Tíminn - 29.04.1971, Qupperneq 7
t
ra«MTUDAGUR 29. aprfl 1971 TIMINN
7
og nú er. Flokkurinn telur það ósanngjarnt, að lán til
ibúðabygginga séu vísitölubundin á meðan önnur fjár-
festingarlán eru það ekki.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Flokksþingið vekur athygli á þeirri óheillaþróun
síðustu ára, að útgjöld sveitarfélaganna eru síaukin
með margvíslegum ráðstöfunum Alþingis, án þess að
tekjustofnum þeirra sé breytt til samræmis við aukn-
ar skyldur. Því telur þingið nauðsynlegt að endur-
skoða verkefnaskiptingu og skiptingu tekjustofna milli
ríkis og sveitarfélaga og að framvegis verði haft náið
samstarf við Samband íslenzkra sveitarfélaga um all-
ar breytingar í því efni.
Þingið telur, að efla beri sjálfsforæði héraðanna og
bendir á, að landshlutasamtök sveitarfélaga geti haft
miklu hlutverki að gegna á því sviði, ef þau fá til þess
hæfilegan stuðning sveitarfélaganna sjálfra og ríkisins.
Þingið telur nauðsynlegt, að efla Lánasjóð sveitar-
félaga svo að hanji geti gegnt hlutverki sínu sem aö-
alstofnlánasjóðuj; sveitarfélaganna, og leggur ennfrem-
ur áherzlu á, að sveitarfélögin fái aðgang að rekstrar-
lánum á borð við almennan atvinnurekstur í landinu.
Þingið telur eðlilegt, að rikissjóður greiði sinn hlut
af kostnaði við skóla, sjúkrahús, hafnir og félagsheim-
ili jafnóðum og kostnaðurinn fellur á sveitarfélögin,
en greiði ella vexti af skuldum sínum við þau.
BINDINDISMÁL
Flokksþingið bendir á að aukin neyzla áfengis og
tóbaks er þjóðinni hættulcg, og því mjög nauðsvnlegt
að leggja ríka áherzlu á fræðslu um skaðsemi áfengis
og tóbaks, sérstaklega í skólum landsins.
Þingið telur nauðsynlegt, að aukin verði aðstoð
ríkis og sveitarfélaga við þau félög og samtök, sem
vinna að bindindi meðal þjóðarinnar.
Ennfremur bendir þingið á sívaxandi hættu af
neyzlu ýmiss konar fíknilyfja og telur, að leita verði
allra tiltækra ráða til þess að koma í veg fyrir ólögleg-
an innflutning og dreifingu þeirra.
FÉLAGSHEIMILI
Flokksþingið leggur áherzlu á, að félagsheimila-
sjóður sé efldur svo að áfallandi byggingarstyrkur til
félagsheimila sé greiddur jafnharðan.
Þingið telur það eðlilega þróun, að fleiri sveitar-
félög sameinist um félagsheimilisbyggingu, bar sem
aðstæður leyfa, og telur rétt, að í þeim tilvikum sé
þátttaka félagsheimilasjóðs aukin í 50% byggingar-
kostnaðar.
KIRKJUMÁL
Flokksþingið lýsir stuðningi sínum við kirkju lands-
ins og telur kristindómsfræðslu nauðsynlegan þátt alls
uppeldis.
Þingið fagnar vaxandi æskulýðsstarfi kirkjunnar og
væntir þess, að það megi enn aukast á komandi árum.
Ennfremur lýsir þingið yfir stuðningi sínum við
Hjálparstofnun kirkjunnar og uppbyggingu kirkju-
legra menntastofnana í Skálholti og Hólum.
SAMVINNUMÁL
15. flokksþing Framsóknarmanna minnir á, að rekja
má ýmsa s.tærstu sigra ísjepzku þjóðarinnar í atvinnu
og menningarmálum til gifturíkrar félagsmálabaráttu
samvinnuhreyfingarinnar.
Telur þingið, að áframhaldandi sókn til bættra lífs-
k.jara hljóti að vera nátengd vexti og viðgangi sam-
vinnuhreyfingarinnar við hlið hins frjálsa framtaks.
SAMGÖNGUMÁL
Flokksþingið ítrekar fyrri samþykktir um það, að
góðar samgöngur séu grundvöllur að hvers konar
framförum á sviði efnahags- og atvinnumála þjóðar-
innar, og að án þeirra verði ekki hægt að halda land-
inu öUu í byggð, né nýta auðæfi þess.
Flokksþingð leggur áherzlu á, að Framsóknarflokk-
urinn vinni að framkvæmd þessa atriðis í stefnuskrá
sinni með þessum hætti:
Beiti sér fyrir að gerð verði langtímaáætlun, er mið-
ist við þörf þjóðarinnar á uppbyggingu samgöngu-
kerfisins í heild, þ.e. á landi, lofti og legi, og hvers
einstaks þáttar þess.
í áætlun þessari skal m.a. miða við það, að landið
verði allt byggt og gæði þess nýtt. Samgöngur verði
daglegar innan héraðs og héraöa í milli. Gert verði ráð
fyrir mjög auknum ferðum útlendinga til landsins, og
lengri dvöl þeirra hér en verið hefur. Skal því taka inn
í þessa áætlun þjónustu við ferðafólkið, það er upp-
byggingu og rekstur veitingastaða og þjónustu við
ferðamenn á einstökum heimilum.
Rík áherzla sé á það lögð, að hagnýta aukna ferða-
mannaþjónustu til að eíla landsbyggðina og búsetu
þar.
Leggja skal áherzlu á öryggi í samgöngukexfinu.
Nauðsyn ber til að taka upp að nýju farþegaflutn-
inga á sjó, kringum landið.
í þætti þeim, er snýr að samgöngum á landi, skal
móta ákveðna stefnu um framkvæmdastig í varan-
legri vegagerð, jafnframt því sem bætt verði úr verstu
annmörkum vegakerfisins til þess að tryggja vetrar-
samgöngur til sem flestra byggðai'laga.
í flugsamgöngum skal miða áætlun við skipulega
gerð flugvalla og aukið öi'yggi í flugsamgöngum. Þyrl-
ur vei'ði tiltækar til sjúkraflugs unx land allt.
Fjái'hagslegur gi-undvöllur samgöngukei'fisins skal
hvíla fyrst og fremst á tekjum af umferðinni og lán-
tökum til að hraða framkvæmdum, er tengdar séu
þessum tekjustofni, cnda gangi hann óskiptur til sam-
göngukei'fisins. Þó séu þjónustusanxgöngur með
ströndum fram og franxkvæixxdir vegná flugmála fjár-
magnaðar með ríkisfé, er aflað sé nxeð öðrunx tekju-
stofnunx.
Við áætlunai'gerð þessa skal leita álits og saixislai-fs
hjá aðilum, er að samgöngu- og ferðamálum vinna.
Áætlunargerðin sé unnin að frumkvæði ríkisins og á
kostnað þess.
PÓST- OG SÍMAMÁL.
Flokksþingið telur nauðsyn bera til að endurskoð-
un fari franx á póst- og símaþjónustu í landinu, m.a.
verði gjaldski’án'eglum landsímans breytt þannig að
símtöl innan hvers svæðis vei'ði ekki reiknuð sérstak-
lega eins og nú er — heldur gildi sömu reglur á
hverju svæði eins og gildir í Reykjavík og Hafnar-
fix'ði.
Fjölgað verði símarásum og sjálfvirka símakerfið
konxist á sem fyrst út um allt landið.
H
í: !
H
s
" % .,4: -Wmi
ife,. \ 5
'1, : :lH
“PHv- ■ 'jíii- l'' i!®6
J.&Í;
yáijp
TO:::- lllj-jiiáil'.'jj)
pi .: :: hmmi
• :!:S
:-:i
I
r'J