Fréttablaðið - 20.08.2002, Qupperneq 11
11ÞRIÐJUDAGUR 20. ágúst 2002
SKELFISKUR Veiðar og vinnsla á
hörpudiski úr Arnarfirði hefur
legið niðri síðan í apríl 2001 þeg-
ar mælingar sýndu að innihald
þungmálmsins kadmíns væri
yfir leyfilegum mörkum miðað
við nýja reglugerð ESB um að-
skotaefni í matvælum. Fiski-
stofa stöðvaði í kjölfarið alla
vinnslu og afurð-
um var fargað.
Mælingar voru
einnig gerðar í
Hval- og Breiða-
firði en þar var
ástandið í góðu
lagi.
U m h v e r f i s -
ráðuneytið hefur
beint þeim tilmælum til sérstaks
rannsóknarhóps að hann geri
áætlun um frekari rannsókn í
firðinum. Helgi Jensson, for-
stöðumaður mengunarvarna-
sviðs Hollustuverndar ríkisins,
fer fyrir hópnum. Hann telur all-
ar líkur á að um náttúrulegt
ástand sé að ræða og ólíklegt sé
að kadmín-mengunin í firðinum
sé af mannavöldum. Hann segir
gosvirkni hafa verið nefnda sem
hugsanlegan orsakavald en það
hafi ekki verið stutt með vís-
indalegum rökum.
Guðjón Atli Auðunsson hjá
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins er sammála Helga og telur
vafasamt að tala um mengun í
þessu sambandi þar sem kadmín
sé hluti af náttúrulegu umhverfi.
Staðaraðstæður ráði svo magni
þess. Guðjón segir RF vinna með
tvær tilgátur hvað ástandið í
firðinum varðar. Annars vegar
að þar sem fjörðurinn er þrösk-
uldsfjörður séu umskipti sjávar
hæg og það gæti haft þessi áhrif
á lífríkið. Hins vegar bendi
rannsóknir á þorsklifur til að
rekja megi kadmín í þorski til
pólsjávar en kadmín mælist í
meira magni umhverfis Ísland
en almennt gerist og eykst enn
þegar nær dregur Grænlandi.
Hann segir frekari rannsókn-
ir nauðsynlegar til að skera úr
um hvað hefur þessi áhrif í Arn-
arfirði og RF hafi sótt um styrk
hjá Vísindasjóði til að rannsaka
frekar þungmálma í skelfiski í
firðinum. Beiðninni var hafnað í
lok síðasta árs en verður endur-
nýjuð um áramótin. Efniviður-
inn er til staðar og stofnunin því
tilbúin um leið og fjármagn ligg-
ur fyrir.
thorarinn@frettabladid.is
HAFIÐ BLÁA HAFIÐ
Rannsóknir á þorski benda til að þungmálmamengun í íslensku sjávarfangi megi rekja til pólsjávar. Rannsókn á magni kadmíns í Arnar-
firði er háð styrkveitingu og öll vinnsla mun því væntanlega liggja til ársins 2003.
Fjárskortur tefur
rannsóknir á mengun
Kadmín magn í íslensku sjávarfangi er meira en gengur og gerist. Vinnsla á hörpudiski úr
Arnarfirði hefur legið niðri í rúmt ár vegna slíkrar mengunar. Ástandið er talið náttúrulegt
en fjárskortur hamlar frekari rannsóknum á orsökunum.
Beiðninni var
hafnað í lok
síðasta árs en
verður endur-
nýjuð um ára-
mótin.
VÍTISENGLAR Bjarni Sigtryggsson,
sendiráðunautur í Kaupmannahöfn,
segir íslenskt ógæfufólk leita
reglulega á náðir íslenska sendi-
ráðsins. Tilfellin skipti tugum á
hverju ári og oftar en ekki séu
vandræði fólksins tengd eiturlyfj-
um og óreglu. Sendiráðið heldur
ekki sérstaklega utan um fjölda
slíkra tilfella en Bjarni telur aukn-
ingu milli ára vart vera merkjan-
lega. Tilfellin eru áberandi fleiri á
sumrin og sendiráðið hefur lent
upp á kannt við hina alræmdu Vít-
isengla, eftir að það kom manni úr
landi sem englarnir töldu sig eiga
inni peninga hjá. Englarnir gerðu í
framhaldinu atlögu að sendiráðinu,
létu dólgslega í anddyri þess.
Heimtuðu peninga og vildu fá
manninn framseldan. Þeir hafa
ekki gert vart við sig síðan. Danska
lögreglan hefur hert aðgerðir gegn
þeim og tæki hart á því ef sendiráð-
ið yrði aftur fyrir barðinu á englun-
um. Starfsfólk sendiráðsins heldur
því ró sinni og aðstoðar áfram Ís-
lendinga í vandræðum þó því sé
ekki beinlínis ætlað að sinna hlut-
verki félagsmálaskrifstofu.
MÓTORHJÓLAGENGI
Hafa vaðið uppi í Danmörku og hafa
meðal annars herjað á íslenska sendi-
ráðið. Almenningi og stjórnmála-
mönnum er nóg boðið, og hertar lög-
regluaðgerðir hafa verið boðaðar.
Íslenskt ógæfufólk í Danmörku:
Leitar reglulega til sendiráðsins
Kadmín í sjávarfangi:
Safnast
saman í lík-
amanum
ÞUNGMÁLMAR Samkvæmt upplýs-
ingum frá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins er manni sem veg-
ur 70 kílógrömm óhætt að inn-
byrða 70 grömm af hörpudiski á
dag, miðað við að fiskurinn inni-
haldi eitt míkrógramm af kadmí-
um. Efnið safnast fyrir í líkaman-
um og fólk verður ekki bráðveikt
af völdum þess. Það skemmir hins
vegar nýru og beinvefi hægt og
bítandi.
BJÖRN BJARNASON
Segir meirihlutann eiga að leggja meira
upp úr góðu samstarfi við lögregluna en
gagnrýni á hana.
Björn um Árna Þór:
Ekki stór-
mannleg
ummæli
STJÓRNMÁL „Það er ekki stórmann-
legt, þegar forseti borgarstjórnar
varpar að hátíð lokinni ábyrgðinni
á því, sem miður fór, á herðar lög-
reglunni,“ segir Björn Bjarnason,
oddviti Sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn, um þau ummæli Árna
Þórs Sigurðssonar, forseta borg-
arstjórnar, að ólæti í miðbænum á
Menningarnótt væri til marks um
að efla þurfi löggæslu í Reykja-
vík. Árni Þór vildi að borgin yfir-
tæki rekstur lögreglunnar.
Björn sagði skrýtið að kenna
lögreglunni um ólætin. Menn
þyrftu þá að spyrja fleiri spurn-
inga. „Hvers vegna var ruslið í
borginni meira en nokkru sinni?
Er ekki hreinsun þess á verksviði
borgaryfirvalda?“
Þrír hafa skilað inn umsóknumum leyfi fyrir daggæslu
barna í heimahúsum í Garðabæ
eftir að bærinn vakti athygli á
því að skortur hefur verið á dag-
foreldrum í bænum undanfarin
ár. Litlum bæklingi var um stöðu
mála var dreift í öll hús í bæn-
um. Umsóknirnar sem borist
hafa verða afgreiddar á fundi
Fjölskylduráðs Garðabæjar 3.
september. Meðal þess sem nýj-
um dagforeldrum stendur til
boða frá og með haustinu er að
fá lánaðar tvíburakerrur og
tvær gerðir af barnastólum auk
fjölbreytts úrvals af leikföngum
sem leikfangasafn fyrir dagfor-
eldra í Garðabæ hefur upp á að
bjóða.
INNLENT INNLENT
Bæjarráð Garðabæjar hefursamþykkt fjárveitingu að upp-
hæð 2,1 milljón króna til búnaðar-
kaupa í Garðaskóla.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hef-ur samþykkt að gera hringtorg
við gatnamót Hafnargötu og Vík-
urbrautar. Heildarkostnaður er
áætlaður um 6 milljónir króna.
Skipulagsyfirvöld Reykjanesbæj-ar hafa hafnað Reisbílum ehf.
um leyfi til að setja upp 75 metra
langt auglýsingaskilti meðfram
svokallaðri kartbraut. Skiltið átti
að vera um 30 metrum frá Reykja-
nesbrautinni og snúa að henni. Er-
indi Reisbíla var hafnað þar sem
það var ekki talið samræmasta
framtíðarskipulagi svæðisins.