Fréttablaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.09.2002, Blaðsíða 24
Spurði lítil manneskja þegar henniofbauð lengda skólavistin. Það virðist að minnsta kosti ekki sérlega vel liðið, var svarið eftir langa um- hugsun. Lægðirnar komu fyrr í haust, sennilega vegna þess að skól- arnir byrjuðu fyrr. Þetta er frábært, sögðu vinnulúnir foreldrar, nú vitum við hvar börnin eru á daginn. Loks- ins er búið að opna barnageymslur ríkisins. Þó fyrr hefði verið. Smám saman má leggja af þetta úrelta sumarfrí. Tvær vikur á ári er nóg til að skjótast með alla á sólarströnd og vinda ofan af sér. Foreldrar mega ekki láta deigan síga og samfélagið gerir ekki ráð fyrir að þeir sinni uppeldismálum, nema þá helst í frí- stundum. NÁMSEFNIÐ er það sama, hvorki meira né minna. Geymsluverðir eiga fyrst og fremst að hafa ofan af fyrir krílunum. Ekki er verra að verðirnir framkvæmi örlítinn uppeldisgjörn- ing í leiðinni, kenni smáfólkinu að berja ekki frá sér og brúka munn, hrækja og kasta matvælum í gesti og gangandi. Allt er til þess vinnandi að krílin séu ekki eftirlitslaus heima hjá sér eða úti að leika. Þar eru þau stór- hættuleg - gætu búið til reyksprengj- ur, bakað vandræði, kveikt varðelda, reykt njóla, stolið hjólkoppum, legið á húsþökum og brotið rúður. AÐALATRIÐIÐ er að pottormar hafi nóg fyrir stafni - vakni sjö, gleypi morgunverð og þjóti í geymsl- ur. Eftir skóla má láta þau spila á hljóðfæri, æfa íþróttir, stunda heim- spekinám og sjálfsvarnartækni fram á kvöld og þá er enginn kvöldverður því hann eiga þau að fá í hádeginu í barnageymslunum. Súrmjólk og ser- íós og allir í rúmið. Ef krílið er með mótbárur gerir gæðastund með tölv- unni eða öflugu myndbandi undra- verðustu kraftaverk. Það er enginn barnaleikur að vera barn í dag. KANNSKI MÁ ALA ÞAU UPP um helgar, séu þau ekki of upptekin við sýningar og héraðsmót. Gallinn er bara sá að finnist dauð stund fer krílið að rausa um að leika sér, finna aðra stubba til að hendast með. Og þar sem enn er leyfilegt að leika sér fer lítið fyrir samverustundum stub- banna við stóra fólkið. Skyndilega er kominn mánudagur og dagskráin svo stíf að jafnvel stuttar samræður geta raskað skipulagi svo um munar. Geymsluverðir minna örmagna á að þeirra hlutverk hafi einhvern tímann verið að kenna málfræði og marg- földun, en ekki mannasiði.  SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Má aldrei leika? Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur Grensásvegi 12 • Sími: 533 2200 FRÁBÆR PIZZA Á FRÁBÆRU VERÐI! Byggðu á þínum tíma Grafarvogi Vestur í bæ Kópavogi Ármúla

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.