Fréttablaðið - 20.08.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 20.08.2002, Síða 6
6 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS Á að leyfa einkadans? Nei, það á að leyfa vændi eins og það kemur fyrir, ekki vera að grínast með okkur karlmennina. Frímann Ásgeirsson, fiskútflytjandi. LÖGREGLUFRÉTTIR BRUNI Nokkuð ljóst er að eldurinn í kjallara Fákafens 9 miðvikudag- inn 7. ágúst átti upptök sín í geym- slu Teppalands. Að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík, stendur rannsóknin enn yfir og liggur ekki fyrir hver upptök eldsins voru. „Þetta gengur svona hægt og bítandi,“ sagði Hörður um rann- sóknina. „Þetta er svolítið snúið vegna þess að það var svo mikill eldur þarna og hann brann svo lengi. Þegar allt er kolbrunnið þá gerir það okkur erfiðara fyrir og erfitt að fullyrða nokkuð um það hver upptökin voru. Við ættum samt að geta nálgast líklegustu skýringuna.“ Hörður sagði að það væri alveg klárt að bruninn hefði átt upptök sín í plássi Teppalands. Búið væri að hreinsa mest allt út úr kjallar- anum nema úr rými Teppalands sem væri enn innsiglað af lögregl- unni. Hann sagði að vonandi myndi fást niðurstaða í rannsókn- ina í lok vikunnar.  Bruninn í Fákafeni 9: Snúin rannsókn RÝMI TEPPALANDS INNSIGLAÐ Eigendur fyrirtækja sem voru með aðstöðu í kjallara Fákafens 9 hafa undanfarna daga unnið að því að hreinsa út úr kjallaranum. Rými Teppalands er enn innsiglað af lögreglu. Fjörtíu umferðaróhöpp: Ók utan í þrjá bíla LÖGREGLUMÁL Þrettán ökumenn voru handteknir í Reykjavík um helgina grunaður um ölvun við akstur. Tilkynnt var um fjörtíu umferðaróhöpp og í nokkrum til- fellum þurftu ökumenn og farþeg- ar að fá aðhlynningu. Ökumaður undir áhrifum vímuefna var tek- inn aðfaranótt laugardags fyrir að hafa tekið utan í þrjá bíla. Lögregl- an í Reykjavík stöðvaði fjörtíu og fimm ökumenn fyrir of hraðan akstur um helgina. Einn fyrir að aka gegn rauðu ljósi, tveir fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu og fjórir fyrir að nota ekki öryggis- belti.  Góðæri í sjávarútvegi Risarnir með mik- inn gróða SJÁVARÚTVEGUR Uppgjör sjávarút- vegsrisanna Samherja og Granda fyrstu sex mánuðina hljóðar upp á samanlagðan hagnað sem nemur þremur milljörðum króna. Sam- herji skilaði 1.755 milljónum króna í hagnað. Til samanburðar var 345 milljóna tap af rekstrinum á sama tíma í fyrra. Grandi skilaði 1.199 milljónum í hagnað. Á sama tíma í fyrra var 82 milljón króna tap af rekstrinum. Rekstur fyrirtækj- anna sama tímabil í fyrra er ekki samanburðarhæfur, en skip félag- anna voru þá bundin við bryggju vegna sjómannaverkfalls. Rekstrartekjur Samherja námu rúmum sjö milljörðum og var hagnaður fyrir skatta 2,1 milljarður. Eigið fé félagsins er tæpir átta milljarðar. Rekstar- tekjur Granda námu rúmum þremur milljörðum króna og er eigið fé 5,5 milljarðar. Eginfjár- hlutfall félaganna er svipað. 37% hjá Samherja og 39% hjá Granda. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af rekstrartekjum er 23% hjá Sam- herja, en 25% hjá Granda. Bréf í félögunum lækkuðu lítillega á markaði í gær.  LÖGREGLUMÁL Maður um tvítugt var stunginn í bakið aðfaranótt sunnu- dagsins. Hann virðist hafa orðið fyrir tilefnis- lausri árás en að hans sögn þekkti hann ekki til árásarmannsins sem var af erlendum uppruna. Sautján líkamsárásir voru tilkynntar til lög- reglunnar um helgina og þar af voru fimmtán sem áttu sér stað á menning- arnótt. Að sögn lögreglu virtist sem nokkrir hafi haldið að þeir hefðu villst í villta vestrið svo mikið gekk á í nokkrum tilfell- um. Til hópslagsmála kom um fimmleytið aðfaranótt sunnu- dagsins. Maður sem fékk ekki inngöngu á skemmtistað varð æfur og efndi til slagsmála við dyraverði. Slags- málin enduðu með því að þrír voru fluttir á slysadeild með áverka á enni. Mikill hiti virtist enn í mönnum því þegar verið var að flytja einn mannanna í sjúkrabif- reiðina réðust tveir af þeim slösuðu að sjúkra- f l u t n i n g s m ö n n u m . Þurfti lögregla að kalla á liðsauka til að skakka leikinn. Annar árás- armannanna var fluttur á slysa- deild en hinn endaði á lögreglu- stöðinni við Hverfisgötu og var sleppt að loknum viðræðum.  Bílvelta varð á Sandgerðisvegi ígærmorgun. Einhver slys urðu á fólki en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Keflavík voru þau ekki alvarleg. Bíllinn skemmdist töluvert og varð að fjarlægja hann með kranabifreið. Maður á reiðhjóli hrifsaði veskiaf konu sem var á gangi síð- degis á sunnudag. Hjólaði maður- inn síðan í burtu. Flýtir manns var svo mikill að hann hjólaði niður er- lend hjón sem voru á göngu skammt frá. Svo virðist sem sam- viskubit hafi sagt til sín því stuttu síðar kom þjófurinn aftur og skil- aði konunni veskinu. Að sögn lög- reglu var konan fegin að fá veskið til baka að hún ákvað að kæra ekki atburðinn. Ekið var á kind með tvö lömb áÞingvallavegi seint á sunnu- dagskvöld. Lömbin drápust en af- lífa þurfti ána. Bifreiðin var mikið skemmd og var hún flutt með kranabifreið af vettvangi. Engin slys urðu á fólki. LÖGREGLUFRÉTTIR Maður stunginn í bakið: Sautján líkamsárásir tilkynntar um helgina FRÁ MENNINGARNÓTT Lögreglan segir flestar líkamsárásirnar hafa gerst á menningarnótt eða fimmtán tals- ins. Í einu tilfella var maður kýldur í andlit- ið og við það nefbrotnaði hann. Ekki var vitað um árásarmanninn en sá sem var kýldur gaf greinagóða útlitslýsingu. VINNUVERND Víðast hvar fá starfs- menn hluta svokallaðra skjágler- augna greidd af atvinnurekanda sínum eða úr sjúkrasjóði viðkom- andi stéttarfélags. Kristín Rafnar starfsmannastjóri hjá Lands- banka Íslands sagði bankann vinna eftir reglugerð um vinnu- vernd. Þar segir að vinnuveitend- ur séu skuldbundn- ir til að greiða ákveðinn hluta svokallaðra skjá- gleraugna sem starfsmenn þurfi að nota við vinnu sína. „Við gerðum könnun á því fyrir nokkrum árum hvað slík gleraugu kostuðu og niður- staðan var að við greiðum fimmtán þúsund af verði gleraugnanna. Sú upphæð hefur ekki breyst í nokk- ur ár einkum vegna þess að gler- augu hafa lækkað fremur en hitt,“ segir Kristín. VR greiðir ákveðna upphæð úr sjúkrasjóði sínum til kaupa á gler- augum, óháð tegund þeirra að sögn Hansínu Gísladóttur hjá VR. Hún segir það allt fara eftir rétti hvers og eins og sá réttur ákvarð- ast á af hve háum launum viðkom- andi greiðir í sjóðinn og hvort hann hefur fengið greiðslur á s.l. tveimur árum til einhvers annars. „Allt annað s. s. styrkur til að greiða niður sjúkraþjálfun og lík- amsrækt skerðir þá upphæð. Ef viðkomandi hefur ekki nýtt sér styrk úr sjóðnum ætti hann að geta fengið allt að 30 þúsund til gleraugnakaupa.“ Guðrún Óladóttir hjá Eflingu segir ákveðna upphæð greidda að því tilskyldu að starfsmaður hafi verið í vinnu s. l. ár og á lág- markslaunum. „Við greiðum í hverjum gleraugum 6 þúsund krónur en þá verða þau að hafa kostað yfir 12 þúsund.“ Hún telur að hjá minni stéttarfélögum séu þessi hlunnindi ekki í boði en hins vegar greiði stöndugri og stærri fyrirtæki þennan kostnað ef við- komandi vinni við tölvuskjá. Það sé lögbundin réttur starfmanna og til hagsbóta fyrir viðkomandi fyrirtæki. Í reglugerð Vinnueftirlisins er kveðið svo á að fyrirtækjum sé heimilt að óska eftir að gleraugun séu eingöngu notuð á vinnustað. Það ákvæði munu hins vegar ekki vera nýtt og setja atvinnurekend- ur ekki fyrir sig að gleraugun sé notuð annarsstaðar. „Við óskum að sjálfsögðu ekki eftir að þau séu hlekkjuð við tölvuna á vinnustað,“ sagði Kristín Rafnar starfs- mannastjóri Landsbanka Íslands orðaði það. bergljot@frettabladid.is SVOKÖLLUÐ SKJÁGLERAUGU Margir vita ekki að fyrirtækjum ber að greiða hluta kostnaðar við svokölluð tölvugleraugu starsmanna sinna. „Við gerðum könnun á því fyrir nokkrum árum hvað slík gleraugu kostuðu og niðurstaðan var að við greiðum fimmtán þús- und af verði gleraugnanna“ Mörg fyrirtæki greiða hlut í gleraugum starfsmanna Tíðkast hefur að stærri stéttarfélög greiði hlut í kostnaði félagsmanna sinna við gleraugnakaup. Færri vita hins vegar að bundið er í reglugerð um vinnuvernd að atvinnurekendum beri að að- stoða starfsmenn sína við kaup á svokölluðum skjágleraugum til nota við tölvusskjái. Hvalaskoðunarbátur á leið úrhöfninni í Húsavík sigldi á bryggju og lítinn trébát með þeim afleiðingum að hann sökk. Var hvalaskoðunarbáturinn á leið með á fjórða tug farþega í skoð- unarferð þegar slysið varð. Að sögn lögreglunnar á Húsavík leikur grunur á að skipstjórnandi hafi verið undir áhrifum áfengis. Sagði talsmaður málið rannsakað á sama hátt og um ölvunarakstur væri að ræða. Á skipstjórnandinn yfir höfði sér að missa réttindin í ákveðinn tíma auk þess að borga sekt. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 85.42 -0.22% Sterlingspund 131.36 -0.03% Dönsk króna 11.28 -0.34% Evra 83.78 -0.34% Gengisvístala krónu 126,20 -0,29% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 195 Velta 2.562 m ICEX-15 1.276 -0,07% Mestu viðskipti Sjóvá-Almennar hf. 196.103.000 Vinnslustöðin hf. 60.112.721 Baugur Group hf. 57.027.345 Mesta hækkun Skýrr hf. 5,45% Íslenski hugbúnaðarsj. hf. 3,70% Baugur Group hf. 2,91% Mesta lækkun Vaki-DNG hf. -21,05% Grandi hf. -2,61% Marel hf. -2,05% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 8963,3 2,10% Nsdaq: 1396,1 2,60% FTSE: 4426,8 2,20% DAX: 3836,6 4,10% Nikkei: 9599,1 -1,90% S&P: 947,1 2,00% FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.