Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 16

Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 16
16 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? NÁMSKEIÐ 20.00 Íslenska Kristskirkjan heldur kynn- ingu á Alfa að Bíldshöfða 10. Á Alfa eru mikilvægustu þættir krist- innar trúar kynntir í lifandi fyrir- lestrum og umræðuhópum. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir og að- gangur ókeypis. MYNDLIST Sýningin Þrá augans - saga ljósmynd- arinnar er í Listasafni Íslands. Sýningin lýsir þróunarskeiðum ljósmyndarinnar frá um 1840. Sýningin stendur til 3. október. Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í Listasafninu á Akureyri. Málverkasýningin Stælarer í Gallerí nema hvað, Skólavörðustíg 22c. Þátttak- endur eru Árni Bartels, Davíð Örn Hall- dórsson, Guðmundur Thoroddsen og Ragnar Jónasson. . Sýningin stendur til 22. september og er opin milli 14 og 18. Sýning Kimmo Schroderus og Charlottu Mickelsson í Gallerí Skugga. Á jarðhæð, í aðalsal og bakatil, sýnir Kimmo skúpltúra sem bera yfirskriftina „Tilfinningar“. Charlotte nefnir verk sitt í kjallara Gallerí Skugga „Kjallari“, en þar umbreytir hún rýminu með gagnsæjum gúmmíþráðum. Björn Lúðvíksson heldur yfirlitssýningu á Sjúkrahúsinu og Heilsugæslustöðinni á Akranesi í tilefni 50 ára afmælis stofn- unarinnar. Ólöf Björg myndlistarmaður sýnir í Galleríi Sævars Karls, málverk, hluti, hljóð og lykt. Sýning á verkum Eero Lintusaari skart- gripahönnuðar og Harri Syrjanen gull- smiðs og leðursmiðs sýnir í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg. Sýningin verð- ur opin mánudaga til föstudaga frá 10 til 18 og laugardaga frá 11 til 16. Sýning- unni lýkur 25. september. Ásdís Spano sýnir olíuverk á Kaffi Sól- on. Sýningin stendur til 27. september. Í Rauða Húsinu á Eyrarbakka sýnir Hafliði Magnússon, rithöfundur og teiknari, sýningu á lituðum teikningum með götumyndum frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi. ÞRIÐJUDAGURINN 17. SEPTEMBER LEIKHÚS Leikfélag Mosfellssveitar hefur hafið æfingar á nýju ís- lensku leikverki, Beðið eftir Go.com air, eftir Ármann Guð- mundsson sem einnig er leik- stjóri. Ármann fékk hugmyndina að leikritinu eftir að hafa lent, ásamt nokkrum löndum sínum, í hremmingum í Lundúnaferð með lággjaldaflugfélaginu Go.com. Leikurinn gerist í erlendri flugstöð þar sem hópur af Íslend- ingum bíður heimferðar. Þetta er einkar litskrúðugur hópur sem á það eitt sameiginlegt að vilja komast heim til ættjarðarinnar. Þegar endalausar tafir verða á fluginu reynir mjög á þolinmæði, háttprýði og aðlögunarhæfni þeirra. Flugfélagið sem þau eiga flug með starfar nefnilega ein- ungis á netinu og því getur reynst þrautin þyngri að hafa upp á full- trúum þess. Ármann var sjálfur stranda- glópur í rúman sólarhring þar sem aðstoðarflugmaður flugvélar Go mátti ekki fljúga í þoku: „Við vorum komin um borð í vélina þegar þokan skall á og okkur var vísað aftur inn í flugstöðina. Þar fengum við svo að dúsa tímunum saman án nokkurra skýringa. Pirraðir Íslendingarnir gátu því lítið annað gert en að horfa von- lausir á vélar annarra flugfélaga hefja sig á loft. Ármann segir enga eftirmála hafa orðið af ferð- inni: „Mér var að vísu lofuð end- urgreiðsla en hún hefur ekki borist enn.“ Ármann leggur áher- slu á að verkið fjalli ekkert sér- staklega um Go.com: „Við erum að bara segja frá hópi Íslendinga sem eru strandaglópar á óskil- greindum stað. Verkið varð svo auðvitað að heita eitthvað og þetta er það besta sem mér datt í hug.“ Félagar í leikfélagi Mosfells- sveitar hafa tekið virkan þátt í hugmyndavinnu og mótun verks- ins og Ármann segir sköpunar- ferlið hafa verið ákaflega skemmtilegt. Reynsla Ármanns er útgangspunkturinn en félagar hans hafa lagt til eigin reynslu- sögur úr utanlandsferðum. Pétur Pétursson er einn þeirra og hann segir leikarana enn vera að spin- na þó ekki sé nema mánuður í frumsýningu og sköpunarferlið muni verða lifandi allt þar til stíf- ar æfingar byrja. Um 25 leikarar taka þátt í uppfærslunni auk öfl- ugs hóps hönnuða og aðstoðar- fólks. Ráðgert er að frumsýna verkið í Bæjarleikhúsinu í Mos- fellsbæ þann 26. október. thorarinn@frettabladid.is Beðið eftir Godot com LEIKFÉLAG MOSFELLSSVEITAR Æfingar standa yfir á nýju íslensku leikriti sem segir frá vandræðum hóps Íslendinga í ferð á vegum flugfélagsins Go.com. Auður Davíðsdóttir Ég er að lesa bók sem heitir Tilfinningagreind. BÆKUR Almenna bókafélagið gefur í haust út minningar farand- söngvarans KK sem Einar Kára- son hefur skráð. Kristján Krist- jánsson kann frá ýmsu að segja enda hefur hann lifað viðburða- ríku og stormasömu lífi og farið sínar eigin leiðir jafnt í tónlist og einkalífi. AB gefur einnig út ævisögu Svanhvítar Egilsdóttur eftir Guð- rúnu Egilson, en Svanhvít er sá Íslendingur sem hefur haft einna mest áhrif í heimi sígildrar tón- listar. Hún stundaði söngnám og störf í Þýskalandi í skugga Hitlers og hörmunga heimsstyrj- aldarinnar síðari. Hún var um- deildur persónuleiki og þótti einkalíf hennar litríkt. Hún náði frábærum árangri sem söng- kennari og var ráðinn sem pró- fessor við virtan tónlistarháskóla í Vín. Þá hefur Ævar Örn Jósepsson safnað saman 101 sögu frá 31 leigubílstjóra í bókinni Taxi. Leigubílstjórar verða vitni að ólíklegustu uppákomum í aftur- sætinu og öllum viðmælendum Ævars ber saman um að allur andskotinn geti gerst í leigubíl- um.  Reynslusögur: Farandsöngur og skuggi Hitlers KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Lætur gamminn geisa í nýrri endurminn- ingabók þar sem sagnameistarinn Einar Kárason skráir það sem á daga söngvarans hefur drifið. Enn af Waris Dirie: Snýr aftur í Eyðimerk- urdögun BÆKUR JPV útgáfa gefur í haust út bókina Eyðimerkurdögun eftir sómölsku ljósmyndafyrirsætuna Waris Dirie. Hún lýsti hrikalegum uppvexti sínum meðal hirðingja í Sómalíu í metsölubókinni Eyði- merkurblóminu. Hún heldur áfram með sögu sína í Eyðimerk- urdögun og segir frá því þegar hún sneri heim að nýju, leitaði upprunans og hitti móður sína, föður og það fólk sem hún ólst upp með. Waris Dirie starfar áfram sem ljósmyndafyrirsæta en er jafn- framt sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum sem hefur það verkefni að reyna að snúa almenningsálit- inu í heiminum gegn umskurði á konum. Sjálf var hún sem lítil stúl- ka beitt slíku ofbeldi.  LEIKHÚS Þjóðleikhúsið frumsýndi um helgina nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson, Viktoríu og Georg. Í leikritinu segir frá ást- arsambandi sænsku skáldkon- unnar Victoriu Benedictsson og danska bókmenntajöfursins Ge- orgs Brandesar. Victoria stytti sér aldur á hótelherbergi í Kaup- mannahöfn árið 1888 og leitar leikritið meðal annars orsaka þessa harmleiks. Brandes var mikill eldhugi og ruddi raunsæisstefnunni braut á Norðurlöndum og hafði með fyr- irlestrum sínum sterk áhrif á ekki minni menn en Henrik Ibsen og Björnstjerne Björnson. Þeir sem kunnu síður að meta boðskap hans töldu hann guðleysingja og uppreisnarsegg, þannig að það verður varla skortur á heitum til- finningum á Litla sviði Þjóðleik- hússins í haust. Guðrún S. Gísladóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Nanna Krist- ín Magnúsdóttir leika í sýning- unni sem Hlín Agnarsdóttir leik- stýrir. Jóhann Jóhannsson semur tónlistina, lýsingu annast Ás- mundur Karlsson og Rebekka A. Ingimundardóttir sá um leik- mynd og búninga.  Litla sviðið: Heitar ástir bókmennta- frömuðar og skálds ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON Vinnur með ástir og örlög brautryðjandans Georgs Brandesar og skáldkonunnar Vict- oriu Benedictsson í nýju leikriti. Leikfélag Mosfellssveitar er að æfa nýtt íslenskt verk sem byggir á mislukkuðu ferðalagi höfundarins og leikstjórans með lággjaldaflug- félaginu Go.com. Eftirmálarnir urðu þó engir nema auðvitað eitt stykki leikrit. Hjá Forlaginu er komin út bók-in Leiðsögn um Mývatns og Mývatnssveit eftir Helga Guð- mundsson. Mývatn er einstakt náttúrufyrir- brigði og í bók- inni eru dregin saman höfuð- atriði í jarðfræði, náttúrufari, fuglalífi og mannlífi þessa sérstaka land- svæðis. Helgi hefur um árabil fengist við leiðsögn erlendra ferðamanna um Ísland og gjör- þekkir svæðið af eigin raun. BÆKUR PLATFORM Michel Houellebecq heldur áfram að móðga einstaklinga og hópa í nýju bókinni og hefur nú verið ákærður fyrir kynþátta- fordóma. Houellebecq umdeildur að vanda: Dreginn fyrir dóm- ara vegna niðrandi ummæla BÆKUR Franski verðlaunahöfund- urinn Michel Houellebecq mætir fyrir dómara í dag ákærður fyrir niðrandi ummæli um múslima og tilraun til að kynda undir kyn- þáttahatur. Það eru fern samtök múslima í París sem kærðu höf- undinn umdeilda fyrir niðrandi ummæli bæði í nýjustu bók hans, Platform, og tímaritsviðtali. Houellebecq er ekki óvanur illindum en í bók sinni Öreindirn- ar tókst honum að móðga nánast allt og alla. Hann hélt svo upp- teknum hætti í Platform, sem kemur út í íslenskri þýðingu í haust, og gekk of langt að mati múslima þegar hann lýsti því yfir í viðtali að Íslam væru vitlausustu trúarbrögð í heimi. Þá tók hann Biblíuna fram yfir Kóraninn þar sem hann telur hana mikið betur skrifaða. Houellebecq hefur hvor- ki viljað draga ummæli sín til baka né biðjast afsökunar á aðal- persónu Platform sem gleðst í hvert skipti sem „palestínskur hryðjuverkamaður“ er drepinn. Houellebecq segist krydda skáldsögur sínar með þessum við- horfum og segist sjá í þeim ákveð- inn húmor. „Hvað mér finnst svo sjálfum, persónulega, skiptir engu máli.“ Houellebecq hyggst skýra þankagang sinn fyrir réttinum og þekkt andlit úr frönskum bók- menntaheimi munu vitna honum til varnar. Verði hann fundinn sek- ur má hann eiga von á árs fangelsi og sekt upp á 52.000 evrur.  Sópranó fjölskyldan: Flugfreyjur svalla SJÓNVARP Ísland kemur við sögu í fyrsta þætti nýrrar raðar um Sópranó fjölskylduna þegar gengið kemst í náin kynni við íslenskar flugfreyjur á hóteli. Flugfreyjurn- ar eru víst hressar og það hitnar verulega í kolunum. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Flugleiða, segir fram- leiðendur þáttanna ekki hafa haft samband vegna þessa atriðis. Eftir því sem hann kemst næst er ekki beinlínis látið að því liggja að um flugfreyjur Flugleiða sé að ræða. Búningar þeirra séu ekki Flugleiða- búningar og Icelandair er aldrei nefnt á nafn, heldur eitthvert ímyndað Íslenskt flugfélag. 

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.