Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2002, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 28.08.2002, Qupperneq 4
4 28. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGURSVONA ERUM VIÐ SAMFYLKINGIN DREGUR Á VG Helstu breytingar á fylgi stjórnmálaflokk- anna, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, eru að fylgi Samfylkingar eykst og Vinstri- Grænna minnkar um 4 prósentustig á sama tíma og stjórnarflokkarnir standa í stað. Samfylkingin fengi rúmlega 25% og Vinstrihreyfingin-grænt framboð er með rúmlega 12%. Fylgi Frjálslynda flokksins er rösklega 2%. Sjálfstæðisflokkur fengi tæp- lega 42% og Framsóknarflokkur ríflega 17% ef kosið væri til Alþingis í dag. VIÐSKIPTI Kaup Flugleiða á eigin bréfum voru heimiluð á stjórnar- fundi fyrirtækisins síðastliðin miðvikudag. Í beinu framhaldi af því var hafist handa við kaupin. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, var hugsunin sú að félagið vill eiga bréf í sjálfu sér, bæði til að nýta í kaupréttarsamningum við lykilstarfsmenn og vegna þess að það er mat stjórnenda félagsins að þau séu góður fjárfestingar- kostur. „Tímasetningin er tilkom- in vegna þess að félagið er inn- herji og getur því bara keypt bréf nú í stuttan tíma eftir birtingu uppgjörs,“ segir Guðjón. Félagið keypti bréf sín á geng- inu 3,75 og er það nokkru hærra en meðalverð síðustu daga. Guð- jón segir að fleiri hafi verið að kaupa á sama tíma og takmarkað magn til sölu. Gengi bréfa sem Gaumur, fjárfestingarfélag Bón- usfjölskyldunnar, keypti var í kringum 3,5. Gengi bréfa Flug- leiða hefur í viðskiptum að undan- förnu verið á bilinu 3,5 til 3,7. Samkvæmt Flugleiðum var tilvilj- un að Gaumur var að kaupa á sama tíma og félagið sjálft.  BRÉFIN GÓÐUR KOSTUR Stjórn Flugleiða ákvað í síðustu viku að félagið keypti eigin bréf. Gaumur eignaðist um 10% hlut skömmu áður en félagið keypti sjálft. Kaup Flugleiða í sér: Ákveðin af stjórn fyrir viku JACK STRAW Hann flutti í gær ræðu um stjórnarskrá Evrópu á fundi hjá Verslunarráðinu í Edinborg. Utanríkisráðherra Bretlands: Vill stjórnar- skrá fyrir Evrópusam- bandið LONDON, AP Jack Straw, utanríkis- ráðherra Bretlands, segir nauð- synlegt að Evrópusambandið setji sér formlega stjórnarskrá. Slíkt plagg gæti endurvakið trú íbúa Evrópusambandsins á stofnanir þess, sem virðast oft býsna fjar- lægar frá hinum almenna borg- ara. Utanríkisráðherrann er í þessu á öndverðum meiði við fjölmarga andstæðinga Evrópusambandsins í Bretlandi, sem telja að stjórnar- skrá myndi veita kerfisköllunum í Brussel enn meiri völd og grafa undan fullveldi Bretlands.  Framboðsmál Sjálfstæð- isflokks í Reykjavík: Skýrast í september STJÓRNMÁL Viðbúið er að það muni skýrast í næsta mánuði hvort Sjálfstæðismenn í Reykjavík muni halda prófkjör til að velja á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar eða hvort önn- ur leið verði farin segir Margeir Pétursson, formaður kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ekki hefur verið haldið próf- kjör hjá reykvískum Sjálfstæðis- mönnum fyrir tvennar síðustu Al- þingiskosningar. Ljóst er að ef af prófkjöri verður mun vera eitt prófkjör fyrir bæði kjördæmin í Reykjavík samkvæmt prófkjörs- reglum Sjálfstæðisflokksins.  BILBAO, AP Arnaldo Otegi, leiðtogi Batasuna, stjórnmálaflokks að- skilnaðarsinnaðra baska á Spáni, segir að flokkurinn ætli að halda áfram starfsemi sinni ótrauður þrátt fyrir að bæði spænska þing- ið og spænskur dómari hafi bann- að starfsemi flokksins. Otegi seg- ir að flokkurinn ætli hugsanlega að fara með málið fyrir Evrópu- dómstólinn í Strasborg. Tugir flokksfélaga komu sér fyrir á skrifstofum flokksins í hafnarborginni Bilbao og dvaldist þar í fyrrinótt. Þeir biðu eftir því að lögreglan kæmi til að rýma skrifstofurnar. Baltasar Garzon dómari úr- skurðaði á mánudag að starfsemi flokksins skyldi bönnuð næstu þrjú árin meðan verið væri að rannsaka tengsl hans við aðskiln- aðarsamtökin ETA, sem beitt hafa hryðjuverkum í baráttu sinni fyr- ir sjálfstæði Baskalands. Þá sam- þykkti spænska þingið einnig á mánudaginn að banna starfsemi flokksins til frambúðar. Tilefnið var að flokkurinn hefur ekki for- dæmt sprengjuárás ETA sem varð tveimur að bana þann 4. ágúst síðastliðinn.  FLUTTIR ÚT Í LÖGREGLUFYLGD Félögum í stjórnmálaflokknum Batasuna var gert að yfirgefa skrifstofur flokksins í Pamplona á mánudagskvöldið eftir að starfsemi hans var bönnuð. Baskaflokkurinn Batasuna: Ætlar að starfa áfram þrátt fyrir bann AP /A R AN B ER R I PEKING, AP Flóð eru árviss atburður í Kína í kjölfar sumarrigninganna. Á hverju sumri bíður fjöldi manns milli vonar og ótta eftir því hvort flóðgarðarnir haldi meðan vatns- borðið hækkar jafnt og þétt í ám og vötnum. Nú síðast hafa íbúar við stöðu- vatnið Dongting í héraðinu Hunan glímt við sumarflóðin. Vatnsborðið náði hámarki þar um helgina og er í rénun. Flóðgarðarnir héldu að mestu og flestir sluppu með skrekkinn. Þó fóru nokkur þorp á kaf og um 2.000 manns þurftu að yf- irgefa heimili sitt. Ástand þetta má rekja margar aldir aftur í tímann. Bændur fyrri alda náðu sér í meira ræktarland með því að reisa flóðgarða með- fram ám og vötnum. Það kostar hins vegar þessa ár- vissu glímu við flóðin. Og iðulega tapast mannslíf í þeirri baráttu. Alls búa nú um það bil tíu millj- ónir Kínverja á landsvæðum þar sem flóðahætta getur skapast með- fram ám og vötnum. Stjórnvöld eru reyndar að vinna að því að flytja milljónir manna varanlega á brott frá þeim svæðum þar sem hættan er mest. Ekki er þó stefnt að því að tæma öll hættusvæðin af fólki. „Við getum ekki lifað án flóð- garða í Kína,“ segir Lu Jikang, yf- irverkfræðingur flóðavarna við Vísindaakademíuna í Peking. „Næstum öll stóru vötnin eru um- kringd flóðgörðum.“ Og meðfram ánni Yangtse í norðri eru flóðgarð- arnir hundruð kílómetra að lengd. Flóðgarðarnir eru af ýmsum gerðum, allt frá stórum stein- steypumúrum við stærri borgir á borð við Shanghai og Wuhan til minni flóðgarða úr mold og grjóti við smærri þorpin. Öldum saman hefur það verið talið helsta prófraun þeirra sem stjórnuðu Kína að halda flóðunum í skefjum. Kommúnistastjórnin lærði sína lexíu árið 1998 þegar rúmlega fjögur þúsund manns fór- ust í einum verstu flóðum sem komið höfðu áratugum saman. Síðan þá hefur miklum fjár- munum verið varið til að styrkja flóðgarða og skipuleggja flóða- varnir. Það virðist hafa skilað sér þetta árið. Á hinum eiginlegu flóðasvæðum hafa fáir látið lífið. Annars staðar í Kína hafa engu að síður um þúsund manns látist af völdum flóða og skriðufalla frá því í júní. Og þúsundir manna hafa flú- ið heimili sín til öryggis meðan flóðin ganga yfir.  Árviss barátta við náttúruna í Kína Flóðavarnir í Kína hafa staðist álagið nokkuð vel þetta árið. Öldum saman hafa Kínverjar þurft að glíma við flóðahættuna á hverju sumri. Stjórnvöld flytja milljónir manna burt frá mestu hættusvæðunum. LEIKA SÉR Í VATNSFLÓÐINU Kínverskir drengir leika sér í flóðavatninu á götu í Yueyang, skammt frá vatninu Dongt- ing. Sex borgir og tugir þorpa umhverfis vatnið hafa verið í hættu en flóðin eru nú í rénun. GLÍMT VIÐ FLÓÐIN Liðsmenn í borgaralegum hersveitum, flestir bændur af hættusvæðunum, bera sandpoka til að bæta í stíflur og flóðgarða við Dongting-vatn í Hunan. AP /G R EG B AK ER FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA Í JÚLÍ Samfylking 25% VG 12% Frjálslyndi fl. 2% Sjálfstæðisfl. 42% Framsóknarfl. 17% Halldór Blöndal, forseti Al-þingis, er í forsvari sex manna sendinefndar frá Alþingi sem heldur í dag í opinbera heim- sókn til Bremen í Þýskalandi í boði fylkisstjórnarinnar. Skipulagsstofnun leggur nú matá fyrirhugaða efnistöku í Und- irhlíðum. Hægt er að kynna sér tillöguna hjá stofnuninni og á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar. Frestur til að skila inn athuga- semdum rennur út 6. september. STJÓRNVÖLD

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.