Fréttablaðið - 20.08.2002, Page 8
20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
D
ub
lin
bí›ur
flín
á mann m.v. að 2 fullorðnir og 1 börn,
2ja-11 ára ferðist saman
Innifalið: Flug, gisting á The Ormond Quay
Hotel, morgunverður og flugvallarskattar.
á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman
Ver›dæmi
Flugsæti
42.120 kr.
39.195 kr.staðgr.
á mann með flugvallarsköttum
staðgr.
staðgr.
32.120 kr.
SVEITARFÉLÖG Sveitarfélög hafa
frest til 1. september til að skila
fjárhagsáætlunum fyrir árið 2002
til félagsmálaráðuneytisins vegna
árlegrar athugunar eftirlitsnefnd-
ar með fjármálum sveitarfélaga.
Þetta verður í þriðja árið sem
nefndin skoðar fjármál sveitarfé-
laga.
Eftir athugun nefndarinnar árið
2001 sendi hún bréf til 31 sveitar-
félags. Í bréfinu óskaði nefndin
eftir að henni yrði gerð grein fyrir
því innan tveggja mánaða hvernig
þróunin hefði verið í fjármálum
sveitarfélagsins á árinu og hvernig
sveitarstjórnin hygðist bregðast
við fjárhagsvanda sveitarsjóðsins.
Þrjú sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu fengu bréf frá nefndinni,
þ. e. Hafnarfjörður, Mosfellsbær
og Bessastaðahreppur.
Í reglugerð um eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga kem-
ur m. a. fram að verði sveitar-
stjórn ekki við ósk nefndarinnar
geti hún lagt til við ráðuneytið að
það stöðvi greiðslur til sveitar-
sjóðs úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Þrjú sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
fengu bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga í janúar, þ.e. Hafnarfjörður,
Mosfellsbær og Bessastaðahreppur.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga:
Eiga að skila fjárhags-
áætlun 1. september
SAKAMÁL Lögreglunni á Bret-
landseyjum hefur verið veittur 36
klukkustunda viðbótarfrestur til
að yfirheyra Ian Huntley og Max-
ine Carr sem grunuð eru um að
hafa numið á brott og myrt stúlk-
urnar Hollý Wells og Jessicu
Chapman. Þegar lögreglan hand-
tók parið á laugardag mátti hún
halda því í þrjá sólarhringa án
þess að ákæra það. Viðbótarfrest-
urinn veitir lögreglunni leyfi
fram á fimmtudagsmorgun til að
yfirheyra parið. Leit að sönnunar-
gögnum hefur staðið yfir á heimili
Huntley og Carr, í skóla stúlkn-
anna og í framhaldsskóla við hlið-
ina, en allar byggingarnar eru á
sama svæði. Einnig var á sunnu-
dagskvöld gerð leit á bílaþvotta-
stöð sem staðsett er suður af bæn-
um Soham þar sem stúlkurnar
bjuggu.
Allar líkur eru taldar á því að
líkin tvö sem fundust á laugar-
dagskvöld í afskekktu skóglendi
skammt fyrir utan Soham hafi
verið Hollý og Jessica. Nokkrir
dagar til viðbótar munu þó líða
þar til hægt verður að taka af all-
an vafa í málinu, að því er sagði á
fréttavef BBC.
Til að hjálpa íbúum Soham að
komast yfir sorgina hefur áfalla-
hjálp verið veitt í bænum. Aðalá-
hersla er lögð á að veita þeim 2100
skólabörnum sem búa þar aðstoð.
Þá hafa fréttamenn ákveðið að yf-
irgefa Soham af tillitssemi við
syrgjandi bæjarbúa.
Erkibiskupinn í Canterbury
vottaði foreldrum stúlknanna
samúð sína í gær. „Á stundum
sem þessum er ekkert sem við
getum sagt sem dregið getur úr
sorginni og eftirsjánni, „ sagði
hann. Þakkaði hann almenningi
víðsvegar um Bretland fyrir
stuðninginn sem bæjarbúar í So-
ham hefðu fengið undanfarnar
tvær vikur. Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, vottaði for-
eldrum stúlknanna einnig samúð
sína í gær.
Lögreglan stendur í ströngu við yfirheyrslur yfir meintum morðingjum Hollý og Jessicu:
Fá frest fram á fimmtudag
SAKAMÁL Ian Huntley og Maxine
Carr, sem grunuð eru um morðin á
bresku stúlkunum Hollý Wells og
Jessicu Chapman, sóttu um störf í
skóla stúlknanna undir fölskum
formerkjum. Huntley, sem fékk
starf sem húsvörður í skólanum í
desember á síðasta ári, sótti um
starfið undir nafni móður sinnar,
Nixon. Carr, sem fékk tímabundið
starf sem aðstoðarkennari í sama
skóla í febrúar, sagði nafn sitt vera
Maxine Capp. Eftir að búið var að
rannsaka bakgrunn þeirra undir
þessum nöfnum hlutu þau starfið.
Ekkert athugavert hafði þá komið í
ljós.
Nú hefur aftur á móti komið í
ljós að Huntley var handtekinn
fyrir að hafa nauðgað konu í borg-
inni Grimsby á Englandi, þar sem
hann bjó ásamt Carr áður en þau
fluttust til Sohem. Eftir að hafa
verið í varðhaldi í nokkurn tíma
var honum sleppt án þess að réttað
væri í máli hans, að því er sagði í
ástralska blaðinu „The Daily Tel-
egraph.“
Fyrrverandi nágranni Huntley
og Carr í Grimsby lýsti þeim sem
„parinu frá helvíti.“ Mikið var um
rifrildi á heimili þeirra og var of-
beldi oft og tíðum beitt. Annar
fyrrverandi nágranni sagði
Huntley vera með klofinn per-
sónuleika á borð við þann sem lýst
er í skáldsögunni um „Jekyll og
Hyde.“
Howard Gilbert, skólastjóri í
skóla stúlknanna, sagði að ekkert
hefði bent til þess að Huntley væri
ekki traustsins verður. „Hann var
farinn að læra inn á starfið og virt-
ist vera að standa sig vel. Hann dró
sig ekki í hlé gagnvart öðru starfs-
fólki.“
Virtist hann einnig vera vin-
gjarnlegur gagnvart skólabörnun-
um og ræddu þau oft við hann um
hundinn hans.
Huntley tók virkan þátt í leitinni
að stúlkunum kvöldið sem þær
hurfu. Hafði hann veitt fjölmiðlum
viðtöl þar sem hann var gráti næst
vegna hvarfs þeirra. Sagðist hann
eflaust hafa verið einn sá síðasti
sem sá þær á lífi. Talið er að hann
hafi legið undir grun hjá lögregl-
unni allt frá fyrsta degi rannsókn-
arinnar.
Carr veitti fjölmiðlum einnig
viðtöl vegna hvarfs stúlknanna.
Lýsti hún Hollý meðal annars sem
afar indælli stúlku.
Talið er að sálfræðingar frá lög-
reglunni muni á næstu dögum rann-
saka sjónvarpsviðtölin sem tekin
voru við hina grunuðu morðingja.
Myrk fortíð grunaðra
stúlknamorðingja
Sóttu um störf í skóla stúlknanna undir fölskum formerkjum. Ian Huntley hafði verið
handtekinn fyrir nauðgun í borginni Grimsby. Huntley og Carr lýst sem „parinu frá helvíti.“
HUNTLEY
Ian Huntley er grunaður um að hafa numið á brott og myrt stúlkurnar Hollý Wells og
Jessicu Chapman, sem voru tíu ára gamlar. Huntley og kærasta hans eru nú í haldi lög-
reglunnar eftir að lík stúlknanna fundust á laugardaginn í skóglendi um 16 kílómetrum frá
bænum Soham.
STÚLKNANNA MINNST
Lögreglumaður leggur blóm til jarðar skammt frá þeim stað þar sem lík stúlknanna fundust á laugardaginn. Stúlkurnar, sem voru tíu ára
gamlar, hurfu fyrir tveimur vikum síðan úr bænum Soham á austurhluta Englands.
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D
Frípósti visir.is:
Lokað vegna
vanskila
NETÞJÓNUSTA Frípóstkerfinu á
Vísi.is var lokað á fimmtudag
vegna vanskila á greiðslum til hýs-
ingaraðila. Femín sem nú á Vísi
segir fyrri eigendur hafa safnað
skuldum hjá hýsingaraðila. Ekki
hafi náðst samningar við hýsingar-
aðila og því samið við íslenskt fyr-
irtæki um hýsingu kerfisins. Það
opnar á morgun en gögn notenda
tapast við flutningana.
Jón Gunnar Zoëga, lögmaður
fyrri eigenda, segir ósanngjarnt að
stilla málinu svona upp. Kaupendur
hafi haldið eftir fé vegna þessa. Það
hafi ekki verið nýtt eins og til stóð og
ekki staðið full skil á kaupverði.