Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 20.08.2002, Blaðsíða 14
14 20. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Leikarinn Charlton Heston seg-ist heita þess að halda áfram að leika eins lengi og hann mögu- lega getur. Hann greindi nýverið frá því að hann væri með Alzheimer sjúkdóminn. Hann segir nokkur verkefni bíða sín þar á meðal teiknimyndaútgáfu kvikmyndarinnar Ben Hur. Heston er líklegast þekktastur fyrir leik sinn í upprunalegu Ben Hur myndinni en fyrir hana fékk hann Óskarsverðlaun árið 1959. Kvikmyndin „X„ sem skartarvöðvabúntinu Vin Diesel í að- alhlutverki og fjallar um leyni- þjónustumanninn Xander Cage hélt toppsæti banda- ríska bíóaðsóknar- listans aðra vik- una í röð. Diesel hefur sagt að hér sé ný tegund James Bond á ferð en Xander stundar B.A.S.E. og Extreme íþróttir. Rapparinn Snoop Dogg hefursvarað gagnrýni leikarans Samuel L. Jackson um að of margir rapparar séu að reyna að fóta sig í kvik- myndaleik í Hollywood þessa daganna. Jackson sagði að rappar- arnir væru að taka vinnu frá lærðum leikurum og að hann gæti ekki hugsað sér að leika í mynd með einum slík- um. Snoop Dogg segir hins vegar svo mikið af litríkum persónum vera í rappheiminum og að kvik- myndaframleiðendur í Hollywood þurfi á þeim að halda til þess að gæða myndir sínar nýju lífi. Leikkonan Shirley Henderson,sem lék eina af vinkonum Bridget Jones, seg- ist vera reiðubúin að leika í fram- haldsmynd en full- yrðir, að þrátt fyrir að myndin eigi að vera á framleiðslu- stiginu, að enginn hafi haft samband við sig. Hlutverk persónu hennar var tónað niður í kvikmyndinni en er víst töluvert stærra í fram- haldssögunni. Leikkonan Renée Zellweger hefur sagt opinberlega að hún væri reiðubúin að leika í framhaldsmynd en að hún gæti ekki hugsað sér að bæta á sig öll- um aukakílóunum fyrir hlutverk- ið. Ef Bridget ætti að skarta þeim í framhaldsmynd þyrftu kvik- myndagerðamennirnir að styðj- ast við aðra tækni en að valda henni átröskun. Mótleikari Madonnu í kvik-myndinni „Swept Away“, sem eiginmaður hennar Guy Ritchie leikstýrir, átti erfitt með að leika í ástarsenum á móti henni. Ástæðan var ekki sú að eiginmaður hennar hafi verið í seilingarfjarlægð held- ur þótti honum þau einum of of- TÓNLIST Það kom flestum á óvart, og lík-legast fáum meira en liðs- mönnum sjálfum, þegar síðasta breiðskífa Red Hot Chili Peppers „Californiacation“ varð þeirra söluhæsta frá upphafi. Hvað virkaði svona vel? Jú, þeir nældu sér í gamla gítarleikarann aftur, sem lyfti meistaraverkinu „Blood+Sugar+Sex+Magic“ upp á æðra plan, og snéru sér alfarið að einföldum poppsmíðum. Það er alveg deginum ljósara að Red Hot eru staðnaðir hvað vinnuaðferðir varðar. Engar til- raunir eru gerðar til þess að nálg- ast hugarsmíðar liðsmanna úr nýrri átt. Allur metnaður er lagð- ur í lagasmíðar og flest gert til þess að reyna að endurskapa svipað, ef ekki sama, grípandi andrúmsloft og á síðustu plötu. Hljómur plötunnar er hrár og spilagleðin fær að njóta sín. Plat- an er nákvæmlega eins og sveitin hljómar. Prik fyrir það. Þeir Chili liðar eru færir í poppsmíðum, hafa góða næmni fyrir laglínum og eiga án efa eftir að bæta við slögurum á aðra „best of“-plötu, sem hlýtur að vera komin á út- gáfuplanið. Nefni í fljótu bragði lög eins og „Can’t Stop“ og ballöð- una „Midnight“. En skilur þessi plata eitthvað eftir sig? Nei, eig- inlega ekkert. Til þess er þetta of mikið miðjumoð. „By the way“ ætti að gera aðdáendur sátta en bætir varla nýjum í hópinn. Birgir Örn Steinarsson Já... alveg rétt RED HOT CHILI PEPPERS By the Way TÓNLIST Fyrir um tuttugu árum síðan olli nafnagift hljómsveitar- innar Sjálfsfróun töluverðu fjaðrafoki. Sveitin varð meira að segja að kalla sig „Handriðið“ við tækifæri af ótta við að stinga ekki á blygðunarkennd við- kvæmra einstaklinga. Í dag er til hljómsveitin Rúnk og liðsmenn hennar segja engan raunveru- lega hneykslaðan á nafngiftinni. Rúnk var að gefa út sína fyrstu breiðskífu en aðra útgáfu ef með er talin jólaplata sem gef- in var út í takmörkuðu upplagi fyrir síðustu jól. Tónlistin er uppsveiflukennt popprokk sem daðrar við, og gerir grín að, hinu hallærislega og metnaðarlausa. Það sést einnig glögglega á allri ímynd sveitarinnar sem minnir um margt á veggspjöld Bindind- ismóta Galtalækjarskógs á ní- unda áratuginum eða Sumar- gleðina sem áttu meðal annars slagarann „Prins Póló“ snemma á sama áratug. „Við erum samt alveg á góðri leið með það að tapa því núna,“ segir gítarleikarinn með rauðu derhúfuna er gengur undir dul- nefninu Suawey. „Þetta er búið að vera allt of mikið álag og þess vegna ætlum við að fara í frí. Við gáfum út þessa plötu á eigin veg- um. Héldum Viðeyjarhátíð og sáum um Innipúkann um Versl- unarmannahelgina.“ „Allir tónleikar sem við höf- um spilað á eru eitthvað sem við höfum gert sjálf,“ segir græn- húfaði Bobby mæðulega. „Við höfum því verið að rífast um söluverðið á bjór í stað þess að hafa gaman af því að leika tón- list.“ Sveitin ætlar því að taka pásu eftir ágúst enda margir liðs- menn sveitarinnar að fara til út- landa í nám. Það má því segja að hljómsveitarnafnið Rúnk sé lýsandi fyrir starfssemi sveitar- innar. Allt handunnið með hraði og munaðurinn stendur aðeins yfir í stuttan tíma. Liðsmenn við- urkenna það fúslega að lögin séu samin á rauntíma þeirra. „Svo nær maður honum vonandi upp aftur þegar við komum til baka frá útlöndum,“ segir Jimmy með bláa skyggnið glottandi og gefur þannig vísbendingar um frekara Rúnk næsta sumar. Næstu tónleikar sveitarinnar verða í Norðurkjallara MH næsta föstudag. Sveitin leikur svo kveðjutónleika sína á Grand Rokk föstudaginn 30. ágúst. Rúnk verður með lag á væntan- legri 20 ára afmælissafnplötu Smekkleysu. biggi@frettabladid.is THE SWEETEST THING kl. 8 og 10 MEN IN BLACK 2 kl. 4, 6 og 8 Sýnd kl. 4 og 6 m/ ísl. tali Sýnd kl. 4, 6 og 8 m/ ísl. taliSýnd kl. 5, 8, 10 og 11 Powersýning Sýnd kl. 4, 7 og 10kl. 5.20FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 7LEITIN AÐ RAJEEV kl. 6 og 8CLOCKSTOPPERS VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 6 ABOUT A BOY kl. 8 og 10.05 MOTHMAN PROPHECIES 8 og 10.20 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10.30 kl. 10NOVOCAINE MURDER BY... kl. 10.10 VIT400 SCOOBY DOO kl. 4 og 6 VIT398 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali 4 og 6 VIT418 EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417 MR. BONES kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT415 BIG TROUBLE kl. 8 VIT406 VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 3.45 VIT410 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 420Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 422 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT 423 Nýja Sumargleðin? Hljómsveitin Rúnk gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu „Ghengi Dahls“. Upphaflega hópuðust liðsmenn sveitarinnar saman til að fá fría ferð til Belgíu en í dag virðist sveitin ætla að stunda iðju sína eins lengi og hún veitir þeim unað. RÚNK Eitt mest grípandi lag Rúnk breiðskífunnar heitir „Atlavík ‘84“. Og það er saga á bak við nafnið. „Þetta er óður til Ringo Starr,“ segir Suawey. „Hann var í Atlavík þetta árið og hann langaði í koníak. Jakob Frímann á að hafa sent þyrlu til Þingvalla eftir dýrasta og fín- asta koníaki landsins. Svo þegar flaskan kom til Ringo þakkaði hann fyrir sig, hellti í glas og fyllti upp í restina með kóki.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI beldisfull. Í senunni átti hann meðal annars að slá hana utan und- ir. Greyið átti erfitt með að meiða eina upp- áhalds popp- söngkonu sína og varð hún að segja honum að slá sig fastar. Liðsmenn hljómsveitarinnar Ashmeiddust öll eitthvað er rúta þeirra valt á leið þeirra til tón- leikahalds í Detroit um helgina. Trommarinn braut rifbein, bassa- leikarinn er með hálsríg og starfs- fólk þeirra meira og minna skadd- að. Enginn virðist þó vera alvar- lega meiddur og er sveitin stað- ráðin í því að leika á flestum þeim tónleikum sem búið var að aug- lýsa. SUPERMAN Virðist hafa villst á leið sinni upp á hvíta tjaldið. Superman á leiðinni í bíó: Flýgur krókaleiðina KVIKMYNDIR Endurkoma Súper- manns upp á hvíta tjaldið virðist ætla að taka sinn tíma. Eitthvað virðast kvikmyndaframleiðendur vera tvístígandi í þeim efnum því nú berast þær fregnir að búið sé að fresta myndinni um sameigin- legt ævintýri Súpermanns og Bat- mans. Í stað þess á að hrinda í fram- kvæmd fimmtu myndinni um Súpermann sem tekur upp þráð- inn þar sem hin hræðilega mynd, „Quest for Peace“, skildi hann eft- ir í. Handrit myndarinnar ku vera tilbúið og meint gæði þess eru meginástæða þess að áform um „Superman Vs. Batman“ voru lögð á hilluna. Leikstjórinn McG, sem gerði „Charlie’s Angels“ ætlaði að leik- stýra en hugsanlegt er að hann verði frá að hverfa ef framleiðsl- unni verður flýtt. Ekki er enn búið að ráða neinn í aðalhlutverkið en margir hafa verið orðaðir við það, svo sem Jude Law og Josh Harnett. Það má því alveg búast við því að það taki ofurhetjuna að minnsta kosti þrjú ár til viðbótar að rata aftur í bíó.  SÍAMSTVÍBURAR Síamstvíburasysturnar Reba og Lori Schappel eru fertugar. Þær hafa ekki látið fötlunina buga sig. Báðar útskrifuðust þær úr menntaskóla. Reba fylgdi svo með syst- ur sinni í sex ár er hún vann fullt starf á hreinsiþvottastöð spítala. Lori hætti í vinn- unni árið ‘96 þegar Rebu langaði til þess að reyna fyrir sér sem kántrísöngkona. Hún er ekki enn komin með útgáfusamn- ing en hefur leikið á tónleikum í Atlantic City, New Jersey, Japan og Þýskalandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.