Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.08.2002, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 16.08.2002, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 16. ágúst 2002 Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Ka na rí sól og sumar allt ári› fyrir 4ra manna fjölskyldu í 19 daga 30. nóvember á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára Innifalið: Flug, gisting á Aloe, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman Ver›dæmi Flugsæti 45.140 kr. 69.630 kr. staðgr. á mann án flugvallarskatta. staðgr. staðgr. 44.930 kr. UMHVERFISMÁL Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja stefnumörkun Ís- lands um sjálfbæra þróun til 2020. Stefnumörkunin, sem ber heitið „Velferð til framtíðar,“ er ætlað að mynda ramma um opin- bera markmiðssetningu og um- ræðu um sjálfbæra þróun á Ís- landi á komandi árum. Stefnan verður kynnt á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, sem hefst 26. ágúst. Á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun, sem haldin var í Ríó de Janeiro árið 1992, var samþykkt viðamik- il framkvæmdaáætlun um hvern- ig skuli stuðlað að sjálfbærri þró- un á heimsvísu, sem þekkt er undir heitinu Dagskrá 21. Á leið- togafundinum í Jóhannesarborg verður árangur síðustu 10 ára metinn og áherslur til framtíðar ræddar. Stefnumörkunin ríkisstjórnar- innar fjallar í grófum dráttum um heilnæmt og öruggt umhverfi, verndun náttúru Íslands, sjálf- bæra nýtingu auðlinda og hnatt- ræn viðfangsefni. Stefnumörkun- in byggir á víðtæku samráði milli sjö ráðuneyta, þar sem sjálfbær þróun nær yfir mun víðtækara svið en verksvið umhverfisráðu- neytisins og varðar í raun alla samfélagsþróun. Óskað var eftir athugasemd- um frá almenningi, félagasam- tökum, atvinnulífinu og sveitarfé- lögum við fyrstu drög að stefnu- mörkuninni og bárust allmargar slíkar. Samráðsfundir voru einnig haldnir með fulltrúum sveitar- stjórna og félagasamtaka.  Ríkisstjórnin samþykkir nýja stefnumörkun um sjálfbæra þróun: Stefnan kynnt á leiðtoga- fundi SÞ í S-Afríku STJÓRNARRÁÐIÐ Stefnumörkun ríkisstjórnarinnar fjallar í grófum dráttum um heilnæmt og öruggt umhverfi, verndun náttúru Íslands, sjálf- bæra nýtingu auðlinda og hnattræn við- fangsefni. STRÍÐ GEGN HRYÐJUVERKUM Að minnsta kosti 30 talibanar og með- limir al-Qaida hryðjuverkasam- takanna sem eru í haldi í fanga- búðum Bandaríkjamanna í Guant- anamo á Kúbu, hafa reynt að fremja sjálfsvíg. Þetta segja læknar sem starfa við fangabúð- irnar. Að sögn James Radkee, læknis bandaríska sjóhersins, eru flestir fanganna heilsuhraustir. Rúmlega tuttugu fangar eru aftur á móti með alvarleg sálfræðileg vandamál. Sjálfsvígstilraunirnar hafa verið af ýmsum toga. Hafa fangarnir meðal annars reynt að skera sig með plastáhöldum og lemja höfði sínu upp við veggi. Engum hefur enn sem komið er tekist að skaða sig alvarlega. Búðirnar á Kúbu, sem hafa verið starfræktar undanfarna sjö mánuði, eru nánast orðnar fullar. Alls dvelja þar 598 fangar, en 34 nýjir fangar voru fluttir þangað í síðustu viku. Til stendur að ljúka byggingu 200 fangaklefa til við- bótar í október til að hægt verði að taka á móti fleiri föngum.  Pharmaco og Delta: Stjórnir samþykkja samruna- áætlun LYFJAFYRIRTÆKI Stjórnir Pharmaco hf. og Delta hf. hafa undirritað sameiginlega áætlun um sam- runa félaganna. Samruninn mið- ast við 1. júlí 2002. Skiptihlutfall bréfa í fyrirtækjunum miðast við gengi 73 á hlutafé í Pharmaco og gengi 77 á hlutafé í Deltu. Sam- þykktir Pharmaco munu gilda fyrir hið sameinaða félag. Sam- runaáætlunin verður birt í Lög- birtingarblaðinu næstu daga. Hluthafafundur hefur verið boð- aður hjá Pharmaco, þar sem stjórnin mun óska eftir heimild til að auka hlutafé í félaginu til að mæta kaupum á hlutabréfum í Delta.  Dómstólar í Hong Kong hafadæmt 16 meðlimi Falun Gong seka um að hafa valdið opinberri röskun er þeir höfðu uppi mótmæli fyrir utan skrifstofur kínverskra yfirvalda í landinu í mars á þessu ári. Þetta er í fyrsta sinn sem með- limir í trúarhreyfingu eru dæmdir fyrir glæp í Hong Kong. Hreyfing- in er bönnuð í Kína, en ekki í Hong Kong. Hinir dæmdu eiga yfir höfði sér sekt fyrir athæfið. Vicente Fox, forseti Mexíkó,hefur hætt við ferðalag sitt til Texas síðar í mánuðinum þar sem hann ætlaði að hitta George W. Bush, Bandaríkjaforseta. Fox ákvað að hætta við ferðina til að mótmæla aftöku á mexíkóskum manni sem framin var í Texas á miðvikudag. Fox hafði, ásamt mörgum öðrum leiðtogum, óskað eftir því að lífi mannsins yrði þyrmt, en án árangurs. Bandaríski fjölmiðlarisinn AOLTime Warner sagði í gær að þeir hefðu að öllum líkindum van- reiknað tekjur sínar af America Online, netfyrirtæki sínu, um rúma 4 milljarða króna. Meint bók- haldssvik fyrirtækisins hafa und- anfarnar vikur verið í rannsókn hjá bandarískum yfirvöldum. Full- trúar AOL Time Warner segjast líklega „ekki hafa gert nógu vel grein fyrir“ þremur greiðslum sem bárust America Online fyrir auglýsingar. Breska þjóðin er að eldast jafntog þétt. Fjöldi fólks yfir 80 ára aldri í landinu mun tvöfaldast fyrir árið 2040 og verður þá orðinn 4,9 milljónir, að því er stjórnvöld í landinu greindu frá í gær. Fjöldi fólks yfir 80 ára mun á árunum 2000 til 2025 aukast úr 2,4 milljón- um í 3,5 milljónir. Búist er við að fjöldi Breta verði orðinn 64,8 millj- ónir árið 2025, en hann er nú 59,8 milljónir. Búist er við að mann- fjöldi í landinu nái hámarki árið 2040 með 66 milljónum manna. Um 30 fangar í Guantanamo á Kúbu: Reyndu að fremja sjálfsvíg Í FANGABÚÐUM Mannréttindahópar hafa látið í sér heyra vegna aðbúnaðs fanganna á Kúbu. Banda- rískir læknar segja langflesta fangana vera heilsuhrausta. AP /M YN D ERLENT Munið okkar frábæru tilboð ef sótt er! Verið velkomin s: 55 44444 Fákafen opnar aftur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.