Fréttablaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 14
14 16. ágúst 2002 FÖSTUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ídag eru 25 ár liðin frá því aðElvis Presley lést úr hjartaá-
falli. Þrátt fyrir að þetta langur
tími sé liðin frá
láti kóngsins end-
aði hann samt í
efsta sæti skoð-
anakönnunar sem
gerð var í Banda-
ríkjunum um
hver væri „stærs-
ta rokkstjarna
heims“. Elvis
vann með miklum meirihluta at-
kvæða. Á eftir kónginum á listan-
um voru í réttri röð; Jimi
Hendrix, John Lennon, Mick Jag-
ger og Bruce Springsteen. Búist
er við því að um 100 þúsund
manns safnist saman við
Graceland, höll kóngsins, í dag til
að votta honum virðingu sína.
Hollywoodparið Tim Robbinsog Susan Sarandon heilluðu
frumsýningargesti leikritsins
„The Guys“ upp
úr skónum í Edin-
borg á miðviku-
dagskvöldið.
Verkið fjallar um
slökkviliðsstjóra
og blaðamann
sem skrifa saman
minningargreinar
slökkviliðs- og
lögreglumanna sem létu lífið í
hryðjuverkaárásinni 11. septem-
ber. Robbins og Sarandon eru
einu leikararnir í leikritinu og
styðjast aðeins við stóla, borð og
sviðsljós við flutning verksins.
Sýningin er hluti af Edinborgar-
listahátíðinni sem stendur yfir
þessa daganna.
Söngvari hljómsveitarinnarDrowning Pool, sem hefur
verið að ryðja sér til rúms á MTV
sjónvarpsstöðinni með lag sitt
„Bodies“, fannst látinn í hljóm-
sveitarrútunni á miðvikudag.
Dánarorsök hefur ekki verið gerð
opinber. Hljómsveitin var á tón-
leikaferðalaginu Ozzfest þar sem
hún fylgdi eftir fyrstu breiðskífu
sinni „Sinner“.
Rannsóknarfyrirtækið Forrest-er Research í Bandaríkjunum
heldur því fram að ekki sé hægt
að kenna stafrænum afritunum
um minnkandi plötusölu í land-
inu. Sala hefur dregist saman um
15% þar í landi og segir fyrir-
tækið ástæðuna vera af öðrum
toga en að fólk sé að sækja tón-
listina frítt á Netinu. Það bætti
því einnig við að fyrirtækin gætu
nýtt sér tæknina betur til þess að
gera tónlist þeirra aðgengilegri
Netnotendum. Fyrirtækið spáir
því að ný vefsvæði plötufyrir-
tækjanna, sem leyfa notendum að
vista og fjölfalda tónlist lista-
manna gegn vægu gjaldi, muni
veita þeim allt að 17% tekna þeir-
ra árið 2007. Þar eiga þeir við
síður á borð við Pressplay,
MusicNet, FullAudio og
Rhapsody sem hingað til hafa
ekki heillað netnotendur á sama
hátt og síður á borð við Napster.
Ástæðan fyrir því er líklegast sú
að Napster hefur boðið notendum
sínum upp á þjónustuna án end-
urgjalds.
MENNINGARNÓTT „Mér finnst
þetta meiriháttar. Þó við rapp-
arar séum komnir langt frá því
sem kvæðamenn eru að gera þá
er þetta angi af sama meiði og
vel það. Þegar kveðið er um
Sturlungaöldina til dæmis erum
við komin ansi nálægt því sem
rappað er um í dag,“ segir Erp-
ur Eyvindarson, sem á menn-
ingarnótt stígur á svið í Gallerí
Rifi á Sölvhólsgötu 11, með
börnum og fullorðnum úr
kvæðamannafélaginu Iðunni.
Dagskrá gallerísins á menning-
arnótt var kynnt í gær, en húsið,
sem á að rífa í byrjun septem-
ber, verður iðandi af lífi á laug-
ardaginn og rekur hver uppá-
koman aðra. Við sama tækifæri
var undirritaður samningur
milli Eddu miðlunar og menn-
ingarnætur, en Rapp og rímna-
tónleikarnir verða teknir upp af
Eddu miðlun og gefnir út á
geisladiski í haust. „Það sem er
svo sérstakt við þetta,“ segir
Anna Margrét Guðjónsdóttir,
menningarfulltrúi, „er að hér
erum við skeyta saman gamla
fólkinu, litlum börnum og helsta
rjómanum í rappliðinu. Hug-
myndin varð til á hátíð í
Snæfjallahreppi á Jónsmess-
unni, en þar var einmitt flutt
dagskrá í þessum stíl. Við
ákváðum að flytja sýninguna,
sem hefur þó tekið miklum
breytingum, til Reykjavíkur.“ Á
tónleikunum verður líka rapp-
þáttur um Snæfjalladrauginn,
eftir Eyvind Eiríksson. „Það er
alltaf verðið að reyna að kveða
þessa blessaða drauga niður,
segir Eyvindur. „Þetta voru
náttúrlega bara olnbogabörn í
harðkristnu og grimmu samfé-
lagi. Ég ákvað að taka upp
hanskann fyrir þennan litla
draug sem er bara unglingur, en
pabbi hans, sem var prestur,
sendi hann út í bylinn til að
sækja rollur. Drengurinn fórst
og gekk að sjálfsögðu aftur.“
Fjöldi annarra dagskárliða
verður í húsinu, meðal annars
mun Ingólfur Margeirsson rifja
upp sögu Bítlanna, fjöllistahóp-
ur verður á ferð með eldgleypa
í broddi fylkingar og jafningja-
fræðslan verður með flóamark-
aðinn sem fauk og veitingasölu.
edda@frettabladid.is
Rapp og rímur
á Menningarnótt
Erpur Eyvindarson rappar með kvæðamönnum í Gallerí Rifi. Börn
og fullorðnir kveðast á við rapparana og draugur frá Snæfjallaströnd
fær uppreisn æru. Fjölmargar uppákomur í húsinu.
GALLERÍ RIF
Þar verður nýstárleg dagskrá á laugardag og eitthvað fyrir alla, konur, börn og kalla.
Umboðsmaður Beverly Hills90120 leikarans Jason
Priestley segir að pilturinn ætli
sér að fara aftur
bak við stýri
kappakstursbíls
um leið og hann
jafni sig.
Priestley var
nærri dauða sín-
um um síðustu
helgi er kappakst-
ursbíll hans missti stjórn og end-
aði á vegg á ofsahraða. Leikarinn
er alvarlega slasaður en læknar
segja að hann ætti að ná sér að
fullu eftir langa endurhæfingu.
Kvikmyndin „8 Mile“, semskartar rapparanum Eminem
í aðalhlutverki og er byggð að
hluta til á ævi hans, verður sýnd
ókláruð á kvikmyndahátíðinni í
Toronto sem hefst
5. september.
Myndin gerist í
heimaborg rapp-
arans Detroit í
upphafi síðasta
áratugar. Kim
Basinger leikur
móður hans en aðrir leikarar eru
Mekhi Phifer og Brittany Murphy.
Myndin verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum 8. nóvember.
STÚART LITLI
Já, hann er klár þó hann sé smár og var í
litlum vanda með að ná músabílprófinu.
Stúart Litli 2 frumsýnd:
Stúart til
bjargar
KVIKMYND Í dag frumsýna Smára-
bíóin, Regnboginn, Laugarásbíó,
Sambíóin Keflavík, Borgarbíóin
á Akureyri og Ísafjarðarbíó
framhaldsmyndina um músina
litlu Stúart. Myndin verður bæði
sýnd með ensku og íslensku tali.
Í þessari mynd leggjast þeir
Stúart og kötturinn Snjóber í
leiðangur í gegnum borgina til
þess að bjarga vini í vanda.
Það er vingjarnlegi leikarinn
Michael J. Fox sem ljær músinni
knáu rödd sína í ensku útgáf-
unni. Eins og alltaf hefur mikill
metnaður verið lagður í radd-
setningu og er það leikarinn
Bergur Ingólfsson sem talar fyr-
ir Stúart.
Með önnur hlutverk í íslensku
útgáfunni fara meðal annars Sig-
urður Jökull Tómasson, Gunnar
Hansson, Guðfinna Rúnarsdótt-
ir, Hjálmar Hjálmarsson, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Pálmi Gest-
son og Örn Árnason. Leikstjóri
raddsetningarinnar var Þórhall-
ur Sigurðsson.
Viltu spara
Tíma og peninga
Láttu okkur um
járnin
Komdu með
teikningarnar
Við forvinnum
járnið lykkjur,
bita og súlur
Vottaðar mottur
5,6,7mm
550 3600
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
THE SWEETEST THING kl. 8 og 10
MEN IN BLACK 2 kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 4 og 6 m/ ísl. tali
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 m/ ísl. taliSýnd kll. 5, 8, 10 og 11 Powersýning
Sýnd kl. 7 og 10kl. 5.20FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 7LEITIN AÐ RAJEEV
kl. 6 og 8CLOCKSTOPPERS
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 6
ABOUT A BOY kl. 8 og 10.05
MOTHMAN PROPHECIES 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30
kl. 10NOVOCAINE
MURDER BY... kl. 10.10 VIT400
SCOOBY DOO kl. 4 og 6 VIT398
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali 4 og 6 VIT418
EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417
MR. BONES kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT415
BIG TROUBLE kl. 8 VIT406
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 3.45 VIT410
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 420Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 422
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT 423