Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 8

Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 8
ÍSLENDINGAR Verðlag hækkar hjá okkur en lækkar hjá öðrum. 8 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. EFNAHAGSMÁL Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækk- aði um 0,2% í júlí frá því í júní. Á sama tíma hækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2%. Frá júlí 2001 til júlímánaðar í ár var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, mun hærri á Íslandi en að meðal- tali í ríkjum á Evrópska efnahags- svæðinu. Á Íslandi var verðbólg- an 4,0%. Í ríkjum EES var verð- bólgan að meðaltali 1,8%. Í lönd- unum sem hafa evru sem gjald- miðil var verðbólga 1,9%. Mesta verðbólga á evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var á Írlandi 4,2% og á Íslandi 4,0%. Verðbólg- an var minnst, 1,0% í Þýsklandi og í Bretlandi og Belgíu 1,1%. Samræmd vísitalan var 111,1 stig í júlí. Hún var 100 stig árið 1996. Verðlag hefur því hækkað að meðltali um 11,1% í ríkjunum sem aðild eiga að Evrópska efna- hagsvæðinu á síðastliðnum sex árum. Á sama tímabili hefur verðlag á Íslandi hækkað um 25,2%.  Evrópska efnahagssvæðið: Verðlag hnígur í EES en hækkar á Íslandi Spillingin er í Sjálfstæð- isflokki Sigurður Sigurðarson, Lækjarbergi 6, skrifar. Heggur sá er hlífa skyldi. Kommér í hug þá séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók sjálftökuliðið á beinið. Í beinni á vegum almættisins. Allt var það satt og rétt er hann sagði. Hann gleymdi því hins vegar að hann var sjálfur í því liði er hann þrum- aði yfir. Hann þáði sumsé laun á tveimur stöðum samtímis. Sið- leysið algjört. Enda sendir Biblían svona mönnum tóninn: Erfitt er tveimur herrum að þjóna ... Sá yðar sem er syndlaus sjálfur kasti fyrsta steininum. Hræsnari! Drag fyrst bjálkann úr eigin auga til þess að sjá til að draga flísina úr auga bróðurins. Séra Hjálmar er sjálfur skilgetið afkvæmi sjálfstökumanna í eigin flokki. Æðsti möguleiki kapitalistanna Pétur Blöndal fer hamförum til þess að ná undir sig SPRON. Það er dauði og djöfuls nauð að dyggða snauðir fantar safna auð með augu rauð en aðra brauðið vantar Hjálmar kannast væntanlega við þennan húsgang. Gæti nýtt sér hann í næstu prédikun. Ættir og óðul þessa siðleysis í peningamál- um sem nú tröllríður samfélaginu er í Sjálfstæðisflokknum. Einn af framámönnum flokksins gengur út með 37 milljónir í starfsloka- samning, maður á besta aldri. Annar segir sjálfur upp. En fær þrjár milljónir í starfslokasamn- ing. Gengur síðan yfir götuna í forstjórastól tryggingafélags í góð laun. Annar frægur fyrrum þingmaður fór úr ráðherradómi. Gekk yfir Austurvöll í banka- stjórastól og lét sér sæma að taka biðlaun. Þeim mun meira sem þes- sir Íhaldspostular stela, þeim mun roggnari á mannamótum. Syngja og spila, halda ræður og brosa svo endajaxlar nema við eyrnasnepla. Er ekki kominn tími til - mín þjóð - að gefa þessu liði frí? Að Sjálftökuflokkurinn verði með svona 15-18% fylgi.  BRÉF TIL BLAÐSINS Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert bréf sé ekki lengra en sem nemur hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að senda bréfin í tölvupósti, rit- stjorn@frettabladid.is, hringja í síma 515 7500, faxa í síma 515 7506 eða senda bréf á Fréttablaðið, Þverholti 9, 105 Reykjavík. LESENDABRÉF Íblaðinu í gær var frétt um aðvinnuveitendur og sum verka- lýðsfélög veittu styrki til svokall- aðra skjágleraugna. Í umfjöllun blaðsins kom fram að VR greiddi allt að 30 þúsund úr sjúkrasjóði til kaupanna. Það er alls ekki rétt en viðkomandi blaðamaður mis- skildi Hansínu Gísladóttur hjá VR og því fór sem fór. LEIÐRÉTTING LÖGREGLA Feðgar sem lögregla grunar um að hafa misþyrmt ung- um manni á hrottalegan hátt í byrjun mánaðarins þurfa að sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 4. sept- ember. Hæstiréttur kvað upp þennan dóm í fyrradag eft- ir að feðgarnir höfðu áfrýjað úr- skurði héraðsdóms um gæsluvarðhald. Faðirinn neitar allri sök í málinu. Fram kemur í úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur að faðirinn dvaldi á heimili tveggja sona sinna í Skeljagranda nóttina áður en ungi pilturinn fannst nær dauða en lífi í garði leikskóla þar í grenndinni. Þangað höfðu bræð- urnir komið fórnarlambi sínu og velt yfir grindverk. Annar bræðranna hefur játað að hafa átt þátt í líkamsárás á pilt- inn. Lögregla telur áverka piltsins hins vegar ekki nægjanlega skýrða með játningu sonarins. Auk þess sem blæddi inn á heila drengsins eftir höfuðkúpubrot var hann víða skorinn og stunginn. Vitni hafa borið um mikla há- reysti í íbúð bræðranna um nótt- ina. Við vettvangsrannsókn kom í ljós mikið blóð í íbúðinni og á svöl- um hennar. Einnig voru hinir grun- uðu alblóðugir við handtöku. Skil- ríki fórnarlambsins fundust í íbúð- inni. Í úrskurði héraðsdóms 14. ágúst sl. segir að lögreglan kveði rannsókn máls þessa miða vel áfram. Miklu sé hins vegar ólokið og afla þurfi frekari gagna í þágu rannsóknar málsins. Fyrir liggi að taka þarf mun ítarlegri skýrslur af feðgunum enda beri mikið í milli í framburði þeirra. Athygli vekur að þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá árásinni á pilt- inn, sem var gerð 2. ágúst, segist lögregla enn eiga eftir að taka skýrslur af vitnum í málinu. Þá hafi ekki verið unnt að taka skýrslu af fórnarlambinu sjálfu. Það hafi verið reynt fimm dögum eftir slysið. Þá hafi hann hins veg- ar verið of eftir sig til að geta gef- ið skýrslu. Þessu til viðbótar mun enn vera óunnin mikil vinna hjá tæknideild lögreglunnar. M. a. hafi blóðsýni úr feðgunum og fórnar- lambinu verið send til Noregs. Þar á að gera DNA samanburðarrann- sókn á þeim lífsýnum sem fundust í fatnaði og á vettvangi. gar@frettabladid.is Blóðbað á Skeljagranda Annar bræðranna sem grunaður er um hrottalega líkamsárás á Skeljagranda hefur játað aðild að árásinni. Faðirinn neitar hins vegar allri sök. Mikið blóð var á veggjum og gólfi íbúðar bræðranna. Auk þess sem blæddi inn á heila drengs- ins eftir höf- uðkúpubrot var hann víða skorinn og stunginn. SKELJAGRANDI Íbúð bræðranna á Skeljagranda var blóði drifin eftir hrottalega líkamsrásás. Þar fundust skilríki pilts sem fannst meðvitundarlaus skammt frá íbúðinni og var fluttur lífshættulega slasaður á sjúkrahús. Kadmín í Arnarfirði: Hæg umskipti sjávar líkleg orsök MENGUN Mikið magn kadmíns í hörpudiski í Arnarfirði er talið náttúrulegt en frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að varpa ljósi á málið. Fjörðurinn er utan hefð- bundins kadmín-svæðis. Það mælist mest yst í firðinum en minnkar eftir því sem innar dreg- ur. Þórður Jónsson, sem hefur unnið skelfisk úr firðinum, vill þó ekki útiloka að mengunin sé af mannavöldum en vísindamenn hallast að kenningum um tengsl kadmíns við gosvirkni, strauma pólsjávar og legu fjarðarins. Guðjón A. Kristinsson alþingis- maður segir Farmanna- og fiski- mannasambandið hafa lagt mikla áherslu á eflingu rannsókna á mengun sjávar fyrir rúmum ára- tug. Undirtektirnar voru ekki miklar þá enda ástandið almennt talið gott. Hann segir áhugann hafa aukist til muna og allir skilji mikilvægi þess að sýna fram á að afurðir okkar séu hreinar. Hann telur líklegt að kadmín í Arnar- firði megi rekja til þess að hann sé „lokaður pollur“. Trú hans á tengingunni við pólsjóinn er minni enda eigi hann greiðari að- gang að öðrum landshlutum.  GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON Segir að fyrir áratug hafi Farmanna- og fiskimannasambandið viljað frekari rann- sóknir á mengun sjávar. Undirtektirnar voru litlar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.