Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 28. ágúst 2002
Nánari uppl‡singar í 800 7000 og
verslunum Símans um allt land.
lækka› ver› – betri fljónusta NONNI O
G
M
A
N
N
I l Y
D
D
A
•
N
M
0
7
0
5
8
/ sia
.is
BOSTON, AP Mikil eftirspurn hefur
verið eftir svonefndum MBA-
prófgráðum handa verðandi við-
skiptajöfrum þrátt fyrir að nám-
ið þyki bæði dýrt og erfitt. Ný
rannsókn bendir til þess að próf í
viðskiptastjórnun sé hugsanlega
ekki mikils virði þegar allt kem-
ur til alls.
Jeffrey Pfeffer og Christina
Fong við Viðskiptaháskólann í
Stanford í Bandaríkjunum gerðu
ítarlegar rannsóknir á gildi
MBA-námsins. Þau fóru í gegn-
um fjölmargar úttektir sem gerð-
ar hafa verið á MBA-námi í
Bandaríkjunum undanfarna ára-
tugi.
Þau komust að þeirri niður-
stöðu að í náminu læri menn fátt
sem í raun kemur að gagni í við-
skiptalífinu. Einnig komust þau
að því að til lengri tíma litið hefði
MBA-prófgráða lítil áhrif til
hækkunar á launum. Undantekn-
ingar frá þessu er þó MBA-nám
við allra virtustu háskólana.
Fullyrðingar þeirra hafa kall-
að á hörð viðbrögð frá skólum
sem bjóða upp á MBA-nám.
Ný rannsókn:
MBA-gráður sagðar lítils virði
Grænlensk sveitarfélög:
Grænlend-
ingar funda í
Hveragerði
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar 15 af 19
sveitarfélögum á Grænlandi verða
staddir hér á landi í næstu viku. Þá
verður haldinn ársfundur græn-
lenska sveitarfélagasambandsins
og hefur honum verið valinn staður
í Hveragerði.
Sveitarstjórnarmennirnir, sem
verða 47 talsins, munu ræða við
fulltrúa íslenskra sveitarfélaga um
hlutverk þeirra og reynslu í at-
vinnumálum auk þess að kynna sér
fjölda fyrirtækja á Suðurlandi og
suðvesturhorninu.
FÉLAGSÞJÓNUSTA Maður á fertugs-
aldri sem á við geðræn vanda-
mál að stríða og búið hefur á
vegum Félagsþjónustu Reykja-
víkur í fjölbýlishúsi Félagsbú-
staða á Vatnsstíg verður hugsan-
lega fluttur í hentugra umhverfi.
Hann virðist ófær um að sjá um
sig sjálfur.
Maðurinn hefur búið á Vatns-
stíg í nokkur ár. Hins vegar hef-
ur hann að mestu haldið til hjá
móður sinni. Frá því í vor hefur
hann þó dvalið að Vatnsstíg. Inn-
andyra hjá manninum mun vera
all hrikalegt um að litast. Til
dæmis mun líta út fyrir að hann
hafi ekkert hirt um að losa sig
við sorp í langan tíma.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur nú
manninnum verið hjálpað að
leita aðstoðar í félagslega kerf-
inu. Markmiðið er að hann fái
vistun við hæfi.
„Ef fólk sækir eftir félags-
legri þjónustu þá sækir það hana
til okkar. En eðli málsins sam-
kvæmt getum við ekki tjáð okk-
ur um mál einstakra notenda
þjónustunnar,“ segir Aðalbjörg
Traustadóttir, forstöðumaður
borgarhlutaskrifstofu Félags-
þjónustunnar í Skúlagötu 21.
Aðalbjörg segir þjónustuna
veitta að frumkvæði þeirra sem
eftir henni leita. „En stundum
fáum við upplýsingar um fólk
sem er lasburða og getur ekki
sjálft haft frumkvæði. Þá bjóðum
við fólki aðstoð,“ segir hún.
Maður sem er ófær um sjá um sig sjálfur í félagslegri íbúð:
Innlyksa í ruslahaug
VATNSSTÍGUR 11
Velunnarar manns sem stríðir við
geðræn vandamál vilja að hann kom-
ist úr félagslegri íbúð í þessu húsi og
undir læknishendur.
SKIPULAGSMÁL Frestur til að skila
inn athugasemdum vegna fyrir-
hugaðrar byggðar í Norðlinga-
holti rennur út í dag. Byggingar-
svæðið, sem er um 72 hektarar,
afmarkast af Breiðholtsbraut,
Suðurlandsvegi, Bugðu og Elliða-
vatni. Stefán Hermannsson borg-
arverkfræðingur sagði að gert
væri ráð fyrir að byggja um 1.100
íbúðir á svæðinu. Borgarafundur
um málið var haldinn í Selásskóla
í fyrrakvöld.
Töluverðrar óánægju hefur
gætt á meðal sumra íbúa í Selás-
hverfi og hesthúsaeigenda með
skipulagstillöguna. Stefán sagði
að fjöldi eiganda væru á landinu,
en mikið af húsum þar væru ekki
með neitt leyfi. Borgin hefði verið
að kaupa land á svæðinu og bæta
mönnum þær eignir sem þeir
hefðu misst. Á fjórða hundrað
hestar væru skráðir í Norðlinga-
holti og í samningum við hest-
húsaeigendur hefði þeim verið
veittur forgangur að lóðum á
þeim hesthúsabyggðum sem verið
væri að skipuleggja í borgarland-
inu, m. a. á svæði austan Rauða-
vatns. Einnig hefðu þeir fengið
bætur og gætu því keypt hesthús
á almennum markaði.
Stefán sagði að í skipulagstil-
lögunni væri gert ráð fyrir 22 ein-
býlishúsum og rúmlega 200 íbúð-
um í sérbýli, restin yrði fjölbýlis-
hús. Á borgarfundinum var þetta
gagnrýnt, þ. e. hversu fáum ein-
býlishúsum væri gert ráð fyrir.
Stefán sagði að skipulagsyfirvöld
hefðu verið á þeirri skoðun að til
að þétta byggð á höfuðborgar-
svæðinu væri ástæða til að draga
úr byggingu einbýlishúsa og rað-
húsa og byggja frekar tvíbýlishús
og fjölbýli. Áður hefði reglan ver-
ið sú að þriðjungur hefði verið
einbýlishús, þriðjungur raðhús og
þriðjungur fjölbýli. Horfið hefði
verið frá þessari reglu í síðustu
skipulagstillögum.
Nokkrir íbúar í Seláshverfi
hafa gagnrýnt að vegna fyrirhug-
aðrar byggðar skerðist útsýni
þeirra mikið. Stefán sagði að þeg-
ar verið væri að byggja borg væri
algengt að einhverjir misstu út-
sýni. Menn hefðu engan ótvíræð-
an rétt á útsýni þó þeir hefðu haft
það um einhvern tíma. Stærstu
húsin á svæðinu yrðu sex hæðir.
Stefán sagði að ef allt gengi að
óskum ættu framkvæmdir í Norð-
lingaholti að geta hafist á næsta
ári. Næsta skref væri að fara yfir
þær athugasemdir sem myndu
berast. Að því loknu yrði tillagan
lögð fyrir borgarráð.
trausti@frettabladid.is
Um 1.100 íbúðir
í Norðlingaholti
Frestur til að skila inn athugasemdum rennur
út í dag. Borgarverkfræðingur segir að fram-
kvæmdir gætu hafist á næsta ári.
HÁDEGISMATUR Ekki sér fyrir end-
ann á deilum foreldra skólabarna
í Vesturbæjarskóla og skólastjór-
ans um tilhögun matarmála í skól-
anum. Foreldrarnir vilja að börn-
in fái heitan mat að borða í hádeg-
inu á hverjum degi en skólastjór-
inn segir fjárveitingar einungis
duga til að dreifa mat þrisvar í
viku. Foreldrum þykir það ein-
kennilegt ekki síst þar sem
fræðsluyfirvöld í Reykjavík hafa
fallist á að styrkja matarkaupin
með niðurgreiðslum.
Kristín Andrésdóttir, skóla-
stjóri Vesturbæjarskóla, bendir
hins vegar á að styrkurinn taki
einungis til matarkaupanna sjál-
fra. Það sé síðan skólans að dreifa
matnum og þar komi fjárskortur í
veg fyrir að hægt sé að koma mat
til nemenda alla daga vikunnar.
Hún hafi ekki tök á að bæta við
mannskap til að dreifingin gangi
upp en stefnt sé að því að auka
þessa þjónustu hægt og bítandi og
vonir standi til að mat verði dreift
til nemenda alla vikuna á næsta
ári.
VESTURBÆJARSKÓLI
Foreldrar skólabarna telja að styrkur frá
fræðsluyfirvöldum eigi að tryggja börnun-
um heita máltíð alla daga vikunnar. Skóla-
stjórinn er ekki á sama máli og segist ekki
hafa mannskap til að dreifa mat nema
þrisvar í viku.
Vesturbæjarskóli:
Foreldrar
vilja mat
alla vikuna
NORÐLINGAHOLT
Stefán Hermannsson
borgarverkfræðingu
sagði að í skipulags-
tillögunni væri gert
ráð fyrir 22 einbýlis-
húsum og rúmlega
200 íbúðum í sér-
býli, restin yrði fjöl-
býlishús.