Fréttablaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 10
10 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR
FÓTBOLTI Liðin í ítölsku deilda-
keppninni ákváðu í gær að
fresta upphafi deildakeppn-
innar um tvær vikur. Ákvörð-
unin var tekin í kjölfar þess
að ekki náðust samningar við
sjónvarpsstöðvar um greiðsl-
ur fyrir útsendingarréttinn
frá leikjum í deildinni.
Upphaflega hafði verið
stefnt að því að deildakeppnin
hæfist 31. ágúst næst kom-
andi. Nú er ljóst að ekkert
verður leikið í deildinni fyrr
en 15. september í fyrsta lagi.
Ef samkomulag næst og keppni
hefst þá hefur frestunin þó ekki
áhrif á nema eina umferð í deilda-
keppninni. Ítalir leika við Az-
erbaijana í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða 8. septem-
ber og því voru engir leikir
settir á þá helgina.
Attilio Romero, forseti
Tóríóno, sagði eftir fund
stjórnenda liðanna í gær að
deildin hefðist væntanlega
með leikjum annarrar um-
ferðar. Leikir fyrstu umferð-
ar yrðu leiknir síðar.
Ítalska ríkissjónvarpið vill
ekki greiða nema helming
þeirrar upphæðar sem það
greiddi fyrir sýningarréttinn í
fyrra. Þá töpuðu liðin í A-deildinni
650 milljörðum króna.
AUÐIR VELLIR Á ÍTALÍU
Nokkur bið verður á því að ítalskir knatt-
spyrnuáhugamenn og leikmenn leggi leið
sína á völlinn.
Enn deilt um sjónvarpsgreiðslur:
Deildakeppninni frestað á Ítalíu
Guðmundur
Torfason hættir:
Ólafur tekur
við ÍR-ingum
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson hef-
ur tekið við þjálfun 1. deildarliðs
ÍR af Guðmundi Torfasyni. Guð-
mundur sagði af sér eftir tapleik
gegn Leiftri/Dalvík. Meðal þeirra
liða sem Ólafur hefur þjálfað
áður má nefna Skallagrím og FH.
ÍR-ingar eru í neðsta sæti
deildarinnar, með tólf stig eins og
Sindri. Baráttan um að halda sæti
í deildinni stendur væntanlega
milli þessara liða og Leift-
urs/Dalvíkur sem er með 15 stig.
Öll liðin eiga fjóra leiki eftir í
deildinni.
FÓTBOLTI Atli Eðvaldsson lands-
liðsþjálfari sagði að ekki mætti
vanmeta lið Andorra, sem mætir
íslenska landsliðinu í dag klukk-
an 19.30 á Laugardalsvelli. Hann
sagði að Andorra, sem er í 140.
sæti á heimslista Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, hefði velgt
stærri knattspyrnuþjóðum undir
uggum síðustu ár, m. a. hefðu
Írar átt í mesta basli með þá í
fyrra, en sigrað að lokum 3-1 og
þá hefðu Frakkar aðeins unnið þá
2-1 í undankeppni Heimsmeist-
arakeppninnar 2000.
„Þetta verður verðugt verk-
efni,“ sagði Atli. „Við getum
aldrei vanmetið neitt lið. And-
orra eru mjög sterkir líkamlega
og hafa æft miklu meira saman
en við.“
Leikurinn gegn Andorra er
annar tveggja æfingaleikja ís-
lenska liðsins fyrir undankeppni
Evrópukeppninnar. Hinn leikur-
inn er gegn Ungverjum 7. sept-
ember á Laugardalsvelli. Íslend-
ingar leika fyrsta leik sinn í Evr-
ópukeppninni 12. október þegar
þeir mæta Skotum á Laugardals-
velli. Fjórum dögum síðar mætir
landsliðið síðan Litháen.
Atli sagðist ekki þekkja mjög
vel til Andorra, enda leikmenn
liðsins ekki að spila í sterkum
deildum í Evrópu. Hann sagðist
fyrst og fremst vera að hugsa um
leikina gegn Skotum og Litháum,
en leikirnir gegn Andorra og
Ungverjum hefðu mikið gildi. Í
þeim gæti hann skoðað liðið og
metið hvað væri að og hvað væri
hægt að gera betur.
Að sögn Atla mun íslenska lið-
ið byggja á þeim grunni sem
lagður var fyrir undankeppni
Heimsmeistarakeppninnar 2000.
Nú væru samt fleiri ungir strák-
ar að koma inn í hópinn og því
ætti breiddin að vera orðin meiri.
Það hefði komið vel í ljóst þegar
liðið hefði náð 1-1 jafntefli gegn
Noregi á útivelli. Atli sagðist
vera hóflega bjartsýnn á góðan
árangur í undankeppni EM. Liðið
hefði sett sér þrjú markmið. Í
fyrsta lagi að halda sér í þriðja
styrkleikaflokki. Í öðru lagi að
ná að stríða Skotunum og í þriðja
lagi að lenda í öðru sæti riðilsins
og komast þar af leiðandi í um-
spil um sæti í úrslitakeppninni.
Allir leikmenn íslenska hóps-
ins eru heilir heilsu. Atli sagði að
það væri mikið gleðiefni að Eiður
Smári Guðjohnsen, Ríkharður
Daðason og Marel Baldvinsson
væru allir búnir að ná sér af
meiðslum. Þeir virtust líka allir
vera í góðu formi.
trausti@frettabladid.is
ÍSLENSKI HÓPURINN:
Árni Gautur Arason Rosenborg BK
Kjartan Sturluson Fylkir
Rúnar Kristinsson Lokeren
Hermann Hreiðarsson Ipswich
Ríkharður Daðason Lilleström SK
Helgi Sigurðsson SFK Lyn
Lárus Orri Sigurðsson WBA
Brynjar Björn Gunnarsson Stoke
Arnar Þór Viðarsson Lokeren
Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea
Marel Baldvinsson Stabæk
Sævar Þór Gíslason Fylkir
Jóhannes Karl Guðjónsson Real Betis
Ólafur Stígsson Molde
Gylfi Einarsson Lilleström
Ívar Ingimarsson Wolves
Hjálmar Jónsson IFK Gautaborg
Landsliðsþjálfari: Atli Eðvaldsson
FYRRI VIÐUREIGNIR:
Ísland - Andorra 3-0
EM í Reykjavík 4. september 1999.
Mörk Íslands: Þórður Guðjónsson, Her-
mann Hreiðarsson og Eiður Smári
Guðjohnsen.
Andorra - Ísland 0-2
EM Andorra 27. mars 1999.
Eyjólfur Sverrisson, Steinar Adolfsson.
RIÐILL ÍSLANDS
FYRIR EM 2004
Þýskaland 5*
Ísland 54*
Skotland 60*
Litháen 98*
Færeyjar 123*
Næstu leikir:
7. sep. Færeyjar - Skotland
7. sep. Litháen - Þýskaland
12. okt. Litháen - Færeyjar
12. okt. Ísland - Skotland
16. okt. Ísland - Litháen
16. okt. Þýskaland - Færeyjar
*Sæti á heimslista
EIÐUR SMÁRI
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari segir að
Eiður Smári Guðjohnsen sé alveg búinn
að ná sér af þeim meiðslum sem hafi
verið að hrjá hann.
„Getum aldrei
vanmetið neitt lið“
Ísland mætir Andorra í æfingaleik klukkan 19.30 á Laugardalsvelli. Landsliðsþjálfarinn segir
leikmenn Andorra vera líkamlega sterka. Hann sé þó fyrst og fremst að hugsa um fyrstu leikina í
undankeppni EM í október.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Ka
na
rí
sól og
sumar
allt
ári›
fyrir 4ra manna fjölskyldu
í 19 daga 30. nóvember
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára
Innifalið: Flug, gisting á Aloe, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman
Ver›dæmi
Flugsæti
45.140 kr.
69.630 kr.
staðgr.
á mann án flugvallarskatta.
staðgr.
staðgr.
44.930 kr.