Fréttablaðið - 21.08.2002, Síða 14

Fréttablaðið - 21.08.2002, Síða 14
14 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Paul McCartney afboðaðikomu sína á Kennedy Center Honours hátíðina þar sem átti að verðlauna hann sérstaklega fyrir ævistarf hans. Ástæðan var sú að hann langaði frekar að vera viðstaddur brúð- kaup frænku sinnar. Á meðal heiðursgesta á afhendingunni verða George Bush Banda- ríkjaforseti og Elizabeth Taylor. Þar sem Bítilinn sá sér ekki fært að mæta og taka við verðlaunun- um var ákveðið að heiðra Paul Simon í staðinn. McCartney verða svo afhent verðlaun á næsta ári. McCartney er fyrsti maðurinn í 25 ára sögu verð- launaafhendingarinnar til þess að afboða komu sína. Sparibaukur NSync söngvar-ans Lance Bass hlýtur að vera byrjaður að titra af stressi því nú hefur rússneska geim- ferðastofnunin gefið piltinum út vikuna til þess að greiða 20 millj- óna dollara far- gjald sitt til al- þjóðlegu geim- stöðvarinnar. Ef Bass borgar ekki verður annar sendur í hans stað. Bass er víst búinn að greiða stóran hluta gjaldsins en talsmenn hans segja meginástæðu þess að meira sé ekki komið til stofnunarinnar vera þá að rússneska bankakerf- ið sé meingallað. Umboðsmenn piltsins eru búnir að safna styrkjum frá fyrirtækjum og verður geimbúningur hans hlað- inn auglýsingum frá skyndibita- stöðum, gosdrykkjaframleiðend- um og fatamerkjum. Rokkstjörnurnar BruceSpringsteen og Jon Bon Jovi hafa kært eigendur bars eins í Pennsylvaníu fyrir að leika lög sín stöðugt í leyfis- leysi. Springsteen segir að að lag sitt „Born in the U.S.A.“ sé leikið þar ótt og títt án þess að hann hafi fengið krónu borg- aða fyrir það. Sömu sögu er að segja um Bon Jovi lagið „Wanted Dead or Ali- ve“. Staðurinn er vinsæll hjá mótorhjólaköppum. Samkvæmt lögum ber öllum börum að greiða stefgjöld af þeirri tónlist sem leikin er fyrir gesti og hef- ur staðurinn víst ekki sinnt því í langan tíma. Bassaleikari hljómsveitarinn-ar Redd Kross hefur tekið upp á því að hljóðrita bassa við öll lög The White Stripes plöt- unnar „White Blood Cells“. Nið- urstöðuna er hægt að heyra á BÆKUR „Þetta er bók um stelpu sem fer sem au pair til Brussel eftir stúdentspróf. Þar ætlar hún að finna sig og læra að verða betri manneskja, en það tekst nú ekki,“ segir Elísabet „Betarokk“ Ólafs- dóttir um nýja bók sína sem kem- ur út hjá Forlaginu fyrir jólin. Þetta er fyrsta bók Betu, sem hef- ur lítið fengist við skriftir fram að þessu. „Ég fór sjálf til Brussell og var au pair,“ segir hún. „Þar skrif- aði ég vinkonu minni ógrynnin öll af pósti og fékk bakteríuna þar. Ég sendi henni endalausar djamm- sögur og þegar ég kom heim fór ég að vinna sem blaðamaður. Svo fann ég fyrir tilviljun diskettuna með öllum e-mailunum og ákvað að nota punktana og skrifa skáld- sögu,. Sagan er skrifuð í 1. per- sónu og er auðvitað að einhverju leyti sannsöguleg, en engan veg- inn að öllu leyti.“ Aðalpersónan í bókinni er Lísa, en Beta segist hafa byrjað á því í Frakklandi að kynna sig sem Elisabeth of Iceland. „Það er svona einka- brandari sem ég ákvað að halda í og gengur eins og bleikur þráður í gegnum bókina.“ En hver er Lísa of Iceland? „Hún er drykkfelld stelpa sem sefur hjá fullt af strák- um milli þess sem hún reynir að hugleiða og ná tökum á lífi sínu,“ segir Beta. Elísabet segir að Helen Field- ing, höfundur bókanna um Bridget Jones, sé uppáhaldsrit- höfundur sinn. „Hún er eiginlega bara uppáhaldskonan mín í heim- inum,“ segir Beta. „Ég tók einu sinni viðtal við hana fyrir Mogg- ann og þá féll ég algjörlega fyrir henni. Annars er ég hrifinn af fyndnum höfundum stelpubók- menntanna.“ Elísabet segir Lísu þó ekki minna á Bridgeti Jones, efnistökin séu allt önnur en hjá Fielding. En hvað með nafn á bók- ina? „Það eru nokkur nöfn sem koma til greina. Ég er með heima- síðu og ætla að hafa samkeppni á netinu um nafnið, ég bið fólk að THE SWEETEST THING kl. 8 og 10 MEN IN BLACK 2 kl. 4, 6 og 8 Sýnd kl. 4 og 6 m/ ísl. tali Sýnd kl. 4, 6 og 8 m/ ísl. taliSýnd kl. 5, 8, 10 og 11 Powersýning Sýnd kl. 4, 7 og 10kl. 6FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 6 og 8CLOCKSTOPPERS VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 6 ABOUT A BOY kl. 8 og 10.05MOTHMAN PROPHECIES 8 og 10.20 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10.30 kl. 10NOVOCAINE MURDER BY... kl. 10.10 VIT400 SCOOBY DOO kl. 4 og 6 VIT398 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali 4 og 6 VIT418 EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417 MR. BONES kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT415 BIG TROUBLE kl. 8 VIT406 VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 3.45 VIT410 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 420Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 422 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT 423 Ekkert fyllerí eða kynlíf í Fyrsta bók Elísabetar Ólafsdóttur, sem þekkt er undir nafninu Betarokk, k ir jól. Þetta er ævisöguleg skáldsaga, sem fjallar um nokkuð misheppnaða l að sjálfri sér. BETAROKK Djammsögur í tölvupósti til vinkonu urðu kveikjan að fyrstu skáldsögu Elísabetar Ólafsdóttur Hryðjuverkamenn gerakjarnorkuárás á Bandarík- in og hafa það takmark að etja Rússum og Bandaríkjamönnum saman í kjarnorkustríð. Ben Af- fleck tekst á síðustu stundu að afstýra því. Seinniparturinn af þessu hljómar nú ekki sérstak- lega sannfærandi. En þrátt fyr- ir að „Sum of All Fears“ (Það sem allir óttast) fari annað slag- ið út af sporinu og breytist í rómantískt hetjuævintýri er þetta hasarmynd í hæsta Hollywood-gæðaflokki. Tom Clancy skrifar ótrúlega sann- ferðugar stríðslýsingar og mun skemmtilegra er að sjá bíó- myndina heldur en pæla gegn- um herfræðilegar rannsóknir hans. Voðaverkin 11. september síðastliðinn staðfesta að raun- veruleikinn er alltaf mun ótrú- legri og skelfilegri heldur en rammasti skáldskapur. Þráinn Bertelsson Það sem allir óttast FR ÉT TA B LA Ð IÐ B IL LI heimasíðu sveitarinnar www.reddkross.com fram á mánudag. Á síðunni er svo hægt að vista plötuumslag þar sem bassaleikarinn hefur með tölvu- tækni bætt sér inn á myndina. Hann segir að með engu móti sé hann að reyna stinga upp á því við dúettinn að þau ætti að fá sér bassaleikara heldur sé þetta einungis óður til þeirra. Já, það er magnað hvað menn taka sér fyrir hendur í frítíma sínum. Aðdáendur Slipknot í Londonfá einstakt tækifæri þann 13. september að sjá söngvara sveit- arinnar grímulausan. Ástæðan er sú að þann dag mun hann árita plötu í Virgin Megastore með annarri hljómsveit sem hann er í. Sú sveit ætlar ekki að styðjast við grímur eins og allir liðsmenn Slipknot gera hvar sem þeir koma fram. Nýjasta kvikmynd EddieMurphy „The Adventures of Pluto Nash“ hefur fengið eina verstu útreið gagnrýnanda í Bandaríkjunum sem sögur fara af. Myndin fjallar um lögreglu- mann á tunglinu og hefur legið á hillunni í ein tvö ár. Ástæðuna segja kvikmyndaverin að tækni- brellurnar hafi verið það flókn- ar að ekki hafi verið mögulegt að gefa út myndina fyrr en gagn- rýnendur eru á einu máli um það að ástæðan sé önnur. Myndin sé víst svona hræði- leg. Einn gagnrýnandi orðaði það þannig; „Ef við myndum líkja þessari mynd við hund væri það móðgun við allar hundategundir.“ Það virðist því vera svo að hér sé um stjörnu- hrap Murphy’s að ræða. LEIKSTJÓRI: Phil Alden Robinson HANDRIT: Tom Clancy, Paul Attanasio AÐALHLUTVERK: Ben Affleck, Morgan Freeman, Alan Bates, Michael Byrne BÍÓDÓMUR Í HLUTVERKI JERRY SPRINGER Rick Bland í hlutverki sínu sem spjallþátta- kóngurinn Jerry Springer. Bland leikur í óp- eru um Springer sem hefur slegið rækilega í gegn á listahátíðinni í Edinborg. Viltu spara Tíma og peninga Láttu okkur um járnin Komdu með teikningarnar Við forvinnum járnið lykkjur, bita og súlur Vottaðar mottur 5,6,7mm 550 3600

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.