Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.08.2002, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.08.2002, Qupperneq 4
4 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURSVONA ERUM VIÐ LÍTIÐ FYLGST MEÐ ÞJÓÐGARÐI Íslendingar virðast hafa takmarkaðan áhuga á stofnun þjóðgarðs norðan Vatna- jökuls. Samkvæmt Gallup könnun fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands er meiri- hlutinn þó fylgjandi stofnuninni en tæp 69% segjast lítið hafa fylgst með umræð- unni. 21% sögðust hafa fylgst vel með henni og 10% svöruðu ekki. INNLENT RAMALLAH, VESTURBAKKANUM, AP Palestínski skæruliðaleiðtoginn Abu Nidal, einn eftirlýstasti mað- ur heimsins, fannst látinn í gær af völdum skotsára á heimili sínu í Bagdad. Háttsettur palestínskur ráðamaður sagði að Nidal hafi dáið undir „dularfullum kringum- stæðum.“ Óvíst var hvort hann hafi verið myrtur eða hvort hann hafi framið sjálfsvíg. Talið er að hann hafi látist þremur dögum áður en hann fannst. Nidal, sem var 65 ára gamall, var svarinn óvinur Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, sem og allra palestínskra leiðtoga sem sóttust eftir málamiðlun í deilunni við Ísrael. Skæruliða- hreyfing Nidals var sökuð um árásir í um 20 löndum á 8. og 9. áratugnum þar sem hundruð manns létu lífið eða særðust.  SJÁLFBOÐALIÐAR Sjálfboðaliðar stafla upp sandpokum til varnar flóðum í bænum Bitterfeld í austur- hluta Þýskalands. Flóðin í Evrópu: Þúsundir yfirgáfu heimili sín DESSAU, ÞÝSKALANDI, AP Þúsundir manna þurftu að yfirgefa heimli sín víðsvegar um Þýskaland í gær vegna mikilla vatnavaxta í ánni Elbe. Alls hafa 15 manns látið lífið í flóðum í landinu auk þess sem 25 manns er saknað. Í Búdapest í Ungverjalandi náðu vatnavextir í ánni Danube sögulegu hámarki. Flóð voru þó ekki mikil. Að minnsta kosti 109 manns hafa farist í flóðunum sem gengið hafa yfir Evrópu undanfarnar vikur.  SJÁVARÚTVEGSMÁL Ríkislögreglu- stjóri er enn með til rannsóknar kæru Fiskistofu vegna ólöglegra veiða fjögurra útgerða í Ólafs- vík. Um að ræða kæru vegna veiða fjögurra skipa, Bervíkur SH, Storma SH, Klettsvík SH og Aðalvík SH, en skipin veiddu 486 tonn af þorski umfram aflaheim- ildir og er áætlað verðmæti afl- ans tæpar 100 milljónir króna. Gísli Rúnar Gíslason, deildar- stjóri lögfræðisviðs Fiskistofu, sagði að öll skipin hefðu verið svipt veiðileyfi vegna um- framafla og sú svipting stæði þar til umframaflinn yrði lagfærður en þó ekki lengur en út þetta fisk- veiðiár. Eftir þann tíma yrði lagt á gjald vegna ólöglegs sjávarafla og ef það yrði ekki búið að lag- færa þessa stöðu þá yrði umframaflinn umreiknað- ur til verðmæta og það gjald lagt á viðkomandi útgerðir. Gísli sagði að þó skipin væru í útgerð fjögurra aðskilinna félaga væru sömu aðilar á bakvið þrjú þeirra, t.a.m. sætu sömu menn í stjórn félaganna. Sterkar líkur væru á því að um ásetningsbrot væri að ræða. „Við teljum alveg aug- ljóst að það eigi að líta á þessi mál sem brot eins og sama aðilans þó að kenni- tölur séu misjafnar á út- gerðarfyrirtækinu sem slíku,“ sagði Gísli. „Ef ekkert óvænt kemur upp á þá teljum við að það verði ákært í þessum málum og þau fari fyrir dóm.“ Auk þess að líta á veiðarnar sem brot á lögum um stjórn fisk- veiða telur Fiskistofa að um sé að ræða stórfelld auðgunarbrot. Hún telur að útgerðirnar hafi notað frest til að lagfæra afla- marksstöðu skipa sinna til að bæta við afla eftir að þeim barst tilkynning um sviptingu veiði- leyfis. Engar upplýsingar fengust um gang málsins hjá ríkislögreglu- stjóra. trausti@frettabladid.is ÁSATRÚARFÉLAGIÐ Eftir að þetta aukaallsherjarþing ásatrúarmanna lítum við svo á að skýrar línur hafi fengist innan safnaðarins og mun- um ekki hafa nein áhrif á hvernig þeir skipa sínum málum,“ segir Hjalti Zophaníasson skrifstofu- stjóri í dóms-og kirkjumálaráðu- neytinu. Hjalti segir að ráðuneytið eigi von á að bréfi frá söfnuðinum um að valinn hafi verið nýr allherj- argoði. „Það sem gildir eru þeirra eigin lög en eitthvað hafa þau ver- ið á reiki. Þeir virðast hafa greitt úr því en ég hef ekki heyrt annað frá Hagstofunni en Jörmundur Ingi hafi unnið sín embættisstörf af stakri kostgæfni,“ segir Hjalti. Jörmundur Ingi Hansen segist hafa orðið þess var að mjög marg- ir óskuðu eftir að ganga í söfnuð- inn til að geta kosið um nýjan alls- herjargoða. „Mjög margir hafa hringt í mig og spurst fyrir einkum í ljósi atburða síðustu daga. Allt það fólk ætlar sér að ganga í söfn- uðinn í þeim tilgangi að styðja mig,“  AP /M YN D Ásatrúarsöfnuðurinn: Margir hafa óskað eftir að ganga í söfnuðinn JÖRMUNDUR INGI Mjög margir hafa haft samband við hann til spyrjast fyrir um hvernig beri að snúa sér til að ganga í söfnuðinn. NADAL Abu Nadal, leiðtogi palestínsku „Al Fatah“ - skæruliðahreyfingarinnar. Hann lést fyrir fjórum dögum síðan. Skæruliðaleiðtoginn Abu Nidal: Lést af völdum skot- sára á heimili sínu BERVÍK SH-143 Bervík liggur nú í Hafnarfjarðarhöfn en skipið var eitt fjögurra skipa frá Ólafsvík sem veiddu tæp 500 tonn umfram aflaheimildir. Ríkislögreglustjóri rannsakar kvótasvindl Fiskistofa lítur á málið sem stórfellt auðgunarbrot og brot á lögum um stjórn fiskveiða. Fjögur skip veiddu tæp 500 tonn af þorski umfram aflaheimildir. Aflaverðmætið um 100 milljónir króna. Ef ekkert óvænt kemur upp á þá telj- um við að það verði ákært í þess- um málum og þau fari fyrir dóm. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T AP /M YN D Menntaskólinn á Ísafirði verð-ur settur í 33. sinn sunnudag- inn. Dagskólanemendum fjölgar nokkuð frá því sem var við upp- haf skólaárs í fyrra, því nú hafa um 293 nemendur innritast í dag- skóla en voru 280 fyrir ári. bb.is Lagning nýs vegar yfir Bröttu-brekku á Vestfjarðavegi er töluvert á eftir áætlun. Vegar- kaflinn er í heild 11,3 km og á verkinu, sem er í höndum Arnar- fells ehf., að vera lokið að fullu í september 2003. Verklok eru hinsvegar tvískipt og samkvæmt verksamningi á að vera komið bundið slitlag á nyrðri hluta veg- arins í byrjun september. skessu- horn.is Maður reyndi að framvísafölsuðum peningaseðli í verslun í Hafnarfirði á sunnu- dagskvöld. Lögreglan var kölluð til og handsamaði hún manninn. Þá var maður handtekinn á sunnudagsmorgun á bíl sem hann hafði stolið í Reykjavík. Hafði hann verið búinn að brjótast inn í tvær bifreiðar í Hafnarfirði þeg- ar lögreglan handtók hann. LÖGREGLUFRÉTTIR Fréttablaðið er borið út á heimili á höfuðborgarsvæðinu snemma á morgnana frá mánudegi til laugardags. Það er besti tíminn til koma markpóstinum þínum til skila. Fréttablaðið er eini dreifingaraðilinn sem býður upp á dreifingu á öll heimili snemma á morgnanna. Fréttablaðið – dreifing. Þverholti 9, 105 Reykjavík. Sími 515 7520. Á bak við 68.500 póstlúgur á höfuðborgarsvæðinu eru 178.000 manns FYLGIST ÞÚ MEÐ UMRÆÐUM UM ÞJÓÐGARÐ NORÐAN VATNAJÖKULS? 21% 69% 10% Vel Lítið Svara ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.