Fréttablaðið - 17.09.2002, Síða 8

Fréttablaðið - 17.09.2002, Síða 8
17. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR MIÐBÆRINN „Ég ætla að byrja í vik- unni,“ segir Vilhjálmur Knudsen kvikmyndagerðarmaður sem um áratugaskeið hefur sýnt ferða- mönnum eldgosamyndir sínar og Ósvalds föður síns í vinnustofu sinni í Hellusundi í Reykjavík. Þar hefur Vilhjálmur nú hannað margmiðlunarsýningu þar sem áhorfendur upplifa sjálfa sig í miðju eldgosi með rennandi hraun allt um kring, eimyrju í vitum og sprengidrunur í víðómi. Notast Vilhjálmur við nýjustu tækni í sýningu sinni en þetta framtak hans mun vera án hliðstæðu í ver- öldinni: „Sviðið tekur mest sex manns en þarna getur fólk líka staðið eitt eða tveir saman. Þá hugsa ég þetta einnig sem skemmtun fyrir starfsmannafélög og aðra sem vilja gera sér glaðan dag,“ segir Vilhjálmur sem tekur viðbrögð áhorfenda upp á myndband sem þeir geta síðan tekið með sér heim. Á myndbandinu sést þá allt, eldgosið og skelfingu lostnir áhorfendur í því miðju. Kvikmyndastúdíó Vilhjálms Knudsen er í Hellusundi 6, beint fyrir ofan sendiráð Breta og Þjóð- verja við Laufásveg. Er það ein- kennt með stórum, rauðum steini við inngang enda kallar Vilhjálm- ur vinnustofu sína og sýningarsali „The Red Rock Cinema“ í kynn- ingabæklingum á ensku.  Vilhjálmur Knudsen hannar margmiðlunarsýningu án hliðstæðu: Áhorfendur í miðju eldgosi ÓTRÚLEGT EN SATT Tveir drengir í miðju eldgosi. American Media-bygg- ingin í Bandaríkjunum: Ljósritunar- vélar dreifðu miltisbrand- inum BOCA RATON, FLÓRÍDA, AP Bandaríska alríkislögreglan, FBI, telur að ljósritunarvélar séu ástæðan fyr- ir því að miltisbrandur barst um gjörvalla skrifstofubyggingu American Media fjölmiðlafyrir- tækisins á síðasta ári. Bréf með miltisbrandi hafði borist póst- deild fyrirtækisins sem er á fyrstu hæð í hinni þriggja hæða byggingu. Þegar bréfið var opnað fór miltisbrandsduftið m. a. á ljós- ritunarpappír sem þar var ná- lægt. Þegar pappírinn var síðan settur í ljósritunarvélar fyrirtæk- isins, sem eru um tuttugu talsins, barst miltisbrandurinn út í loftið í gegnum viftu inni í vélunum. Fulltrúar FBI hófu rannsókn á byggingunni að nýju í síðasta mánuði og stóð hún yfir í 12 daga. Höfðu vangaveltur verið uppi um hvernig miltisbrandurinn gat dreifst um alla bygginguna út frá einu bréfi. Einn starfsmaður American Media lést af völdum miltis- brandsins og var hann sá fyrsti af fimm manns sem létust af þeim völdum í Bandaríkjunum í fyrra. Annar starfsmaður fyrirtækisins sem starfaði í póstdeildinni smit- aðist einnig af miltisbrandi en komst lífs af.  FASTEIGNAMARKAÐUR Fækkun varð á innkomnum umsóknum Íbúða- lánasjóðs í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra. Nemur fækkunin rúmum 4%. Þróun í umsóknum og útlánum Íbúðalánasjóðs bendir til samdráttar. Viðbótarlán og til- flutningur úr félagslega kerfinu yfir í húsbréfakerfið vega upp þann samdrátt sem er í öðrum lánaflokkum. Þegar litið er til fyrstu átta mánaða ársins er greinileg aukn- ing í lánum vegna eldra húsnæðis, en samdráttur er í öðrum flokkum svo sem eins og lánum til nýbygg- inga. Samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs er ekki fyrirséð hvenær dregur úr viðbótarlánum og yfirfærslu milli kerfa. Þegar slíkt gerist munu koma fram sterk samdráttareinkenni í útlán- um sjóðsins. Samdráttur er í leiguíbúðalán- um. Sá samdráttur helst í hendur við aukningu viðbótarlána. Út- lánaaukning í viðbótarlánum er 1,2 milljarðar. Ef viðbótarlána nyti ekki við má reikna með að stór hluti þess hóps sem tekur slík lán væri á leigumarkaði.  Viðbótarlán og tilflutningur aukast: Íbúðalánasjóður spáir samdrætti SAMDRÁTTUR Gera má ráð fyrir að húsbréfaútgáfa dragist skarpt saman um leið og dregur úr viðbótarlánum og tilflutningi úr félagslega kerfinu yfir í húsbréfakerfið. NANJING, AP Grunur leikur á að rottueitur hafi valdið dauða fjöl- da manns í borginni Nanjing í austanverðu Kína. Stjórnvöld hafa ekki gert uppskátt um fjölda þeirra, sem látist hafa, en segja að meira en 200 manns hafi veikst og tugir manns látið lífið, þar á meðal börn. Allt þetta fólk virðist hafa sýkst eftir að hafa borð- að mat frá skyndi- bitastað nokkrum í útjaðri borg- arinnar. „Rannsókn á sýnishornum sem send voru frá sjúkrahúsum leiddi í ljós að um rottueitur var að ræða,“ sagði embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið. „Nú er okkur ljóst að þetta er sakamál,“ sagði formælandi borgarstjórnarinnar í Nanjing. Margir þeirra, sem urðu fyrir eitruninni, eru nemendur við ung- lingaskóla í nágrenninu. Einnig eru margir aðfluttir verkamenn meðal hinna sýktu. Sömuleiðis nemendur og kennarar við her- skóla í borginni. Nemendurnir í unglingaskól- anum fá daglega mat sendan frá skyndibitastaðnum. Samkvæmt frásögn dagblaðs veiktust nem- endurnir heiftarlega strax eftir að hafa borðað fáeina matarbita. Þeir hræktu blóði og féllu niður meðvitundarlausir. Þeir fengu einkenni matareitr- unar eftir að hafa snætt rétt með steiktum brauðstöngum, sesam- kökum og hrísgrjónum. „Það er alveg óbærilegt að horfa upp á ung börn deyja fyrir framan augun á manni og sjá for- eldra þeirra gráta af örvænt- ingu,“ var haft eftir ónefndum lækni í dagblaðinu. Kínversk stjórnvöld eru vön því að hamla eftir getu frétta- flutningi af atburðum af þessu tagi, sem gætu varpað skugga á ímynd stjórnarinnar. Ekki síst núna, þegar styttast fer í flokks- þing Kommúnistaflokksins í nóv- ember þar sem búist er við því að Jiang Zemin forseti láti af emb- ætti flokksleiðtoga. Þrátt fyrir það hafa borist margar fréttir af atburðum ekki ósvipuðum þessum. Fjöldamatar- eitrun hefur iðulega orðið vegna þess að veitingahús hafa reynt að spara með því að nota eitruð iðn- aðarsölt í staðinn fyrir matarsalt. Þá eru dæmi þess að kokkar hafi í misgripum sett rottueitur eða önnur eiturefni í mat.  Hundruð manna verða fyrir matareitrun Talið að tugir manna hafi látist af völdum rottueiturs í mat frá skyndi- bitastað í Kína. Stjórnvöld forðast að veita upplýsingar. Mörg börn meðal hinna látnu. LJÓSMYNDARA VÍSAÐ Á BROTT Lögregluþjónninn reyndi að koma í veg fyrir myndatöku meðan rannsóknarmenn voru að athafna sig á skyndibitastað, sem talið er að rekja megi matareitrunina í Nanjing til. „Það er alveg óbærilegt að horfa upp á ung börn deyja fyrir framan augun á manni og sjá foreldra þeirra gráta af örvæntingu.“ AP /M YN D BUSH Svo virðist sem Bush hafi stuðning þjóðar- innar á bak við sig gagnvart hernaði í Írak. Bandarískar skoðanakannanir: Meirihluti fylgjandi hernaðarað- gerðum WASHINGTON, AP Tveir þriðju hlutar Bandaríkjamanna styðja hernaðar- aðgerðir gegn Írak samkvæmt tveimur skoðanakönnunum sem tímaritið Newsweek og „This Week“- fréttaþátturinn á ABC- sjónvarpsstöðinni stóðu fyrir. Flestir þeir sem tóku þátt í Newsweek-könnuninni töldu að hernaður gegn Írak muni mæta mikilli andstöðu gagnvart Banda- ríkjunum á meðal arabaþjóða og að hernaðurinn gæti leitt til þess að Írakar noti efna eða sýklavopn gegn Ísrael eða Bandaríkjunum.  LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGLUFRÉTTIR Írski þingforsetinn: Skoðar írskar sögu- slóðir HEIMSÓKN Rory O’Hanlon, forseti neðri deildar írska þingsins, er staddur hér á landi í fimm daga opinberri heimsókn í boði Hall- dórs Blöndals, forseta Alþingis. O’Hanlon ferðaðist um Norð- austurland í gær og heldur því áfram í dag. Á morgun snæðir hann hádegisverð á Þingvöllum í boði Davíðs Oddssonar, forsætis- ráðherra. Í kjölfarið heldur hann í skoðunarferð um írskar söguslóð- ir á Akranesi og Kjalarnesi. Á morgun fundar hann með fulltrú- um þingflokkanna.  Nokkuð var um skemmdarverkí Hafnarfirði um helgina. Rúður voru brotnar á þremur stöðum auk þess sem tveir bílar urðu fyrir skemmdum. Þá voru fimm rúður í tveimur strætóskýl- um við Hlíðarberg brotnar. Eitt rúðubrot var tilkynnt í Garðabæ þar sem unglingar höfðu ekki komist inn á heimili þar sem þeir töldu vera gleðskap og vildu komast í. Tuttugu og þrjú umferðar-óhöpp þar sem eignartjón varð voru tilkynnt til lögregl- unnar í Reykjavík um helgina. Þar af leituðu þrír ökumenn á slysadeild vegna eymsla. Þá voru tuttugu og tveir ökumenn teknir fyrir hraðakstur og sex ökumenn voru grunaðir um ölv- un við akstur. Ellefu ökumenn voru stöðvaðir fyrir að hafa ekið gegn rauðu ljósi og fjórir öku- menn sinntu ekki stöðvunar- skyldu. Þrjátíu og sjö útköll voru hjálögreglunni í Reykjavík vegna ölvunar á almannafæri og tuttugu og níu vegna hávaða. Í einu tilfella var tilkynnt um konu sem var að berja hús að utan í miðborginni. Nágrönnum leiddust barsmíðarnar sem héldu fyrir þeim vöku og kölluðu á lög- reglu. Hafði konan ætlað að gista hjá vinkonu sinni sem var ekki komin heim. Þá var lögregl- an beðin að fjarlægja ölvaðan mann við hús í miðborginni. Hann hafði elt konu heim til hennar og reyndi með barefli að komast inn í húsið. Heimilisfólk- ið kannaðist ekki við manninn sem var færður á lögreglustöð. NÓG Á SINNI KÖNNU Ekki ætla ég að fara að taka það að mér að rit- skoða kirkjuna. Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður. DV, 16. september. BRÚÐULEIKHÚSIÐ Í ÁSLANDI Ég var strengjabrúða Krístrún Lind Birgisdóttir, fyrrverandi skólastjóri Áslandsskóla. DV, 16. september AF KÓNGUM OG RÁÐGJÖFUM Ég tek mjög mikið mark á henni. Hún hefði í síðustu viku mátt taka meira mark á mér - en so be it. Össur Skarphéðinsson um Ingibjörgu Sólrúnu. DV, 14. september. ORÐRÉTT 8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.