Fréttablaðið - 21.08.2002, Síða 7

Fréttablaðið - 21.08.2002, Síða 7
Öflugur heimamarkaður á vefnum Smáauglýsingadeild Fréttablaðsins Þverholti 9, 105 Reykjavík. Sími 515 7500 Netfang: smaar@frettabladid.is Veffang: frett.is Athugið: Upplýsingar um lestur eru fengnar úr fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002. Miðað er við meðallestur á tölublað í hverjum aldurshópi. Upplýsingar um verð eru fengnar úr verðskrám blaðanna á frett.is og dv.is og er miðað við lægstu uppgefin verð í báðum tilfellum. Í opnum samfélögum Vesturlanda eiga sér stað látlaus átök hefðar og nýjunga. Þótt þessi átök virðist oft tvísýn má vanalega sjá niðurstöðuna fyrir: Það sem býr að hefðinni vinnur alltaf nema nýjungin hafi afgerandi kosti umfram hefðina. Vínylplatan stóð af sér margar árásir nýjunga alla síðustu öld þar til geisladiskurinn breytti henni í forngrip á skömmum tíma. Geisladiskurinn hafði einfaldlega of mikla yfirburði yfir vínylplötuna til að hefðin dygði henni. Sama á við um auglýsingar í dagblöðum. Þar hafa hefðin og nýjungarnar háð marga hildi og niðurstaðan orðið kunnugleg. Hefðin lætur ekki undan fyrr en fram kemur nýjung sem býður bæði upp á lægra verð og meiri árangur. Þessi munur er augljós þegar bornar eru saman smáauglýsingar í Fréttablaðinu og smáauglýsingar í DV. Hver birting er 77 prósent ódýrari í Fréttablaðinu en í DV. Samt eru 125 prósent fleiri lesendur á bak við hvert Fréttablað en DV, samkvæmt öllum viðurkenndum könnunum. Fréttablaðið býður því upp á miklu meiri árangur fyrir miklu lægra verð. Nú geta þeir sem auglýsa smátt leyft sér að stefna hátt. sími smáauglýsingadeildar: 515 7500 Nokkur atriði úr handbók auglýsandans: Úr 7. hluta: Hefð og nýjungar. smáauglýsingar Kaupir þú það sama á morgun og í gær? Smáauglýsing Inniheldur: 86.000 lesendur Verð: 995,- - á lesenda (aurar): 1,15 Smáauglýsing Inniheldur: 38.000 lesendur Verð: 1.766,- - á lesenda (aurar): 4,65 Þegar fólk kaupir vöru í búð ætlast það til að seljandinn gefi upp innihald vörunnar. Það sama gerir hinn hagsýni auglýsandi. Hann spyr hvað hann sé að kaupa. Smáauglýsingar Fréttablaðsins birtast einnig á frett.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.