Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. ágúst 2002
ÖRYGGISMÁL Sævar Gunnarsson,
formaður Sjómannasambands Ís-
lands, reiknar ekki með því að Ís-
lendingar fari að huga að því að
setja þyngdartakamarkanir á sjó-
menn á næstunni. Norðmenn
hyggjast setja reglur um líkams-
þyngd sjómanna og miða við al-
þjóðlega staðla sem Evrópusam-
bandið styður. Samkvæmt þeim
mega sjómenn ekki vera meira en
30 kílóum yfir kjörþyngd sinni.
Sævar telur Íslendinga í broddi
fylkingar hvað öryggismál á
Norður-Atlantshafi varðar og á
ekki von á að íslenskum sjómönn-
um verði gert að lúta tilskipunum
af þessu tagi. Hann segir gild ör-
yggissjónarmið liggja að baki
hugmyndinni og sambandið mót-
mæli þeim ekki. Málið verði þó
vart tekið fyrir nema það berist
með formlegum hætti og Sævar
útilokar ekki að ef svo færi
myndu menn beita sér fyrir ein-
hverri rýmkun á þyngdartak-
mörkununum enda þekki hann
sjómenn sem séu í fínu líkamlegu
ástandi þó þeir standist ekki þessi
viðmiðunarmörk.
Þyngdartakmarkanir á sjómenn:
Langsótt að fara eftir fyrir-
fram gefnum stöðlum
SÆVAR
GUNNARSSON
Segir öryggissjónar-
mið geta réttlætt
ákveðnar takmark-
anir á líkamsþyngd
sjómanna, t. d.
með tilliti til þess
að allir geti komist
út um neyðarút-
ganga sem oft eru
aðeins gluggar.
UPPGJÖR Smáralind skilaði 316
milljóna hagnaði fyrstu sex mán-
uði ársins. Hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði var 260
milljónir. Enn eru 3.244 fermetr-
ar óleigðir í húsnæði Smáralind-
ar. Það er 8,3% af heildarleigu-
rými hússins. Frá opnun hafa
verið gerðir átta nýir leigusamn-
ingar fyrir rúmlega 2.100 fer-
metra verslunarrými. Smáralind
á í viðræðum við væntanlega
leigutaka og standa vonir til að
búið verði að leigja 95 - 97% af
húsnæðinu fyrir árslok. Stefnt er
að því að allt húsnæði verði í út-
leigu á árinu 2003.
Bókfært verð verslunarmið-
stöðvarinnar Smáralindar er
rúmir tíu milljarðar. Eigið fé fé-
lagsins er rúmir tveir milljarðar
og er eiginfjárhlutfallið 32%. Í
lok maí var gengið frá samkomu-
lagi við Ístak um lokauppgjör á
verksamningi og hefur sá samn-
ingur verið færður sem stofn-
kostnaður. Frá því að verslunar-
miðstöðin var opnuð hafa 4 millj-
ónir gesta komið í Smáralind.
Gert er ráð fyrir að sú tala verði
komin í 5 milljónir fyrir nóvem-
berlok.
Smáralind hagnast:
3.244 fermetrar óleigðir
FJÓRAR MILLJÓNIR
Gestir Smáralindar eru orðnir fjórar milljónir. Leigutekjur Smáralindar voru 420 milljónir á
fyrstu sex mánuðum ársins.
Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar ehf.
kt. 560702-2640, Súðarvogi 3-5,104 Reykjavík.
Húsasmiðjan hf.,
kt. 520171-0299, Súðarvogi 3-5, 104 Reykjavík.
Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar ehf. hefur keypt yfir 90% hlutafjár í
Húsasmiðjunni hf. Hluthafar Húsasmiðjunnar eru hvattir til að framselja
Eignarhaldsfélaginu bréf sín á næstu fjórum vikum.
Í samræmi við V. kafla laga nr. 34/1998, um starfsemi kauphalla og skipulegra
tilboðsmarkaða, sem og reglugerð nr. 432/1999, um yfirtökutilboð, er þeim
sem eignast hefur yfir 50% hlutafjár í skráðu félagi skylt að gera tilboð í alla
hluti félagsins. Í 24. og 25. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög, er heimild fyrir
aðila með yfir 90% hlutafjár í félagi að fara fram á að aðrir hluthafar í félaginu
sæti innlausn á hlutum sínum og hafa stjórnir Húsasmiðjunnar og
Eignarhaldsfélags Húsasmiðjunnar komist að samkomulagi um að sá réttur
verði nýttur.
Allir hluthafar, skv. hlutaskrá Húsasmiðjunnar í lok þriðjudagsins 27. ágúst
2002 fá senda tilkynningu og eyðublað til samþykkis innlausn.
Gögnin má einnig nálgast hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum og á vefsíðu
Búnaðarbankans, www.bi.is.
Innlausnarverð og greiðsluskilmálar
Innlausnarverð er 19 kr. fyrir hverja 1 kr. nafnverðs hlutabréfa í Húsasmiðjunni.
Verðið svarar til hæsta gengis sem Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar hefur
greitt fyrir hlutabréf í Húsasmiðjunni síðustu sex mánuði.
Frestur til að skila samþykki innlausnar rennur út kl. 16.00 miðvikudaginn
25. september 2002. Samþykki verður að hafa borist fyrir þann tíma, á þar til
gerðum eyðublöðum, til Búnaðarbankans Verðbréfa, þriðju hæð
Hafnarstræti 5, Reykjavík. Andvirði hlutabréfa verður staðgreitt innan tveggja
daga frá því að samþykki innlausnar berst.
Verði hlutabréf ekki framselt innan innlausnarfrests, verður andvirði þess greitt
á geymslureikning á nafni viðkomandi hluthafa. Frá þeim tíma telst
Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar réttur eigandi hlutarins og hlutabréf fyrri
eiganda er ógilt.
Umsjónaraðili
Búnaðarbanki Íslands hf., kt. 490169-1219, Austurstræti 5, 155 Reykjavík, hefur
umsjón með tilboði þessu fyrir hönd Eignarhaldsfélags Húsasmiðjunnar.
Tilkynning
til hluthafa Húsasmiðjunnar
Sími 525 3000 • www.husa.is
Hrefna sást í Vestmannaeyja-höfn í gærmorgunn. Allt bend-
ir til þess að dýrið hafi villst inn í
höfnina. Svo virðist sem um kálf
hafi verið að ræða en hann lónaði
undir Básaskersbryggju í rúmar
tvær klukkustundir. Í vetur villtist
hnúfubakur í höfnina en mikið hef-
ur verið um hrefnur í kringum
Eyjarnar í sumar. eyjafrettir.is
Hrefna sem undanfarna dagahefur haldið sig inni við Höfn í
Hornafirði strandaði á sunnudag-
inn miðja vegu milli Skarðsins og
Dynjanda. Þegar að var komið var
hún nýdauð og hófu menn þegar að
skera hrefnuna. Hvalskurðarmenn
höfðu á að giska 1,2 tonn af kjöti
upp úr krafsinu og stóð öllum til
boða að næla sér í bita. Kjötið er
geymt á bænum Sauðanesi. Þetta
var fullorðin hrefna, átta metra
löng og kálffull. Kálfurinn reyndist
vera 120 til 140 cm langur og vó 40
kg. Kálfurinn var strax settur í
frost en Hvalasafnið á Húsavík
hefur falast eftir honum. Kálfur-
inn verður því til sýnis á safninu á
næstunni. horn.is
Ómar Már Jónsson, nýráðinnsveitarstjóri Súðavíkurhrepps,
tekur formlega til starfa 15. nóv-
ember nk., en þangað til mun Frið-
gerður Baldvinsdóttir annast sveit-
arstjórastarfið. bb.is
INNLENT