Tíminn - 29.04.1971, Page 2

Tíminn - 29.04.1971, Page 2
TIMINN Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri (t. h.), afhendir Baldvin Þ. Kristjánssyni silfurbíl Samvlnnutrygginga. (Tímamynd G.E.) ÞRIÐJI SILFURBÍLL SAM- VINNUTRYGGINGA AFHENTUR Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi hlaut hann KJ—Reykjavík, miðvikudag. Silfurbíll Samvinnutrygginga var afhentur í þriðja sinn á föstu dagskvöldið, og hlaut hann að þessu sinni Baldvin Þ. Kristjáns son félagsmálafulltrúi, sem á mest an heiður af stofnun og uppbygg ingingu klúbbanna öruggur akst ur, en þeir eru nú 33 víða um landið. Silfui-bíllinn var afhentur í hófi er haldið var á Hótel Sögu að afloknum þriðja fulltrúafundi Landssamtaka klúbbanna Öruggur akstur. Ásgeir Magnússon, framkvæmda stjóri, formaður úthlutunarnefndar innar, afhenti bílinn og gerði m. a. svofellda grein fyrir veitingu þessarar viðurkenningar: „Baldvin Þ. Kristjánsson hefur um langt árabil verið hinn mikli vökumaður á sviði umferðar- og öryggismála. Hann hefur í ræðu og riti verið óþreytandi áhugamað ur fyrir auknu umferðaröryggi í landinu, og hann hefur lagt sig sérstaklega fram um bætta um- ferðarmenningu þjóðarinnar. Meirihluti úthlutunarnefndar Silfurbíls Samvinnutrygginga tel ur einn merkasta þátt í störfum Baldvins Þ. Kristjánssonar, frá því hann fór að láta umferðar- og öryggismál til sín taka, vera tví- „Sakleysið, sízt má án þess vera." Ekki virðist enn hafa tekizt að spilla Islendingum stórlega í kyn- ferðismálum, þrátt fyrir fræðslu- kvikmyndir, myndablöð og sýningar, sem hægt er að velja til dægradvalar í nágrannaborgum, og ern liður í hinu mikla umsátri spillingarinnar, sem eyþjóðin norður í hafinu verður að berjast gegn með aðstoð þeirra, er vilja halda tilfinningum sínum óspjölluðum og holdinu sterku. Þetta kom greinilega í ijós að Alafossi á dögunum, þegar nokkrum sakleys- ingjum datt ekkert annað í hug, vegna upphrópana og þilskruðninga í ungum hjónum útlendum, en þar væri verið að ástunda misþyrmingar af grófara tæi. Rannsóknarlögreglu- maður úr Hafnarfirði var fenginn á staðinn. Þegar hann hafði orðið, óaf- vitandi, til þess að trufla hjónalíf hinna nýgiftu, gaf hann blaðinu Vísi eftirfarandi yfirlýsingu: „Ég hef aldrei á æfi minni vitað aðra eins vitleysu.” Þetta mun vera stytzta fréttatilikynning, sem nokkur lög- regiumaður hefur látið frá sér fara, eftir að hafa verið kallaður á vett- vang til að koma í veg fyrir „mis- þymingar”. Og hún er tæmandi. „En of mikið af öllu- má þó gera." Hófsemi í ástalífi hefur stundum verið kennd við hreppstjóra, hvort sem sú stétt manna hefur til þess unnið á annan hátt en þann að leggja hugmyndinni um farsælar ást- ir til nokkurn virðuleika. Öll frávik í þessum efnum hafa komið fólki ókunnuglega fyrir sjónir og baráttu- menn fyrir hljóðlátu ástalifi eiga langtum fieiri talsmenn, en t. d. Freymóð Jóhannesson, sem hefur réttilega kveðið uppúr með að fólk eigi að gæta siðferðis síns í hvívetna, eins og það gætir annarra þátta í fari sínu. Hins ber að gæta, að sinn er siður í hverju landi. Við gumum nú mjög af auknum samskiptum við aðrar þjóðir. Til þess að þau sam- skipti fari vel og kurteislega fram, verður að virða rétt útlendinga til að lifa einkalífi sínu í friði. Sakleysið í samskiptum við útlendinga getur ekki til lengdar verið á því stigi, að kallað sé á lögreglu hvenær, sem brugðið er út af þeim vana sem kenndur hefur verið við hreppstjóra. Svarthöfði mælalaust framtak hans og for- ustu að stofnun klúbanna örugg- ur akstur. í öllum byggðarlögum landsins liefur þessi félagsmála- hreyfing náð fótfestu. Baldvin Þ. Kristjánsson hefur mætt á stofn fundum allra klúbbanna, en þeir eru nú 33 að tölu. Hann hefur lagt þeim lífsreglur og stutt þá í starfi af sínum alkunna dugnaði. Þeir eru ófáir aðalfundir klúbbanna og fræðslufundirnir, sem Baldvin hef ur mætt á og örfað klúbbfélaga til dáða. Fimm til sex ár er að vísu ekki langur tími í framþróun nýrr ar félagsmálahreyfingar. En lengi býr að fyrstu gerð. Stofnun og störf Landssamtaka klúbbanna Öruggur akstur eru að langmestu leyti verk Baldvins Þ. Kristjáns- sonar. Fyrir allt þetta eru honum færð ar þakkir, og fer vel á því, að árið 1971, sama árið og Samvinnu tryggingar fylla aldarfjórðungs- starf, hljóti Baldvin Þ. Kristjáns- son Silfurbíl Samvinnutrygginga í viðurkenningarskyni fyrir farsæl stöi'f að auknu umferðaröryggi í landinu og bættri umfcrðarmenn ingu þjóðarinnar." Fyrri handhafar Silfurbíls Sam Framhald á bls. 14. Erlendur kemur Hinn kunni færeyski ritstjóri og lögþingsmaður, Erlendur Paturs- son, kemur til fslands í boði Nor ræna hússins og hcldur hér tvo fyrirlestra. Fyrri fyrirlesturinn heldur hann fimmtudaginn 6. maí n. k. kl. 20.30. Sá fyrirlestur ber heit ið „Færeyjar — hvert stefnir í efnahagsmálum? “ Síðari fyrirlesturinn heitir „Færeyjar — hvert stefnir í stjórn málum?“ og verður sunnudaginn 9. maí kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis að báðum fyrirlestrunum og er öllum heim ill meðan húsrúm leyfir. Erlendur Patursson er formaður ' ....................... ' ........... ' ■: ;i: Erlendur Patursson Aðalfundur íslenzka mannfræðinga- félagsins Aðalfundur fslenzka mannfræði félagsins verður haldinn föstudag inn 30. apríl í Norræna húsinu og hefst kl. 20,30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða lagabreyt ingar til umræðu. Basar kvennadeildar Skagfirðingafélagsins Kvennadeild Skagfirðingafélags- ins í Reykjavík heldur sinn árlega basar og kaffisölu í Lindarbæ laug- ardaginn 1. maí nk., kl. 2 sd. Þar verður margt góðra muna á boð- stólnum, sem konurnar hafa meðal annars unnið sjálfar. Ennfremur verður veizlukaffi. Ágóðanum verð ur varið til kaupa á afmælisgjöf í tilefni af 100 ára afmæli Sauðár- króks, sem haldið verður hátíðlegt 2. til 4. júlí nk. Þetta er því til- valið tækifæri fyrir Skagfirðinga í Reykjavík og nágrenni, og aðra velunnara staðarins, að heimsækja konurnar í Lindarbæ þennan dag. Söngskóli Dómkirkjunnar og Dómkórinn halda tónleika Starfað hefur í vetur, á vegum Dómkirkjunnar, söngskóli fyrir ungt fólk. Þar hefur það fengið að kynnast nótnalestri, tónfræði og raddmyndun. Jafnframt hafa nemendur verið æfðir í samsöng og er ætlunin að bjóða áhugasöm um áheyrendum að heyra niður- stöðu þessarar vinnu á tónleikum í Gagnfræðaskóla Austurbæjar laugardaginn 1. maí kl. 5 s. d. Fyrri hluta efnisskrárinnar flytur Dómkórinn einn, en það eru nokk ur lög úr „Passíu“ Atla Heimis Sveinssonar og verkefni eftir Ant- on Heiller, sem er austurrískt nú- tíma-tónskáld oe organleikari op orðinn mjög þekktur fyrir kór-tón smíðar sínar. Mun það verða í fyrsta skipti að ísl. kór flytur verk eftir Anton Heiller. Síðari hluta efnisskrárinnar flytja nemendur söngskólans, með aðstoð kirkjukórsins. Samanstend ur hann af íslenzkum og erlend un verkefnum og má nefna „Mót- ettu“ fyrir tvo kóra eftir Hein- rich Schiitz. Sunn.daginn 2. maí fer kórinn t:’ Skálholts og endurtekur sam- sönginn í Skálholtskirkju kl. 4,30. Nokkrir einsöngvarar koma fram á tónleikunum, en söngstjóri verð ur Ragnar Björnsson. FIMMTUDAGUR 29. aprfl 1971 Patursson hingað lýðveldisflokksins. Honum var vikið frá sem formanni eftir kosn ingarnar 1966, þegar flokkur hans tapaði einu þingsæti í landsstjóm inni. Árið 1970 óx vegur hans mjög og hann fékk mesta atkvæðafjölda, sem nokkur færeyskur stjómmála maður hefur nokkru sinni fengið. Erlendur Patursson er góður vin- ur íslands, á marga vini hér á landi og hefur gengið hér í skóla. Báðir fyrirlestrarnir verða á ís- lenzku. T--—— 1. maí-hátíðahöld í Borgarnesi JE—Borgamesi, miðvikudag. Verkalýðsfélag Borgamess gengst að venju fyrir hátfðar- höldum 1. maí. Að þessu sinni hefjast þau kl. 20,30 í Samkomu húsinu. Ingibjörg Magnúsdóttir, gjaldkeri Verkalýðsfélags Borg- amess, flytur ræðu á samkom- unni og Guðmundur Böðvarsson skáld á Kirkjubóli les upp. Önn- ur dagskráratriði verða þjóð- lagasöngur Kristínar Ölafsdótt- ur og Helga Einarssonar, leik- þáttur, sem Karl Einarsson flyt- ur og að. lokum verður dansleik- ur. Eystrasaltsvikan 1971 Eystrasaltsvikan 1971 verður haldin í Rostock og nágrenni dag- ana 11.—18. júlí undir kjörorð- inu „Eystrasaltið — friðarhaf“. Dagskrá vikunnar verður mjög fjölbreytt að vanda. Efnt verður til ráðstefnu um verkalýðsmál, sveitarstjórnarmál og æskulýðs- mál auk kvennaráðstefnu og þing mannafundar með þátttakendum frá Eystrasaltríkjunum, Noregi og íslandi. Samtök listamanna í Þýzka Alþýðulýðveldinu gangast fyrir listsýningu Eystrasaltsrikja og hafa íslenzkir listamenn tví- vegis átt verk á sýningunni. Þá verða haldnar alþjóðlegar frí- merkja- og myntsýningar og iðn- fyrirtæki í Rostockfylki munu sýna framleiðsluvörur sínar. Há- tíðasýningar verða í leikhúsum Rostockborgar, fjölmargir þekktir tónlistarmenn koma fram og íþróttakappleikir verða háðir i flestum borgum og bæjum í norð- urhéruðum Þýzka Alþýðulýðveld- isins. Eystrasaltsvikan var fyrst hald- in árið 1958 og hefur ferða- mannastraumurinn til Rostock aukizt jafnt og þétt siðan. (Frétt frá íslenzk-þýzka menn- ingarfélaginu). Tónleikar Tónlistar- félags Garðahrepps Sjöunda starfsári Tónlistarskóla Garðahrepps lýkur með þrennum tónleikum um næstu mánaðamót. Píanótónleikar verða í samkomusal Barnaskólans fimmtudaginn 29. apr íl, kl. 8,00 e. h. Þá verða tónleik- ar í Garðakirkju sunnudaginn 2. maí, og loks verða lokatónleikar og skólaslit fimmtudaginn 6. mat kl. 8,00 síðdegis i samkomusal Barnaskólans. Þá mun m. a. koma fram hljómsveit skólans, en hún er skipuð 30 hljóðfæraleikurum. Um 100 nemendur stunduðu nám i skólanum í vetur. Kennarar voru 8 auk skólastjórans, Guðmundar Norðdahl.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.