Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.08.2002, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 21.08.2002, Qupperneq 16
16 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGURÁ HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ? FÉLAGSSTARF 13.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Pílukast kl. 13.30. MYNDLIST Rebekka Gunnarsdóttir listakona í Hafnarfirði sýnir í Sjóminjasafni Ís- lands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og gler- verk sem hafa að mestu verið unnin á þessu ári. Aðal viðfangsefni myndanna er landslag, götumyndir og hús í Hafnar- firði. Sýningin stendur til 8. september og er opin alla daga frá kl. 13-17 á opn- unartíma safnsins. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Sýningin er fjölbreytt og sýnir þá miklu breidd sem ríkir innan félags- ins sem fagnar 30 ára afmæli sínu. Sýn- ingin stendur til 6. október. Sýning á nýjum verkum hafnfirska mál- arans Jóns Thors Gíslasonar er í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Á sýningunni eru málverk, grafík, vatnslitamyndir og teikningar. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 9. september. Grafiski hönnuðurinn og myndlistarkon- an, Valgerður Einarsdóttir, sýna verk sín á Kaffi Sólon. Sýningin stendur til 6. september. Listamennirnir Guðfinna Mjöll Magn- úsdóttir, Huginn Þór Arason, Hugleik- ur Dagsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Ragnar Jóansson, Pétur Már Gunnars- son, Riel Video, Sólvegi Einarsdóttir og Þormar Melsted sýna í Gallerí Nema hvað, Skólavörðustíg. Sýningin stendur til 25. ágúst. Arnfinnur Amazeen og Bryndís Erla Hjálmarsdóttir sýna í rými undir stigan- um í i8, Klapparstíg 33. Verkið sem þau sýna nefnist „Við erum í svo miklu jafn- vægi“ og er innsetning með ljósmynd og spegli. Sýningin stendur til 6. sept- ember. i8 er opið þriðjudaga til laugar- daga frá kl. 13.00-17.00. Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn G. Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33. Kristinn sýnir vatnslitaverk og útsaumað- ar myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki sýna þeir myndbandsverk sem þeir unnu í sameiningu ásamt söngvaranum Sverri Guðjónssyni sérstaklega fyrir sýn- inguna. Sýningin stendur til 12. október. i8 er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17. Í Apótekaraturninum, Austurstræti 16, stendur samsýningin Turnar í Reykja- vík. Þeir sem sýna eru: Bibbi, Birta Guð- jónsdóttir, Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Helgi Þórsson, Huginn Þór Arason, Hugleikur Dagsson, Ingrafn Steinarsson, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Magnús Logi Krist- insson, Orri Jónsson og Pétur Már Gunnarsson. Nú stendur yfir í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 sýningin Úr fórum gengins listamanns. Á sýningunni eru verk Jóhannesar Jóhannessonar (1921-1998), vatnslitamyndir, pastel og teikningar. Sýningin stendur til 28. ágúst. MIÐVIKUDAGURINN 21. ÁGÚST BÓKMENNTIR Rithöfundurinn Guð- bergur Bergsson hefur lagst í það verkefni að skrifa skáld- sögu „í beinni útsendingu“ á Netinu. Sagan mun opinberast lesendum, og höfundi sjálfum, í litlum dagsskömmtum á heima- síðu JPV útgáfunnar, www.jpv.is, frá og með morgun- deginum. „Ég nota þá aðferð að ég gef mér svona rúman klukkutíma til þess að skrifa á dag,“ útskýr- ir Guðbergur. „Vandinn er sá að ég get engu breytt eftir á og verð því að halda áfram út frá því sem ég hef gert hverju sinni.“ Guðbergur segist ekki hugsa það mikið fyrirfram hvað hann ætli að skrifa á hverjum degi þrátt fyrir að sagan og persónur séu byrjaðar að mótast í huga hans. Einnig bannar hann sjálf- um sér að lesa það sem búið er skrifa dagana áður. „Höfuð- vandi minn er að forðast að falla í eigin gryfju. Að sagan fari að verða lík því sem ég hef gert áður. Þetta er bein frásögn og það er erfitt að móta persónur og atburðarás því ég hef lítið svigrúm. Eftir því sem ég vinn lengur geri ég mér grein fyrir því að ég verð að skipuleggja persónur og flétta þær saman innan atburðarrásarinnar. Ég þarf líklega að nota aðra klukku- stund í skipulagningu áður en ég byrja að semja á daginn.“ Guðbergur segir það koma að góðu gagni að hafa reynslu af því að skipuleggja sögur í höfð- inu. Eldri verk sín segist hann hafa unnið að stóru leyti í hug- anum áður en eiginleg skrif hófust. Einn heimsþekktur rithöf- undur hefur lagst í svipað verk og Guðbergur gerir nú. „Það var Stephen King. Fólk þurfti að borga til þess að hafa aðgang að sögunni. Hann gafst upp og kláraði hana aldrei. Fólk þarf ekkert að borga til þess að fá að- gang að minni sögu. Þetta er ekki gert í gróðarskyni, heldur bara að gamni mínu.“ Í inngangi sögunnar virðist Guðbergur fremur svartsýnn á heildarútkomuna. Hann gengur jafnvel svo langt að segja að sagan verði á endanum „hrylli- leg“. „Já. Hún verður það. Bæði söguefnið og líka það að höfund- urinn á eftir að lenda í hryllileg- um vanda,“ segir hann hlæj- andi. „Þá reyni ég að bjarga mér. Það verður ævintýri fyrir mig að leggja út í þetta.“ Engin áform eru um að gefa út söguna í bók eftir að hún hef- ur verið kláruð. biggi@frettabladid.is Hryllilegt netævintýri Guðbergs Á morgun hefst birting á Hryllilegri sögu Guðbergs Bergssonar á heimasíðu JPV útgáfu. Guðbergur eyðir klukkustund á dag í að skrifa söguna, má engu breyta eftir á og segist sannfærður um að niðurstaðan verði hryllileg. GUÐBERGUR BERGSSON „Ég færi inn í þetta hvenær hvaða dags hver hluti er saminn og á hvaða degi. Síðan hef ég hugsað mér fyrir bókmenntafólk að skrifa einhvers konar P.S. skilgreiningu á því sem gerðist í höfðinu á mér þegar ég geri þetta. Ég er samt ekki byrjaður á því ennþá.“- Halldór Guðjónsson Á tímum Kringlunnar. MENNING Í heimsókn forseta Ís- lands í Eyjafjarðarsveit á dögun- um afhenti Anton Antonsson, tré- listamaður frá Gilsá í Eyjafjarð- arsveit, útskorna gestabók sem er gjöf til íslensku þjóðarinnar í til- efni landafundaafmælisins árið 2000. Í tilefni af þessum tímamót- um ákvað Anton að framleiða fá- eina tugi útskorinna gestabóka og jafnframt að tvö fyrstu tölusettu eintökin yrðu gjafir til Íslendinga og Bandaríkjamanna. Bók númer tvö var á sínum tíma afhent Hill- ary Clinton, þáverandi forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún kom í heimsókn til Íslands í tilefni af ráðstefnunni Konur og lýðræði árið 1999. Anton hefur þegar fengið staðfestingu á því að bókin er nú varðveitt í Hvíta húsinu í Washington. Tækifæri hafði ekki gefist fyrr en nú fyrir forseta Íslands að veita gjafaeintakinu til ís- lensku þjóðarinnar viðtöku í Eyjafjarðarsveit. Ólafur Ragnar Grímsson sagði við þetta tæki- færi að þessum vandaða og fal- lega grip yrði fundinn staður á forsetasetrinu á Bessastöðum. Við sama tækifæri afhenti Anton forseta Íslands og fjölskyldu hans útskorna bók til minningar um Guðrúnu Katrínu Þorbergs- dóttur, forsetafrú.  GJÖF TIL ÍSLENSKU ÞJÓÐARINNAR Ólafur Ragnar Grímsson veitti viðtöku aldamótagestabókinni úr hendi Antons Antonssonar. Útskorin aldamótagestabók: Ólafur og Hillary fengu eintak 1 METSÖLULISTI 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU BÆKURNAR Á AMAZON.COM Mel Levine A MIND AT A TIME Nicholas Perricone THE PERRICONE PRES... Alice Sebold THE LOVELY BONES Schoenfeld, Semple-Marzetta LOOK GREAT NAKED Tom Clancy RED RABBIT Caroline Myss SACRED CONTRACTS Sean Hannity LET FREEDOM RING Alan Shipnuck BUD, SWEAT AND TEES Jim Collins GOOD TO GREAT Ann H. Coulter SLANDER Amazon.com: Lærum á misjafnan máta BÆKUR Vinsælasta bókin á vefsíð- unni Amazon.com er bókin A Mind at a Time eftir dr. Mel Levine. Í bókinni bendir Levine á misjafna styrkleika barna til að læra. Bendir hann á að ekki sé um lakari greind að ræða heldur þurfi að breyta að- ferðum við lærdóminn. Leitast Levine við að leiðbeina foreldrum og kennurum hvernig best sé að takast á við vandamálin Árangur- inn leiði til gleði og ánægju barna í skólum í stað stöðugs vanmáttar. 

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.