta sjálfsagt orðið ■ama bullið og annars staðar, fullt af orðskrípum og beyg- ingarlýtum. Þegar ég hlustaði á Gríms- eyinga og menn, sem komu of an af landi, fannst mér oft sem þeir töluðu tvö ólík tungu mál. Það sem ég gat helzt að Grímseyingum fundið var það, að í persónulegu lífi fannst mér þeir fremur illa samtaka, en ef eitthvað kom fyrir og á bjátaði, þá stóðu þeir allir sem einn til styrktar þeim, sem skaða hafði beðið. Ekki var ég með nefið niðri í reikningsskilum eyjar- skeggja, en að því er séð varð, virtust allir hafa nóg fyrir sig að leggja og geta veitt sér flesta hluti ekki síður en þeir, sem annars staðar héldu hús og heimili. Fyrstu tvö árin sem ég var í Grímsey, var þar prestur séra Robert Jack. Hann hafði misst konu sína Sigurlínu Guðjóns- dóttur frá ungum börnum, en kvæntist svo aftur konu, sem Vigdís heitir, ættaðri frá Akra nesi. Hann er nú prestur að Tjörn á Vatnsnesi. Ég var úti í Vestmannaeyj- um að múra hús, þegar það kom til orða að ég yrði feng- inn til að gegna djáknastöðu í Grímsey. Mun það fyrst og fremst hafa verið fyrir áeggj- an eða að frumkvæði séra Pét- urs Sigurgeirssonar, prests á Akureyri. Ég hef alltaf verið trúhneigður og gert mér grein fyrir þýðingu trúar, þó ég hafi gert greinarmun á trú og trú- arbrögðum. Ungur ætlaði ég mér að ganga menntaveginn og verða prestur, en sem betur fór sagði pyngjan stopp. Ég hafði lesið talsvert í guð fræði og um trúfræðileg efni og þegar ég fann að fullkom- in alvara lá á bak við það heima fyrir að ég tæki að mér djáknastarfið, vildi ég ekki undan því skorast, enda frem- ur geðfellt til þess að hugsa. Mér var svo fyrirskipað að vera sex vikur í guðfræðideild inni við Háskólann. Þar var mér mjög til hjálpar prófessor Jóhann Hannesson, sem hvatti mig og studdi, stend ég í mik- illi þakkarskuld við hann. Einnig voru þeir mér mjög vinsamlegir, prófessor Björn Magnússon og Dr. Þórir Kr. Þórðarson. Séra Pétur Sigurgeirsson var þó mesta driffjöðrin í þessu og hans stuðningur í starfinu var mér ómetanlegur. Starfssviðið?: Það var prédikun á helgidög um þjóðkirkjunnar, sunnu- dagaskólahald, fermingarund- irbúningur og sakramenti í heimahúsum ef með þurfti, sem þó aldrei kom til meðan Einar Einarsson og fjölskylda ég starfaði. Engin önnur prests verk var mér heimilt að vinna. — Sálgæzla? Ég veit ekki hvað um það skal segja. Ég flutti ræður og fólkið sótti kirkju og hygg ég óhætt sé að segja, að Grímsey- ingar hafi átt met í kirkju- sókn miðað við fólksfjölda, og í sama tilliti var þar í þrjú ár stærsti kirkjukór á landinu. Við höfðum ágætt söngfólk og snilldar organista, frú Ragn- hildi Einarsdóttur á Básum, nyrsta byggðu bóli á íslandi. Hún stundaði þetta starf af miklum dugnaði, og kom oftar en ætla hefði mátt, þar sem oft var harðsótt um vetur vegna veðurs og færðar og hún gekk ekki heil til skógar. Mér féll starfið vel og ég held að Grímseyingar hafi tal- ið sér að því ávinning. Aldrei heyrði ég fólkið á eynni tala um skort á neinu eða barma sér, hvorki út af læknisleysi né öðru. Þau fjórtán ár, sem ég var þarna vissi ég aðeins um eitt tilfelli, sem læknir hefði ef til vill getað eitthvað gert, og elzta fólk taldi sig ekki vita nein dæmi þess, að dánarorsök hefði verið sú, að ekki hefði náðst í lækni. Þegar ég kom til Grímseyj- ar voru þar búsettar 66 mann- eskjur, en fækkaði svo niður í rúmlega 50. Fjölskyldur fluttu í land en það komu allt- af aðrar £ staðinn. Þegar ég fór voru þar 83 sálir og fyrir tveimur árum hitti ég oddvit- ann og minnir mig að hann segði íbúana þá um 100. Jú, víst eru bændur í Grímsey. í minni tíð voru þeir tólf, sem höfðu einhverjar jarðarnytjgr. Býlin voru: Básar, Sjálönd I II III, Miðtún, Garður, Sólbrekka, Eiðar, Sveinsstaðir, Sveintún, Miðgarður, Sveinagarðar, Sig- tún og Grenivík. Ennfremur tvö tómthús, býli með enga grasnyt. Nú er aðeins sauðfé á eynni, en kýr voru tólf þeg- ar ég kom þangað. Þarna er úthafsveður, sjald- an logn og sjaldan stórviðri. Sjaldan er hlýtt, hitinn tæpast yfir 10 stig. Kuldinn verður heldur ekki mjög mikill varla yfir 12 stiga frost, og ekki man ég eftir að frostið færi yfir 14 stig nema hafísvetur- inn 1965. Eyjan er þýfð, og þar er enginn hagi að vetri til miðað við það sem gerist upp í sveit- um. Oft liggur yfir henni klaka brynja vegna ísingar langtím- um saman. Nú er Grímsey aflögð sem prestakall og hefur ekki áður verið sú skipan mála síðan kirkja var þar reist einhvern tíma milli 1110—1120 og vígð af Jóni Ögmundssyni Hólabisk upi. Þarna þekkir enginn maður óyndi. Ég þekki engan, sem einu sinni hefur verið þar, að ekki væri hann fús að fara þangað aftur gæti hann búið við hagfelldar hringumstæður. Ég kom þangað fyrst í grenj andi stórhríð en fann ekki til neinna óþæginda, sem þó oft grípa mann fyrst í stað, ekki sízt í ömurlegri aðkomu t.d. vegna veðurs. En það er eins og eyjan búi yfir einhverju seiðmagni, sem ekki er hægt að skýra. Hvergi á íslandi ber meiri birtu yfir en í Grímsey um sól stöðurnar. Þegar heiðskírt er, sígur aldrei sól bak við sjón- hring. Þegar saman rennur nótt og dagur er stórfenglegt augna- blik sem engin orð ná að lýsa. Miðnætursólarbirtan er ólík annarri birtu þó hún sé jafn- björt. Hún er litbrigðaríkari og litrofið sýnist skýrara. Sumarið 1966 kom norður í Grímsey þýzk stúlka. Hún er nú konan mín og hefur lögum samkvæmt orðið að breyta sínu skírnarnafni og heitir nú Súsanna Marta Vilhjálsdóttir. Við eigum tvo drengi og okk- ur líður vel. Ég kvíði hvorki elli né féleysi og brýt ekki heilann um það, sem við kann að taka að lokinni jarðvistinni. Lögmál náttúrunnar er þroski, og vaki maður á verði yfir því lífi sem upp vex í landinu og gengur á þann hátt götuna til góðs, á ég þess von að sú ganga verði debet á reikn- ingnum þegar lengra er hald- ið. Þ.M. Flugfélaglð býður tíðustu og fljótustu ferðirnar með þotuflugi til Evrópulanda og nú fara í hönd hin vinsælu vorfargjöld Flugfélagsins. Við bjóSum yður um 30% afslátt af venjulegum fargjöldum til helztu borga Evrópu í vor með fullkomnasta farkosti nútímans. Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu. Hvergi ódýrari fargjöld. FLUCFELACISLANDS ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.