Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 28. ágúst 2002 MEN IN BLACK 2 kl. 8 og 10 SWEETEST THING kl. 6, 8 og 10 STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 6Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.45 Sýnd kl. 5, 8 og 10.50 SÍMI 553 2075 REIGN OF FIRE kl. 4 STUART LITTLE 2 kl. 4 og 6 MINORITY REPORT kl. 6 og 9 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 Sýnd kl. 8 og 10.10 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4 VIT418EIGHT LEGGED FREAKS kl. 5 og 7 VIT 417 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 VIT 426Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10 VIT 422 Kvikmyndagerðamenn sýnanú Jóhannesi Páli Páfa II mikinn áhuga enda valdamikill maður með ein- dæmum. Ítalinn Pietro Valsecchi er þegar byrjað- ur að vinna að mynd um æskuár páfans, þegar hann hét Karol Wojtyla og þótti efnilegur mark- vörður í knattspyrnu. Nú hefur annar ítalskur kvikmyndagerða- maður, Lux Vide, lýst því yfir að hann sé einnig að gera mynd um páfann. Kvikmyndagerðamenn- irnir segja það ekki skipta máli hvor myndin komi út á undan. Þó er talið að sú mynd sem komi á undan út seljist frekar en sú seinni. Talið er að leikarinn JasonPriestley muni brátt snúa aftur á kappaksturbrautina. Priestley, sem sló í gegn í þáttunum um Beverly Hills 90210, lenti sem kunnugt er í al- varlegu slysi í síðasta mánuði þegar hann mis- sti stjórn á kappakstursbíl sínum. Hann þurfti í kjölfarið að dveljast á sjúkrahúsi en er nýút- skrifaður þaðan. „Það kæmi mér á óvart ef við sjáum hann ekki aftur á brautinni,“ sagði Jim Freuenberg, framkvæmdastjóri Kelly Racing, kappakstursliðs Priestley. Ólæti og dauðsfall á Leeds tónlistarhátíðinni: Hópslagsmál og kveikt í klósettum TÓNLISTARHÁTÍÐ Miklar óeirðir brutust út á lokadegi tónlistarhá- tíðarinnar í Leeds um helgina. Talið er að um 500 hátíðargestir hafi tekið þátt í slagsmálum og brennt tugi klósetta. Kalla þurfti til 200 manna lið úr óeirðalögregl- unni. Tveir lögreglumenn meidd- ust lítillega og tvær lögreglubif- reiðar eru taldar ónýtar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem óeirðir verða á hátíðinni og er jafnvel talið að henni verði hætt. Skipu- leggjendur hennar eru þó á öðru máli og segja hana eiga framtíð- ina fyrir sér. Þeir telja að innan við eitt prósent gesta hafi verið með skrílslæti. „Það meiddist sem betur fer enginn í látunum,“ var haft eftir einum skipuleggjanda. „Við ætlum ekki að gefast upp út af nokkrum svörtum sauðum. Við komum aftur til leiks á næsta ári og munum gera enn betur.“ Á sunnudag fannst 19 ára gam- all piltur látinn í tjaldi sínu. Að sögn vina hans hafði hann átt við hjartatruflanir að stríða og hafði setið að drykkju kvöldinu áður. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.