Tíminn - 13.06.1971, Síða 4
/
16
Hve umfangsmíkil er fram-
kvæmd kosninga og hversu
mikið fé kosta þær? Þessi
spuming vaknaði í huga okk-
ar nú, þegar líða tók að kosn-
ingum.
Þeir aðilar sem sjá um fram-
kvæmd kosninganna eru kjör-
stjómir og Dómsmálaráðuneyt-
ið, en auk þess vinna margir
aðrir beint og óbeint að
henni svo sem löggæzlumenn
og kjörstjórar við atkvæða-
greiðslu utan kjörfunda en
þeir era td. sýslumenn, bæj-
arfógetar, sendiherrar, ræðis-
menn hreppstjórar og skipstjór
ar á íslenzkum skipum í milli-
landasiglingum og á fjarlæg-
um miðum.
Undirbúningur alþingiskosn-
inganna að þessu' sinni hófst
strax í janúar þegar farið var
að láta prenta utankjörfundar-
gögn, kosningalögin og síðan
kjörseðla og önnur kjörgögn,
— og framkvæmd kosninganna
lýkur ekki að fullu fyrr en í
haust. þegar alþingi úrskurðar
um kjörgengi þingmanna og
gildi kosninganna.
Kostnaður við alþingiskosn-
ingar er greiddur af rikissjóði
annars vegar og hreppasjóðum
eða bæjarsjóðum hins vegar.
Hluti ríkissjóðs af kostnaði
kosninganna er á fjárlögum
áætlaður 2.8 milljónir króna,
en við höfum ekki tölur um
kostnað bæja og hreppa, nema
í Reykjavik þar sem hann er
áætlaður 2 milljónir króna að
þessu sinnL
Þeir menn, sem mestan hlut
eiga að framkvæmd alþingis-
kosninga era Ólafur Walter
Stefánsson deildarstjóri í Dóms
og kirkjumálaráðuneytinu og
form. yfirkjörstjórna kjördæm-
anna átta. Þrír þessara manna
urðu góðfúslega við þeirri bón
okkar að segja okkur lauslega
frá starfi sínu í sambandi við
kosningamar að þessu sinni,
þeir Páll Líndal formaður yfir-
kjörstjórnar í Reykjavík, Ragn-
ar Steinbergsson formaður
yfirkjörstjómar í Norðurlands-
kjördæmi eystra og Ólafur
Walter Stefánsson, — en úr-
skurðarvald kosninganna hafa
kjörstjómir og endanlega Al-
þingi.
Það má segja að undirbún-
ingur kosninganna hafi hafizt
í janúar en utankjörfundar-
gögn voru send út í apríl. Við
höfum milligöngu um prentun
kjörseðla, sem r.otaðir eru úti
á landi, og var upplag þeirra
að þessu sinni 77.000 en það á
að vera 10% meira en sá fjöldi
sem er á kjörskrá. f Reykja-
vík er upplagið sennilega um
55—56.000. Við sendum yfir-
kjörstjórnunum kjörgögn, svo
sem kosningalögin og kosninga-
leiðbeiningar, sem hafðar eru
frammi á kjörstöðum. Einnig
látum við gera og sendum út
sérstök blindraspjöld, en með
TÍMINN
Myndin er frá falningu í Austurbæjarskólanum í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í fyrra.
Kosningarnar kosta ríkið
2.8 milljónir en auk þess
bera sveitarféiðgin sitt
Rætt við Ólaf
P^Lfndd.ogRagnar
SteinbergssonIni frámky^md kosninganna
Páli Líndal
Ragnar Steinbergsson Ólafur Walter Stefánsson
þeim geta blindir kosið hjálp-
arlaust.
Einnig höfum við vissa fyrir-
greiðslu í sambandi við at-
kvæðatalninguna. Varðskip eru
stundum notuð við flutning at-
kvæða og einnig greiðum við
eða öllur heldur ríkissjóður
þann kostnað við flutning at-
kvæða, sem er óvenjulega mik-
ill, þ.e.a.s. í þeim tilfellum
þegar atkvæði eru flutt með
flugvélum, en það verður gert
núna, ef veður leyfir, á Vest-
fjörðum, Suðurlandi, í Norður-
landskjördæmi eystra og
e.t.v. á Austurlandi. Það er
áhugamál okkar að úrslitin
geti borizt almenningi sem
allra fyrst. En það er alltaf
undir veðri og vindum komið
hvort yfirleitt er hægt að nota
flugvélar.
- Dómsmálaráðuneytið sinnir
ennfremur ýmiss konar leið-
beiningarstarfi vegna kosning-
anna. Fyrirspurnir berast frá
kjörstjórnum, borgurum og
stjórnmálaflokkum og reynum
SUNNUDAGUR 13. júní 1971
við að greiða úr þeim eftir því
sem unnt er.
Þá leita ýmsir til okkar til
að fá ríkisborgararétt og upp-
reisn æru, þegar kosningar
nálgast.
— Taka kosningamar allan
starfstíma þinn um þessar
mundir?
— Nei, það má segja að þær
bætist ofan á allt hitt. En önn-
ur störf víkja raunar nokkuð
til hliðar.
— Hvenær lýkur starfi þinu
við kosningamar?
— Það er eiginlega búið þeg
ar kosninganóttin er liðin. Þá
er aðeins eftir reikningsupp-
gjör. Yfirkjörstj. senda ráðu-
neytinu tilkynningar um kosn-
ingaúrslitin, sem birtar era í
Stjómartíðindum. Ef ágrein-
ingur kemur upp um kosninga-
úrslit ber að senda ráðuneyt-
inu endurrit úr gerðabókum
yfirkjörstjómanna, en málið
fer síðan áfram til Alþingis,
sem tekur afstöðu tH þess.
HVAÐ KOSTA
KOSNINGARNAR?
— Hve mikið kosta kosn-
ingarnar?
---- Á fjárlögum er áætlað
að 2.8 milljónum króna verði
varið í kostnað vegna kosning-
anna. Þetta er hhrtur ríkisins,
en bæja- og hreppasjóðír bera
einnig hluta af kostnaðinum.
Hluti ríkisins í alþingiskosning
unum 1967 var 1.7 miHjóinir
króna.
— Hverjir era helztu kostn-
aðarliðir?
— Kostnaður við augfýsmg-
ar framboðslistanna, störf yfir-
kjörstjórna og landskjörstjórn-
ar, prentun kjörgagna og
kostnaður við talningu at-
kvæða. Að þessu sinni verður
unnið betur úr reikningsupp-
gjörinu en gert hefur verið til
þessa og annast Ríkisbókhaldið
það. Verður fróðlegt að sjá ná-
kvæmlega kc^tnað við einstaka
liði yfir allt landið.
Yfirkjörstjómimar hafa að-
setur í átta kaupstöðum á kjör-
dag og þar fer talning at-
kvæða fram. Þessir staðir eru
Reykjavík, Borgames, ísafjörð-
ur, Sauðárkrókur, Akureyri,
Seyðisfjörður, Hvolsvöllur og
Hafnarfjörður.
— Eitt það fyrsta sem yfir-
kjörstjóm gerir í kosninga-
undirbúningnum er að tilkynna
Dómsmálaráðuneytinu væntan-
lega tölu kjósenda í Reykjavik,
sagði Páll Líndal formaður
yfirkjörstjórnar í Reykjavík.
Við auglýsum eftir framboðs-
listum, og ef þeir reynast gild
ir era þeir síðan auglýstir
ásamt listabókstöfunum. Síðan
látum við prenta kjörseðla.
Þá er að ákveða hvar kjör-
fundir skulu haldnir og að efna
til fundar með hverfiskjörstjór
um, en kosið er á tíu stöðum í
borginni.
BLÓMASALUR
BLÓMASALUR
Foretdrarl
Takið börnin með
ykkur I hádegisverð
aS kalda borðinu
dkeypis matur fyrir
jörn irinan 12 áia.
Borðpantanir
r VÍKINGASALUR ’
KVÖLDVERDUR FRA KL. 7
HOTEL
LOFTLBÐIR
SlMAR Á
22321 22322 A
KARL LILLENDAHL OG
k. Linda Walkcr .
múm
\