Fréttablaðið - 21.08.2002, Side 4
Ítölskum ferðamanni varbjargað eftir að bíll hans var
kominn á kaf í Steinholtsá í
Þórsmörk í fyrradag. Lands-
verðir í Þórsmörk og fólk af
næstum bæjum komu mannin-
um til bjargar sem var kominn
út úr bílnum og hélt sér í hann.
Hafði vélin drepið á sér og
dekkin komin af felgunum. Ítal-
inn hafði verið ásamt þremur
öðrum á ferðalagi sem komust
þeir í land og hringdu í Neyðar-
línuna. Gáfu þeir greinagóðar
lýsingu á staðsetningu sem þyk-
ir hafa flýtt fyrir björgun.
Erlend kona var sótt afsjúkraflutningsmönnum upp
í fjallshlíð ofan við Skaftafell í
fyrrakvöld Hafði konan hrasað
og meitt sig. Við nánari eftir-
grennslan reyndist konan ökkla-
brotin.
Þriggja bíla árekstur varð viðHaffjarðará undir Mýrum í
fyrrakvöld. Fimm voru fluttur á
heilsugæslustöðina í Borgar-
nesi. Reyndust þeir ekki mikið
slasaðir. Tildrög slyssins urðu
þau að bílar sem komu úr gagn-
stæðri átt rákust saman og í
kjölfarið ók sá þriðji aftan á
annan bílanna.
4 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGURSVONA ERUM VIÐ
SKÓLABÖRNUM FJÖLGAR
JAFNT OG ÞÉTT
Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru
44.121 í október árið 2001 samkvæmt töl-
um Hagstofunnar og höfðu ekki áður verið
fleiri nemendur í skyldunámi á Íslandi. Að
auki sátu 84 nemendur í fimm ára bekk í
fimm grunnskólum. Grunnskólanemum
fjölgaði um 477 frá haustinu 2000 og um
1.700 frá árinu 1998. Skýringin er m. a. sú
að stærri árgangar eru að hefja grunn-
skólanám en þeir sem eru að ljúka grunn-
skóla. Einnig hafa fleiri flust til landsins en
frá því undanfarin ár og börnum á grunn-
skólaaldri í landinu því fjölgað.
INNLENT
HLUTABRÉF Gengi hlutabréfa í
deCODE á Nasdaq hefur lækkað
jafnt og þétt síðustu daga. Við lok
markaða í gær voru þau komin
niður í 2,33 dollara. Verðbréfasér-
fræðingar segja ljóst að fjárfest-
ar hafi litið á 3.0 sem einhvers
konar þröskuld og þegar gengið
fór niður fyrir það hafi þeir byrj-
að að losa sig við hluti. Framboð á
bréfum í fyrirtækinu er því nokk-
uð en kaupáhuginn er hins vegar
nánast enginn. Þeir benda þó á að
hreyfingin á bréfunum sé svo lítil
að smá viðskipti geti haft veru-
lega lækkun í för með sér.
Áhugaleysi fjárfesta er helst
skýrt með vonbrigðum þeirra
með innri vöxt fyrirtækisins, sem
hefur verið undir væntingum, en
allur sýnilegur vöxtur tengist
kaupum deCODE á MediChem.
Lækkandi gengi bréfanna hefur
svo aftur ekkert með daglegan
rekstur fyrirtækisins að gera.
Fyrirtækið á um 110 milljónir
dollara haldbærar og í ljósi lið-
inna missera ættu þeir peningar
að tryggja rekstur þess í tvö ár til
viðbótar.
ÍSLENSK ERFÐAGREINING
Leiðin virðist liggja beint niður á við
eftir að gengi bréfa í fyrirtækinu fór
niður fyrir 3 dollara á Nasdaq.
Bréf í deCODe lokuðu í 2,33 dollurum:
Lítill áhugi á að kaupa bréfin Halldór Ásgrímsson, utanrík-isráðherra, kvaðst í viðtali
við Ríkisútvarpið í gærkvöldi
ekki vilja fórna Þjórsárverum.
Hann sagði að þrátt fyrir það
yrði að skoða efnahagslega
þætti málsins. Einnig þyrfti að
íhuga ákvæði stjórnsýslulaga
sem takmarka möguleika ráð-
herra til að tjá sig um mál án
þess að verða vanhæfir til að
fjalla um þau.
Vegagerðin hefur ákveðið aðsemja við Íslandsflug um
flug milli Reykjavíkur og
Hornafjarðar og byrjar félagið
að fljúga á þessari leið fyrsta
nóvember. Rúv.
Trilla strandaði í
Súgandafirði:
Skipstjór-
inn reynd-
ist ölvaður
STRAND Fjögurra tonna trilla, Lax-
inn EA, strandaði í fyrrakvöld við
Gölt í Súgandafirði. Einn maður
var um borð í trillunni og komst
hann í land af sjálfsdáðum. Mað-
urinn gekk um 10 km leið til Sel-
árdals við Ásfjall sem er innar í
Súgandafirði. Komst maðurinn í
síma í sumarhúsi sem þarna er.
Lögreglan á Ísafirði hafði þegar
tal af manninum sem reyndist ölv-
aður. Gisti hann fangageymslur
um nóttina og var sleppt í gærdag
að lokinni skýrslutöku.
Tilkynningaskyldan varð vör
við það að trillan datt úr sjálf-
virkri tilkynningaskyldu. Var
reynt að ná sambandi í gegnum
síma og talstöð án árangurs.
Björgunarsveitin Björg var þá
kölluð út um tíuleytið. Þegar
sveitin var komin áleiðis barst til-
kynning um að maðurinn væri
kominn í leitirnar. Við það sneru
björgunarsveitarmenn við en kol-
svarta myrkur hafði skollið á.
Björgunarsveitarmenn unnu
að því í gærdag að taka flest öll
verðmæti úr bátnum.
LÖGREGLUFRÉTTIR
INNLENT
BERLÍN, AP Íraskir stjórnarand-
stæðingar réðust inn í íraska
sendiráðið í Berlín í gær og héldu
nokkrum gíslum um nokkurra
klukkustunda skeið. Gíslatökunni
lauk ekki fyrr en þýskir lögreglu-
menn réðust til inngöngu eftir að
hafa fengið leyfi íraskra stjórn-
valda til að halda inn í sendiráðið.
Fimm íraskir stjórnarandstæð-
ingar gáfust upp án teljandi mót-
stöðu og voru gíslarnir leystir úr
haldi. Íraski sendiherrann í Berlín
var einn gíslanna.
Í yfirlýsingu frá samtökunum,
sem eru nýstofnuð og kalla sig
„lýðræðislegir andstæðingar
Íraks í Þýskalandi,“ sagði að um
væri að ræða „friðarsinnaða og
tímabundna“ aðgerð. Kröfðust
samtökin þess að bundinn yrði
endir á valdatíð Saddams
Hussein. „Við höfum lagt undir
okkur sendiráð Íraks í Berlín og
tökum þar með fyrsta skrefið í átt
að frelsun okkar heittelskaða föð-
urlands,“ sagði í yfirlýsingunni.
Helstu samtök íraskra stjórn-
arandstæðinga, „Íraska þjóðar-
ráðið“ sagðist aldrei hafa heyrt
um hin nýstofnuðu samtök. For-
dæmdi „þjóðarráðið“ aðgerð sam-
takanna og sagði þau ekki starfa á
vegum stjórnarandstöðunnar.
Þrír dagar eru síðan Gerhard
Scroeder, kanslari Þýskalands, ít-
rekaði andstöðu sína við hugsan-
legt stríð Bandaríkjamanna við
Írak. Hafa bandarísk stjórnvöld
gagnrýnt afstöðu hans harðlega.
Gíslataka í íraska sendiráðinu í Berlín:
Íraskir stjórnarandstæð-
ingar hernámu sendiráð
SÉRSVEITARMENN
Þýskir sérsveitarmenn
ráða ráðum sínum
skammt frá sendiráðs-
byggingunni.
AP
/M
YN
D
VIÐSKIPTI Stjórn hlutafélagsins
Aktiverum hf., sem rekur líkams-
ræktarstöðvarnar Planet City og
Planet Esju, hefur sent kröfuhöf-
um sínum beiðni um samþykki til
að leita nauðasamninga. Einar Þór
Sverrisson, lögmaður fyrirtækis-
ins, sagði að 25%
kröfuhafa þyrftu
að samþykkja
beiðnina til þess
að fyrirtækið gæti
fengið heimildina.
„Ljóst er að
heimild til nauða-
samnings er eina
haldreipi félags-
ins,“ segir í bréfi,
sem sent var
kröfuhöfum. „Fáist þessi heimild
ekki verður félagið gefið upp til
gjaldþrotaskipta, enda með öllu
ljóst að hjól rekstrarins munu
stöðvast á næstu vikum, verði
ekkert að gert. Ef um slíkt yrði að
ræða, er ljóst að almennir kröfu-
hafar myndu fá lítið sem ekkert
upp í kröfur sínar.“
Í bréfinu kemur fram að fyr-
irtækið, sem einu sinni rak fimm
líkamsræktarstöðvar, hafi þurft
að selja tvær þeirra og loka
einni vegna fjárhagsörðugleika.
Ástæður þeirra hafi verið marg-
víslegar. Samkvæmt upphaf-
legri fjárhagsáætlun hefði
kostnaður við opnun Planet City
átt að vera um 52 milljónir
króna, en hann hafi endað í 120
milljónum. Þá telja eigendur
fyrirtækisins að framkvæmdir í
Austurstræti og á Hótel Esju
hafi ennfremur haft mjög nei-
kvæð áhrif á reksturinn.
„Boðaföll í rekstri félagsins
hafa fremur líkst náttúruham-
förum en eðlilegum ágjöfum í
rekstri,“ segir í bréfinu til
kröfuhafa. „Vegna alls þessa fór
á seinni hluta síðasta árs að bera
á verulegum erfiðleikum í rek-
stri félagsins.“
Líkamsræktarstöðvarnar
Planet Gym 80 og Planet Pump
voru seldar fyrir 78 milljónir
króna og Planet Sport var lokað.
Í bréfinu kemur fram að sex
kröfuhafar, sem samtals eiga
kröfur upp á 107 milljónir króna,
hafi samþykkt að fella niður
80% af kröfum sínum og skuld-
breyta þeim í langtímalán. Verði
nauðasamningurinn samþykktur
af lánadrottnum félagsins, verð-
ur félagið eftir samningana
skuldsett um 60 milljónir króna.
Hluthafar í Aktiverum eru
fimm talsins. Jónína Bendikts-
dóttir er stærsti hluthafinn með
52,5%, þar næst kemur Lands-
bankinn með 33,1%, Kaupþing
með 10,4% og Norðurljós með
3,9%. Gangi nauðasamningar eft-
ir mun hlutafé félagsins verða
fært niður um a.m.k. 80%. Jónína
Benediktsdóttir vildi ekki tjá sig
um málið þegar Fréttablaðið
hafði sambandi við hana í gær.
trausti@frettabladid.is
PLANET CITY
Aktiverum hf., sem einu sinni rak fimm líkamsræktarstöðvar, hefur þurft að selja tvær þeirra og loka einni vegna fjárhagsörðugleika.
Planet-veldið óskar
eftir nauðasamningum
Aktiverum hf. sem rekur Planet City og Planet Esju hefur sent kröfuhöfum beiðni um heimild
til nauðasamningsumleitana. Jónína Benediktsdóttir er stærsti hluthafinn. Boðaföll í rekstri líkj-
ast náttúruhamförum segir í bréfi til kröfuhafa.
„Boðaföll í
rekstri félags-
ins hafa frem-
ur líkst nátt-
úruhamförum
en eðlilegum
ágjöfum í rek-
stri.
Áfundi sínum í gær ræddi rík-isstjórnin erindi frá Alþjóða-
vinnumálastofnuninni þar sem
leitað var viðbragða við kæru
ASÍ vegna meintra brota stjórn-
valda á samnings- og félagafrelsi
sjómanna vegna bráðabirgðalaga
á sjómannaverkfall.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T