Fréttablaðið - 21.08.2002, Page 22
22 21. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR
Góð heilsa eilíft þakkarefni
Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðarprestakalli, er 51 árs í
dag. Hefur hann í gegnum tíðina starfað á ýmsum vettvangi bæði fyr-
ir utan og með prestskapnum.
AFMÆLI
Svanfríður Jónasdóttir er þing-maður á besta aldri. Það kom
því mörgum á óvart þegar hún gaf
út yfirlýsingu þess efnis að hún
hyggðist ekki sækjast eftir endur-
kjöri í komandi kosningum. „Ég
er ekki hætt í pólitík. Bæði mun
ég gegna þingmennsku fram að
kosningum. Svo ætla ég ekki að
hætta að hafa skoðanir á þjóðfé-
laginu.“ Atvinnupólitíkus ætlar
hún ekki að vera eftir næstu kosn-
ingar.
Svanfríður hefur verið kjörinn
fulltrúi í 20 ár. Hún settist í bæj-
arstjórn Dalvíkur 1982 og ári síð-
ar varð hún varaþingmaður Al-
þýðubandalagsins og síðan vara-
formaður flokksins. „Það var
mjög margt sem réði ákvörðun
minni. Mér finnst að ég sé búin að
verja drjúgum hluta ævi minnar í
stjórnmálastörf. Ef að mig langi
til að gera eitthvað annað, sem
mig gerir, þá sé rétti tíminn til
þess nú.“
Svanfríður segir að ekkert sé
fastákveðið um framtíðina. Margt
spennandi sé að gerast. „Næsta
vor er ég í þeirri stöðu að ég get
skoðað hvað mér þykir vænlegast
og vonandi get ég haldið áfram
með farsælum hætti einhvers
staðar annars staðar.“ Hún neitar
því ekki að menntamálin séu
henni ofarlega í huga, enda
menntun hennar á því sviði en
Svanfríður er kennaramenntuð.
Hún segist líta með stolti yfir
farinn stjórnmálaveg. Hún hefur
verið í fararbroddi þeirra breyt-
inga sem leiddu til uppstokkunar
á vinstri væng stjórnmálanna.
„Ég hef fengið að kynnast mörg-
um spennandi hliðum á íslenskum
stjórnmálum. Ég er sátt við stöð-
una og ánægð með hvað Samfylk-
ingin hefur verið að styrkja sig.
Við förum mjög öflug inn í þennan
kosningavetur.“
Svanfríður Jónasdóttir hefur ákveðið að
bjóða sig ekki fram í næstu kosningum.
Hún á að baki 20 ára feril í eldlínu stjórn-
málanna.
Persónan
Ekki hætt í stjórnmálum
FÓLK Í FRÉTTUMHÚSIÐ
Björn Bjarnason, oddviti sjálf-stæðismanna í borgarstjórn,
mun ekki ætla að nýta sér skrif-
stofuaðstöðu sem stendur honum
til boða á vegum
borgarinnar í
Tjarnargötu.
Björn er eins og
kunnugt er ennþá
alþingismaður og
hyggur ekki á
breytingar á því.
Sem slíkur hefur
hann skrifstofu í Austurstræti
sem hann mun ætla að láta sér
nægja. Í þessu sambandi má geta
þess að Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, flokksbróðir Björns í borgar-
stjórninni, hefur heldur ekki not-
að skrifstofuaðstöðu borgarinnar
í Tjarnargötu. Vilhjálmur lætur
sér nægja skrifstofu í höfuð-
stöðvum Sambands sveitarfélaga
á Háaleitisbraut. Hann er for-
maður sambandsins.
Suma rak í rogastans þegarHjálmar Árnason, formaður
Vestnorrænaráðsins, upplýsti að
áhugi væri innan þess að stuðla
að ferjusiglingum milli okkar í
norðurheimi og fólks í vestur-
heimi. Þeim fer fjölgandi sem
telja það ekki hlutverk opinberra
sjóða að standa í atvinnurekstri
og þess vegna var mönnum
brugðið. Meining margra er sú að
sé rekstrargrundvöllur fyrir
ferjusiglingum þá verði til frjálst
félag um þær - annars verði þær
ekki að veruleika.
Útganga stuttbuxnadrengjannaí Sjálfstæðisflokknum vakti
athygli umfram þörf. Þó örfáir
kappsfullir drengir segi sig úr
flokki á það varla að vera stórmál.
Þar sem fjölmiðlar kepptust um
að ræða við strákana og gerðu úr
þessu heljarinnar mikið mál vant-
ar enn að spyrja þá, það er að
segja ef nokkur vill vita, hvort
þeir hyggist kjósa sinn gamla
flokk í komandi kosningum. Það
er trúlegt að Davíð Oddsson fái
atkvæði þeirra rétt eins og áður
þótt þeir hafi sagt sig úr flokkn-
um vegna óánægju með stefnuna.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að útgerð-
ir hvalaskoðunarbáta á Húsavík taka fulla
ábyrgð á farþegum sínum.
Leiðrétting
VIÐ BÆKURNAR Enn er rólegt um að litast við skiptibókamarkaði en væntanlega æsist leikurinn í næstu viku þegar starfsemi
grunn- og framhaldsskóla fer á fullt skrið.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
SVANFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR
Hún er sátt við stjórnmálaferilinn og
segir Samfylkinguna koma öfluga
inn í kosningaveturinn.
Fjölskylda nokkur var meðmatarboð. Þegar allir voru
sestir snéri mamman sér að sex
ára dóttur sinni og sagði: „Elskan
mín, vilt þú ekki biðja borðbæn-
ina?“ „Ég veit ekki hvað ég á að
segja,“ sagði litla stelpan feimin.
„Segðu bara það sama og ég
segi,“sagði mamman. Dóttirin
dró djúpt andann, laut höfði og
sagði: „Góði guð, hvers vegna í
andskotanum bauð ég öllu þessu
fólki í matarboð?“
SAGA DAGSINS
21. ÁGÚST
Njáll Þorgeirsson og fjöl-skylda hans voru brennd
inni á Bergþórshvoli í Landeyj-
um árið 1011 eins og lesa má
um í Brennu-Njáls sögu.
Örlygsstaðabardagi var háðurí Blönduhlíð í Skagafirði
árið 1238. Bardaginn er talinn
einn sá örlagaríkasti á landi hér.
Á sjötta tug manna féllu er
þrjár voldugustu ættir landsins
tókust á. Kolbeinn ungi Arnórs-
son vann sigur, með styrk Giss-
urar Þorvaldssonar. Sighvatur
Sturluson og Sturla sonur hans
féllu.
Ásgeir Sigurvinsson lék sinnfyrsta leik sem atvinnumað-
ur í knattspyrnu árið 1973. Ás-
geir var þá átján ára og hafði
skömmu áður skrifað undir
samning við belgíska félagið
Standard Liege.
Pálmi Matthíasson, sóknar-prestur í Bústaðaprestakalli,
fagnar í dag 51 árs afmæli sínu.
Pálma þarf vart að kynna. Þrátt
fyrir það vita ekki margir að
hann hefur í gegnum tíðina
starfað á ýmsum vettvangi bæði
fyrir utan og með prestskapn-
um. Sem dæmi um það er starf
lögreglumanns og fréttamanns.
„Það lá nærri að ég færi í lög-
regluna með námi mínu í guð-
fræðinni. Faðir minn, Matthías
Einarsson starfaði sem lögreglu-
maður hátt á fimmta áratug og
ég ólst upp við hliðina á lög-
reglustöðinni á Akureyri. Höfð-
um við bræður allir gengið vakt-
ina hjá honum. Síðan hélt ég
áfram í Reykjavík bæði hjá
Rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík og RLR. Þetta er með
betri skólum sem ég hef fengið
fyrir starf mitt í dag. Þarna var
kvika mannlífsins til umfjöllun-
ar bæði í gleði og sorg. Þetta er
reynsla sem ég vildi alls ekki
vera án.“
Pálmi var sóknarprestur í
Glerársprestakalli á Akureyri
árið 1982 til 1989. Allan þann
tíma starfaði hann einnig sem
dagskrárgerðarmaður og frétta-
maður hjá Ríkisútvarpinu, bæði í
útvarpi og sjónvarpi. „Þetta kom
til í heita pottinum. Jónas Jónas-
son kom að máli við mig og sagð-
ist vilja fá mig til að vinna að
svæðisútvarpinu með sér. Mér
leist nú ekki allt of vel á þetta
enda nýbúinn að ráða mig í
prestakallið. Jónas var það
ákveðin að hann lokaði fyrir mér
uppgöngunni úr heita pottinum
og sagðist vilja fá svar og það já-
kvætt.“
Pálmi steig sín fyrstu skref í
prestamennsku í Melstaðar-
prestakalli í V-Húnavatnssýslu.
Það var árið 1977. „Ég kom þarna
ungur og blautur á bak við eyrun
en var heppinn að mér mætti
gott fólk bæði umburðarlynt og
elskulegt. Þessi tími var mér og
fjölskyldunni minni afar dýr-
mætur. Ég lærði að meta náttúr-
una sem undur og stórkostlega
upplifun. Þá lærði ég að lesa ým-
islegt í rúnum nátttúrunnar sem
ég var ekki læs á áður.“
Pálmi segist ætla að verja af-
mælisdeginum við venjubundin
störf. Þá myndi hann gleðjast ef
fjölskyldan liti við um kvöldið.
„Fyrst og fremst er að njóta lífs-
ins og þakka fyrir það að vera þó
búinn að ná þessum árum stand-
andi í báðar fætur. Mér finnst
það eilíft þakkarefni.“
kolbrun@frettabladid.is
PÁLMI MATTHÍASSON
Pálmi hefur verið virkur í íþróttaheiminum hér á landi. „Ég var reyndar enginn afreks-
maður á því sviði sjálfur, þrátt fyrir að hafa haft löngun til að geta miklu meira. Bæði er
því um að kenna að maðurinn var kannski ekki allt of íþróttamannalega vaxinn bæði
þungur og þyngslalegur framan af. Síðan þegar krafturinn kom þá kunni maður sér ekki
hóf sem leiddu til erfiðra meiðsla.“
TÍMAMÓT
JARÐAFARIR
13.30 Steingrímur Harry Thorsteinson
prentari, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
15.00 Magnús Þorleifsson verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu.
AFMÆLI
Theodór Júlíusson leikari er 53 ára í
dag.
Pálmi Matthíasson, prestur er 51 árs í
dag.
ANDLÁT
Benedikt Snorri Sigurbergsson lést 17.
ágúst.
Ágúst Guðmundsson byggingarmeistari
á Ísafirði, lést 19. ágúst.
Hulda Ólafsdóttir, Barðastöðum 11,
áður til heimilis í Torfufelli 29, lést 17.
ágúst.
Ási Markús Þórðarson, Garðabæ, Eyr-
arbakka, lést 18. ágúst.
Ellinor Kjartansson frá Seli í Grímsnesi,
lést 18. ágúst.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Hótel Cabin verður kannskiekki minnst í sögu bygging-
arlistarinnar. Nema kannski fyrir
það að þar eru gluggalaus her-
bergi og góð nýting á plássi. Hús-
ið er byggt á rústum annars húss
sem heldur mun ekki eignast sess
í byggingasögunni. Klúbburinn
gamli sem kveikt var í. Ekkert
sannaðist um hver þar var að
verki.
Hús Klúbbsins þótti ekkert
augnayndi. Samt horfðu margir
eftir því með eftirsjá og þrá. Eins
og þegar Glaumbær brann og
fólkið fann sér annan samastað.
Sem var Klúbburinn.
Þeir sem voru upp á sitt allra
besta upp úr 1970 hugsa með hlý-
hug til þessa götuhorns. Horn
sem var byrjunarreitur margra
góðra stunda.