Fréttablaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 1
Aftur ólétt bls. 22 VIÐSKIPTI Langt í botninn bls. 10 FÖSTUDAGUR bls. 16 150. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 16. ágúst 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Skemmtanir 16 Bíó 14 Íþróttir 12 Sjónvarp 20 Útvarp 21 KVÖLDIÐ Í KVÖLD Maður eins og ég KVIKMYND Íslenska sumarmyndin, Maður eins og ég, verður frumsýnd í dag í Háskólabíói og Sambíóunum í Reykjavík, Keflavík og Akureyri. Að myndinni standa þeir sömu og gerðu myndina Íslenski draumur- inn. Maður eins og ég er rómantísk gamanmynd úr raunveruleikanum. Handritið skrifuðu Róbert Douglas og Árni Óli Ásgeirsson. Framleið- andi er Júlíus Kemp og leikstjóri Róbert Douglas. Fótbolti í kvöld KNATTSPYRNA Tveir leikir verða í 1. deild karla í kvöld. Í Kópavogi mætast Breiðablik og Valur og að Ásvöllum mætast Haukar og Stjarnan. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:00. Samanburðar- stjórnmál FYRIRLESTUR Dr. Emmanuel Brunet- Jailly, prófessor í stjórnmálafræði við University of Victoria í Kanada, flytur opinn fyrirlestur á vegum Borgarfræðaseturs. Brunet-Jailly sérhæfir sig í samanburðarstjórn- málum á milli borga og er talinn annar af tveimur helstu sérfræð- ingum Kanada á sviði borgar- og sveitastjórnamála. Fyrirlesturinn verður í Norræna húsinu og hefst klukkan 14:00. TÓNLIST Orðlaus ópera PERSÓNA Er hlekkur í liðinu SÍÐA 19 Leiðin liggur upp ÍÞRÓTTIR FÓLK SÍÐA 12 BARIST Í LAUGARDALNUM Fylkismenn börðust vel gegn belgískum mótherjum sínum í Evrópukeppni félagsliða í gærkvöldi. Árbæjarliðið hefði hæglega getað sigrað fremur slaka Belga en niðurstaðan varð 1:1. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI HEILBRIGÐISMÁL „Þegar verið er að gera mikið af góðum hlutum þá er nóg að gera. Nú er barist um hvern lyfjafræðing í landinu og hreinlega erfiðeikum bundið að manna apótekin svo vel sé,“ segir Sigríður Pálína Arnadóttir, for- maður Lyfjafræðingafélagsins, og telur að fjölga þyrfti lyfjafræð- ingum um minnst þriðjung svo viðunandi væri. „Það eru fram- leiðslufyrirtæki sem flytja lyf til Evrópu, Íslensk erfðagreining og svo heildsölufyrirtæki sem versla með lyf sem þurfa á öllum þessum mannskap að halda. Það bitnar svo á apótekunum sem eiga nú í erfið- leikum með að finna sumarafleys- ingafólk,“ segir Sigríður Pálína sem sjálf er apótekari á Selfossi og veit hvað til síns friðar heyrir. Lyfjafræðingar eru nú um 200 talsins í landinu en þyrftu að vera minnst 300 til að anna eftirsspurn fyrirtækja og stofnanna. Lyfja- fræðinám við Háskóla Íslands tekur fimm ár en vegna ástands- ins hefur Lyfjafræðingafélagið velt upp þeirri hugmynd að bjóða upp á þriggja ára nám sem út- skrifaði þá lyfjafræðinga til star- fa í apótekum. Óvíst er enn hvað úr því verður.  Blómlegt vísindastarf veldur erfiðleikum í apótekum: Barist um hvern lyfjafræðing UMVERFISMÁL „Í stað þess að Skipu- lagsstofnun kveði upp úrskurð um mat á umhverfisáhrifum muni stofnunin gefa álit sitt á endan- legri matsskýrslu framkvæmdar- aðila.“ Þessi breyting er meðal fjöl- margra sem endurskoðunarnefnd laga um mat á umhverfisáhrifum leggur til. Nefndin hefur þegar skilað hugmyndum sínum og frumvarpsdrögum til umhverfis- ráðherra. „Tillögur okkar miða að því að gera lög um mat á umhverfisá- hrifum líkari því sem þekkist í ná- grannalöndunum. Ráðherrar koma, ef af breytingum verður, aldrei sem slíkir að því að taka endanlega afstöðu til mats á um- hverfisáhrifum. Umhverfisráð- herra getur hins vegar gripið inn í og stöðvað framkvæmdir, ef hon- um þykir sýnt að gengið sé gegn alþjóðlegum skuldbindingum,“ segir Magnús Jóhannesson ráðu- neytisstjóri Umhverfisráðuneyt- isins og nefndarformaður. „Það er ekki búið að vinna mál- ið til enda þó búið sé að skoða það talsvert í sumar. Skipulagsstofnun varpar ljósi á umhverfisáhrif ein- stakra þátta framkvæmdarinnar. Matsskýrslan yrði því grundvall- arplagg þegar kæmi að veitingu framkvæmdaleyfis og leyfisveit- andi, tekur þá eftir sem fært er, til greina þær athugasemdir sem þar koma fram, segir Siv Friðleifs- dóttir, umhverfisráðherra. Hún segir óljóst hvort frum- varpið verði lagt fram á Alþingi í haust en endurskoðunar sé þörf, þar með á hlutverki Skipulags- stofnunar í ferlinu. „Það var mín ákvörðun að víkja sæti ef kæra berst vegna úrskurð- ar Skipulagsstofnunar. Ég er ekki sátt við að vera í þessari stöðu, að teljast vanhæf vegna ummæla sem féllu fyrir hálfu öðru ári og það áður en allar upplýsingar lágu fyrir um áhrif Norðlingaöldu- veitu. Það er ekki eðlilegt fyrir umhverfisráðherra að vera í slíkri stöðu almennt,“ segir Siv Frið- leifsdóttir.  Skipulagsstofnun úrskurði ekki Grundvallarbreytingar á lögum um mat á umhverfisáhrifum í vinnslu. Ekki á valdi Skipulagsstofnunar að hafna framkvæmdum eða leyfa þær. Óvíst hvort frumvarpið kemur til kasta Alþingis í haust. STEINGRÍMUR HERMANNSON Vill að Landsvirkjun snúi sér að jarðhitanum.. Steingrímur: Myndi hafna úrskurðinum „Mér finnst skrýtið hvernig Skipulagsstofnun er farin að vinna. Væri ég forsætisráðherra í dag myndi ég hafna úrskurði hennar umsvifalaust og reyna frekar að fá Landsvirkjun til að kanna betur og skoða jarðhitann hér á landi og möguleikana sem honum fylgja,“ segir Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, um nýjustu vending- ar í virkjunarmálum þjóðarinnar sem leitt geta til þess að Þjórsár- verum verði sökkt. Sjá nánar á bls. 22. ÞETTA HELST REYKJAVÍK Norðlæg átt. 5-8 m/s, en 8-10 síðdegis. Skýj- að með köflum og hiti 7 til 12 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Súld 8 Akureyri 5-10 Rigning 8 Egilsstaðir 5-10 Þurt 10 Vestmannaeyjar 8-13 Skýjað 11 + + + + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜➜ ➜ NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 39 ára á föstudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 27,2% D V 70.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu á föstu- dögum? 58,4% 66,3% EFTIRSÓTTIR Hugmyndir eru uppi um að stytta nám lyfjafræðinga sem starfa í apótekum til að anna eftirspurn. Skattleysismörkin verða kosn-ingamál. bls. 2 Fleiri konur en karlar nemalögfræði. bls. 4 Reykjavík breytist í þrjár eyj-ar komi til stormflóða. bls. 6 Saddam Hussein er illur maðursem verður að stöðva. bls. 8 Greiðslustöðvun vofir yfirUnited Airlines bls. 10 Samrunaáætlun Pharmaco ogDelta hefur verið samþykkt. bls.11

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.