Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 28. ágúst 2002 Bandarísk rannsókn: Koffein dregur úr húðkrabba- meini WASHINGTON, AP Koffein, efnið sem finna má m. a. í kaffi og í tei, getur minnkað hættuna á að fólk fái húð- krabbamein. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á tilraunamúsum við Rutgers háskólann í Bandaríkjunum. „Kom- ið var í veg fyrir myndun húð- krabbameins hjá 50-70% þeirra músa sem gefið var koffein,“ sagði Dr. Allan Conney sem hafði yfir- umsjón með rannsókninni.  INNLENT Breiðafjarðarferjan Baldurmun yfirgefa Breiðafjörðinn tímabundið þann 8. september. Skipið fer í slipp í um vikutíma, en Baldur skal á átján mánaða fresti fara í yfirhalningu sem þessa. Þar á eftir mun Baldur sigla milli lands og Eyja í tvær vikur og leysa af Vestmannaeyja- ferjuna Herjólf, sem fer þá í slipp erlendis. Baldur er svo væntan- legur aftur í Breiðafjörðinn um mánaðarmótin september - októ- ber. bb.is Hreppsnefnd Tálknafjarðar-hrepps fjallaði um málið á fundi fyrir skömmu og hvetur Vegagerð ríkisins til að sjá til þess að þjóðvegur 61 milli Brjánslækjar og Norðurárdals verði í sem bestu ásigkomulagi meðan ferjan Baldur er fjarver- andi. bb.is Verkalýðsfélag Vestfirðingahefur fest kaup á eignarhluta Sparisjóðs Vestfirðinga í húseign- inni að Hafnarstræti 4 á Flateyri. Verkalýðsfélagið Skjöldur átti fyr- ir einn fjórða, en það félag var eitt af þeim sex verkalýðsfélögum á Vestfjörðum sem sameinuðu starfsemi sína um síðustu áramót. Með eignarhaldi á þessu glæsi- lega húsnæði eru opnaðir mögu- leikar á aðstöðu til fjölbreyttara félagsstarfs og betri þjónustu við félagsfólk. bb.is Borgaryfirvöld samþykktu ígær tillögu Kirkjubygging- arsjóðs Reykjavíkur um 20 millj- óna króna styrk til sjö kirkna. Grensáskirkja fær hæsta styrk- inn eða 5,5 milljónir og Grafar- vogskirkja fær 4,5 milljónir króna. Breiðholtskirkja, Dóm- kirkjan, Hallgrímskirkja, Hvíta- sunnukirkjan Fíladelfía og Laug- arneskirkja fá á bilinu 1,5 til 2,5 milljónir hver. Úthlutun styrkj- anna átti að ljúka fyrir 1. mars á þessu ári en tafðist þar sem ganga þurfti frá nýjum sam- þykktum fyrir sjóðinn og til- nefna í stjórn hans. Föstudaginn 6. september fylgir Fréttablaðinu sérblað um heilsu- og líkamsrækt. Blaðinu verður dreift í íbúðir á höfuðborgarsvæðinu í um 68.500 eintökum. Auglýsendur eru minntir á að panta auglýsingar tímanlega. Skilafrestur á auglýsingum er þriðjudagurinn 3. september. Heilsublaðið Þarft þúað koma skýrum skilaboðum inn á 68.500 heimili? Auglýsingadeild Fréttablaðsins Sími: 515 7515 Netfang: auglysingar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.