Fréttablaðið - 20.08.2002, Síða 12
12 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURFÓTBOLTI
Í RAUÐ RÖNDÓTTU
Brasilíski leikmaðurinn Rivaldo er byrjaður
að spila með AC Milan á Ítalíu. Hér á hann
í höggi við Paolo Montero og Mark Iuliano,
leikmenn Juventus, í góðgerðarleik.
DAMIEN DUFF
Sló eftirminnilega í gegn í heimsmeistara-
keppninni í Suður-Kóreu og Japan.
Damien Duff:
Ánægður
hjá Black-
burn
FÓTBOLTI Damien Duff, knatt-
spyrnumaður hjá Blackburn, mun
skrifa undir nýjan samning við
liðið á næstu viku. Duff hefur ít-
rekað verið orðaður við Liverpool.
Hann sló í gegn á síðasta tímabili
og með írska landsliðinu í heims-
meistarakeppninni í Suður-Kóreu
og Japan fyrr á þessu ári. „Ég er
ánægður hjá Blackburn,“ sagði
hinn 23 ára gamli Íri. „Ég hef tek-
ið miklum framförum hjá liðinu
svo ég ætla að halda áfram að
bæta mig enn frekar.“
MOLARÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 Íþróttahús Gróttu
Skákþing Íslands
19.00 Stjörnuvöllur
Símadeild kvenna
(Stjarnan - KR)
19.00 Grindavíkurvöllur
Símadeild kvenna (Grindavík -
Breiðablik)
19.00 Kaplakrikavöllur
Símadeild (FH - ÍBV)
20.00 Sýn
Íþróttir um allan heim Sýn 20.
ágúst 20:00
22.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
Sýn 20. ágúst 22:30
23.00 Sýn
Toppleikir Sýn 20. ágúst 23:00
FÓTBOLTI Valþór Hilmar Halldórs-
son lék sinn fyrsta leik í úrvals-
deildinni í knattspyrnu í fyrradag
þegar hann stóð á milli stanganna í
marki KR gegn Keflavík. Leikur-
inn endaði með jafntefli þar sem
bæði lið skoruðu tvö mörk. Valþór
var að leysa einn besta marvörð
deildarinnar af hólmi og gerði vel.
Varði meðal annars vítaspyrnu.
„Það var fínt að spila, en leiðin-
legt að sigra ekki í fyrsta leikn-
um,“ segir Valþór. Hann segist
hafa verið stressaður fyrir leikinn.
„Ég var stressaður í byrjun en
sjálfstraustið jókst við að verja
vítaspyrnuna. Svo lagaðist þetta
með hverri mínútunni sem leið.“
Hann vill ekki gera mikið úr því að
hafa varið vítið. „Það er alltaf ein-
hver heppni að giska á rétt horn.“
Valþór er bróðir Þorsteins Hall-
dórssonar, fyrrverandi leikmanns
KR og FH. Hann hóf feril sinn með
Þrótti í Neskaupstað en skipti yfir
í Vesturbæjarliðið árið 1999. Hann
segir töluverðan mun á að spila í
úrvalsdeildinni og í neðri deildun-
um.
„Það er mikill styrkleikamunur
á deildunum. Svo held ég að það sé
allt annað að spila með KR en öðr-
um liðum.“
Hlutverk Valþórs er ekki öf-
undsvert því hann þarf að leysa
Kristján Finnbogason af hólmi,
sem er meiddur. Fyrir leikinn gegn
Keflavík hafði KR-liðið aðeins
fengið tólf mörk á sig. „Það er
erfitt að leysa hann af hólmi enda
hefur hann verið einn besti mark-
vörður deildarinnar í sumar,“ seg-
ir Valþór. „Maður verður bara að
gera sitt besta og reyna feta í fót-
spor hans.“
Meðal samherja hans hjá KR er
Þormóður Egilsson, leikjahæsti
leikmaður úrvalsdeildarinnar. Val-
þór segir mikinn styrk í að hafa
slíka leikmenn fyrir framan sig.
„Ég held að það sé ekki hægt að fá
betri leikmenn en Móða til að
byrja með. Hann hjálpar manni al-
veg út leikinn. Hann er ekki að
skamma mann heldur segir manni
til.“
kristjan@frettabladid.is
Varði víti í fyrsta leik
Valþór Halldórsson, 21 árs varamarkvörður KR, varði víti í fyrsta leik
sínum í úrvalsdeildinni. Hann er uppalinn hjá Þrótti í Neskaupstað en
kom til KR fyrir þremur árum.
VALÞÓR HALLDÓRSSON
„Það var fínt að spila, en leiðinlegt að sigra ekki í fyrsta leiknum.“
Haukur Ingi Guðnason:
Slapp vel
eftir spark
í andlitið
FÓTBOLTI „Ég fékk vænt glóðarauga
og það blæddi inn í kinnbeinshol-
urnar en mér líður ágætlega nú,“
segir Haukur Ingi Guðnason, knatt-
spyrnumaður úr Keflavík, sem
fékk spark í höfuðið í leik gegn KR
á dögunum. „Ég fékk höggið á kinn-
beinið, nefið og ennisbeinið og það
dreifði álaginu. Hefði það lent á
einhverju einu af þessu hefði þetta
væntanlega farið verr. Læknarnir
töluðu um að ég hefði sloppið vel,“
segir Haukur Ingi. Hann vonast til
að verða með í næsta leik, gegn
Skagamönnum þann 25. ágúst.
FÓTBOLTI Þrír leikir fara fram í ell-
eftu umferð Símadeildar kvenna
í knattspyrnu í kvöld og hefjast
þeir allir klukkan 20.00. Í Garða-
bæ tekur Stjarnan á móti KR.
Garðabæjarstúlkur eru í fimmta
sæti deildarinnar með tíu stig en
KR er á toppnum með 27 stig.
Síðast þegar liðin áttust við í
deildinni fóru Vesturbæjarstúlk-
ur með sigur af hólmi, 4-0.
FH tekur á móti ÍBV í
Kaplakrika. FH er í næstneðsta
sæti deildarinnar og þarf því
nauðsynlega á sigri að halda. ÍBV
siglir lygnan sjó um miðja deild.
Sjö mörk litu dagsins ljós þegar
liðin áttust síðast við í deildinni.
Neðsta lið deildarinnar,
Grindavík, tekur á móti Breiða-
blik á Grindavíkurvelli. Suður-
nesjastúlkurnar hafa aðeins unn-
ið einn leik í deildinni og við
þeim blasir fall. Breiðablik er í
þriðja sæti deildarinnar, með 21
stig, og þarf á sigri að halda ætli
það sér að blanda sér í toppbar-
áttuna með Val og KR.
11. umferð Símadeildar kvenna:
KR sækir Stjörnuna heim
SÍMADEILD KVENNA
Lið Leikir U J T Mörk Stig
KR 10 9 0 1 51 : 4 27
Valur 11 8 2 1 23 : 7 26
Breiðablik 10 7 0 3 24 : 10 21
ÍBV 10 5 1 4 19 : 14 16
Stjarnan 10 3 2 5 11 : 19 11
Þór/KA/KS 11 3 0 8 9 : 31 9
FH 10 2 1 7 8 : 36 7
Grindavík 10 1 0 9 7 : 31 3
KR-STELPUR
Munu mæta Stjörnu-stelpum í kvöld.
Alpay Ozalan, tyrkneskilandsliðsmaðurinn hjá
Aston Villa, kennir liðinu um að
hann hafi þurft að draga sig til
baka af sölulista. Alpay hefur
lýst því yfir að hann vilji fara
frá liðinu en leikmannamarkað-
urinn lokar þann 31. ágúst næst
komandi. Hann segir liðið hafa
svikið sig. „Þeir neyddu mig af
markaðinum með of háu verði.
Ef ég er ekki ánægður með liði
mínu smitar það út frá sér,“
sagði Alpay. Meðal liða sem
sýnt hafa tyrkneska leikmann-
inum áhuga er Leeds. „Ef
stjórnin gefur eftir þá er ég til-
búinn að yfirgefa liðið á morg-
un,“ bætti Alpay við.
Alex Ferguson, knattspyrnu-stjóri Manchester United,
vonast til að Rio Ferdinand,
dýrasti varnar-
maður heims,
verði til í slaginn
þegar liðið mæt-
ir Chelsea í
annarri umferð
ensku úrvals-
deildarinnar á
föstudaginn.
Ferdinand er enn
að jafna sig eftir ökklameiðsli
sem hann hlaut á undirbúnings-
tímabilinu og missti af fyrsta
leik liðsins gegn W.B.A. á laug-
ardaginn var. „Meiðsli hafa sett
strik í reikninginn hjá okkur en
vonandi verður Rio tilbúinn
fyrir leikinn gegn Chelsea,“
sagði Ferguson. Gary Neville
og Wes Brown eru einnig
meiddir.
Franska knattspyrnufélagiðRennes segir tilboð
Manchester United í varnar-
manninn Julien Escude næstum
móðgandi. Stjórn Rennes telur
2 milljóna punda tilboðið allt of
lágt fyrir hinn 21 árs gamla
leikmann og vill fá um 5 millj-
ónir punda fyrir leikmanninn.
„Tilboðið sem Manchester
United er næstum móðgandi sé
miðað við það hve mikla pen-
inga liðið á,“ sagði Emmanuel
Cueff, forseti franska liðsins.
„Escude á eftir að verða einn
besti leikmaður heims.“ Þess
má geta að Manchester United
er ríkasta félagslið heims.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T