Fréttablaðið - 20.08.2002, Side 19
19ÞRIÐJUDAGUR 20. ágúst 2002
TÓNLIST „Það má segja að diskur-
inn sé saga sögð í ljóðum,“ segir
Salbjörg Hotz, píanóleikari. „Það
má segja að þau fjalli um mann-
réttindi í sinni breiðustu mynd en
efnislega gerast þau í Mið-Aust-
urlöndum á nítjándu öld.“ Sal-
björg var að gefa út sinn fyrsta
disk, Sýn af eldi. Á honum er að
finna fjórtán sönglög eftir Sal-
björgu. „Þessi sönglög voru flest
frumflutt fyrir tveimur árum, á
tónleikum á menningarborgarár-
inu.“
Ljóðin eru eftir Eðvarð T. Jóns-
son, en þau birtust fyrst í ljóða-
bókinni Aldahvörf. „Eðvarð hafði
heyrt tónlist eftir mig, kom að
máli við mig og bað mig um að
semja lög við ljóðin sín.“ Salbjörg
brást vel við og eftir vel heppnað-
an frumflutning urðu þau ásátt
um að gefa afraksturinn út á
geisladisk.
Sönglögin eru flutt af þeim
Signý Sæmundsdóttur og Berg-
þóri Pálssyni en Salbjörg leikur
undir á píanó. Hún nam píanóleik
hér á landi og í Vínarborg. Eftir
námið flutti hún til Íslands en það-
an alla leið til Ísrael. Nú býr hún
og starfar í Sviss.
SALBJÖRG HOTZ
Hefur fengist við tónlist í fjölmörg ár en gefur nú út sinn fyrsta disk.
Nýr sönglagadiskur kominn út:
Saga sögð
í ljóðum
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
BRETLAND The Royal Shakespeare
Company í Bretlandi hefur nú
uppi áætlanir um að útvíkka starf-
semi sína og snúa sér að útgáfu,
kvikmyndum og sjónvarpi. Fjár-
hagsstaða leikhússins er mjög
veik, en skuldir þess nema um 1,3
milljónum punda. „Leikhúsið er
hvergi virkt nema á sviði,“ er haft
eftir Elaine Bedell, framkvæmda-
stjóra. „Það gæti hæglega verið
virkara í kvikmyndum og sjón-
varpi og sömuleiðis í útgáfu
fræðsluefnis.“ Talsmenn leikhúss-
ins segja að ágóði af miðasölu
muni ekki nægja til að koma leik-
húsinu klakklaust áfram inní 21.
öldina og fullyrða einnig að þessar
fyrirætlanir tengist ekki nýjum
listrænum stjórnanda. Núverandi
stjórnandi, Adrian Noble, sem ein-
nig leikstýrði West End-smellinum
Kitty Kitty bang, bang, hefur
sagst munu láta af störfum þegar
samningur hans rennur út í mars
2003. Michael Bond, aðstoðarfam-
kvæmdasjtóri leikhússins, mun
taka við af honum.
The Royal Shakespeare
Company var nýlega gagnrýnt
vegna áætlana um að hætta starf-
semi í núverandi heimastöðvum í
Stratford-Upon-Avon og byggja
nýtt leikhús.
The Royal Shakespeare Company:
Róa á ný mið
SHAKESPEARE
Þó skáldið sé dáð af mörgum er The
Shakespeare Royal Company í kröggum.
Þessi mynd er frá sýningu Vesturports á
Títusi eftir Shakespeare.
MYNDIR AF HEILAGRI GUÐSMÓÐUR
Gennea Maria Panzarella frá San Francisco krýpur hér við krítarmynd sem hún gerði af
Maríu mey og Jesúbarninu á gangstétt í Mantova á Norður-Ítalíu. Myndin er ein margra
mynda í árlegri samkeppni í borginni um bestu gangstéttarmyndina af Maríu mey. Mynd-
irnar eru yfirleitt ónýtar eftir nokkra klukkutíma og duga í mesta lagi einn dag. Mynd
Panzarella var valin best í ár.
Leikarinn Billy Bob Thorntonsem nú er víst orðinn fyrrum
eiginmaður leikkonunnar Angelinu
Jolie ætlar að ganga að eiga fjórðu
eiginkonu sína, á nýjan leik. Angel-
ina var sú fimmta í röðinni og hef-
ur Thornton ákveðið að taka skref
til baka í eiginkonufjöldanum.
Hann á víst að hafa verið byrjaður
að hitta hana á laun áður en sam-
band hans við Angelinu lauk. Og
þar höfum við það.
Breski leikarinn Robert Carlyleer ekki sá eini sem hyggst
leika einræðisherrann Adolf
Hitler á næstunni. Nú hefur stór-
leikarinn Al Pacino bæst í hóp
þeirra sem vilja klessa hárið nið-
ur og máta yfirvaraskeggið und-
arlega. Pacino bregður sér í hlut-
verk Hitlers fyrir leikritið „Art-
uro Ui“ sem er satíra eftir Bertolt
Brecht.
FRÉTTIR AF FÓLKI