Fréttablaðið - 20.08.2002, Page 13
13ÞRIÐJUDAGUR 20. ágúst 2002
FÓTBOLTI „Keane olli ekki hné-
meiðslunum,“ er fyrirsögn á við-
tali sem Alf-Inge Haaland, knatt-
spyrnumaður hjá Manchester
City, veitti við norska heimasíðu
í maí síðast liðnum. Viðtalið er
talið geta eyðilagt fyrirhugað
mál sem Norðmaðurinn ætlar
höfða gegn Roy Keane, fyrirliða
Manchester United. Lögfræð-
ingar Haaland og Manchester
City hafa verið að undirbúa 6
milljón punda skaðabótamál
gegn Keane eftir að hann braut á
Norðmanninum í leik fyrir rúmu
ári síðan. Svo gæti farið að
Haaland þurfi að leggja skóna á
hilluna í kjölfar meiðslanna.
Keane viðurkennir í sjálfsævi-
sögu sinni að hafa brotið viljandi
af sér, til að hefna fyrir að
Haaland braut á honum í leik
fjórum árum áður.
Í viðtali við norsku heimasíð-
una segir Haaland að hnémeiðsl-
in megi ekki rekja til hins marg-
umtalaða brots.
„Ég vil taka það skýrt fram að
ég fékk ekki högg á vinstra hnéð
eins og sumir fjölmiðlar hafa
viljað meina. Ef þið horfið aftur
á atvikið sést að ég fékk högg á
hægra hnéð,“ segir Haaland
meðal annars í viðtalinu.
„Vinstra hnéð hefur verið að
angra mig í þrjá mánuði.“
Alf-Inge Haaland í viðtali á norskri heimasíðu:
Keane olli ekki
hnémeiðslunum
ATVIKIÐ
UMDEILDA
Haaland er
staddur í Banda-
ríkjunum þar
sem hann mun
gangast undir að-
gerð hjá Dr. Ric-
hard Sterman.
Sterman þessi
hefur meðal ann-
ars skorið upp
leikmenn á borð
við Alan Shearer,
Ronaldo og
Jamie Redknapp
með góðum ár-
angri.
SKÁK Hannes Hlífar Stefánsson,
Íslandsmeistari í skák, mun hefja
titilvörn sína á Skákþingi Íslands
klukkan fimm í dag. Þrír stór-
meistarar, tveir alþjóðlegir
meistarar og fimm FIDE-meist-
arar verða meðal keppenda á
Skákþinginu. Keppt verður um
Íslandsmeistaratitilinn sem og
sæti í landsliðshópnum sem
keppir á Ólympíuleikunum.
Hannes Hlífar er stigahæstur
keppenda, með 2588 Elo-stig, 83
stigum hærri en sá næsti, Helgi
Áss Grétarsson.
Teflt verður í íþróttahúsi
Gróttu á Seltjarnarnesi.
Skákþing Íslands:
Sterkir
keppendur
SVONA GERIR MAÐUR EKKI
Roy Keane er harður í horn að taka, bæði
innan vallar sem utan.
Roy Keane í
ævisögu sinni:
Sveik samn-
ing um
félagaskipti
FÓTBOLTI Ævisaga Roy Keane, fyr-
irliða Manchester United, á eftir
að reita marga til reiði ef marka
má brot sem birst hafa úr bókinni.
Nú er búið að birta kafla í The
Times sem fjallar um leikmanna-
skipti Keane frá Nottingham
Forrest til Manchester United. Þar
kemur fram að árið 1993 hafi fyr-
irliðinn verið búinn semja við
Kenny Dalglish, þáverandi knatt-
spyrnustjóra Blackburn, um fé-
lagaskipti. Keane fór heim á leið til
að hugsa málið betur en þá beið
hans símtal frá Alex Ferguson,
knattspyrnustjóra Manchester
United, sem spurði hvort hann
væri búinn að semja við eitthvert
lið. Keane svaraði því til að hann
hefði handsalað samning við Dalgl-
ish og gengið yrði frá samningum
daginn eftir.
„Af hverju kíkir þú ekki í heim-
sókn til mín áður en þú semur og
við ræðum málin,“ sagði Ferguson.
Keane fór að ráðum Skotans og
skrifaði undir samning við
Manchester United.
„Ég hringdi í Dalglish og sagði
honum stöðu mála. Hann varð
brjálaður,“ segir Keane í ævisögu
sinni.
George Best lagður inn:
Sýking í kjöl-
far aðgerðar
FÓTBOLTI Fyrrverandi knattspyrnu-
hetjan George Best var fluttur á
spítala í gær eftir að hafa fengið
sýkingu í kjölfar lifrarígræðslu.
Hin 56 ára gamla knattspyrnu-
hetja þurfti að fá nýja lifur þar
sem hann hafði skemmt sína eigin
með drykkju. Aðgerðin þótti
takast vel en um helgina kom bak-
slag í hana, sem rakin er til sýk-
ingar. Hann var fluttur á
Cromwell-spítalann í Lundúnum.
„Best er í góðum höndum og und-
ir eftirliti. Líðan hans er stöðug og
fer batnandi en hann verður hér í
nokkra daga,“ var haft eftir tals-
manni spítalans.
Best er talinn einn besti knatt-
spyrnumaður Bretlandseyja, fyrr
og síðar. Hann gekk til liðs við
Manchester United þegar hann
var sextán ára og skoraði 115
mörk í 290 leikjum.
SÉRVERSLUN MEÐ INNRÉTTINGAR OG STIGA
HAMRABORG 1, 200 KÓPAVOGI, SÍMI 554 4011, NETFANG: innval@innval.is
Þekking í þína þágu
30% kjarabót Kr. 38.700,
og þú greiðir aðeins Kr. 90.300,-
Varanleg kjarabót!
Fjölbreytt úrval vandaðra Profil eldhúsinnréttinga er
valkostur hinna vandlátu og
fjárfesting, sem mælir með sér sjálf.
Leitið tilboða – gerið verðsamanburð – það borgar sig.
Við rýmum fyrir nýjum vörum. Sýningareldhús 40% afsláttur.
-
-
-
-
-
-
www.innval.is