Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 2

Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 2
2 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR LÖGREGLUFRÉTTIR VIÐSKIPTI Nýtt olíufélag tekur til starfa á íslenskum markaði um næstu áramót. Það ber nafnið Atl- antsolía og er í eigu sömu aðila og eiga og reka Atlantsskip. „Meiningin er sú að bjóða fyrst upp á olíu fyrir stærri viðskipta- vini,“ segir Símon Kjærnested, framkvæmdastjóri nýja olíufélags- ins. Áherslan verði í fyrstu lögð á að þjónustu skip. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins munu stjórn- endur og eigendur fyrirtækisins þegar hafa sett stefnuna á að bjóða einnig upp á bensín til bíleigenda. Símon vildi þó ekki staðfesta þetta í gærkvöldi. „Það er eitthvað sem verður að ráðast síðar. Við ætlum að taka eitt skref í einu.“ Á næstunni verður ráðist í það að byggja upp aðstöðu fyrir fyrir- tækið. Hún verður staðsett á upp- fyllingu í Hafnarfjarðarhöfn. Þar verða reistir olíutankar og stöðvar- hús. Í dag verða opnuð tilboð í að jafna landið undir stöðina og leggja þró í kringum svæðið þar sem olíu- tankarnir verða ef olíuleki kynni að eiga sér stað.  AUKNIR VALKOSTIR Útgerðarmenn munu geta valið á milli fleiri kosta um kaup á olíu á skip sín þegar nýja olíufélagið tekur til starfa um áramót. Fyrst um sinn munu bíleigendur ekki geta skipt við nýja félagið en það getur breyst þegar fram líða stundir. Nýtt olíufélag hefur starfsemi um áramót: Stefnt á sölu til skipa fyrst um sinn Samtök iðnaðarins: Vextir lækki hraðar EFNAHAGSMÁL Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins, segir að vextir verði að lækka hraðar og meira en þegar hefur verið. Í leiðara Íslensks iðnaðar segir Sveinn ánægjuefni að Seðlabankinn taki ekki undir með þeim sem vilja fresta vaxtalækkunum til að vinna gegn þensluáhrifum væntanlegra stóriðjuframkvæmda. Vextir séu þó enn mjög háir. „Það sem máli skiptir er að vegna þess hve hratt verðbólgan hefur lækkað hafa raunvextir hér á landi farið hækk- andi.“ Þá séu stýrivextir 7,9% hér en 3,25% hjá Seðlabanka Evrópu.  LÖGREGLA Liðsmenn palestínsku lögreglunnar eru komnir aftur á götur Betlehem. Hersveitir Ísraela: Yfirgáfu Betlehem BELTEHEM, VESTURBAKKANUM, AP Her- sveitir Ísraela yfirgáfu borgina Betlehem á Vesturbakkanum í gær eftir árangursríkar samn- ingaviðræður á milli Ísraela og Palestínumanna. Palestínska lög- reglan mun í staðinn sjá um ör- yggisgæslu í borginni. Sam- kvæmt samkomulaginu er vonast til að Ísrelsher yfirgefi fleiri svæði á Vesturbakkanum á næst- unni. Skæruliðahreyfingarnar Hamas og Islamic Jihad hafa hafnað samkomulaginu og segja það eiga eftir að leiða til enn meira ofbeldis.  Dýragarðurinn í Prag: Sæljónið Gaston drapst FLÓÐ Dýrin í dýragarðinum rétt fyrir utan Prag hafa heldur betur fengið að finna fyrir flóðunum síðustu dag. Í síðustu viku þurfti að aflífa Kadir, 35 ára gamlan ind- verskan fíl, þar sem ekki reyndist unnt að bjarga honum. Tékkar þurftu að horfa á eftir öðru vinsælu dýri í gær, þegar sæljónið Gaston drapst. Gaston hafði sloppið úr dýragarðinum í flóðunum og synt um 250 kíló- metra yfir til Þýskalands áður en hann náðist. Hann drapst þegar verið var að flytja hann tilbaka.  FLÓÐ Íslendingar sem hafa bókað ferðir til flóðasvæðanna í Evrópu virðast hvergi smeykir og láta vatnselginn ekki setja sig út af laginu. Rúmlega 130 manns fóru frá Íslandi til Prag í gær á vegum Heimsferða. 140 manns höfðu bókað sig í ferðina og einungis átta manns sáu ástæðu til að af- bóka sig. Andri Már Ingólfsson, hjá Heimsferðum, segir greinilegt að fólk fylgist vel með fréttum frá flóðasvæðunum og virðist telja sér óhætt. Heimsferðir bjóða upp á siglingu niður Dóná á næstunni og enginn hefur hætt við þá ferð. Andri segir ástandið á helstu ferðamannastöðum í Prag vera í lagi og nefnir sem dæmi að Heimsferðir hafi ekki þurft að breyta neinum þeirra kynnis- ferða sem skipulagðar eru í borg- inni. Hann bætir því við skrif- stofan hefði sjálf hætt við ferð- ina til Prag ef hún hefði ekki talið viðskiptavinum sínum óhætt. Engar breytingar eru fyrirhug- aðar á ferðum til Búdapest og Prag síðar í sumar enda allar lík- ur á að hörmungarnar verði þá að mestu gengnar yfir.  PRAG Íslendingar virðast ekki láta flóðin þar og annars staðar í Evrópu setja sig út af laginu og fáir gera breytingar á ferðaáætlunum sínum. Flóðin í Evrópu: Íslendingar hvergi smeykir NÁTTÚRUHAMFARIR Þjóðverjar ótt- ast að eiturefni hafi borist frá Tékklandi til Þýskalands í flóðun- um síðustu daga. Juergen Trittin umhverfisráðherra fór í gær til bæjarins Neratovice í Tékklandi til þess að kanna hvort dioxín hefði borist frá efnaverksmiðju þar í ána Elbu. Áin, sem á upptök sín í Tékklandi, rennur í gegnum Þýskaland m. a. í gegnum Dres- den og Hamborg. Enn er óljóst hvort efnið hefur borist frá efnaverksmiðjunni en ef svo er gæti töluverð hætta ver- ið á ferðum, þar sem díoxín er á meðal eitruðustu efna sem finna má í umhverfinu. Efnið getur komist inn í líkamann með inn- öndun á menguðu lofti, húðsnert- ingu og með fæðu og getur valdið margskonar kvillum. Talið að það geti leitt til krabbameins, lækkun- ar á testasteróni, fækkunar sæðis- fruma og lifraskemmdar. Þá eru fóstur dýra og manna viðkvæm fyrir efninu. Tjón af völdum flóðanna í Þýskalandi, Tékklandi, Slóvakíu, Austurríki og Ungverjalandi er metið á um 1.800 milljarða króna. Alls hafa 111 manns látið lífið í flóðunum og þúsundir misst heim- ili sín. Vegir, járnbrautateinar, brýr og hús hafa eyðilagst í flóð- unum og ljóst að mikið uppbygg- ingarstarf er framundan í þeim borgum sem verst hafa orðið úti. Yfirvöld í Tékklandi segja að flóðið í Prag sé það versta í 175 ár. Um 150 fjölskyldur í gamla bæn- um misstu heimili sín og skólar munu ekki hefja göngu sína fyrr en í lok september, en venjulega hefjast þeir í byrjun mánaðarins. Þýsku borgirnar Magdeburg og Dresden urðu einnig nokkuð illa úti og ljóst að skemmdir þar eru töluverðar. Varnargarðar í Magdeburg héldu þó ágætlega og kom ekki til þess að um 20 þúsund manns þyrftu að flytja sig eins og ráð hafði verið gert fyrir. Flóðin í Búdapest eru í rénum og þar héldu varnargarðar einnig að mestu og kom það í veg fyrir miklar skemmdir. Flóðin höfðu hins vegar áhrif á hátíðahöld í tengslum við þjóðhátíðardag Ung- verja í gær og var flugeldasýn- ingu m. a. aflýst. Yfirvöld í Júgóslavíu og Króatíu eru nú að varðbergi, þar sem búist er við því að Dóná flæði jafnvel yfir bakka sína þar á næstu dögum.  Á GÚMMÍBÁT Í MEISSEN Vegir, járnbrautateinar, brýr og hús hafa eyðilagst í flóðunum og ljóst að mikið uppbygg- ingarstarf er framundan í þeim borgum sem verst hafa orðið úti, þar á meðal í bænum Meissen skammt frá Dresden. Þjóðverjar óttast eiturefna- mengun frá Tékklandi Umhverfisráðherra Þýskalands fór í gær til Tékklands. Kannaði hvort díoxín hafi borist frá efnaverksmiðju.Tjón vegna flóða metið á um 1.800 milljarða króna. HÚS Í WEESENSTEIN Tjón af völdum flóðanna í Þýskalandi, Tékklandi, Slóvakíu, Austurríki og Ungverjalandi er metið á um tvo milljarða króna. Íbúar í Weesenstein í Þýskalandi misstu margir heimili sín. MÓÐIR OG BARN Í bænum Szentendre skammt frá höfuð- borginni flæddi Dóná yfir bakka sína. AP /M YN D IR Heildarkostnaður við endur-byggingu Stafnesvegar í Sandgerði varð kr. 30.046.852.- og fór fram úr fjárhagsáætlun sem nemur viðbótarverkum kr. 1.665.147. Víkurfréttir. Deildarstjóri RÚVAK: Sigurði sagt upp FJÖLMIÐLAR Sigurði Þór Salvars- syni, deildarstjóra Ríkisútvarpsins á Akureyri var sagt upp störfum á mánudag. Sigurður var kallaður á fund Bjarna Guðmundssonar, starfandi útvarpsstjóra sem af- henti Sigurði uppsagnarbréfið. Samkomulag var um að Sigurður hætti þegar störfum en fengi greidd laun næstu þrjá mánuði. Sigurður sem hefur starfað hjá RÚV í hálfan annan áratug, var einn þeirra sem sóttu um starf dagskrárstjóra Rásar 2 sem flutt hefur verið til Akureyrar. Ráðning Jóhanns Haukssonar, fyrrverandi deildarstjóra RÚV á Austurlandi í stöðuna olli nokkrum deilum. Með uppsögn Sigurðar er endi bundinn á þær.  Margrét Frímannsdóttir: Krefst þess að leiða listann STJÓRNMÁL „Ég hef sagt að ég sæk- ist eftir leiðtogasæti Samfylking- arinnar í Suðurkjördæminu, hvaða leið sem notuð verður til að skipa á listann. Verði niðurstaðan önnur, þá tek ég ákvörðun í fram- haldi af því. Ég hef verið leiðtogi flokksins á Suðurlandi, er vara- formaður Samfylkingarinnar og átti stóran þátt í tilurð flokksins. Mér finnst því eðlilegt að mér verði treyst til þess að leiða list- ann í nýju Suðurkjördæmi, gegn- um það mikla starf sem framund- an er,“ segir Margrét Frímanns- dóttir, þingmaður Samfylkingar- innar á Suðrulandi. 

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.