Fréttablaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.08.2002, Blaðsíða 10
KAUPHÖLL Verðbréfamiðlarar telja, í ljósi þeirrar svartsýni sem ríkir á hlutabréfamörkuðum, ekki útilokað að gengi deCODE á Nas- daq geti enn lækkað töluvert og engum ætti að bregða þó þau færu niður í 2 dollara á hlut á næstunni. Sérfræðingar segja ástandið vont, en það venjist, og það eina sem sé gefið í þessu sé að gengið geti aldrei farið niður fyrir núllið. Það er því enn langt í botninn hjá deCODE og skráning þess á Nas- daq er enn langt því frá að vera í hættu. Fyrirtækjum er ekki skipt inn og út af Nasdaq, líkt og á Dow Jones, og algengt er að höndlað sé með bréf í fyrirtækjum sem eru farin að skrapa botninn. Nokkur stemning á það meira að segja til að skapast í kringum fyrirtæki sem eru komin niður fyrir 1 dollar á hlut og djarfir fjárfestar eiga það til að kaupa í þeim og græða vel ef gengið mjakast örlítið upp. Hættan á því að tapa öllu er þó vitaskuld alltaf fyrir hendi.  10 16. ágúst 2002 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Gengi deCODE á Nasdaq: Enn langt í botninn Ómöguleg póstþjón- usta Vesturbæingur skrifar: Ekki veit ég hvað fær forráða-menn Íslandspósts til að ætl- ast til þess af Vesturbæingum að þeir sæki póstsþjónustu vestur á Seltjarnarnes. Búið er að loka pósthúsinu við Hofsvallagötu og er okkur Vesturbæingur vísað á Seltjarnarnes. Þetta þykir mér langt gengið, of langt. Ég hef fátt eða ekkert við Seltirninga að athuga en get alls ekki sætt mig við að þeir þjónusti mig. Það getur ekki verið að hægt sé að ætlast til þess að okk- ur sé gert að fara í önnur byggð- arlög vegna svokallaðrar grunn- þjónustu. Ég skil nú óánægju fólks víða um land þar sem verið er að draga úr þjónustu banka og pósts. Ég ætlast til að Íslands- póstur endurmeti þessa ákvörð- un sína hið fyrsta.  NÝJAR SENDINGAR Í HVERRI VIKU 2.699,- 1.299,- 999,- 1.999,- 1.999,- Kominn aftur Kominn aftur KAUPHÖLLIN Ástandið er vont en það venst og miðlarar og fjárfestar gefast ekki upp enda leynast kauptækifærin víða. Jafnvel á botninum. Eftirlitsmyndavélar: Koma ekki í veg fyrir glæpi GLÆPIR Eftirlitsmyndavélar eru ekki eins mikilvægar í baráttunni gegn glæpum og áður hefur verið talið. Þetta kemur fram í niður- stöðum rannsóknar breskra stjórnvalda. Samkvæmt rann- sókninni koma myndavélarnar að öllum líkindum að betri notum við að sjá glæpina fremur en að koma í veg fyrir þá, að því er kom fram á fréttavef BBC. Í rannsókninni var fylgst með 22 myndavélum sem komið hafði verið upp í Bret- landi og Bandaríkjunum.  CHICAGO, AP Næst stærsta flugfélag Bandaríkjanna, United Airlines, ætlar hugsanlega að fara fram á greiðslustöðvun og fylgja þar í kjölfar flugfélags- ins US Airways sem fór fram á slíka stöðvun í síðustu viku. Að sögn for- svarsmanna United Airlines verður far- ið fram á greiðslu- stöðvun ef ekki tekst að draga úr kostnaði á næst- unni. Flugfélagið ætlar að nota næstu 30 daga til að ræða við starfsfólk sitt um endurskipulegg- ingu á rekstrinum. „Breytingarnar sem við þurfum að gera eru afar knýjandi og þurfa að eiga sér stað eins fljótt og hægt er,“ sagði Jack Creighton, forstjóri flugfélagsins. United Airlines, sem tapar hund- ruð milljónum króna á degi hverj- um, er nú undir miklum þrýstingi um að greiða skuldir upp á rúma 74 milljarða króna. Flugfélagið tapaði tæpum 180 milljörðum króna á síðasta ári og á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefur það tap- að rúmum 70 milljörðum króna. Búast forsvarsmenn flugfélagsins við enn meira tapi það sem eftir lifir af árinu. Hlutabréf í United Airlines hríðféllu eftir að tíðindin voru kunngerð. Bandarísk flugfélög hafa átt í miklum erfiðleikum eftir hryðju- verkaárásirnar þann 11. septem- ber. Hefur verulega dregið úr far- þegafjölda vegna árásanna. „Heimurinn hefur breyst,“ sagði Creighton. „Eftirspurnin hefur ekki aukist eins og við bjuggumst við, fargjöldin eru lág og iðnaður- inn veit ekki hvernig hann á að bregðast við.“ Flugfélagið American Airlines, sem er stærsta flugfélag Banda- ríkjanna, tilkynnti á þriðjudag að það ætlaði að segja upp fólki í 7000 stöðugildum til að draga úr kostnaði. Þrjú bandarísk flugfé- lög hafa farið fram á greiðslu- stöðvun á þessu ári vegna þess slæma ástands sem uppi er í flug- iðnaðinum.  Greiðslustöðvun yfirvof- andi hjá United Airlines Næst stærsta flugfélag Bandaríkjanna í erfiðum málum. Tapaði 180 milljörðum króna á síðasta ári. Þrjú bandarísk flugfélög hafa farið fram á greiðslustöðvun á þessu ári. AP /M YN D Breytingarnar sem við þurf- um að gera eru afar knýj- andi og þurfa að eiga sér stað eins fljótt og hægt er. FLUGVÉL Boeing 747 flugvél frá United Airlines tekur á loft frá alþjóðaflugvellinum í Los Angeles. Svo gæti farið að flugfélagið þurfi að sækja um greiðslustöðvun til að freista þess að bjarga sér frá gjaldþroti. Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert bréf sé ekki lengra en sem nemur hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að senda bréfin í tölvupósti, rit- stjorn@frettabladid.is, hringja í síma 515 7500, faxa í síma 515 7506 eða senda bréf á Fréttablaðið, Þverholti 9, 105 Reykjavík. LESENDABRÉF

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.