Tíminn - 29.04.1971, Síða 3
FIMMTUDAGUR 29. aprfl 1971
3
-----------------—----------
50 OG 100
MÍLURNAR
STÆRSTA
HAGSMUNA
MÁLIÐ
Formannaráðstefna Iðnnema
sambands fslands, haldin 24.
'—25. apríl 1971 ályktar um
landhelgismálið.
Ráðstefnan telur að út-
færsla landhelginnar í 50 míl-
ur og 100 mílna mengunar-
lögsögu, sé eitt stærsta hags
munamál þjóðarinnar og telur
það óvéfengjanlegan hlut og
öll rök mæli með því.
Telur ráðstefnan það mik-
ilvægt að útfærslan eigi sér
stað sem fyrst og fyrir hafrétt
arráðstefnuna, sem haldin verð
ur á vegum Sameinuðu þjóð-
anna 1973.
Telur ráðstefnan að þær
þjóðir sem hagsmuni eiga að
gæta í fiskimiðum umhverfis
land sitt, komi til með að
standa betur að vígi á haf-
réttarráðstefnunni ef útfærsla
þeirra landa hafi átt sér stað
! sem víðast.
íslands-
mótið í
bridge að
byrja
Dregið hefur verið í riðla undan-
úrslita sveitakeppni íslandsmótsins
í bridge, er hefst laugardaginn 1.
maí nk., ld. 14 í Ðomus Medica.
1. riðitl: 1- Vestfirðir II, sveit
Einars G. Einarssonar, Isaf. 2. Norð
urland II, sveit Boga Sigurbjöms-
sonar, Sigluf., 3. Vestmannaeyjar I,
sveit Jóns Haukssonar, Vestm., 4.
Reykjanes V, sveit Skúla Thoraren-
sen, Keflavík.
2. riðill: 1. Vesturland I, sveit
Hannesar Jónssonar, Akran., 2. Is-
landsm. ’7Ö, sveit Stefáns Guðjohn-
sen, Rvík, 3. Reykjanes II, sveit
Sigurðar Emilssonar, Hafnarfirði,
4. Vestmannaeyjar III, sveit Hauks
Guðjónssonar, Vestm.
3. riðiU: 1. Reykjavík II, sveit
Jóns Arasonar, Rvík, 2. Suðurland
H, sveit Páls Árnasonar, Selfossi,
3. Vesturland II, sveit Halldórs Sig-
urbjörnssonar, Akran., 4. Reykja-
nes I, sveit Böðvars Guðmundsson-
ar, Hafnarfirði.
4. riðill: 1. Reykjavík I, sveit
Hjalta Elíassonar, Rvík, 2. Suður-
land III, sveit Arnar Vigfússonar,
Selfossi, Vestmannaeyjar II, sveit
Gunnars Kristinssonar, Vestm., 4.
Reykjanes III, sveit Magnúsar
Þórðarsonar, Kóp.
5. riðill: 1. Vestfirðir I, sveit Ein-
ars V. Kristjánssonar, Isaf., 2. Norð
urland III, sveit Páls Pálssonar,
Akureyri, 3. Austurland I, sveit Þór
nnns Hallgrímssonar, Vopnaf., 4.
Reykjanes IV, sveit Sigurðar Magn
ússonar, Keflavík.
6. riðiU: 1. Vesturland III, sveit
Valdimars Sigurjónssonar, Akran.,
2. Suðurland I, sveit Kristmanns
Guðmundssonar, Selfossi, 3. Norð-
urland I, sveit Guðmundar Guð-
laugssonar, Akureyri, 4. Reykjanes
VI, sveit Björns Eysteinssonar,
Hafnarfirði.
TIMINN
YNGSTI KÓR REYKJAVÍKUR
SYNGUR í LANDAKOTSKIRKJU
á hljómleikum er Pólýfónkórinn heldur á sunnudaginn kemur
EB—Reykjavík, miðvikudag.
Nú á sunudaginn gefst almenn-
ingi kostur á að hlýða á yngsta
kór Reykjavíkurborgar á hljóm-
leikum er Pólýfónkórinn stendur
fyrir í Landakotskirkju. Þessi
ungi kór er árangur af starfsemi
kórskóla er Pólýfónkórinn stofn-
aði í febrúarmánuði s.l. til efling
ar starfsemi sinar og söng-
mennt í borginni almennt. Þenn-
an unga kór skipa um 90 manns,
sem flest er á aldrinum 20—30
ára, en í Pólýfónkórnum eru fyr-
ir um 50 manns, svo að alls verða
um 140 söngmenn, sem láta heyra
til sín á hljómleikunum er hefj-
ast klukkan 5 síðdegis á sunnu-
daginn. Hljómleikarnir verða end
urteknir tvisvar í næstu viku.
Kennslan í kórskólanum fór
fram eitt kvöld í viku, 2 stundir
í senn, og voru kennarar ráðnir
þau Ruth Magnússon, Garðar
Cortes og Lena Rist auk Ingólfs
Guðbrandssonar, sem hafði um-
sjón með þessari nýlundu í söng-
málum Reykvíkinga. Hugmynd-
in fékk góðar undirtektir og inn-
rituðust strax um 150 manns.
Námskeiðið stóð í 10 vikur, en
áhugi og árangur var það góður,
að ákveðið var að gefa þeim þátt-
takendum, sem þess óskuðu, kost
á að æfa saman kórsöng eitt
kvöld í viku framvegis, og árang-
ur þess geta bæjarbúar fengið að
heyra í Landakotskirkju.
Á hljómleikunum verður flutt
kirkjutónlist eftir Bach, Handel,
Aichinger, Schubert og Monte-
verdi. Ingólfur Guðbrandsson er
stjórnandi, en Árni Arinbjarnar
Framhald á bls. 14.
skila
w
NYJUNG
Vér bjóðum yður að kynnast kostum IGNIS þvottavélanna. *—
Fáið reynsluvél heim, kynnist af eigin raun þvottaeiginleikum
hennar, ef þér eruð ekki fullkomlega ánægð, tökum vér vélina
aftur og endurgi'eiðum yður kaupverðið. — Þér hafið 10 daga til
ákvörðunar — eftir eigin reynslu munið þér taka ákvörðun um
kaupin. ^
RAFIÐJAN VESTURGÖTU 11 SÍMI 26660
RAFTORC. y/AUSTURVÖU SÍMI 19294
jnorö*iiiþínt>ih
y
ÓSLITIN
STJÖRNARFOUIISTA
S.IÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
í ÞR.IIJ KJÖRTÍMAHIL
- cr cinfjdæmi 1 NljórnmrtlnRAKu |»jóðnrinTinr
Þetta er fyrirsögnin á for-
síðu aukablaðs Morgunblaðsins
í gær, sem hefur að flytja ræðu
Jóhanns Hafsteins á Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins.
Það er óneitanlega dálítið
undarlegt að forsætisráðherr-
ann skuli velja þessa fyrirsögn
á ræðu sína — ekki sízt vegna
þess að hún stangast alveg á
við staðreyndir í stjórnmála-
sögu landsins. Það er að vísu
rétt að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur farið með stjórnarfor-
ystu í 3 kjörtímabil. En hér er
ekki um einsdæmi að ræða og
það ætti Jóhann Hafstein að
vita mætavel.
Framsóknarflokkurinn fór
með forystu í ríkisstjórnum ó-
slitið frá 1927 til 1942 og mun
hafa verið kosið til Alþingis 5
sinnum á þessu tímabili. Hér
er þvf ekki um neitt einsdæmi
að ræða í stjórnmálasögu þjóð
arinnar.
Hver er skýringin?
En hver er þá ástæðan fyrir
þessari fullyrðingu forsætisráð
herrans? Og hvers vegna legg
ur hann slíka áherzlu á þessa
sagnfræðilegu blekkingu að
hann gerir hana að aðalfyrir
sögn á ræðu sinni? Það getur
virzt torráðin gáta.
Er Jóhann að búa
menn undir að Sjálfs-
stæðisflokkurinn
láti af stjórnar-
forystu?
Fáir trúa því að þetta geti
stafað af þekkingarskorti. Hitt
er sönnu nær, að með þeirri
áherzlu, sem forsætisráðherr-
ann leggur á það, að það, að
það sé „einsdæmi“ að Sjálfstæð-
isflokknum skyldi hafa tekizt
að fara með stjórnarforystu í
3 kjörtímabil sé hann að búa
landsfundarfulltrúa og aðra
kjósendur undir það, að stjórn
arforystu Sjálfstæðisflokksins
sé lokið með næstu kosningum
og menn megi ekki láta það á
sig fá, því að Sjálfstæðisflokk
urinn megi mjög vel við una,
þar sem það sé algert „eins-
dæmi“ hve lengi hann hafi far-
ið samfleytt með stjórnarfor-
ystu. Önnur skýring á þessari
sögufölsun er vissulega vand-
fundin. — TK.
VERÐLAUN APENING AR
VERÐLAUNAGRIPIR L •”vV
FÉLAGSMERK!
4 4«»
Magnús E. Baldvlnsson
l augavegl 12 - Slm! 22B04