Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.05.1971, Blaðsíða 1
kæli- skápar 3?A« ÍÍXX/íJU-ÉÍOL/t, AjT HtSIJLKJJDUW, WKARSTWET?®, SÍW-tB3SS ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöruverilun INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 - Sími 11783. 104. fbl. — Þriðjudagur 11. maí 1971 — 55. árg. Frá fundi ráðgjafanefndar EFTA á Hótel Loftieiðum í gærmorgun, Fljótandi gengi og gengis- hækkanir Fundur ráðgjafanefndar EFTA ræddi verðmismun í EFTA-ríkjunum: Kodak-litflimur 100% dýrari hér en í Svisslandi EMCJ-Reykjavík, mánudag. f dag var haldtnn á Hótel Lefðeiðum fundur ráðgjafa- nefndar Fríverzlunarbanda- lagdns, EFTA. Á fundinum var m.a. ræft um mismunandi verðtag á ýmsum vörum í smásöhi í EFTA-ríkjurium, en sfundum er um allt að helm- íslendingaþættfr íslendingaþætfir Tímans fylgja blaðinu á morgun. ings verðmun að ræða. Þann- ig eru t.d. Kodak-litfilmur 100% dýrari á íslandi en í Sviss. Fund ráðgjafanefndarinnar sátu 50—60 fulltrúar og áheyrnarfull- trúar. fslenzku fulltrúamir Gunn- ar J. Friðriksson, FÍI, Guðmundur H. Garðarsson, ASÍ, Jón Bergs, Vinnuveitendasambandinu, Þor- varður Júlíusson, framkvæmda- stjóri Verzlunarráðs og Sigurður Markússon, framkvæmdastj. Sam- bands ísl. samvinnufélaga. Fundurinn hófst í morgun og stóð til kl. 17,30 í kvöld. Á blaða- mannafundi að fundinum loknum sagði E. Brugger, fjármálaráð- herra Sviss, sem er formaður nefndarinnar og núverandi for- maður ráðherranefndar EFTA, að fram hcfðu komið ýmsar ábend- ingar, hugmyndir og tillögur, sem lagðar verða fyrir fund ráðherra nefndarinnar, sem hefst hér í Reykjavik á fimmtudaginn og stendur í tvo daga. f morgun var m.a. rætt um nið- urstöður síðasta fundar nefndar- innar — en fundurinn nú var sá 22. í röðinni — og afstöðu ráð- herranefndarinnar til tillagna hans. Siðan var fjallað um stækk un Efnahagsbandalagsins, og m. a. um áhrif aðildar Breta, Norð- Loftleiöir aðili að smíði stórs hótels í Luxemburg OÓ-Reykjavík, mánudag. f þessum mánuði hefst bygg- ing á nýju hóteli í Luxemborg og munu Loftleiðir eiga þriðj- ung fyrirtækisins. Vcrður þetta stórt hótel með 150 herbergj- um, öllum tveggja manna. Er áætlað að hótelið verði tilbúið í júnímánuði næsta ár. Verður það rétt við nýja flugstöðvar- byggingu, sem reisa á við Findelflugvöll, og byggingar- framkvæmdir hefjast senn við. Aðrir eigendur hótelsins verða Luxair, sem eiga mun þriðjung og einstaklingar í Luxemborg þriðjung. — Hafa byggjendur hótelsins tryggt sér svo stóra lóð að liægt verður að stækka hótelið um lielming, og verður að öllum líkindum byrjað á stækkuninni um það leyti sem fyrri áfangi byggingarinnar kemst í gagnið. Þetta kom fram á fundi sem Einar Aakrann, framkvæmda- stjóri Loftleiða í Luxemborg hélt með blaðamönnum í morg un. Jafnframt því sem þetta hótel verður tekið í notkun er í ráði að Loftleiðir bjóði far- þegum sínum upp á svipuð kjör og áningarfarþegar fé- lagsins hafa hér á landi, í Lux emborg. Að vísu geta Loftleiða farþegar notið þessara kjara í Luxemborg nú þegar, en til stendur að stórauka þá starf- somi, þegar nýja hótelið rfs. Fyrst var byrjað á þessari þjón ustu við farþega árið 1966 og liefur hún aukizt með hverju ári. Voru t.d. 3600 áningar- farþegar Loftleiða í Luxem- borg, þótt þetta hafi lítið verið auglýst, enda eru hótelvand- ræði mikil í landinu og því takmörk fyrir hve margir geta notið þessara kjara, þangað til á næsta ári að nýja hótelið getur tekið við gestum. Það er ekki sfzt vegna síauk- innar starfsemi Loftleiða í Lux emborg að eftirspurnin eftir hótelherbcrgjum er orðin miklu mciri en framboð, þrátt fyrir að talsvert er til af hótel um í landinu og eru nokkur þeirra nýbyggð. Er til dæmis verið að taka nýtt 150 her- bergja hótol þar f notkun í þessari viku. Það er kunnara en frá þui’fi að segja hve vel áningarfar- Framhald á bls. 10. manna og Dana á efnahag, eink- um iðnaðarstarfsemi þessara landa. Brugger sagði, að Ijóst væri að hvert land, eða hópar landa, yrðu að fá sérstaka samninga við EBE vegna sérstakra aðstæðna. Hins vegar séu allir í EFTA sammála um nauðsyn þess, að viðhalda því, sem þegar hafi áunnizt með EFTA, þ.e. fríverzlun. Meðál umræðuefna á ráðgjafa- fundinum í dag, var könnun á verði á ýmsum vörum í smásölu í EFTA-ríkjunum. Var könnun þessi miðuð við verð á vörunum í október s.l., og sýnir að ótrú- legur munur getur verið á sömu vörum, sem framleiddar eru af sama aðila, í EFTA-ríkjunum. Á blaðamannafundinum í dag að loknum ráðgjafafundinum var nefnt sem dæmi verð á Kodak litfilmum, 36 mynda, og það vildi svo til að verðið er hæst hér á landi, og helmingi hærra en í Sviss, þar sem verðið er lægst. Framhald á bls. 10. EJ-Reykjavík, mánudag. Frá og með deginum í dag mun gengi vestur-þýzka marksins ráð- ast af framboði og eftirspurn á peningamarkaðinum. Jafntímis var gengi svissneska frankans hækkað um ca. 7% og austur- ríski skildingurinn um ca. 5%. Brugger, fjármálaráðherra Sviss, sem nú er staddur hér á landi, sagði á blaðamannafundi í dag, að Sviss hefði ekki getað fylgt fordæmi Vestur-Þjóðverja og haft gcngið „fljótandi“ vegna þess, að Sviss er miðstöð alþjóða- viðskipta og nauðsynlegt að hafa fast gengi á gjaldmiðli landsins af þeim sökurn. Þá sagði hann, að önnur meginástæða gengis- hækkunarinnar væri verðbólgan í Sviss. f frétt frá Seölabanka fslands segir, að eftir gengishækkun í Svirs og Austumki hafi aftur ver- ið t'-kin upp markaðsskráning á þesum myntum innan venjulegra marka, og muni Seðiabankinn skrá gengi þeirra í samræmi við það. „Þá hafa stjórnvöld í Vestur- Þýzkalandi og Hollandi ákveðið að hætta opinberri skráningu gjaldmiðils þessara landa, og mun því gengi þeirra verða breytilegt eftir markaðsaðstæðum, unz öðru- vísi verður ákveðið. Bankastjórn Seðlabankans hefur hins vegar ákveðið að taka upp skráningu þýzkra marka og hollenzkra gyllina frá og með morgundegin- um, 11. maí, og verður skráning- in ákveðin í samræmj vð mark- aðsgengi á hverjum tíma, en með heldur meira bili á milli kaup- og sölugengis cn tíðkast um gjald miðla, sem föst skráning er á. Framhald á bls. 10. Starfsmenn EFTA E. Brugger, formaður nefjndarinnar, situr lengst til hægri á myndinni. (Tímamynd — GÆ.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.