Fréttablaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 21. ágúst 2002
TÓNLIST Þrátt fyrir að rétt tæplega
40 ár séu liðin frá því að kántrí-
söngkonan Patsy Cline fórst í
flugslysi er von á henni í plötu-
búðir á nýjan leik. Um er að ræða
safnplötu hennar vinsælustu laga
þar sem hljómgæði allra laganna
hafa verið endurbætt til muna.
Upprunaleg útgáfa safnplötunnar
hefur selst í 10 milljónum eintaka
frá því að hún kom fyrst út árið
1967.
Einnig kemur út platan „Rem-
embering Patsy Cline“ þar sem 11
þekktar söngkonur taka lög henn-
ar upp á sína arma. Þar á meðal
verða söngkonunnar Diana Krall
sem syngur „Crazy“, Natalie Cole
sem syngur „I Fall To Pieces“,
Michelle Branch sem syngur
„Strange“, Amy Grant sem syng-
ur „Back In Baby’s Arms“, Lee
Ann Womack sem syngur „She’s
Got You“, kántríprinsessan K.D.
Lang flytur „Leavin’ On Your
Mind“ og Norah Jones sem mun
flytja lagið „Why Can’t He Be
You“.
Patsy Cline:
Rís úr gröfinni
PATSY
Á næsta ári verða 40 ár liðin frá því
að Patsy Cline fórst í flugslysi.
Þakdúkar og
vatnsvarnalög
➜ Þakdúkar og vatnsvarnalög á:
➜ Þök
➜ Þaksvalir
➜ Steyptar rennur
➜ Ný og gömul hús
Unnið við öll veðurskilyrði
Sjá heimasíðu www.fagtun.is
FAGTÚN
Brautarholti 8 sími 562 1370
Góð þjónusta ogfagleg ábyrgðundanfarin 20 ár
ANNA NICOLE SMITH
Ekkja eins ríkasta olíujöfurs heims, Anna
Nicole Smith, er á milli tanna flestra
Bandaríkjamanna þessa dagana. Ástæðan
er sú að nú hefur hafið göngu sína sjón-
varpsþátturinn „The Anna Nicole Show“
sem byggist á því að myndavélar elta hana
út um allt og birta hvað það sem kemur
fyrir í hennar daglega lífi. Hún hefur átt í
hörkudeilum við son fyrrum eiginmanns
síns um arf.
Robert de Niro:
Kærir vegna
afmælis-
myndar
FÓLK Leikarinn Robert De Niro
hefur lagt fram kæru upp á eina
milljón dollara á hendur fyrirtæk-
is sem tók ljósmynd af honum og
starfsbróður hans Sean Penn
blása á kerti tertu í 58 ára afmæl-
isveislu hans. Þeir eiga afmæli á
sama degi og var myndin tekin í
sameiginlegri veislu þeirra fé-
laga, þann 17. ágúst, í fyrra á þaki
íbúðar De Niro’s í TriBeCa hverf-
inu í New York.
Fyrirtækið reyndi að selja
blöðum myndina og birtist hún að
minnsta kosti í einu bandarísku
slúðurblaði samkvæmt lögfræð-
ingum leikarans.
Ástæðan fyrir lögsókninni
segja talsmenn De Niros vera að
ljósmyndarinn hefði svindlað sér
inn í einkaveisluna í þeim eina til-
gangi að græða peninga. Tals-
menn fyrirtækisins fullyrða hins-
vegar að maðurinn hafi verið
boðsgestur. Hvort það hafi í raun
verið hversu mörg kerti voru á
kökunni sem var svona viðkæmt
mál hefur ekki verið gert opin-
bert.
KAKKALAKKAR SEM GÆLUDÝR
Þótt sumum finnist það eflaust ótrúlegt eru kakkalakkar eins og þessir hérna afar vinsæl
gæludýr í Bangkok. Þessir gæjar eru hreinræktaðir risakakkalakkar frá Madagaskar. Yfir-
völd í Thailandi hafa varað almenning við því að versla sér kakkalakka frá Afríku í þeim til-
gangi að rækta þá. Stjórnvöld þar í landi halda því fram að þeir geti verið heilsuspillandi
ef þeir komast undan eigendum sínum.
LISTIR Einn merkasti myndhöggv-
ari Spánverja, Eduardo Chilida,
lést í svefni sínum í heimahúsi í
gær. Hann var 78 ára að aldri og
hafði barist lengi við
Alzheimer sjúkdóminn og
króníska lungnabólgu.
Hann öðlaðist viðurnefnið
„járnmaðurinn“ vegna
risavaxinna járnverka
sinna.
Hann var einn af
þekktari listamönnum
Evrópu og auðkenndar
höggmyndir hans hafa
verið reistar um víða ver-
öld.
Juan Carlos Spánar-
konungur hefur vottað
honum virðingu sína. Í
heimabæ hans, San Sebastian,
flaggaði ráðhúsið í hálfa stöng en
á lóð þess stendur eitt verka hans.
Chilida vann til fjölda verð-
launa á ævi sinni og var
meðlimur í mörgum heið-
ursfélögum listamanna
um allan heim.
Eitt af þekktari verkum
hans heitir „Berlin“ og er
nálægt Chancellery í
Berlín. Það sýnir tvær risa-
vaxnar járnhendur og á að
tákna sameiningu vestur-
og austur Þýskalands.
Lík Eduardo Chillida
verður brennt og aska hans
geymd á Chillida safninu
sem er í Baska borginni
Hernani.
Einn merkasti myndhöggvari Spánverja:
Járnmaðurinn
Chillida látinn
BERLIN
Hér sjást vinnumenn færa listaverk Eduardo Chillida, „Berlin“, fyrir framan Chancellery í
Berlín í júní síðastliðnum. Höggmyndin er ein af frægari verkum Chillida.
EDUARDO
CHILLIDA
Lést í svefni sínum
eftir langa baráttu
við Alzheimer.
Hann var 78 ára
gamall.
The Rolling Stones:
Léku á leyni-
tónleikum
TÓNLIST Hljómsveitin The Rolling
Stones kom aðdáendum sínum í
Toronto, Kanada, verulega á óvart
þegar hún lék á leynitónleikum.
Um 250 manns, sem voru staddir
á staðnum Palais Royale í borg-
inni, urðu vitni af fyrstu tónleik-
um sveitarinnar í tæp þrjú ár.
Ástæðan fyrir uppátæki gaml-
ingjanna var að þeir eru við það
að hefja tónleikaferðalag um
heiminn í borginni. Þeir vildu
koma sér í réttan gír áður en lagst
væri í það að leika á risaleikvöng-
um en sveitin leikur varla á tón-
leikum þessa daganna nema það
séu að minnsta kosti 15 þúsund
manns að horfa.
Tónleikaför Rollinganna lýkur
á næsta ári í Japan en þess á milli
fara þeir um gjörvöll Bandaríkin,
Evrópu og Ástralíu.
ROBERT DE NIRO
Hvað sem þið gerið, ekki smella mynd af
honum í einkasamkvæmum.