Fréttablaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 12
12 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGURFÓTBOLTI
Á LEIÐ FRÁ ÍTALÍU
Suður-Kóreski leikmaðurinn Ahn Jung-
hwan fagnar hér marki sem hann skoraði
gegn Ítalíu í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu. Hann er á leið til Shimzu S-
Pulse í Japan frá ítalska liðinu Perugia.
Kevin Keegan, knattspyrnu-stjóri Manchester City, segist
vera á höttunum eftir öðrum
framherja við hlið Nicolas An-
elka. Frakkinn skoraði sitt fjórða
mark á tímabilinu þegar
Manchester City gerði jafntefli
við Blackburn á laugardaginn
var. Keegan segist ekki sáttur við
aðra framherja liðsins en þeir
eru sex talsins. Hann hefur hótað
því að leita að nýjum framherja
þegar markaðurinn opnar á ný í
janúar.
Nígeríski framherjinn JuliusAghahowa hefur staðfest
þann orðróm að enska úrvals-
deildarliðið Bolton, sem Guðni
Bergsson spilar með, sé á höttun-
um eftir honum. Aghahowa segist
hafa áhuga á að spila á Englandi.
Bolton hugðist semja við hann
fyrir tveimur vikum en náði að
ganga frá samningnum áður en
leikmannamarkaðurinn lokaði.
Liðið hyggst ná samningi við
hann þegar leikmannamarkaður-
inn opnar á ný.
FÓTBOLTI
PARÍS, AP „Ég vissi að það byggi
eitthvað sérstakt í mér. Nú get ég
sagt að ég sé fljótasti maðurinn
sem nokkurn tímann hefur hlaup-
ið 100 metrana,“ sagði Tim
Montgomery eftir að hafa bætt
heimsmetið í 100 metra hlaupi um
eitt sekúndubrot um síðustu helgi
með því að hlaupa á 9,78 sekúnd-
um. „Ég vissi að ég var í frábæru
formi og í dag gekk allt fullkom-
lega upp. Vindurinn var fullkom-
inn, viðbragðstími minn var nán-
ast fullkominn (0,104) og maður
þarf á því að halda ætli maður sér
að setja heimsmet,“ sagði kappinn
eftir hlaupið á laugardaginn sem
háð var í París.
Montgomery, sem er 27 ára
gamall Bandaríkjamaður, sneri
sér að frjálsum íþróttum eftir að
meiðsli bundu enda á feril hans
sem ruðningskappi. Hann sýndi
fljótt mikla hæfileika sem sprett-
hlaupari og aðeins 19 ára gamall
hljóp hann 100 metrana á 9,96 sek-
úndum. Miklar vonir voru því
bundar við hann í greininni en
hann náði ekki að standa undir
þeim sem skyldi.
Montgomery hefur þó náð góð-
um árangri í gegnum árin án þess
samt að slá virkilega í gegn. Hann
vann bronsverðlaun á heims-
meistaramótinu árið 1997 og á
HM fjórum árum síðar lenti hann
í öðru sæti á eftir Maurice
Greene, fyrrverandi heimsmet-
hafa. Einu stóru gullverðlaunin
sem hann hafði unnið þar til um
síðustu helgi vann hann í 4x100
metra hlaupi með boðhlaupsveit-
um Bandaríkjanna á heimsmeist-
aramótinu í fyrra og á Ólympíu-
leikunum í Sidney.
Þáttaskil urðu á ferli
Montgomery þegar hann fékk
nýjan þjálfara árið 1999, þann
sama og nú þjálfar spretthlaups-
konuna Marion Jones, sambýlis-
konu Montgomery. „Ég vissi að
þegar ég byrjaði á stífri æfinga-
dagskrá þar sem ég æfði sex sinn-
um í viku og lagði mikla auka-
vinnu á mig að eitthvað stórt ætti
eftir að gerast,“ sagði
Montgomery.
Undanfarin ár hefur
Montgomery staðið í skugganum
af frægum spretthlaupurum á
borð við Maurice Greene og
Dwaine Chambers. Kappinn
hafði hins vegar alltaf trú á sjálf-
um sér og lýst hann því m.a. yfir
í viðtali fyrir nokkru síðan að
hann myndi bæta heimsmet
Greene, sem sett var fyrir þrem-
ur árum. „Ég vissi alltaf að ég
gæti bætt metið. Ég hljóp sex
sinnum undir 10 sekúndum árið
1997 og þá æfði ég bara þrisvar
sinnum í viku,“ sagði hinn nýbak-
aði heimsmethafi.
Vissi að eitthvað stórt
ætti eftir að gerast
Tim Montgomery hefur lengi staðið í skugganum af öðrum sprett-
hlaupurum. Hafði hins vegar alltaf trú á sjálfum sér. Bætti eigin árang-
ur um 6 sekúndubrot á laugardag og setti heimsmet í 100 metra hlaupi.
Maurice Greene:
Ætlar að
endurheimta
heimsmetið
SPRETTHLAUP Maurice Greene,
heims- og ólympíumeistari í 100
metra hlaupi karla, hefur heitið
því að ná heimsmeti sínu aftur sem
Tim Montgomery sló um helgina í
París er hann hljóp 100 metrana á
9,78 sekúndum. „Tíminn sem ég er
með í huga er 9,76“ sagði Green
eftir að hafa lent í 5. sæti á móti í
Yokohama á laugardaginn. „Þjálf-
arinn minn heldur að ég geti hlaup-
ið á níu komma sextíu og eitthvað
sekúndum, en það verður bara að
koma í ljós. Ég vissi þegar ég setti
metið að það myndi ekki endast að
eilífu, en það tilheyrir mér samt
sem áður,“ bætti hann við. „Mark-
mið mitt núna er að verja heims-
meistaratitil minn á næsta ári.“
SPRETTHARÐASTA PAR Í HEIMI
Montgomery og fótfráasta kona heims,
Marion Jones, faðmast innilega eftir að
heimsmetið var orðið staðreynd. „Tim er
afar metnaðarfullur og vakir oft í margar
klukkustundir til að fara yfir hlaupin sín.
Hann er afar tæknilega sinnaður eins og
ég,“ segir Jones.
HEIMSMETIÐ Í HÖFN
Tim Montgomery, lengst til vinstri, hleypur yfir endalínuna í Grand Prix hlaupinu á laugar-
daginn. Á hælum hans eru þeir Jon Drummond, Abdul Aziz Zakari, Kim Collin og Dwain
Chambers. Maurice Green tók ekki þátt í mótinu.
AP
/M
YN
DÍÞRÓTTIR Í DAG
17.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu
(Roma - Real Madrid)
20.40 Sýn
Meistaradeild Evrópu
(Valencia - Liverpool)
22.30 Sýn
Kraftasport (Suðurnesjatröllið
2. hluti)
00.50 Sýn
Golfmót í Bandaríkjunum (Air
Canada Championship)
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu gerði í gær 2-2 jafn-
tefli við það enska í umspili um
laust sæti á heimsmeistaramótinu
í knattspyrnu sem fram fer í Kína
á næsta ári. Olga Færseth kom ís-
lenska liðinu yfir með glæsilegu
marki þegar skammt var eftir af
fyrri hálfleik. Karen Walker jafn-
aði metin tveimur mínútum síðar.
Erla Hendriksdóttir skoraði með
skalla þegar tíu mínútur voru
liðnar af seinni hálfleik og allt leit
út fyrir að Íslendingar færu með
sigur af hólmi. Karen Walker lét
þó aftur til sín taka þegar þrjár
mínútur voru eftir af leiknum.
Hún hugðist senda boltann fyrir
markið en á einhvern ótrúlegan
hátt sveif boltinn yfir Þóru B.
Helgadóttur í markinu og inn.
Íslenska liðið var heppið í fyrri
hálfleik og áttu Englendingar
meðal annars tvö skot í stöng í eitt
í slá. Í seinni hálfleik sýndu þær
íslensku þó hversu megnugar þær
eru og voru óheppnar að sigra
ekki.
Seinni leikur liðanna fer fram á
St. Andrews-vellinum í Birming-
ham á sunnudag. Sigurvegarinn
mætir annað hvort Frökkum eða
Dönum í tveimur leikjum um
laust sæti á HM.
HART BARIST
Áhorfendamet var slegið í gær þegar um þrjú þúsund manns komu að sjá kvennalands-
liðið kljást við Englendinga.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu:
Óheppnar gegn
Englendingum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI