Tíminn - 06.05.1971, Side 9
FIMMTUDAGUR 6. maí 1971
TIMINN
9
iÍI
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framfcvæmdastjóri: Rristján Benediktsson Ritstjórar Þórarinn
Þórarinsson (áb), Jón HeLgason, IndriSi G Þorsteinsson og
Tómas Karisson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Rit-
Ktjómarskrifstofur i Edduhúsinu, simar 18300 — 18306 Skrif.
sitotur Bankastraeti 7. — Afgreiðslusími 12323 Auglýsingasimi:
10523. Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr 195.00
á mánuði tnnanlands. í Lausasölu kr. 12,00 eint. — Prentsm
Edda hf.
MARION SCHUMACKER:
Ágreiningsefnin tvö
Sjónvarpsumræðurnar um landhelgismálið, sem fóru
fram í fyrrakvöld, leiddu í ljós mjög glöggan ágreining
milli stjórnarandstöðunnar og stjórnarflokkanna um tvö
höfuðatriði málsins. Þessi ágreiningsefni eru:
Fyrra ágreiningsefnið er landhelgissamningamir frá
1961. Stjórnarandstæðingar telja nauðsynlegt að segja
samningunum upp áður en hafizt er handa um útfærslu
fiskveiðilandhelginnar. Stjórnarflokkarnir segja ekki
neitt ákveðið um þetta, en eru í hjarta sínu mótfallnir
uppsögn. Samkvæmt þessum samningum hafa íslending-
ar undirgengizt það einir allra þjóða að leggja það undir
úrskurð alþjóðadómsins, ef þeir færa út fiskveiðilög-
söguna og Bretland eða Vestur-Þýzkaland óskar slíks
úrskurðar. Engir samningar eða viðurkenndar reglur eru
til um víðáttu fiskveiðilögsögunnar. Hins vegar hafa
langflest strandríki 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Sam-
kvæmt því álítur helzti ráðamaður ríkisstjórnarinnar í
landhelgismálum, Hans Andersen, að 12 mílna mörkin
hafi nú gildi sem alþjóðalög. Þótt mikilvæg rök megi
færa gegn þessu, er engan veginn útilokað, að al-
þjóðadómurinn geti komizt að líkri niðurstöðu og Hans
Andersen. Það er venja alþjóðadómstóla að vera íhalds-
samir, þegar samningar eða viðurkenndar reglur ..eru
ekki fyrir hendi. Samkvæmt framangreindri kenningu,
geta íslendingar ekki örugglega treyst á hagstæ'ðán
úrskurð alþjóðadómstólsins fyrr en miklu fleiri ríki en
nú hafa fært fiskveiðilögsöguna út fyrir 12 mílur ein-
hliða og án þess að bera það undir alþjóðadóminn.
Hvenær það verður og hvort það verður nokkurn tíma,
veit enginn. Eftir því geta íslendingar ekki beðið og
þeir mega ekki láta binda sig eina allra þjóða á þann
hátt. Þess vegna verður það að vera fyrsta verk okkar
í landhelgismálinu að segja þessum samningum upp, og
gera það áður en við færum út fiskveiðilögsöguna. Það
er til lítils að vera að færa út fiskveiðilögsöguna, ef al-
þjóðadómurinn ógildir útfærsluna eftir stuttan tíma.
Síðara ágreiningsefnið er það, hvenær útfærslan skuli
koma til framkvæmda. Stjórnarandstæðingar vilja, að
útfærslan verði ekki síðar en 1. september 1972. Stjórn-
arflokkarnir vilja ekki ákveða neina tímasetningu. Af-
staða stjórnarandstæðinga er byggð á tveimur megin-
forsendum. Hin fyrri er sú, að fyrirsjáanleg er stórsókn
útlendinga á fiskimiðin við ísland. Stjórnarandstæðingar
vilja ekki draga útfærsluna þangað til þessi nýja stór-
sókn útlendinga er hafin, heldur vilja þeir, að fiskveiði-
landhelgin hafi verið færð út áður. Síðari ástæðan er
sú, að stjórnarandstæðingar telja hyggilegt, að íslend-
ingar verði búnir að færa út fiskveiðilögsöguna áður
en hafréttarráðstefnan kemur saman. Þeir telja að út-
færsla fyrir ráðstefnuna muni styrkja þar aðstöðu okk-
ar og annarra, sem vilji stærri fiskveiðilandhelgi en 12
mílur. Um horfur á hafréttarráðstefnuni er það helzt
vitað, að Bandaríkin, Sovétríkin og Japan munu beita
sér fyrir því, að fiskveiðilögsaga verði bundin við tólf
mílna mörkin og mörg ríki telja það fullnægjandi. Fyr-
fram getur vitanlega enginn fullyrt um úrslitin á ráð-
stefnunni. Það er hins vegar ljóst, að verði úrslitin þar
hagstæð málstað okkar, er engu spillt, þótt við færum
út fiskveiðilögsöguna fyrir ráðstefnuna. Verði úrslitin
þar hins vegar óhagstæð málstað okkar, getur útfærsla
orðið miklu erfiðari eftir ráðstefnuna, jafnvel útilokuð.
Það er verkefni kjósenda að skera úr þessum tveimur
mikilvægu ágreiningsefnum við kjörborðin 13. júní. Það
er þjóðin sjálf, sem á þannig að marka þá meginstefnu,
sem fylgt verður 1 máiinu. Þ.Þ.
Vestur-þjóðverjar undirbúa lög
um umhverfis- og heiisuvernd
Mörg ákvaeði frumvarpsins vekja athygli víða um lönd
Í VESTUR-ÞÝZKALANDI
eru nú uppi víðtækar ráðagerð-
ir um strangar ráðstafanir til
að takmarka notkun margvís-
legra gerfiefna í iðnaði — eink-
um niðursuðu og öðrum mat-
vælaiðnaði — og er ráðstöfun-
um þessum einkum beint gegn
notkun bragðbætiefna og litar-
efna, sem geta reynzt skaðleg
heilsu manna.
í endurskoðuðu frumvarpi til
laga um matvælaframleiðslu í
landinu, sem heilbrigðismálaráð
herrann hefir látið vinna að og
lagt fram, er gert ráð fyrir, að
16 lagabálkum, sem sumir hafa
staðið með öUu óbreyttir frá
því um síðustu aldamót, svo og
um 40 reglugerðum verði
breytt, þau felld niður eða sam-
ræmd og sameinuð í nýrri heild
arlöggjöf um þessi efni. Ráð-
herrann sagði í tilefni af þessu
við fréttamenn, að þessar nýju
ráðstafanir, sem ríkisvaldið
hygði á, ættu að miða að því
, „að vernda neytemiurB.^ fypr o
heilsutjóni af ýmsu tagi af völd
um umhverfismengunar", sem
fer mjög í vöxt í Vestur-Þýzka-
landi sem víðar í iðnaðarlönd-
um.
ÁKVÆÐI hinnar nýju laga,
sem þýzka þingið fjallar um
um þessar mundir, munu ekki
einungis ná til matvælafram-
leiðslunnar, heldur eru þar einn
ig ákvæði um framleiðslu á
tóbaksvörum og snyrtivörum
alls konar, svo um notkun efna
til útrýmingar á skordýrum,
hreinlætisvörur, sem margar
geta verið varasamar, glóðar-
steikingarofna, sem einnig geta
verið heilsuspillandi og engar
reglur eru til um í lögum, þótt
notkun þeirra fari óðum í vöxt,
og margt fleira, sem þróun síð-
ustu ára hefir gert aðkallandi,
að reglur væru settar um.
í ÞESSU sambandi má einnig
geta þess, að ráðherrann og full-
trúar tóbaksiðnaðarins hafa
rætt margvíslega hættu, sem
stafar af tóbaksneyzl'u, og hef-
ur það m.a. leitt til þess sam-
komulags, að tóbaksauglýsing-
um verður fækkað um helming
í sjónvarpi í landinu frá og með
1. júlí næstkomandi, en síðan
verða þær felldar niður með
öllu frá ársl. 1972. Auk þess
verða bannaðar hvers konar
tóbaksauglýsingar aðrar, sem
hvetja æskufólk til tóbaksnautn
ar, og ekki má heldur halda því
að fólki, að nikótín auki afkasta-
getu reykingamanna eða sé
hressandi eða skapi vellíðan.
Með hinum væntanlegu lög-
um verða snyrtivöruiðnaði lands
ins einnig settar strangar regi-
ur, svo sem þær, að bannað
verður að nota x snyrtiv. alls
konar efni, sem eru á lyfjaskrá
og heyra þess vegna undir heil-
Frá Hamborg
brigðismálalöggjöfina. Komi
t.d. í ljós, að einhverjar tiltekn-
ar snyrtivörur eða hreinlætis-
vörur eru skaðlegar heilsu not-
enda, leyfa lögin, að framleiðsla
þeirra sé þegar bönnuð.
Willy Brandt
RÁÐUNEYTIÐ mun einnig
hafa vald til að takmarka eða
banna með öllu sölu matvæla,
sem hafa orðið fyrir áhrifum
eða spillzt af völdum mengunar
vatns, lofts eða jarðvegs, og
geta þannig verið varhugaverð
til neyzlu eða beinlínis heilsu-
spillandi. Sérfróðum starfs-
mönnum matvælaeftirlits rfkis-
ins verður fjölgað og allt eftir-
lit með framkvæmd laganna
hert. Ráðgert er að koma upp
fleiri rannsóknastofum, sem
starfa munu í þágu viðkomandi
iðngreina, og samvinnu verður
komið á milli tollgæzlu og rann
sóknastofnana til að auka eftir-
lit með innfluttum matvælum,
og eru um það reglur í frum-
varpinu.
Strobel ráðherra væntir þess,
að frumvarpið nái fram að
ganga á þessu ári, og munu lög-
in koma til framkvæmda á
næstu 3 árum. Mörg nýmæli í
frumvarpinu hafa vakið athygli
víða um lönd.