Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 6

Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 6
6 TÍMINN FIMMTUDAGUR 29. apríl 1971 Alyktun 15. flokksþings Framsóknarmanna um: FELAGS VELFERÐARMÁL Framsóknarflokkurinn teiur það frumskyldu þjóð- félagsins, að sjá svo um, að enginn þegn þess líði skort og þjóðfélagið rétti þeim hjálparhönd, sem ganga ekki heilir til skógar eða hafa með einhverjum hætti skerta starfsorku. Þessari skyldu hafa íslendingar ekki gegnt sem skyldi og er brýn nauðsyn á skipulegu átaki til að Ikoma velferðarmálum í það horf, sem þjóðinni er sæmandi. Framsóknarflokkurinn telur að tryggja beri öllum þegnum íslenzks þjóðfélags þann lífeyri, sem sannan- lega þarf til mannsæmandi lífs og verði sá lífeyrir vísitölubundinn svo að kaupmáttur haldist í hendur við verðlag. IÞetta hefur þróazt í öfuga átt undanfarin ár. Á meðan kaupmáttur elUlífeyris á Norðurlöndum jókst mjög verulega, minnkaði hann hér á landi um 9,6% á árunum 1967—1970. Jafnframt hefur óðaverðbólga étið upp það fé, sem fólk hefur lagt til hliðar til elliáranna. Kjörum aldraðra sem aðild eiga nú að sjálfstæðum lífeyrissjóðum er mjög misskipt. Fer það eftir aldri og afli þessara lífeyrissjóða. Framsóknarflokkurinn telur það rétta stefnu, að það aldraða fólk, sem hefur lítið annað en ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins H sér til framfærslu, fái viðbótarlífeyri úr sameiginleg- um sjóði landsmanna. Framsóknarflokkurinn vill benda á, að hluti af því fjármagni, sem útvega þarf til verðbólgulífeyris, er ekki nýtt framlag, þar sem um leið er létt talsverðum byrðum af sveitarsjóðum við framfærslu aldraðra. Einnig vill flokkurinn minna á, að viðbótarlífeyririnn er tímabundin ráðstöfun, þar sem viðbótalífeyrir hverfur með aldri og eflingu hinna sjálfstæðu lífeyris- sjóða, sem skynsamlegt er að sameina skv. áætlun er fæli m.a. í sér verðtryggingu þessa fjármagns af samfélagsins hálfu. Framsóknarflokkurinn ítrekar þá stefnu sina að miða beri að einum öflugum lífeyrissjóði allra lands- manna. Framsóknarflokkurinn þakkar þeim einstaklingum og félagasamtökum, sem á undanfarandi árum hafa unnið að velferðarmálum aldraðra m.a. með byggingu og rekstri elliheimila, en jafnframt vill Framsóknar- flokkurinn benda á að húsnæðismálum aldraðra hefur víða eigi verið sinnt sem skyldi. Þess vegna fer aldrað fólk oft á elliheimili, þótt það vildi frekar búa í lítilli íbúð, ef kostur væri. Framsóknarflokkurinn telur nauðsyn bera til þess, að heimild í 79. gr. Al- mannatryggingalaganna um deild er annist velferðar- mál aldraðra, komi til framkvæmda 1. jan. n.k. Deild- in annist rannsókn á kjörum og vandamálum aldraðra og vinni að lausn þeirra m.a. með því: að elliheimili verði fyrst og fremst hjúkrunarheimili með viðunandi þjálfunar- og lækningaaðstöðu fyrir það aldraða fólk, sem þarfnast daglegrar hjúkrunar, að byggðar verði litlar leiguíbúðir fyrir aldrað fólk sem víðast, bæði í sérstökum fjölbýlishúsum, þar sem ýmisleg sameiginleg þjónusta er fyrir hendi, og í fjölbýlishúsum, þar sem jafnframt eru íbúðir fyrir fólk á öllum aldri. að hið opinbera, ríki og sveitarfélög, starfræki í auknum mæli bæði hjúkrunar- og heimilishjálp fyrir aldrað fólk í heimahúsum og sérmennti fólk til þeirra starfa. ATVINNUMÁL ALDRAÐRA Aldrað fólk fær fyrst allra að kenna á samdrætti í atvinnulífi og atvinnuleysi. í dag eru fjölmargir um og yfir sjötugt, sem enga vinnu hafa, þótt þeir vilji og geti unnið. Þetta skapar vandamál fyrir aldraða fólk- ið og er um leið sóun á verðmætum þjóðfélagsins. Því leggur Framsóknarflokkurinn tHt að unnið verði að því að koma á fót framleiðslufyrir- tækjum, sem nýtt geti starfsorku aldraðra, og þeim þannig tryggð atvinna a.m.k. hluta úr degi. að sett verði upp sérstök vinnumiðlun fyrir aldrað fólk. Endurhæfing öryr&ja Framsóknarflokkurinn telur, að leggja þurfi aukna áherzlu á endurhæfingu öryrkja til að veita þeim möguteika á að gerast gildir þátttakendur í atvinnu- lifinu. Komið verði á fót sérstakri læknastöð, þar sem sérþjálfaðir tryggingalæknar rannsaki alla þá, sem leita örorkubóta og leggi á ráðin um endurhæfingu þeirra til starfs, og hafi þeir einir lækna heimild til að ákveða endanlega örorku. Meginmarkmið örorkulöggjafarinnar verði það að gera öryrkjum kleift að taka á ný þátt í atvinnulífinu og örorkulífeyrir veitist því aðeins að fullvíst sé að um endurhæfingu sé ekki að ræða. Sjúkratryggingar- og Tryggingadómstóll Framsóknarflokkurinn telur, að stefna beri að því að komið verði á nánari tengsl- um sjúkratrygginganna og Tryggingastofnunar ríkisins. að í sambandi við Tryggingastofnun ríkisins, en ó- háð henni, skuli starfa tryggingadómstóll, er fjall- ar um umkvartanir, seni varða ágreining um bóta- rétt hinna tryggðu og Tryggingastofnunar ríkisins. Refsiframkvæmd Framsóknarflokkurinn telur brýna þörf á heildar- endurskoðun á fangelsismálum þjóðarinnar og fram- kvæmd refsidóma. HEILBRIGÐISMÁL OG HEILSUGÆZLA Flokksþingið telur, að endurskoða verði alla löggjöf um heilbrigðismálin í þeim tilgangi að skapa meiri festu og samræmi í framkvæmd og heildaryfirstjóm heilbrigðismála. Gera þarf heildaráætlun um byggingu sjúkrahúsa og sjúkraskýla í landinu og tryggja aukið fjármagn til þeirra framkvæmda, svo og reksturs þeirra. Komið verði á samstarfi stjóma sjúkrahúsa í land- inu, er skipti með þeim verkum og kanni þarfir þjóð- félagsins fyrir nýjar sjúkradeildir. Flokksþingið telur afar áríðandi að starfsaðstaða Landsspítalans verði bætt svo, að þar verði fyrir hendi starfsskilyrði fyrir sérmenntaða lækna í öllum þeim sérgreinum læknavísinda, sem starfsgmndvöllur er fyrir, og ekki er þegar fyrir hendi við sjúkrahús í landinu. Á það vantar ennþá mikið og er það ein á- stæðan fyrir langdvölum sérmenntaðra íslenzkra lækna erlendis, sem þjóðin þarf nauðsynlega á að halda. Til þess að bæta læknisþjónustuna í hémðunum þarf að stefna að því meðal annars að koma upp sem fullkomnustum lækningamiðstöðvum með velmennt- uðu starfsliði þar sem henta þykir á stöðum, sem liggja vel við samgöngum. Vinna þarf að því af alefli að læknar fáist til að gegna héraðslæknisstörfum og bæta eftir föngum starfsskilyrði þeirra og möguleika sjúklinga í strjálbýlinu til að njóta læknishjálpar. Þingið bendir á, að auka þurfi heilsuverndarstarfs- lið stórlega, svo að landsmenn eigi kost á góðu heil- brigðiseftirliti, hvar sem þeir búa í landinu. Flokksþingið viU, að tekin verði upp greiðsla tann- læknaþjónustu á vegum sjúkrasamlaganna. Flokksþingið vill benda sérstaklega á, að ekki er unnt að bæta úr brýnni þörf dreifbýlisins fyrir lækna- þjónustu, meðan ekki er starfandi deild til fram- haldsnáms við Háskóla fslands, sem mennti lækna til almennra heimilislækninga, en sú grein lækninga fái þá viðurkenningu sem henni ber sem sérgrein. Þá telur flokksþingið að stefna beri að þvi í fram- tíðinni, að komið verði upp hjúkrunarskóla utan Reykjavíkur við fjórðungssjúkrahús. Ætti það að tryggja, að hjúkrunarfólk stöðvist frekar í sinni heimabyggð en verið hefur. Flokksþingið ályktar að nauðsyn beri til að lyfja- verzlun öll verði tekin til athugunar, með það fyrir augum að finna leið tíl aukinnar hagsýni í þessari grein. JAFNRÉTTI KYNJANNA: Framsóknarflokkurinn leggur áherzlu á, að fyllsta jafnréttis kynjanna í íslenzku þjóðfélagi verði gætt, jafnframt því sem flokkurinn varar við vanmati á því mikilvæga hlutverki, sem konan gegnir á heimilinu. Nútímaþjóðfélagi er nauðsyn að njóta starfskrafta og hæfileika kvenna í atvinnulífi og öllu þjóðmála- starfi. En við núverandi þjóðfélagsaðstæður er konum ekki sköpuð nægileg aðstaða til að nýta hæfileika sína sem skyldi. Framsóknarflokkurinn bendir á eftirfarandi svið þar sem skjótra úrbóta er þörf: 1. Dagheimilis- og barnaheimilismálum verður að koma í sómasamlegt horf, alls staðar á landinu, og aðstaða til heimilishjálpar að aukast stóriega, þann ig að tryggt sé að hjón geti unnið úti og helgað sig félagsstarfsemi án þess að þurfa að neita sér um að eiga böm. 2. Tryggingalögin verður að endurskoða með tilliti til þess, að fyllsta jafréttis kynjanna sé gætt svo að karlmenn njóti alira sömu réttinda sem konur nú hafa. Ennfremur að allar konur, hvar sem þær vinna, öðlist þau mannréttindi að fá þriggja mán- aða leyfi frá störfum vegna bamsburðar. 3. Launþegar hljóti laun og stöður eftir hæfileikum, menntun og starfsreynslu, en ekki eftir kynferði. 4. Konur, sem á miðjum aldri vilja leita út í atvinnu- lífið, eigi kost á endurhæfingarnámskeiðum í þeim störfum er þær hafa áður lært ttt eða kennslu á öðram sviðum. Ennfremur að þær eigi kost á starf- fræðslu á sama hátt og skólafólk. HÚSNÆÐISMÁL Framsóknarflokkurinn telur að stöðugt vaxandi húsnæðiskostnaður sé mjög stór þáttur í sívaxandi verðbólgu. Flokkurinn vill hér eftir sem hingað til vinna að því, að sem flestir geti búið í eigin húsnæði. Til þess að ná því marki að sem flestir búi í eigin húsnæði með viðráðanlegum kostnaði, vill flokkurinn meðal annars beita sér fyrir eftirfarandi leiðum: að íbúðir verði byggðar af hóflegri stærð og allir hlutir íbúðanna sem mest staðlaðir og gólfflötur nýttur sem bezt. að fjárfestingarsjóðir þeir sem veita lán til íbúða- bygginga verði efldir til muna frá því sem nú er, svo þeir geti veitt íbúðakaupendum og ibúðar- byggjendum lán til allt að 70 ára. Lánin verði allt að 80% af kostnaði og með lágum vöxtum. að efla byggingasjóði Húsnæðismálastofnunarinnar og Búnaðarbankans meðal annars með sölu verð- bréfa, sem verði að vissu marki frádráttarbær frá skattskyldum tekjum, það ár, sem þau eru keypt af byggingarsjóðum. Einnig sé ungu fólki 16—20 ára veittur réttur tU að leggja inn á sérstakar sparisjóðsbækur hjá byggingarsjóðunum vissar hámarksupphæðir ár hvert, og verði upphæðin, sem lögð er inn ár hvert, frádráttarbær á skatt- skrá, enda sé hún bundin til 10 ára. Vextir slíks frjáls sparnaðar séu þeir sömu og útlánsvextir byggingasjóða Húsnæðismálastofnun- arinnar og Stofnlánadeildar Búnaðarbankaua. Framsóknarflokkurinn lítur svo á, að það nái engri átt að hafa fjárfestingalán bundin kaupvísitölu, eins

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.